Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
fclk f
fréttum
COSPER
Bruce ásam
nýjustuk®r‘
ustunni .
sinni, OUviu
Brown.
vaUmaðunnn
BruceWUte
Við sögðum frá því í síðustu viku
að Bruce Willis hefði fengið
Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt
í „Hasarleik", en hann hefur fleiri
ástæður til að gleðjast þessa dag-
ana. Kvikmyndin „Óvænt stefnu-
mót“, þar sem Bruce leikur á móti
Kim Basinger, hefur fengið góðar
viðtökur hjá bæði áhorfendum og
gagnrýnendum, og plata hans „The
Retum of Bruno" hefur selst vel,
þó að gagnrýnendur séu sammála
um að Bruce kunni alls ekki að
syngja. Bruce segist alla tíð hafa
vitað að hann hefði leikhæfileika á
við Laurence Olivier, og kynþokka
sem fáar konur gætu staðist - það
hefði bara verið tímaspursmál hven-
ær heimurinn myndi uppgötva það
líka.
Þetta óbilandi sjálfstraust Bmce
hefur fleytt honum í gegn um mörg
erfíðleikatímabil, því hann hefur
Iengst af lapið dauðann úr skel,
þótt hann virðist aldrei hafa þurft
að skera við sig skemmtanir, sem
hann stundar grimmt. Bruce er
fæddur 19. mars 1955, og ólst upp
I hverfí þar sem ítalskir innflytjend-
ur voru í miklum meirihluta, og þar
tók hann sér nafnið Bruno til að
falla betur inn í umhverfið, og það
hefur fylgt honum síðan. Strax í
skóla lét Bruce mikið bera á sér,
hann var kosinn formaður skólafé-
lagsins, og það var reynt að reka
hann úr skólanum fyrir óspektir.
Bruce fór úr einu starfi í annað
eftir skóla, hann vann fyrir sér í
verksmiðjum og knæpum, og bjó í
lítilli íbúð í New York, þar sem
rottugangur var daglegt brauð.
Hann fékk smáhlutverk í auglýsing-
um og slíku, en stóru rullurnar á
Broadway létu standa á sér. Bruce
— Sjónvarpið mitt er svo lengi að hitna.
Aðals-
maðurinn
Elton
John
Elton John er vanur að fá það sem hann vill. Hann
dreymdi um að stjóma knattspyrnuliði, en enginn
vildi fá væskilslegan gleraugnaglám eins og Elton til
þeirra starfa, og þess vegna keypti Elton sér bara knatt-
spymulið. Ekki læknuðust allar sálarflækjur kappans við
það, en hann hefur lengi haft af því nokkrar áhyggjur
að vera ekki tekinn fullgildur í hópi aðalsfólks vegna
alþýðlegs uppmna síns.
Hann hefur nú leyst þetta vandamál á svipaðan hátt
og það fyrra, og keypt sér aðalstign. Hann íjárfesti í
einhverjum landskika á Spáni, þar sem einhvemtíma
hafði búið eitthvert fólk með blátt blóð í æðum, og lét
síðan hanna nýtt skjaldarmerki til að fylgja þessum virð-
ingarauka sem eignarhaldið á hoijörð þessarri er.
A skjaldarmerki Eltons er að finna ýmis tákn sem
minna á hinar tvær aðalástríður Eltons í lífinu, tónlistina
og knattspymuna; og efst á því trónir tónlistarguðinn
Pan, sem spilar á flautu og styður öðrum geitarfætinum
á fótbolta. Neðst er svo áletrun á spænsku: „E1 tono es
bueno", sem útleggst: „tónlistin er góð“. Það var hug-
leitt að setja einkennismerki Eltons, gleraugun, á skjaldar-
merkið, en á endanum var horfið frá því, því það þótti
of „gervilegt", og skjaldarmerkið á auðvitað að auka á
virðuleika Eltons.
Drottningarmóðirin:
Drottningarmóðirin þykir ekki
jafn meðvituð um tískuna og
yngra kvenfólkið í konungs-
fjölskyldunni, en hún kann að
klæða af sér kuldann í Kanada.
L
Vmsælust allra
í Bretaveldi
Elísabet drottningarmóðir hélt
upp á 87 ára afmælisdaginn
sinn um daginn, en þrátt fyrir háan
aldur er engan bilbug á henni að
fínna, og hún er engu óduglegri að
fara um á meðal íbúa Bretaveldis
en dóttir hennar og nafna, Elísabet
drottning. Af öllum þeim sem til-
heyra konungsfjölskyldunni bresku,
er drottningarmóðirin sú sem nýtur
mestrar Iýðhylli, og hún er sú eina
sem breska sóðapressan hlífir alveg
við ósmekklegu slúðri og sögusögn-
um.
Drottningarmóðirin nýtur sín
hvergi betur en í kringum „venju-
legt fólk“, og hún kom opinberlega
fram við 135 tækifæri í fyrra, eða
næstum því jafn oft og dóttir henn-
ar, drottningin. Nú nýlega heimsótti
hún knæpu eina í London, sem
hafði unnið einhveija keppni um
„heimilislegasta öldurhúsið", og við
það tækifæri lét hún sig ekki muna
um að drekka glas af dökku öli sem
hún hafði sjálf hellt sér í glas. Þá
þótti henni takst sérlega vel upp
þegar hún var í heimsókn í Kanada
fyrir skömmu, en þar átti hún m.a.
að halda ræðu í Quebec-fylki. Hinir
frönskumælandi íbúar þar eru víst
ekki par hrjfnir, pf ens^y kópgf\-
fólki, en eftir að drottningarmóðirin
hafði lokið ræðu sinni á lýtalausri
frönsku, þar sem hún minntist
æskuheimsóknar sinnar til fylkis-
ins, hafði hún unnið hug og hjörtu
allra viðstaddra, ef ekki allra Qu-
ebec-búa.
Það var annars tilviljun að Elísa-
bet Bowez-Lyon varð drottning á
sínum tíma, því hún var gift yngri
bróður Játvarðs krónprins
„Bertie" eins og hún kallaði hann
alltaf - sem varð Georg konungur
eftir að Játvarður kvæntist Wallis
Simpson og gaf upp krúnuna. Ge-
org var alls ekki undir það búinn
að gerast kóngur, því hann var alla
tíð hlédrægur og lítillátur, en hon-
um fórst það þó vel úr hendi, ekki
síst vegna röggsemi og skipulags-
gáfu hinnar vinsælu konu sinnar.
Eins og áður sagði er drottning-
armóðirin emari en margir þeir sem
yngri eru, t.d. lék hún bæði tennis
og krikket þar til fyrir nokkrum
árum síðan, þegar læknar réðu
henni frá því. Hún fann sér þá ró-
legri íþrótt, og stundar nú laxveiðar
í skosku vötnunum. Þá hefur
drottningarmóðirin mikinn áhuga á
dýrum, og þá sérstaklega hestum,
eins og allt gott kóngafólk í Eng-