Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD
Öruggur
sigur FH
á Þór
FH-ingar unnu öruggan sigur á
Þór frá Akureyri í gœr 36:21.
FH liðið var mun betra í leikn-
um þótt að Þórsarar hefðu
barist vel framan af leiknum.
Hafnfirðingar byijuðu með
miklum látum og virtust ætla
að kaffæra Norðanmenn í byijun.
En Þórsliðið barðist vel og gekk
FH ílla að stöðva Sigurð Pálsson í
sókninni. En smá saman náði FH
öruggu forskoti, drifið áfram af
mjög góðum leik Þorgils Óttars á
linunni.
í seinni hálfleik juku FH-ingar for-
skot sitt rólega og undir lok leiksins
gafst Þórsliðið upp. FH-ingar skor-
uðu þá sex mörk í röð án þess að
Þórsurum tækist að svara fýrir sig.
Leiknum lauk því með stórsigri FH
36:21.
Besti maður vallarins var Þorgils
Ottar og spilaði hann vel upp á
meðspilara sína. Annars er ein
sterkasta hlið FH liðsins hve marg-
ir leikmenn liðsins geta skorað
mörk en hjá Þór skoruðu tveir
menn Sigurður Pálsson og Sigur-
páll Ami Aðalsteinsson bróðurpart-
inn af mörkunum.
Bjöm Jóhannesson og Sigurður
Baldursson dæmdu leikinn og voru
heimamenn ekki ánægðir með
frammistöðu þeirra.
Kristján Sigmundsson
varði mjög vel í leikn-
um og hélt reyndar
Víkingum á floti í
fyrri hálfleik þegar
sókn þeirra var sem
slökust. Sigurður
Gunnarsson, sem nú
leikur með Víkingum
á ný var lengi í gang
og virkaði dálítið
þungur en hann náði
sér vel á stirk í síðari
hálfleik og þegar
hann hefur náð sér
að fullu af meiðslum
verður hann geysi-
sterkur.
Víkingur - IR
27 : 20
Laugardalshöll, íslandsmótið í 1. deild
karla, miðvikudaginn 30. sept. 1987.
Gangur leiksins: 4:4, 5:6, 7:7, 11:9,
16:10, 21:12, 21:18, 26:19, 27:20.
Mörk Víkings: Sigurður Gunnarsson
6, Guðmundur Guðmundsson 4, Bjarki
Sigurðsson 4, Siggeir Magnússon 4/1,
Karl Þráinsson 4/2, Hilmar Sigurgísla-
son 3, Ámi Friðleifsson 2.
Varin skot: Kristján Sigmundsson 17/4
Mörk ÍR: Frosti Guðlaugsson 4, Guð-
mundur Þórðareon 4/1, Ólafur Gylfa-
son 4/2, Magnús ólafsson 3/2, Finnur
Jóhannsson 2, Matthías Matthíasson
1, Róbert Rafnsson 1, Sigfús Orri
Bollason 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 5
Dómarar: Stefán Amaldsson og ólaf-
ur Haraldsson.
Morgunblaðið/Bjarni
Afli meiddisf
Atli Hilmarsson byijar keppniferill
sinn hér á íslandi eftir nokkurt hlé
ekki vel. Hann meiddist í fyrsta leik
og talið er líklegt að hann sé handar-
brotinn og reynist það rétt verður
hann frá keppni í nokkum tíma. Á
myndinni hér að ofan má sjá lækni
og sjúkraþjálfara stumra yfír Atla
eftir að hann yfirgaf völlinn. Greini-
legt er á svip Atla að sársaukinn er
mikill. Á myndinni hér til hliðar er
Guðmundur Guðmundsson fyrirliði
Víkinga kominn inn úr hominu sínu
og í kunnuglegri stellingu.
Skúli
skoraði
níuer
Stjarnan
vannKA
nyrðra
Stjarnan úr Garðabœ vann
sannfærandi sigur á KA í fyrsta
leik liðanna í 1. deild á Akur-
eyri í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur
var nokkuð jafn en Stjarnan var
betri í þeim seinni.
KA byijaði leikinn með miklum
hraða en lítil ógnun var í leik
liðsins og fyrr en varir var staðan
orðinn 3:0 fyrir Stjömuna. Leikur-
inn jafnaðist þó
Frá Reyni fljótlega og var í
Eiríkssyni jafnvægi allan hálf-
áAkureyrí jgjj^
í seinni hálfleik var
vöm KA eins og gatasigti og gengu
leikmenn Stjömunnar á lagið og
áttu mjög auðvelt með að skora og
sigur þeirra sanngjam og aldrei í
hættu í seinni hálfleik.
