Morgunblaðið - 01.10.1987, Page 72
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
+annn
$ SUZUKI
___^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Knattspyrna:
IanRosstek-
urviðhjáKR
IAN Ross, sem þjálfað hefur 1.
deildarlið Vals í knattspyrnu
Þriðji alnæm-
issjúkling-
urinn látinn
MAÐUR á fertugsaldri lést ný-
lega í Borgarspítalanum í
Reykjavík af völdum alnæmis.
Hann er þriðji alnæmissjúkling-
urinn sem látist hefur af völdum
sjúkdómsins hér á landi, en alls
hafa greinst fjórir einstaklingar
með alnæmi á lokastigi.
Hér á landi hafa 32 einstaklingar
greinst með mótefni gegn alnæmis-
veirunni, samkvæmt nýjustu
upplýsingum frá embætti landlækn-
is. Þar af eru 14 einkennalausir og
1'4 með forstigseinkenni alnæmis.
Fyrsti íslenski sjúklingurinn
greindist með alnæmi á lokastigi í
október 1985 og lést hann skömmu
síðar. Annar alnæmissjúklingur lést
í febrúar á þessu ári og svo hinn
þriðji nú í september. Þeir voru all-
ir karlmenn.
undanfarin fjögur ár, gekk
seint í gærkvöldi frá tveggja
ára samningi við KR.
„Það var erfíð ákvörðun að
hætta hjá Val, en þetta er rétti
tíminn til að breyta til og ég er
mjög ánægður með að taka við
KR-liðinu. Mér hefur líkað mjög
vel hjá Val, liðið hefur staðið sig
vel, en nú er það KR og ég mun
gera það sem ég get til að liðinu
gangi sem best. Ég kom sem vin-
ur til Vals og ég kveð sem vinur,"
sagði Ian Ross í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, en hann fer
til Englands snemma í dag.
Valur varð íslandsmeistari í sumar
undir stjóm Ross, en þeim áfanga
náði félagið tvívegis þau fjögur
ár sem hann var við stjómvölinn.
Sjá bls. 71.
Ljósmyndir
frá 1882-85
Ljósmyndir sem teknar voru á
íslandi á árunum 1882 til 1885
ru komnar í leitirnar og eru
itta 116 mannlífsmyndir sem
Frank Ponzi listfræðingur fann
í dánarbúi í London.
Myndimar eru flestar teknar í
Reykjavík og nágrenni en auk þess
eru myndir frá ferð sem farin var
norður í land til Akureyrar. Undan-
fama mánuði hefur Frank kannað
hvaðan mydimar eru og af hveijum
en þær eru flestar ómerktar. Fyrir-
hugað er að gefa þær út í bókar-
formi þegar rannsókn er lokið.
Sjá frétt bls. 4
Icecon:
Tonnaf
kjúkl-
ingnm á
haugana
EITT tonn af kjúklingum úr
tveimur verslunum í
Reykjavík var flutt á haugana
í gær. Kjúklingarair voru úr
einu búi og var salan á þeim
stöðvuð í sumar eftir að þrír
höfðu sýkst af salmonellu.
Að sögn Kormáks Sigurðs-
sonar framkvæmdastjóra Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur voru
tekin sýni úr kjúklingunum í
sumar og voru niðurstöður úr
þeirri rannsókn að berast. Sam-
kvæmt þeim var ákveðið að
kjúklingamir skyldu brenndir.
Halldór Runólfsson deildarstjóri
hjá Hollustuvemd ríkisins sagði
að salmonella hafi mælst í nokk-
uð miklu magni í kjúklingunum
frá viðkomandi búi en eftir er
að rannsaka hvaðan sýkingin
er komin.
VALSMENN URLEIK
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
íslandsmeistarar Vals og austur-þýska liðið Wismut Aue skildu jöfn, 1:1, í seinni leik liðanna í Evrópu-
keppni félagsliða í knattspymu á Laugardalsvelli í gær. Valsmenn eru þar með úr leik í keppninni þar sem
fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Á myndinni skorar Jón Grétar Jónsson mark Vals á upp-
hafsmínútum leiksins. gj^ j,ls. 71.
Útflutniiignr á
íslenskum lyfjum
FYRIRTÆKIÐ Medis hf. hefur byrjað útflutning á blóðþrýstingslækk-
andi lyfjum til Bretlandseyja en lyf þessi eru framleidd hér á landi
hjá lyfjaframleiðslufyrirtækinu Delta hf. Gerður hefur verið sam-
starfssamningur við umboðsaðila bæði á Bretlandseyjum og írlandi
og munu þeir vinna að markaðssetningu lyfja frá Medis á báðum
þessum mörkuðum.
Ekki er vitað til þess að skráð
íslensk sérlyf til lækninga á fólki
hafi áður verið flutt út.
