Morgunblaðið - 05.11.1987, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 05.11.1987, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987 rokksíðan ——'ii| i| 111 Drap mann með skóflu S/H draumur, Sykurmolar og Swans Grafík Grafískt leyndarmál Svart hvftur draumur sendi frá sér 1. október plötuna Drap mann meö skóflu sem á eru lögin Helm- út á mótorhjóli, Bimbirimbirimb- amm og Eyöimörk. Drap mann með skóflu er for- smekkur plötu sem út kemur í byrjun desember og mun bera heitiö Goð. Aðallag smáskífunnar, Helmút á mótorhjóli, eitt besta rokklag sem út hefur komiö á ís- landi, verður einnig á stóru plöt- unni en þá í nokkuð breyttri mynd. Það fylgir einnig sögunni að fyrsta nóvember kemur út Snarl- snældan Veröldin er veimiltíta, sem er sjálfstætt framhald á tíma- mótasnaéldunni Snarl C 50 sem kom út í vor. Eins og menn rekur minni til voru á þeirri snældu lög með sex framsæknum rokksveit- um og verður ekki minna um dýrðir á Snarl 2. Reiknaö er með að á milli 15 og 20 hljómsveitir muni eiga lög á snældunni. Það er Erð- anúmúsík sem gefur Snarlsnæld- urnar út og plötur S/H draums út. Af Svart hvítum draumi er það annars að frétta að hljómsveitin kemur fram á tónleikum í MH í kvöld með Sykurmolunum og bandarísku hljómsveitinni Swans. The Swans er talin meðal merki- legri rokksveitum í Bandaríkjunum um þessar mundir og er nýjasta plata sveitarinnar til marks um það. Hljómsveitin kemur hingað frá bretlandi þar sem hún hefur vakið mikla hrifningu og andúð enda er oft lagt á tæpasta vað á tónleikum hennar. Sykurmolarnir Sverrir Stormsker semur við Steinar Sverrir Stormsker hefur gert samning viö Steinar um útgáfu á næstu plötu sinni sem Tóný ætlaði að gefa út. Platan sú arna, sem verður fjórða plata Sverris á þremur árum, verður tvöföld, þ.e. tvær plötur í umslaginu, og mun heita Stormskersguðspjöll. Guðspjöllin verða 30 og herma fregnir að Sverrir fari ekki troðnar slóðir frekar en endra- nær. Með Sverri að plötunni starfa ýmsir tónlistarmenn, en hann semur öll lög og texta að vanda. Sverrir vinnur nú að plötunni í hljóðverinu Gnýr og er hún væntanleg í byrjun des- ember. hituðu upp fyrir Swans á eftir- minnilegum tónleikum í Town and Country Club í Lundúnum fyrir skemmstu. Gagnrýnendur Melody Maker hófu Sykurmolana til skýj- anna eftir þessa tónleika á kostnað Swans; sögðu Swans hafa breyst aftur í Ijóta andarunga eftir að hafa hampað sveitinni ótæpilega fram eftir sumri. Hvað sem öðru líður eru menn á einu máli að tón- leikar með Swans eru ógleyman- legir. Langt er síðan hljómsveitar- meðlimir lýstu miklum áhuga á að koma til Islands og í tilefni af þess- ari íslandsför breytir sveitin til; í fyrri hluta tónleikanna verða notuð órafmögnuð hljóðfæri. Sykurmol- ana þarf ekki að kynna og líklega verða þessir tónleikar S/H draums, Sykurmolanna og Swans á meðal merkustu tónleikaviðburða þessa árs. Eins og áður sagði verða tón- leikarnir í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hefjast kl. 21.00 í kvöld. f dag sendir hljómsveitin Grafík frá sér sfna fimmtu hljómplötu, plötu sem ber heitið Leyndarmál. Grafík hefur nú starfað í sex ár, sem er nokkuð yfir meðalaldri hljóm- sveita hérlendra. Sveitina stofnuðu þeir Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson sumarið 1981 til að hljóðrita plötuna Grafík. Sú plata þótti lofa einkar góðu og síðan hafa komið þrjár plöt- ur fram til 1986 að sveitin tók sér hlé um stund, enda hættu þá söngv- ari hennar og bassaleikari, Helgi Björnsson og Jakob Magnússon. I stað Helga kom Andrea Gylfadóttir og í staö Jakobs kom Baldvin Sigurð- arson. Þannig skipuð hóf Grafík að vinna að fimmtu plötunni, sem nú hefur litið dagsins Ijós. Segja má að vinna við plötuna hafi staðið meira og minna síðan í mars fram í ágúst að síðasta hönd var lögð á hana. Lögin á plötunni eru níu og ættu margir að kannast við þau, enda hafa þau verið hluti af tónleikadag- skrá sveitarinnar síðan í vor. Því má svo bæta við hér að fimm- mannasveitin Grafík heldur tónleika í kvöld 5. nóvember þar sem sveitin mun kynna fimmtu plötu sína sem var fimm mánuði í vinslu. Tónleikarn- ir hefjast kl. 21.55 stundvíslega og standa til 1 eftir miðnætti. Gestir sveitarinnar verða Rauðir fletir sem gefa