„Stjaman var einfaldlega sterkari
en við í þessum leik. Við spiluðu illa
í vöminni og endaði hver einasta
sókn þeirra í seinni hálfleik með
dauðafæri. Þá var sóknin ekki burð-
ug og mikið um byijendamistök,"
sagði Brynjar Kvaran, þjálfari KA,
eftir leikinn.
I—Þór
36 : 21
íþróttahúsið við Strandgötu, 1. deild,
miðvikdaginn 30. september 1987.
Leikurmn í töluin: 5:2, 5:5, 8:5, 10:6,
16:12, 18:12, 22:14 30:20,36:21.
Mðrk FH: Þorgils Ottar Mathiesen 8,
Pétur Petersen 6, óskar Helgason 6/3,
Héðinn Gilsson 5, Óskar Ármannsson
5/2, Guðjón Ámason 5, Gunnar Bein-
teinsson 1.
Mðrk Þórs: Sigurður Pálsson 9/1, Sig-
urpáll Aðalsteinsson 7/3, Jóhann
Samúelsson 2, Gunnar M. Gunnareson,
Ólafur Hilmarsaon og Ámi Stefánsson
eitt mark hver.
Fram-Valur
19 : 19
Laugardalshöll, íslandsmótið í 1. deild
karla, miðvikudaginn 30. sept. 1987.
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 5:5, 5:7,
7:9, 9:9, 9:10, 9:12, 10:15, 13:18,
16:18, 16:19, 19:19.
Mörk Fram: Hermann Bjömsson 4,
Birgir Sigurðsson 4, Ólafur Vilhjálms-
son 3, Júlíus Gunnareson 3, Atli
Hilmarsson 2, Ragnar Hilmarsson 2,
Agnar Sigurðsson 1.
Varin skot: Guðmundur Jónsson 13/1
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 5/1, Jak-
ob Sigurðsson 4, Theodor Guðfinnsson
4, Júlíus Jónasson 4/1, Einar Naaby
1, Geir Sveinsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 9/1
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson
og Ámi Sævareson.
KR vann UBK
Slæmur leikkafii hjá Breiðablik í byrjun gerði út um
vonir liðsins gegn ungu KR-liði. Blikar skoruðu aðeins
eitt mark á fýrstu nftján mínútunum og þrátt fyrir
að leikur liðsins skánaði til muna f síðari hálfleik
tókst iiðinu ekki að vinna upp forskot KR-inga.
Það virtist lengi vera sama hvað Blikar reyndu í sóknar-
leiknum, Gísli Felix Bjamason markvörður KR virtist
spá við flestum skotum auk þess sem markstangimar virtust
oft hliðhollar KR-ingum. Þeir gengu á lagið og náðu góðri
■HH forystu. í síðari hálfleik réttu heimamenn úr
Frosti kútnum án þess þó að ógna forskoti KR veru-
Eiðsson lega.
skrífar „Það var eins og Blikamir léku aðeins á hálf-
um hraða í byijun. Þrátt fyrir sigur eigum
við enn eftir að laga margt, sérstaklega í sókninni", sagði
Gísli Felix markvörður KR sem átti stórleik í gærkvöldi.
Af öðrum leikmönn-
um liðsins stóð Stefán
Kristjánsson sig vel í
sóknarleiknum en
hann var stöðugur
höfuðverkur fyrrir
vöm UBK.
Geir Hallsteinsson
þjálfari UBK var ekki
sáttur við leik sinna
manna; „Það virðist
vera mikil spenna f
hópnum og leikmenn
vom „hræðilega" eig-
ingjamir í sóknar-
leiknum. Svo virðist'
sem að ófarimar í
Evrópuleiknum silji
enn í mönnum."
UBK
18
KR
20
íþróttahúsið í Digranesi, 1. deild karla,
30. september 1987.
Leikurinn i tölum: 1:1, 2:7,5:10, 6:13,
10:13, 11:16, 13:18, 16:18, 17:19,
18:20.
Mðrk UBK: Kristján Halldóreson 4,
Jón Þórir Jónsson 3, Hans Guðmunds-
son 3/3, Bjöm Jónsson, Aðalsteinn
Jónsson og Svafar Magnússon 2, Paul
Dempsey og Magnús Magnússon 1.