Sjá nánar í viðskiptablaði, Bl.
Medis hf. er eign Delta og ljrfsölu-
fyrirtækisins Pharmaco og er hlut-
verk þess fyrst og fremst að vinna
íslenSkum lyflum markaði erlendis.
Medis hefur á undanfömum árum
unnið að því að fá lyf sem Delta
framleiðir skráð í ýmsum nágranna-
löndum en slík skráning er forsenda
þess að lyf séu tekin til sölu í viðkom-
andi löndum. Delta franileiðir alls
um 150 lyf og hefur Medis unnið
að því að fá ýmis þessara ly§a skráð
á helstu mörkuðum hér í nánd og
jafnframt eru samningar um sölu á
íslenskum lyfjum til fleiri landa nú
í farvatninu.
Verk fyrir rúmar 250 millj-
ónir unnið á Grænlandi
FYRIRTÆKIÐ Icecon hefur gert samning við fiskvinnslufyrirtæki
grænlensku heimastjórnarinnar um endurbyggingu þriggja frysti-
húsa frá grunni. Verkið tekur til flestra verkþátta frá hönnun og
byggingu til endanlegs frágangs. Samningsupphæð er yfir 250 millj-
ónir íslenskra króna. íslenskir undirverktakar sjá um flesta samn-
ingsþætti og mun þetta vera eitt stærsta verkefni sem íslenskt
fyrirtæki tekur að sér á erlendri grundu. Eigendur Icecon era SÍF,
SH og Sambandið. Framkvæmdastjóri er Páll Gíslason vélaverk-
fræðingur. Icecon sérhæfir sig í útflutningi á þekkingu á sviði
sjávarútvegs.
Við yfírtöku grænlensku heima-
stjómarinnar á Konunglegu
Grænlandsversluninni (KGH) var
, ^'rsluninni skipt upp í §ögur fyrir-
tæki, sem annast flutninga, útgerð,
fisksölu og fiskvinnslu. Saman sjá
þessi fjögur fyrirtæki um allt sem
viðkemur sjávarútvegi, flutningum,
veiðum, vinnslu og sölu afurða. Á
undanfömum árum hefur fisk-
vinnsludeildin staðið fyrir umtals-
verðri uppbyggingu á rækjuvinnslu
á Grænlandi og er hún nú talin í
fremstu röð. í ljósi þess, að þorsk-
gengd virðist vera mjög vaxandi
við Vestur-Grænland var talið að
hliðstæðrar uppbyggingar og í
rækjuvinnslunni væri þörf við
vinnslu á þorski. Því hefur físk-
vinnsludeildin ákveðið að endur-
byggja tvö stærstu frystihús sin
sem era í Paamiut (Fredrikshavn)
og Manitsoq (Sukkertoppen), en
þessi tvö hús munu væntanlega
gegna lykilhlutverki í þorskvinnslu
Grænlendinga á næstu áram. Þriðja
húsið er i Ilulissat (Jakobshavn) og
er það fyrst og fremst ætlað til
vinnslu á rækju og grálúðu. Það
sem vekur mesta athygli við þetta
fyrstihús er að hluti af fiskinum til
vinnslu f því verður veiddur af
grænlenskum veiðimönnum gegn-
um ís og ekið á hundasleðum til
vinnslunnar.
Meka og Hagvirki verða stærstu
undirverktakamir í þessu verkefni
en alls taka fimm íslensk fyrirtæki
þátt í þvi. Að sögn Páls Gíslasonar
framkvæmdastjóra Icecon verður
jafnframt lögð áhersla á samninga
við grænlenska undirverktaka eftir
því sem ástæður gefa tilefni til.
Ólafsvík:
ÁTVR í vefn-
aðarvörubúð
Ólafsvík.
ÁFENGISVERSLUN ríkisins
hefur gert samning við versl-
unina Þóru í Ólafsvík um sölu
áfengis i húsnæði verslunar-
innar við Mýrarholt. Ráðgert
er að opna nú á næstu vikum.
Þetta verður fyrsta útsalan á
landinu sem opnuð verður í
beinni samvinnu við almenna
verslun.
Sigríður Þóra Eggertsdóttir
kaupkona sagði fréttaritara að
ÁTVR fengi helming húsnæðis
Þóra leigðan og hennar fólk sæi
um sölu áfengisins. Að öðra leyti
selur verslunin Þóra vefnaðar-
vörar.
Notaður verður skjár við af-
greiðsluna, sá þriðji á landinu á
vegum ÁTVR. Síðar meir verður
starfsemin tengd móðurtölvu í
Reykjavík. Getur það þá veitt
daglegt yfirlit yfir sölu og birgð-
ir.
Útsala þessi er önnur útsalan
á Vesturlandi en fyrir er útibú
ÁTVR á Akranesi.
- Helgi