út sína fyrstu stóru plötu í næstu viku og leynigestur verður Bjartmar Guðlaugsson sem einnig sendir frá sér plötu í næstu viku. Það er ekkert sem rekur á eftir mér Megas og Loftmynd Megas sendir frá sér plötuna Loftmynd næstkomandi þriðju- dag en plötuna gefur Grammið út. Umslag plötunnar skreytir gömul mynd af Reykjavík og þvi er við hæfi að spyrja fyrst að því hversvegna Megas hafi gert Reykjavíkurplötu? Það eru margar sögur til um það. Ein hefst fyrir þremur árum þegar allir í kring um mig voru að sækja um styrki í sjóði ýmiskonar. Ég slóst í hópinn, tók sjens á einum sjóðnum og bjó til umsókn. Ijar þurfti að útmála sig sem mikinn tekstahöfund sem óg gerði og síðan þufti óg að lýsa því yfir að maður ætlaði að gera eitthvaö annað við peningana en láta ríkiö taka þau í meðlög. í usókninni sagðist ég síöan vera að vinna að Reykjavíkur-prógrammi; „Ein- kennilegt mannlíf í skúmaskotum Reykjavíkur." Ástæðan fyrir því var að ég var með í höndunum lagið Plastpokablús sem er svona Breið- holtssöngur. Þræðir sig svona frá Hlemmi, gegnum Glæsibæ og upp í Breiðholt og síöan niður í Vonar- strætið aftur niður á Félagsmála- stofnun. Síðan var ég hinum og öðrum hnöppum að hneppa, hitt og annað að gera og ekkert gerð- ist nú í þessu verkefni. Og síðan kom annað ár og ég sótti meira um og síðan kom þriðja árið og enn sótti ég um. Og alltaf fókk óg þriggja mánaða styrk. Síðan voru komnir níu mánuðir, sko, með- göngutími. Þá var óg nú kominn með móral, þá var komið tæpt ár síðan borgin átti afmæli. ég kom- inn á síöasta snúning fannst mór. Og þá settist ég niöur og hófst handa. Það sem tengir textana er svo að þetta tengist allt Reykjavík. Það er viss hluti af Reykjavík sem speglast þarna, kannski ekki endi- lega það sem er upp á yfirborðinu, það er bísafílingur á köflum. En staðfræðilega séð er þetta sú Reykjavík sem blasir við öllum. Þetta er svona viss úttekt að svo miklu leyti sem hægt er að gera úttekt á 45 mínútum. Nú fór það ekkí hátt ■ fyrra að plata þín I góðri trú markaði það að þú tókst þráðinn upp aftur eftir langt hlé. Hvað er það sem hratt þór af stað og hvað rekur þig áfram f tónlistinni? 1 sjálfu sér er ekkert sem rekur mig Maöur velur eitthvað af öllu því sem maður getur hugsanlega fengist við. Venjulega það sem manni finnst skemmtilegast og kræsilegast. Þú afgreiðir textana sem dæg- urlagatexta og ekkert meira um það að segja en hvað um tónlist- ina? Dægurlög. Dægurlög sem samin eru undir áhrifum af Carl Perkins, Elvis Presley, Buddy Holly o.fl. Ég veit það ekki, þetta er sú músik sem ég ólst upp við, að svo miklu leyti sem maður elst upp við músik. Presley kemur fram á sjón- arsviðið þegar ég er svona 10 ára gamall. Fram að þeim tíma hafði ég fylgst með dægurlagamúsikinni í óskalagaþáttunum en hún hafði ekki heillað mig neitt sérstaklega. En þegar Presley kom þá heillaði hann mig alveg sérstaklega. Allir þessir fyrstu rokkarar verkuðu öðruvísi á mig en öll dægurlaga- músik hafði gert á undan. Ég man Megas gefur út Reykjavíkurplötuna Loft- mynd f byrjun næstu viku. eftir Presley og mér fannst hann alveg himneskur og fleiri karlar eins og Little Ritchard og Fats Domino og það var þá sem ég byrjaði að semja músik. Ég hafði Presley sem fyrirmynd; hann einn með gítarinn. Hinsvegar spilaöi hann óskaplega lítið á þennan gítar sinn þegar fram í sótti. Hann dansaði með hann. Já hann dansaöi með hann, en myndin sem maður fékk í kollinn var af einum manni með gítar. í spott-ligti og það æptu allir þegar hann kom fram. Og þá settist ég niður og fór að búa til músik. Því ég sá ekkert í kring um mig sem væri nothæft. Ég sá ekki ekki sjálf- an mig í þessari stöðu sem Presley var, syngjandi neitt af þvi efni sem var á íslenska markaðnum, ég sá ekki að það væri hægt að syngja það á þann hátt sem mér þótti kræsilegt. Mig langaði að búa til rokk, en framan af kunni ég það ekki. Núna eftir að það runnu af mér eiturlyfin fór ég að átta mig á því hvernig maður gerir tólf takta rokkara. Þá hef ég líka gert marga síöan. Nú er ég alltaf að gera tólf takta rokkara og ég er algjör meist- ari í að gera tólf takta rokkara, það getur enginn gert jafn góða tólf takta rokkara og ég.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.