Skot varin: Þórir Siggeireson 5 og
Guðmundur Hrafnkelsson 2.
Mðrk KR: Stefán Kristjánsson 8/2,
Konráð Olavson 5, Guðmundur Al-
bertsson, Guðmundur Pálmason 2,
Þoreteinn Guðjónsson, Sigurður
Sveinsson og Bjami Ólafsson 1.
Skot varin: Gísli Felix Bjamason 17/3.
DómaranRögnvaJd Erlingsson og
Gunnar Kjartansson dæmdu mjög vel.
Er Atli
úrleik?
„ÉG held viö getum verið þokkalega ánægðir með
stigið úr þessum ieik, miðað við hvernig staðan var
um tíma í síðari hálfleik," sagði Björgvin Björgvins-
son þjálfarí Fram eftir að lið hans gerði jafntefli við
Val í fyrstu umferð íslandsmótsins í handknattleik
sem hófst í gær.
Framarar urðu fyrir enn einu áfallinu fljótlega í fyrri
hálfleik. Atli Hilmarsson lenti þá illa á vinstri höndinni
úr einu af sínum frægu uppstökkum og var fluttur á slysa-
varðsstofuna — líklegast handarbrotinn og verður því frá í
nokkum tíma. Hannes Leifsson og Egill Jó-
hannesson leika trúlega ekki með í fyrri
umferð og því margir lykilmanna Fram óvig-
ir um þessar mundir.
Fyrri hálfleikur var í jámum, vamir beggja
sterkar og markvarslan góð. Valsmenn náðu forystu strax
í síðari hálfleik. Mestur varð munurinn fímm mörk og þegar
4 mín. vom eftir höfðu þeir þrjú mörk yfír. Með sterkri og
hreyfanlegri 5:1 vöm komu Framarar í veg fyrir að Valur
skoraði og þeim tókst að jafna metin.
SkúliUnnar
Sveinsson
skrífar
Það var fyrst og fremst mikil barátta leikmanna Fram, og
góð markvarsla sem varð til þess að þeir fengu eitt stig úr
leiknum. Guðrnundur markvörður varði meðal annars víta-
kast á síðustu mfnútunum.
KA-Stjaman
20 : 26
íþróttahöllin á Akureyri, 1. deild, mið-
vikudaginn 30. september 1987.
Leikurinn f tölum: 0:3, 3:3, 7:8,10:12,
11:12, 11:15, 13:19, 15:20, 18:25 og
20:26.
Mörk KA: Jakob Jonsson 6/1, Axel
Bjömsson 5, Guðmundur Guðmunds-
son 3, Pétur Bjamason 2, Friðjón
Jónsson 2, Eggert Tryggvason 2/1.
Skot varin: Brynjar Kvaran 11.
Mörk Stjömunnar: Skúli Gunnsteins-
son 9, Sigurður Bjamason 5, Siguijón
Guðmundsson 4, Gylfí Birgisson 4,
Magnúst Teitsson, Einar Einarsson,
Hafsteinn Bragason og Hermundur
Sigmundsson eitt mark hver.
Skot varin: Sigmar Þröstur 16/1.
Víkingssigur
VÍKINGAR unnu sinn fyrsta leik í íslandsmótinu í
handknattleik er þeir mættu nýliðum ÍR. Það var
enginn stjörnuleikur sem liðin sýndu en ÍR-ingar
börðust hetjulega og ef þeir halda áfarm á sömu
braut þá geta þeir vel haldið sér í deildinni.
Breiðhyltingar komust yfír í fyrri hálfleik. Sóknir þeirra
voru vel skipulagðar og í vöminni börðust þeir vel gegn
máttlausum sóknarlotum Islandsmeistaranna sem virtust
eitthvað utan við sig framan af. Sóknir þeirra voru fálm-
■■■■■■■ kenndar en þegar þeir fóru af stað var oft
SkúliUnnar gaman að sjá til þeirra.
Sveinsson það er greinilegt að ÍR-ingar taka sjálfa sig
skrifar alvarlega, þeir léku ágætlega á köflum. Liðs-
heildin var þokkalega sterk, þar til Bjami
Bessason kom inná í sóknina. Hann reyndi allt of mikið sjálf-
ur og við það riðlaðist sóknarleikur ÍR.