Morgunblaðið - 05.11.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987
25
og enginn vilji eða tími til að sinna
hugðarefnum.
Þessi sundurtætta tilvera endur-
speglast líka í íslenskunámi fram-
haldsskólanema. Það er t.d. ekki
laust við að mann gruni að kjafta-
vaðall nýrra útvarpsstöðva sé farinn
að sá illgresisfræjum í málfar og
hugsun ungs fólks, að það líti á
tungumálið sem uppfyllingu í
óþægilega þögn eða sem skreytingu
á auða pappírsörk. Það verður
a.m.k. æ tíðara að. sjá ritgerðir og
frásagnir án greinaskila, með
punkta og kommur á stangli eins
og þeim hafi verið dritað eftir ein-
hverri normaldreifingaraðferð og
hugsunin eins og loftbóla í iðukasti.
Framhaldsskólinn
á að______
Þessi sundurtætta tilvera endur-
speglast ekki bara í einstökum
greinum heldur í náminu í heild.
Ekki er óalgengt að framhalds-
skólanemi sæki tíma í 7 til 9
mismunandi greinum á viku. Það
er sem sagt ekki nóg með að hann
þurfí að veija ákveðnum tíma á
margklofnum degi til þess að læra
heldur verður hann líka að átta sig
á því hve miklum tíma hann ætlar
að veija til hverrar greinar.
Framhaldsskólinn á að vera nem-
endum athvarf, ákveðið akkeri í
tilverunni. Hann á að vera staður
þar sem nemendum gefst tími til
skilnings og þroska. Nemendur eiga
heimtingu á því að skólinn sé stað-
ur þar sem þeim líður vel, í þeirri
merkingu að þeir séu tilbúnir að
takast á við þau verkefni sem skól-
inn færir þeim.
Framhaldsskólinn á um leið að
ögra nemendum, hann á að draga
fram það besta sem býr í hveijum
einstaklingi og láta það njóta sín.
Framhaldsskólinn á að örva frum-
kvæði og sjálfstæði nemenda.
Framhaldsskólinn á að vinna
gegn allri sundurvirkni, hann verð-
ur að vera vettvangur fyrir
nemendur til að mynda sér skoðan-
ir um lífíð og tilveruna. Framhalds-
skólinn verður að gefa nemendum
kost á því að dvelja við einstakar
námsgreinar eftir áhuga þeirra og
hæfíleikum.
Hér er ekki um að ræða ein-
hveija innantóma draumsýn heldur
raunverulega möguleika sem ekki
er bara hægt að framkvæma heldur
líka skynsamlegt að gera að veru-
leika. Með því yrði stigið stórt skref
í þá átt að útrýma þversögnum sem
umrædd skýrsla sýnir að fínnast í
íslenskukennslu við framhaldsskóla
hér á landi, þversögnum sem ég
hef raunar rökstuddan grun um að
leynist í kennslu flestra greina í
framhaldsskólakerfinu. Með því
móti yrði draumsýnin fyrr að veru-
leika, með því móti yrði bærilegra
að vera manneskja í sundurhólfaðri
tilveru.
Höfundur er íslenskukennari við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Atvinnuþróunarsjóður
stofnaður á Akranesi
Akranesi.
BÆJARSTJÓRN Akraness hefur
samþykkt að setja á stofn at-
vinnuþróunarsjóð og er tilgang-
ur hans öðru fremur að stuðla
að eflingu atvinnulífs á Akranesi.
Stofnun sjóðsins hefur verið til
umræðu um nokkurt skeið og nú
hillír undir að hann sé að verða að
veruieika. Stefnt er að því að á
næstu tíu árum hafí framlag til
sjóðsins náð 20 milljónum króna
miðað við lánskjaravísitölu júlímán-
aðar 1987. Stofnframlag til sjóðsins
verður í fyrsta lagi eignir fram-
kvæmdasjóðs Akraneskaupstaðar, í
öðru lagi andvirði hlutafjár kaup-
staðarins í atvinnufyrirtækjum sem
seld eru eftir 1. janúar 1987, og
endurgreidd verða sjóðnum sam-
kvæmt ákvörðun bæjarstjórnar
hveiju sinni. í þriðja lagi er svo um
að ræða önnur framlög bæjarsjóðs
sem ákvarðast af bæjarstjóm
hveiju sinni.
Gert er ráð fyrir að sjóðurinn
láni fjármagn til nýframkvæmda á
vegum einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana og veiti áhættulán til sér-
stakra athugana og áætlana í
tengslum við nýjar atvinnugreinar.
