Morgunblaðið - 06.10.1987, Page 18

Morgunblaðið - 06.10.1987, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987 Nærsýni bæjarsljórinn eftirKristin Kristjánsson I Morgunblaðinu þann 26. sept- ember sl. birtist grein eftir Sturlu Böðvarsson bæjarstjóra í Stykkis- hólmi, sem hann nefnir „Og vegirnir batna". Er í þessari grein fjallað um vegamál á Snæfellsnesi, en greinarhöfundur hefur dyggilega ritað um þessi mál á undanfömum árum, gagnrýnt þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið og fjallað um það fjársvelti sem Vegagerðin hefur verið í þegar um samgöngu- bætur á Snæfellsnesi hefur verið að ræða. Nú bregður svo við að Sturla leggur blessun sína og dásamar þær miklu vegabætur sem átt hafa sér stað nú nýverið og telur þær m.a. sér að þakka og öðrum slíkum sem gerst hafa málsvarar samgöngu- bóta á Snæfellsnesi og get ég verið Sturlu þar sammála, að vert er að þakka það sem vel er gert og hvert það handtak sem unnið er til að bæta vegina okkar er sannkölluð kjarabót. í lok greinarkomsins greinir höf- undur frá sinni framtíðarsýn í vegamálum á Nesinu og getur þess m.a. að leggja þurfí nýjan veg um Dufgusdal í stað vegarins um Kerl- ingarskarð, sem þá á trúlega að leggjast af. Þessi vegur hans um Dufgusdal er liður í nýrri hringveg- arhugmynd um byggðir Snæfells- ness og á þessi nýi vegur, ásamt Fróðárheiðarvegi, að verða tengi- braut milli byggðanna sunnan- og norðaníjalls. Nú er hvorki minnst á Heydalsveg og þaðan af síður Ut- nesveg fyrir jökul. Ég hefði haldið að við Snæfellingar værum búnir „Væntanleg vetrar- hringleið um Nesið hlýtur að miðast við Heydal annars vegar og veg fyrir Jökul hins- vegar, það er að segja ef menn eru því sam- mála að byggð skuli haldast á Nesinu öllu.“ að fá nóg af fjallvegunum okkar sem vetrarleiðum, þó ekki væri ver- ið að búa til nýjar leiðir. Og veit ekki Sturla að með þessari hug- mynd sinni er hann að útiloka heilt sveitarfélag frá sambandi við önnur sveitarfélög. Veit hann ekki að þama er byggðarlag sem hefur átt í vök að veijast en er nú að rísa úr áralöngum doða, blómlegt at- vinnulíf er að myndast í kringum ört vaxandi trillubátaútgerð. Þessi staður má ekki við því að hann verði lokaður frá vegasambandi við umheiminn að vetrinum. Og veit hann ekki að þama úti á Nesinu er Snæfellsjökull, Jökullinn sem hann hefur sjálfsagt oft minnst á, og talað fallega um á merkum mannamótum. Mér finnst sorglegt til þess að vita að Sturla skuli ger- ast sporgöngumaður þeirra afla sem unnið hafa ljóst og leynt móti góðum vetrarvegi fyrir Jökul og þess í stað að mæla með nýjum fjall- vegi yfir Nesið. Það er þeim mun sorglegra, þar sem Sturla gegnir áhrifamikilli stöðu og hefir veitt góðum málum brautargengi. Hann ætti svo sannarlega að hafa víðari sjóndeildarhring í samgöngumálum okkar Snæfellinga. Væntanleg vetrarhringleið um Nesið hlýtur að miðast við Heydal annars vegar og veg fyrir Jökul hinsvegar, það er að segja ef menn eru því sammála að byggð skuli haldast á Nesinu öllu. En því er nú verr að á meðan svo nærsýnir menn, sem Sturla virðist vera, fá ein- hveiju ráðið, eru jaðarbyggðimar á Snæfellsnesi í hættu. Höfundur er grunnskólakennuri & Hellissandi. Ernst Jiinger og útlendinga- hersveitin Erlendar bækur .. Siglaugur Brynleifsson Ernst JUnger: Afrikanische Spiele. Deutscher Taschenbuch Verlag 1987. ' Emst Jiinger er nú rúmlega níræður. Hann á að baki viðburða- ríkan lífsferil. Fæddist í Heidelberg 1895, faðir hans apótekari. Átján ára var hann orðinn dauðþreyttur á námi og lagði land undir fót, hélt til Frakklands og bauð sig fram sem málaliðsmaður í frönsku út- lendingahersveitinni Junger skrif- aði löngu síðar skáldsögu þar sem Herbert Berger segir söguna, sem er fléttuð eigin reynslu Jungers frá þessum æskuárum. Þessi skáldsaga kom fyrst út 1936. Atburðimir sem urðu tilefni sög- unnar áttu sér stað 1913. Junger virðist skrifa þessar æskuminningar sínar í írönskum tón, ijarlægð hans frá aðalpersónunni, þ.e. sjálfum sér, virðist fullkomin, þetta er eitt- hvað, sem snertir hann sjálfan ekki lengur. Honum var löngu orðið ljóst að „menn lifa í heimi, sem ekki verður flúinn". Lýsing Jungers á herlækninum, sem Berger kynnist og sem dregur upp aðra mynd af lífínu í útlend- ingahersveitinni en þá, sem Berger hafði vænst. Málalyktir urðu þær, að aðalper- sónunni var veitt lausn úr herþjón- ustunni fyrir tilstuðlan læknisins og aðstandenda Bergers. Atburðimir gerðust 1913 og árið eftir brýst fyrri heimsstyijöldin út. Junger gekk þegar í þýska herinn og þar rættust draumar Jungers um hermennskuna. Hann var á vígvöllunum næstu fjögur ár og gekk svo vasklega fram að hann hlaut hið sjaldgæfa heiðursmerki „Pour le mérite". Eftir styijöldina starfaði Junger sem liðsforingi I þýska ríkishemum til 1923. Síðan stundaði hann náttúrufræðinám um nokkum tíma og tók síðan að skrifa skáldsögur. Fyrsta fræga skáldsaga hans var „In Stahlgewittem" 1920. Reynsla hans frá vígvöllunum birtist þar á sérstæðan hátt. Hann taldi her- mennskuna sérstæða mystíska reynslu sem væri gild, sem slík. Stríðið var honum þolraun, þar sem maðurinn og vélin tókust á. Júnger segir í viðtali við Spiegel (1982) að fyrri heimsstyijöld hafi verið síðasta stríðið þar sem þessi þolraun var gild. Slík stríð geisa þó enn og er styrjöldin í Afganistan dæmi um átök mannsins við þrælskipulagða morðvél þursanna. Þessi saga „Afrikanische Spiele" er ekki talin til kunnustu skáld- sagna Júngers, en er meðal feg- urstu sagna hans, sem mótast af æskudraumum og rómantík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.