Morgunblaðið - 01.10.1987, Qupperneq 70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
>70
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI 14-16 ÁRA
Morgunblaðiö/KGA
Stalnar Guðgairsson, einn besti maður íslenska liðsins, með knöttinn í leiknum í gær. Hann skoraði annað mark
íslands ( leiknum.
Norðurianda-
meistararnir
*
sluppu fyrir hom
ÍSLENSKA drengjalandsliðið
skipað leikmönnum 14 til 16
ára gerði jafntefli, 3:3, við Svía
í fyrri leik liðanna í Evrópu-
keppninni á Valbjarnvarvelli í
gœr.
Íslendingar hefðu átt að gera út
um leikinn er Steinar Guðgeirs-
son, einn besti leikmaður liðsins,
komst einn í gegn, lék á markvörð-
inn, en skaut
Valur framhjá auðu marki
Jónatansson Svfa er staðan var
skrifar 2:1 fyrir fsland og
15 mínútur til leiks-
loka. Það má því segja að Svíar
hafí hrósað happi með jafnteflið.
Sigur íslands hefði ekki verið
ásanngjam.
Svíar fengu óskabyijun er þeir náðu
að skora strax á 2. mínútu. íslensku
strákamir náðu síðan yfírhöndinni
og jöfnuðu á 34. mínútu og var vel
að því marki staðið. Halldór Kjart-
ansson lék þá upp að endamörkum
og gaf háan bolta fyrir og þar var
hinn hávaxni Ríkharður Daðason á
réttum stað og skallaði ömgglega
í netið og þannig var staðan í hálf-
leik.
Steinar Guðgeirsson (Leifssonar)
kom íslendingum yfír í upphafí
seinni hálfleiks. Hann vann þá bolt-
ann af markverðinum sænska eftir
mikið harðfylgi og skoraði í autt
markið. í stað þess að Steinar kæmi
íslendingum í 3:1 er hann komst í
gegn á 65. mínútu, eins og áður
er lýst, skomðu Svíar tvívegis á
næstu 10 mínútum.
Ríkharður Daðason bjargaði svo
öðm stiginu fyrir ísland er hann
jafnaði með góðum skalla eftir
aukaspymu Kjartans Gunnarssonar
á sfðustu mfnútu leiksins.
fslenska liðið kom nokkuð á óvart
fyrir góðan leik á átti ekki minna
í þessum leik. Þeir vom taukaó-
styrkir í byijun en vom síðan betra
liðið lengst af. Svíar em með stærri
og sterkari leikmenn en íslensku
strákamir em leiknari. Steinar
Guðgeirsson, Amar Grétarsson,
Rfkharður Daðason og Halldór
Kjartansson vom bestu leikmenn
íslands.
HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Létt hjá Fram
ÍSLANDSMEISTARAR Fram
hófu titilvörn sfna meö sigri á
Val. Leikurinn endaði 17:14 eft-
ir að staðan f hálfieik hafði
verið 10:5 fyrir Fram.
Framstúlkumar náðu strax yfír-
höndinni í leiknum og léku á
alls oddi í sókninni enda var vamar-
leikur Valsliðsins mjög lélegur. Þá
átti Kolbrún Jó-
Katrín hannsdóttir mjög
Fríðríksen góðan leik í Fram-
skrífar markinu að venju.
Guðríður Guðjóns-
dóttir kom Fram á bragðið með
nokkmm fallegum mörkum strax í
byijun leiksins og Framstúlkumar
náðu fljótlega góðu forskoti. Þær
vom síðan jrfír í leikhléi 10:5.
í seinni hálfleik bjuggust menn við
að Valsliðið næði að hrista af sér
slenið, en svo var þó ekki. Guðríður
var klippt út úr Framsókninni, en
þrátt fyrir það áttu Framstúlkumar
auðvelt með að skora fram hjá
götóttri Valsvöm. Þá var sóknar-
leikur Valsstúlkna ráðleysislegur
og allt spil þeirra einkenndist af
miklu baráttuleysi.