Leiði athugun til jákvæðrar niður-
stöðu skal framlag sjóðsins endur-
greitt. Þá er gert ráð fyrir að
sjóðurinn veiji fjármagni til kaupa
á hlutafé í fyrirtækjum á Akranesi
til þess að auðvelda stofnun eða
endurskipulagningu þeirra. Sjóður-
inn mun einnig veita lán eða styrki
til sémáms í þágu atvinnulífs í sér-
stökum tilfellum, ábyrgð gagnvart
lánveitingu annarra sjóða sé bak-
trygging fyrir hendi og svo að
lokum að kosta hagnýtar athuganir
á atvinnulífi á Akranesi.
Að sögn Gísla Gíslasonar, bæjar-
stjóra á Akranesi, mun höfuðstóll
sjóðsins strax á næsta ári verða
þijár til fjórar milljónir króna. Það
er framlag sem kemur úr gamla
framkvæmdasjóðnum og framlag
beint úr bæjarsjóði. Þá má vænta
þess að sjóðurinn geti auglýst eftir
lánsumsóknum. Gísli sagði að á
næstu ámm muni sjóðurinn aðeins
geta létt undir með þeim sem
hyggja á sköpun nýrra atvinnutæki-
færa en ekki muni verða um að
ræða stórar fjárhæðir fyrst um sinn
í einstök verkefni. Með þessu vilji
bæjarstjóm Akraness koma til móts
við einstaklinga og fyrirtæki sagði
Gísli að lokum.
- JG
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Saumastofa Hensons hf. á Akranesi er dæmi um nýtt fyrirtæki sem hóf starfsemi sina á Akranesi fyr-
ir nokkrum árum.
Hmnsón
Sjálfstæðismaður af Suð-
umesjum situr á Alþingi
Vogum. U °
SUÐURNESJAMAÐUR situr nú á
Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
en það er orðið æði langt síðan
suðurnesjamaður hefur setið á
þingi fyrir flokkinn. Það er Ellert
Eiríksson sveitarstjóri í Garði 1.
varaþingmaður í Reykjaneskjör-
dæmi sem hefur sest á þing í
forföllum Matthíasar Á. Mathies-
en samgöngumálaráðherra.
Ellert sagði í samtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins að nú færu nýir
straumar um atvinnumál Suður-
nesja. Staða útgerðar og fiskvinnslu
væri betri en fyrir ári síðan og nú
hefðu með stofnun fískmarkaðar
komið nýjar leiðir til að dreifa aflan-
um sem bátamir koma með að landi.
Þá sagðist Ellert binda miklar vonir
við stofnun útgerðarfélagsins El-
deyjar hf.
Einnig nefndi Ellert mikla upp-
byggingu í fískeldi á Suðumesjum
og sagði, að margir hefðu atvinnu
við fískeldisfyrirtækin, við fóðrun,
fóðurgerð, slátrun, flutning og sölu.
Þá nefndi hann líka, að margir störf-
uðu við mannvirkjagerð fyrir fiskeld-
isfyrirtæki, enda virðast flest þeirra
taka tíu ár í byggingu.
Ellert sagði það alveg ljóst að
gífurlega margir góðir kostir fylgdu
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og þeim
ætti eftir að fjölga. Fleiri atvinnu-
tækifæri hefðu skapast í þjónustu
vegna flugstöðvarinnar, heldur en
menn hefðu gert sér grein fyrir.
Nú er mikil uppbygging í ferða-
þjónustu á Suðumesjum, sem tengist
tilkomu flugstöðvarinnar, svo sem
bygging hótela til viðbótar þeim sem
fyrir eru.
- EG
EUert Eiríksson, sveitarstjóri í
Garði og varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
feÖKUKREM
2 MISMUNANDI GERÐIR
• SÚKKULAÐIKREM
• MÖNDLU NOUGA KREM
Heildsölubirgðir:
Þ. Marelsson
Hjallavegi 27, 104 Reyk/avtk
55* 91-37390 - 985-20676
zrvris vörur hrir vanolata
ZENTIS VÓRl'R FYRIR \ A\DLATV
6 MISMUNANDI GERÐIR
• Bláberja- • Aprikósu-
• Brómberja- • Ananas-
ÍAppelsínu- • Rifsberja-
Heildsölubirgðir:
■ Þ.Marelsson
Hjallavegi 27, 104 Reykjavtk
91-17390 - 985-20676
Zentis
“ orugg gæði -
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
SJONVARPIÐ
-ÞmnmiðUl, eignokkarallra