Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B
257. tbl. 75. árg. FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ortega vill fund með Reagan:
Tvíhliða viðræður
skref aftur á bak
- segja Bandaríkjamenn
Washington, Reuter.
BANDARÍKJAMENN höfnuðu í gær tillögu Daniels Ortega um við-
ræður við Bandaríkjaforseta þar sem kontra-skæruliðar væru
viðstaddir. Háttsettur embættismaður sagði að slíkur fundur væri
„skref aftur á bak“. Hann sagði að stjórnin héldi við fyrri stefnu
sína að ræða ekki við fulltrúa sandinista nema leiðtogar annarra
Mið-Ameríkuríkja væru viðstaddir.
Ortega sagði í viðtali í flugvél á
leiðinni til Bandaríkjanna þar sem
hann ávarpar þing Samtaka
Læknavísindin:
Öflugt lyf
við hjarta-
sjúkdómum
Boston, Reuter.
LYFIÐ gemfibrozil getur
minnkað líkur á hjartasjúk-
dómum um þriðjung, segir í
nýrri skýrslu finnskra vísinda-
manna. Lyfið dregur úr magni
kólesteróls i blóði og hefur það
verið á markaðnum um skeið.
Vísindamennimir segjast nú
hafa komist að því að gemfibroz-
il sé tvöfalt áhrifaríkara en
sambærileg lyf. Gemfíbrozil virð-
ist draga úr magni LDL-kólester-
óls í blóði en auka magn
HDL-kólesteróls sem vinnur á
hinu fyrmefnda.
í rannsókninni sem gerð var
á rúmlega fjögur þúsund mið-
aldra karlmönnum kom fram að
eitt ár líður áður en lyfjagjöf fer
að hafa sýnileg áhrif. Að meðal-
tali minnkaði tíðni hjartasjúk-
dóma hjá tilraunahópnum um
þriðjung. Vísindamennimir segja
að þeim sé ekki kunnugt um
neinar alvarlegar aukaverkanir
við notkun lyfsins.
í annarri rannsókn á vegum
bandarískra vísindamanna kem-
ur fram að merki mikils kólester-
óls í blóði komi fram þegar í
bemsku fólks. Þessi niðurstaða
ætti einnig að geta auðveldað
vamir við hjartasjúkdómum.
Ameríkuríkja að hann vildi gjama
hitta Ronald Reagan að máli um
framvindu friðaráætlunarinnar í
Mið-Ameríku. Hann nefndi einnig
að til greina kæmi að fulltrúar
kontra-skæruliða væm viðstaddir
viðræðumar. Var það í fyrsta skipti
sem Ortega býðst til að eiga beinar
viðræður við skæmliða.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í fyrrakvöld
að Bandaríkjastjóm myndi ekki
fara fram á frekari fjárstuðning við
kontra-skæmliða á þessu ári. Þetta
væri framlag stjómarinnar til fríðar
í Mið-Ameríku. Shultz sagði að
þessi ákvörðun táknaði þó ekki að
Bandaríkjamenn ætluðu að snúa
baki við kontra-skæmliðum og of-
urselja þá framrás stjómarhersins
með „hjálp sovéskra vopna og kúb-
verskrar hemaðaraðstoðar“. Ráð-
herrann sagði að ekki væri hægt
að „fóma öllu fyrir friðinn".
Sovétríkin:
Reuter
VETRARRIKIVESTAN HAFS
í Washington féllu fyrstu snjóar vetrarins til jarðar {gær. Þá harðnaði
á dalnum hjá smælingjunum. Maðurinn á myndinni dó þó ekki ráða-
laus heldur fann sér slqól undir plastábreiðu á bekk gegnt Hvíta húsinu.
Alheilbrigt
fólk á geð-
sjúkrahúsum
- segir í frétt
sovésks dagblaðs
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKIR embættismenn og lög-
regla setja heilbrigt fólk á
geðveikrahæli í samvinnu við geð-
lækna, segir i frétt sovéska
dagblaðsins Komsomolskaya
Pravda i gær. Þetta er í fyrsta
skipti sem opinberlega er fjallað
á víðtækan og gagnrýnandi hátt
i Sovétríkjiinnm nm þá kúgunar-
aðferð stjórnvalda að setja and-
lega heilbrigt fólk á geðveikra-
hæli.
Dagblaðið sem greindi frá þessu
er ætlað æsku landsins. „Háir óijúf-
anlegir múrar hafa hingað til staðið
um geðlæknavísindin og komið í veg
fyrir „glasnost" innan þeirra . . . .
Bak við þá múra fer ýmislegt ólög-
legt fram,“ sagði i dagblaðinu.
