Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 Menuhin gefur blóm Reuter Brezki fiðluleikarinn Sir Yehudi Menuhin afhendir sovézka píanóleikaranum Victoria Poznikova blómvönd að afloknum tónleikum þeirra í Moskvu, höfuðborg Sovétríkjanna, í fyrrakvöld. Ítalía: Flokkur frjálslyndra hótar stj órnarslitum Fallið frá fyrirhuguðum skattalækkunum Róm, Reuter. DEILUR eru komnar upp innan ítölsku ríkisstjórnarinnar vegna fjár- lagafrumvarps næsta árs og hefur Frjálslyndiflokkurinn hótað að slíta stjómarsamstarfinu verði frumvarpinu ekki breytt. Giovanni Goria, forsætisráðherra Ítalíu, boðaði í gær leiðtoga stjórnarflok- kanna fimm saman til fundar, og fer hann fram á föstudag. Er þetta var gjört heyrinkunnugt ákváðu ráðamenn Fijálslyndaflokks- ins að fresta því að taka afstöðu til áframhaldandi stjórnarsamstarfs þangað til þeim viðræðum lyki. Renato Altissimo, leiðtogi frjáls- ljmdra, sagði í gær að flokksforust- an hefði fallist á að eiga viðræður við samstarfsflokkana en bætti því við að treglega myndi ganga að ná sáttum þó svo hann vonaði að það tækist. Altissimo lýsti því yfir á þriðjudagskvöld að hann myndi leggja til á fundi flokksforustunnar, sem fram fór í gær, að flokkurinn hætti stjómarsamstarfinu, vegna þess að samstarfsflokkamir §órir hefðu gengið á bak loforða um að lækka skatta í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Altissimo átti í gær lang- ar viðræður við Goria forsætisráð- herra og féllst hann á að bíða þar til leiðtogar stjómarflokkanna hefðu komið saman. Þótt Fijálslyndiflokkurinn hætti stjómarsamstarfínu myndi stjóm Gorias enn hafa meirihluta á þingi. Hins vegar er líklegt að stjómin myndi neyðast til að segja af sér sökum breytinga sem gera þyrfti á henni vegna afsagnar ráðherra Frj álslyndaflokksins. Ríkisstjóm Gorias tók við völdum á Ítalíu þann 28. júlí eftir fimm mánaða stjómarkreppu. í október- mánuði neyddist stjómin til að endurskoða fjárlagafrumvarp næsta árs eftir að þingnefnd hafði vísað því á bug á þeim forsendum að í því væri ekki tekið af nægi- legri festu á efnahagsmálum þjóðarinnar. Frjálslyndiflokkurinn vill að tekjuskattur verði lækkaður svo og sérstakur tryggingaskattur, sem sjálfstæðum atvinnurekendum er gert að greiða. í fyrra frum- varpinu var gert ráð fyrir að skattar þessir yrðu lækkaðir en í síðari útg- áfu þess, sem lögð var fram á þriðjudag þrátt fyrir mótmæli ftjálslyndra, er fallið frá þeim áformum. Stærstu verkalýðsfélög Ítalíu hafa boðað til verkfalls þann 25. þessa mánaðar til að mótmæla því að ekki hafi verið staðið við skatt- lækkanimar. Telja stjómmálaskýr- endur margir hveijir stjóm Gorias nú riða til falls en almennt hafði verið búist við að hún héldi velli að minnsta kosti fram yfir áramót. Vopnahlésdagurinn í gær, 11. nóvember, var þess minnst víða um lönd, að þennan dag 1918 var ritað undir vopnahléssamninga, sem bundu enda á fyrri heimsstyijöldina. Efnt var til minningarathafnar í París og lagði Francois Mitterrand, Frakklandsforseti, blómsveig við Sigurbogann í frönsku höfuðborginni til minningar um þá, sem týnt hafa lífi í styij- öldum. Sveit hermanna klæddist búningum úr fyrra stríði í tilefni dagsins; sést hún hér á heiðursgöngu við Sigurbogann. ísrael: Ida Nudel þakklát Islend- ingum Tel Aviv, frá Zeev Goldfeld, frétta- ritara Morgunblaðsins í ísrael. „ÉG vil koma á framfæri þakklæti tíl forseta íslands, ríkisstjórnar, og þjóðarinn- ar allrar fyrir þeirra fram- lag og þann þrýsting sem leiðtogar Sovétríkjanna voru beittir á Reykjavíkur- fundinum í fyrra til þess að ég og fleiri gyðingar fengj- um að flytjast til föðurlands okkar. Eg á enn bágt með að trúa að draumurinn um að flytjast til ísraels hafi rætzt,“ sagði Ida Nudel, hin kunna