Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Stjörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Heilsa Krabbans
f dag ætla ég að fjalla um
Krabbann (21. júní—22. júll)
með tilliti til heilsumála. At-
hygli er vakin á því að þar
sem hver maður á sér nokkur
stjömumerki hafa önnur
merki en sólarmerkið einnig
sitt að segja þegar heiisumál
eru annars vegar.
Magi
* Krabbamerkið stjómar
bijóstum, maga og meltingar-
vegi og því er algengt að
áhyggjur og erfiðleikar fari í
magann, leiði til magabólgna
eða magasárs, meltingartrufl-
ana og lystarleysis. Krabbar
þurfa þvi að gæta þess að
setja magann ekki úr jafn-
vægi, m.a. með því að hafa
ekki of mikinn rugling á mat-
aræði og llfsháttum. Einnig
er mikilvægt að hann varist
að borða mat þegar hann er
í ójafnvægi þvi líklegt er að
þá eigi hann erfitt með melt-
ingu.
ViÖkvfímni
Þar sem Krabbinn er næmur,
viðkvæmur og móttækilegur
fyrir ytri áhrifum þarf hann
að gæta sín sérstaklega vel,
gæta þess að hafa gleði, liti,
birtu og jákvæðan anda í
umhverfi sinu, m.a. með því
að fegra heimili sitt og um-
gangast jákvætt fólk. Ekki er
síður mikilvægt að hann hafi
einhvem til að líta eftir, þvi
Krabbinn er hið mikla foreldri
dýrahringsins.
Skapsveijlur
Annað sem einkennir Krabb-
ann eru skapsveiflur hans sem
fylgja flóði og fjöru tunglsins.
Krabbinn á því til að detta
niður 1 þunglyndi án sýnilegr-
ar ástaeðu og risa síðan upp
nokkrum dögum síðar og vera
á toppi heimsins, glaður, án-
ægður og fullur sjálfstrausts.
Áhyggjur
Eitt mál er varasamt og getur
lagst á heilsu og maga Krabb-
ans. Það er tilhneiging hans
til að hafa áhyggjur af öllu
mögulegu. Krabbinn þarf ör-
yggi og verður þvi áhyggju-
fullur ef hann skuldar
peninga, ef allt er ekki ( lagi
( hjónabandinu eða ef erfið-
leikar steðja að i Qölskyldunni.
Til að viðhalda góðri heilsu
þarf hann þvi að skapa sér
öryggi, búa í jákvæðu um-
hverfi og hafa eitthvaö til að
líta eftir, hvort sem það er
maki, dýr, blóm eða garður.
Einnig er gott fyrir Krabba
að fara reglulega i göngutúra
niður í fjöru eða út i náttúr-
una.
Hreyfing
Þar sem Krabbinn á til að
fitna og safna á sig fitu er
mikilvægt að hann hreyfi sig
reglulega. í því sambandi get-
ur tónlist eða dansleikfimi
verið hjálpleg ekki síður en
göngufeiðir. Einnig er nudd
gott fyrir Krabba, því það
getur hjálpað honum að losa
sig við vökva og bijóta niður
fituvefi.
ímyndunarveiki
Umfram allt þarf Krabbinn
að varast að láta (myndunar-
aflið dvelja of mikið á smáat-
riðum þannig að hann verði
ímyndunarveikur. Hann þarf
að læra að horfa framhjá
smáatriðum og þarf að þjálfa
tnoð sér yfirvegun. Krabbinn
þarf einnig að læra að búa til
fjorlægð milli sín og annarra
þannig að vandamál annarra
verði ekki að hans eígin
vandamálum. Stöðug hugsun
um fortíðina og það sem gæti
gerst í framtíðinni er einnig
vont mál fyrir orku og heilsu
Krabbans ekki sfður en ann-
arra.
::!! :::::::: uARPUR
:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
............
GRETTIR
STUNPU/Vl pETTUE AtÉR í HUG
A£> A1ENNTA MlG £ EJNMVERJU
::::: 1 WIVIIVII UU JCIMIMI
:::::::::::::::::
ti jijjjnttjt
niii iní i in:
...............:•
FERDINAND
jjjjttt
!!!!!!!!:i!i!!!!!!í!!!!!!!!!!! !!i?!?i’:T?fni!!T!!
Mliiliiililllillliiiiiiiiiiiiiiililili
iMuiii
Miiiilli
SMAFOLK
THE 60LF PRO 15
MAP AT VOU!
-y-
Golfkennarínn er reiður
út í þig.
HE 5AIP TO 6ET OFF
THE GOLF C0UR5E, ANP
5T0P MARCHIN6TMR0UGH
ALLTHE 5ANDTRAP5!
Hann sagði að þú yrðir að
fara af golfvellinum og
hætta að æða um sand-
gryfjurnar.
Ég helt
Sahara.
þetta
ANP THE CLUBH0U5E
íSNT FORTZINPERNEUF!
m
Og klúbbhúsið er ekki
virkið! Er það ekki?
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Spilið í dag kom upp í
tvímenningskeppni I New York
nýlega. Gamalreyndur rúbertu-
spilari hélt á spilum austurs.
Honum fannst suður sýna spil-
um sínum óeðlilega mikinn
áhuga og ákvað því að setja
hann upp við vegg, strax í fyrsta
hring.
Vestur gefur, enginn á hættu.
Vestur
42
4G872
♦ D109
4108743
Norður
4ÁG8763
4 D4
4 G8742
4-
Austur
4-
45
♦ ÁK65
4 ÁKDG9652
Suður
4 KD10954
4ÁK10963
♦ 3
4-
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 6 lauf! 6 spaðar
7 lauf 7 spaðar Pass Pass
Pass
Hreint ótrúleg spil í austur
og suður. Undir eðlilegum kring-
umstæðum hefði austur opnað á
alkröfu, tveimur laufum, en
hann bjóst við látum úr suðrinu
og vildi ljúka sér af strax.
Aframhald sagna verður að telj-
ast mjög eðlilegt.
Það blasir við að vestur má
alls ekki spila út laufi, þvi þá
hverfur tígultaparinn heima.
Enda féll vestur ekki í þá gryfju;
hann átti sjálfur fimm lauf og
taldi ekki fráleitt að makker
ætti þau átta sem afgangs voru
fyrir kröftugri opnun sinni.
Hann trompaði því út, og sagn-
hafi gafst strax upp.
Það reyndist vera eina talan
í AV og því hreinn toppur.
Umsjón Margeir
Pótursson
Á stórmótinu í Belgrad um dag-
inn kom þessi staða upp í skák
stórmeistaranna Predrag Nik-
olic, sem hafði hvítt og átti leik,
og Nigel Short.
36. Hxc6! - bxc6, 37. Bxf6 —
Ref6 (eða 37. - Hxf5, 38. Rxf5
— Hxf5, 39. Hxd7 og hvítur vinn-
ur endataflið). 38. Be6. Hvítur
vinnur nú skiptamuninn til baka
með léttunninni stöðu. (Svartur
gaf eftir 38. - Hb8, 39. Be5 —
He8, 40. Hd6 - Kf8, 41. Bf7 -
Kxf7, 42. Hxc6 - Rxe5, 43. fxe5
- Hxe5, 44. a4 - Rd7, 45. a5 -
He8, 46. a6 - Ha8, 47. Rd5 -
Re5, 48. Hb6 - e3, 49. Rxe3).