Greint var frá því að fólk sem hefur
uppi mótþróa við handtöku væri
dæmt geðklofa og sett á hæli. Ef
svo kæmi í ljós að fólkið væri heil-
brigt þá hefði það samt sem áður á
sér geðveikisorð sem getur valdið
því erfíðleikum í starfí og jafnvel
komið í veg fyrir að það fínni sér
lífsförunaut.
Vitnað var í mál tvítugrar stúlku
sem sögð var geðklófa eftir að hún
hafði gagnrýnt forstjóra verksmiðj-
unnar sem hún vann hjá og aðbúnað
á vinnustað. Hún var sett á geð-
sjúkrahús gegn vilja sínum og blaðið
sakaði geðlækna hennar um „grófar
misþyrmingar“.
Umbótasinni rekinn
ór flokksforystunni
Boris Yeltsin settur af í Moskvu
Moskvu, Reuter.
BORIS Yeltsin, umbótasinnuðum
forystumanni kommúnistaflokks-
Hæstiréttur í Bandaríkjunum:
Reagan tilnefnir
Anthony Kennedy
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkjafor-
seti tilnefndi í gær Anthony
Kennedy, dómara við áfrýjunar-
rétt í Kaliforníu, í embætti
hæstaréttardómara i Banda-
ríkjunum.
Kennedy sem er 51 árs að aldri
er sagður vera heldur fijálslyndari
en Robert Bork sem þingið hafnaði.
Dómar hans hafa þó þótt fremur
íhaldssamir og hann hefur valdið
samkynhneigðum og kvenréttinda-
fólki vonbrigðum þó stuðningsmenn
hans segi að hann sé ekki íhaldssam-
ur hugsjónamaður eins og Bork.
Fregnir herma að FBI, alríkislög-
reglan, hafí kannað feril Kennedys
og komist að því að hann hefði
óflekkaða fortíð. Spumingu frétta-
manna um hvort hann hefði neytt
fíkniefna svaraði Kennedy neitandi.
ins í Moskvu, var vikið úr starfi
í gær. Sovéska sjónvarpið greindi
frá þvi í fréttatíma að miðstjórn
flokksdeildarinnar i Moskvu hefði
leyst Yeltsin frá störfum vegna
„meiriháttar agnúa" á forystu
hans. Pólitísk staða Yeltsins sem
sagður er einn helsti stuðnings-
maður Gorbachevs Sovétleiðtoga
hefur verið veik síðan í síðasta
mánuði er hann gagnrýndi for-
ystumenn flokksins fyrir að
fylgja umbótastefnunni ekki nógu
vel eftir. í breska útvarpinu BBC
voru sérfræðingar í málefnum
Sovétríkjanna þeirrar skoðunar
að líta bæri á brottrekstur Yelts-
ins sem visst áfall fyrir Gorbach-
ev en Yeltsin hefur verið talinn
skjólstæðingur hans.
Yeltsin hefur verið aðalritari
Moskvudeildar kommúnistaflokksins
síðan í desember árið 1985. Víst
þykir að hann missi nú einnig sæti
sitt án atkvæðisréttar í Stjómmála-
ráðinu. Það fór ekki milli mála á
miðstjómarfundinum í gær að sov-
Reuter
Borís Yeltsin fyrrum forystu-
maður Moskvudeildar sovéska
kommúnistaflokksins.
éskir ráðamenn litu ómyrkar yfírlýs-
ingar Yeltsins mjög alvarlegum
augum. Gorbachev var sjálfur við-
staddur þegar tekin var ákvörðun
um að láta Yeltsin fjúka. Þar voru
einnig Yegor Ligachev fulltrúi
íhaldssama armsins í Sovétríkjunum
og Georgy Razumovsky ritari mið-
stjómar kommúnistaflokksins en
hann er ábyrgur fyrir starfsmanna-
haldi í flokknum. Gorbachev hafði
þegar í síðustu viku sneitt að Yelts-
in fyrir offors í umbótamálum. í
ræðu sem Gorbachev hélt við upphaf
hátíðahalda í tilefni byltingaraf-
mælisins gagnrýndi hann harð-
skeytta og óþolinmóða flokksbræður
sem vildu flýta umbótum um of.
Sovéskir embættismenn hafa
reynt að draga úr mikilvægi Yelts-
in-málsins og gefíð í skyn að hér
væri ekki um að ræða átök milli
íhaldssamra með Ligachev í broddi
fylkingar og fylgismanna Gorbach-
evs. Athygli vekur að sovésk dagblöð
hafa ekki greint lesendum sínum frá
því að Yeltsin baðst lausnar í síðasta
mánuði vegna þess að honum fannst
umbætumar ekki ganga nógu hratt
fyrir sig.
Miðstjóm kommúnistaflokksins í
Moskvu samþykkti einróma að Lev
Zaikov sem sæti á I Stjómmálaráð-
inu yrði eftirmaður Yeltsins.
Sjá „Rekinn úr embætti fyrir
pólitisk mistök" á siðu 35.