andófskona, í samtali við fréttaritara Morgun- blaðsins fyrir skömmu. Ida Nudel, sem er 56 ára, var nýlega leyft að fara frá Sovétríkjunum, þar sem hún sat meðal annars í fangelsi í Síberíu fyrir skoðanir sínar í fjögur ár. Kom hún til ísraels fyrir þremur vikum. Nudel er meðal rúmlega 6.200 gyðinga, sem fengið hafa að flytjast frá Sovétríkj- unum í ár, en það eru níu sinnum fleiri en fengu að fara þaðan í fyrra (908). ísraela greinir á um hvað valdi því að Rússar hafi leyft fleiri gyðing- um að fara úr landi í ár. Sumir segja að þetta sé afleiðing umbótastefnu Gorbachevs en aðrir halda því fram að þetta sé aðeins bragð til þess að öðlast samúð á Vesturlöndum og að stefna Sovétmanna í málefnum gyðinga hafí í raun ekkert breyst. Hvað sem því líður fagna ísraelar hveijum þeim gyðing sem fær að flytjast frá Sov- étríkjunum. Talið er að um 400.000 gyðingar bíði þess að fá að fara þaðan. Með hlaðna skammbyssu í skólann New York, Reuter. SEX ára piltur mætti í skóla i einu af betri hverfum New York í gærmorgun veifandi hlaðinni sjálfvirkri skammbyssu, að sögn talsmanns lögreglu borgarinnar. „Hann var með hlaðna skamm- byssu með hlaupvíddinni 7,65 milli- metra og það voru ( henni fjögur skot. Hvar hann fékk hana höfum við ekki hugmynd um,“ sagði tals- maðurinn, Peter O’Donnell. Yfirvöld skólans afvopnuðu pilt- unginn og kölluðu á lögregluna. Tók hún stráksa í sína vörzlu. Þegar hann var spurður hvemig hann hefði komizt yfir skotvopnið varð honum margsaga. Móðir hans kvaðst mjög hlessa og gat ekki ímyndað sér hvar hann hefði fengið byssuna. f gær var pilturinn til yfirheyrzlu hjá bamavemdamefd New York- borgar. Að sögn lögreglu verður ekki aðhafst neitt frekari í málinu. Lög- reglan neitaði að gefa upp nafn piltsins. Stærstu flugfélög Bret- lands ganga í eina sæng Stjórnin heimilar samruna British Airways og British Caledonian Lundúnum, Reuter. BRESKA stjórnin samþykkti í gær tillögu samruna tveggja stærstu flugfélaga landsins, en með skilyrðum þó. Þau eru til þess að tryggja eðlilega sam- keppni. Stjórnarformaður Brit- ish Airways (BA), King lávarður, sagði að hann byggist við þvi að nú stæði ekkert i vegi fyrir sam- einingu félaganna — einungis væri eftir að ganga frá fjármála- hliðinni. Það var Young lávarður, við- skipta- og iðnaðarráðherra, sem tilkynnti að stjómin hefði fallist á sameiningu félaganna að undan- gengnum skilyrðum, sem tryggðu eðlilega samkeppni. Fyrr á árinu einkavæddi stjómin BA og seldi hlutabréf í fyrirtækinu að andvirði 900 milljóna sterlings- punda (um 60 milljarðar ísl. króna). Frá apríl til september í ár hefur hagnaður fyrirtækisins numið um 142 milljónum punda. British Cale- donian hefur á hinn bóginn átt í nokkmm erfiðleikum og tapaði rúmlega 19 milljónum punda á síðasta ári. Er talið að samruninn sé félaginu nauðsynlegur, ella kunni það að verða gjaldþrota. Smærri flugfélög á Bretlandi hafa barist harðlega gegn samein- ingunni, sem þau segja muni koma verst niður á sér fái BA að halda flugleiðum British Caledonian innan lands og í Evrópu. Young lávarður sagði að BA yrði að gefa upp á bátinn 5.000 lendingar og brott- farir á Gatwick-flugvelli og að sérleyfi British Caledonian yrðu tekin til endurskoðunar, til þess að tryggja fijálsa og eðlilega sam- keppni. Ennfremur verður BA að afsala sér öllum leyfum Caledonian innanlands og til 10 evrópskra borga, innan eins mánaðar frá því að kaupin fara fram. Upphaflega bauð British 237 milljónir punda í Caledonian, en þegar málinu var skotið til stjómar- innar féll það sjálfkrafa úr gildi. Nú hefur BA þijár vikur til þess að taka afstöðu til ákvörðun stjóm- arinnar og bjóða í Caledonian að nýju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.