Þegar seinni hálfleikur var hálfnað-
ur höfðu Framstúlkur níu marka
forskot 15:6 og stórsigur virtist í
höfn. Svo fór þó ekki því Framliðið
virtist slaka á um leið og Valsstúlk-
ur náðu nokkuð að sækja f sig
veðrið. Valsliðið náði með ágætis
baráttu að minnka muninn í 2 mörk,
16:14 og bjarga þar með andlitinu.
Guðríður skoraði sfðan sautjánda
mark Fram úr vfti eftir að leiktíma
var lokið.
Mörk Vals: Kristín Amþórsdóttir 5, Guðrún
Kristjánsdóttir 3, Ema Lúðvíksdóttir 2/1,
Katrín Friðriksen 2/1, Ásta Sveinsdóttir og
Björg Guðmundsdóttir eitt mark hvor.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 8/1, Ing-
unn Bemódusdóttir 5, Hafdís Guðjónsdóttir,
Ama Steinsen, Jóhanna Halldórsdóttir og Ósk
Víðisdóttir eitt mark hver.
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Bjarni
Gos-dós hent í
Wismut-leikmann
Eftir leik Vals og Wismut Aue
á Laugardalsvellinum í gær
köstuðu einhveijir áhorfendur
gosdósum og fleira rusli niður úr
stúkunni í átt að leikmönnum
þýska liðsins og dómara leiksins.
Ein gosdósinn lenti í gagnauga
eins leikmanns Wismut Aue og
gæti þetta atvik orðið til að Vals-
menn fengju sekt eða jafnvel bann
við að leika á heimavelli í næstu
Evrópukeppni. Á myndinni kemur
Wismut-leikmaðurinn, sem fékk
dósina f höfuðið, að búningsklefa
sfnum.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Reuter
Gengiö yfir Framara
Það er óhætt að segja að Ieikmenn Sparta Prag hafí gengið yfír Framara f sfðari leik liðanna í Evrópukeppni meistara-
liða. Úrslitin urðu 8:0, og hér er það Josef Jarolim sem „gengur yfír“ Þorstein Þorsteinsson. Númer tíu er Tomas Skuhravy.
Reidarslag
- sagði Halldór B. Jónsson eftir 8:0 tap Fram
„ÞETTA er reiðarslag. Sparta
er efst í tókknesku 1. deildinni
meö 10 stig eftir 6 leiki og liðið
er mjög sterkt, en að tapa 8:0
er fáránlegt," sagði Halldór B.
Jónsson, formaður knatt-
spyrnudeiidar Fram, í gœr-
kvöldi eftir mesta tap Fram f rá
upphafi í Evrópukeppni.
Arið 1973 tapaði Fram 5:0 fyr-
ir Basel f Sviss í Evrópukeppni
meistaraliða, 6:0 árið eftir fýrir
Real Madrid í keppni bikarhafa. og
í UEFA-keppninni 1976 tapaði
Fram 5:0 fyrir Slovan Bratislava
og 6:0 árið eftir fyrir Start.
Að sögn Halldórs stjómaði Jozef
Chovanic spili Tékkanna og var
besti maður leiksins. Framarar
fengu frið til að sækja, en þegar
Tékkamir náðu boltanum bmnuðu
þeir upp í skyndisóknir, nýttu kant-
ana vel og splundruðu vöm Fram
hvað eftir annað. „Það má ef til
vill segja að við höfum leikið of
framarlega, en Tékkamir keyrðu á
fullu allan leikinn og nánast ^lít j
gekk upp hjá þeim,“ sagði Halldór.
Lið Fram var skipað sömu mönnum
og að undanfömu nema hvað Einar
Ásbjöm Ólafsson lék í stað Péturs
Ormslev, sem er meiddur. Öm Vald-
imarsson kom inná eftir hlé fyrir
Pétur Amþórsson, sem meiddist á
hendi, en læknisskoðun leiddi í ljós
að hann var ekki brotinn eins og
menn óttuðust. Friðrik Friðriksson
lék sinn síðasta leik með Fram að
þessu sinni, en hann er á leiðinni
til Danmerkur í nám.
.muntjracfp/ 1 nnfíia ^ia Jól