Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
71
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Gott framtak
Afi lögga hringdi:
„Fyrir skömmu gekk ég fram
á menn sem voru að klippa trjá-
greinar sem héngu af einkalóðum
út yfir gangstéttar. Ég gaf mig
á tal við þá og sögðust þeir vera
verktakar sem tekið hefðu þetta
verkefni að sér fyrir Reykjavíkur-
borg. Ég vil þakka fýrir þetta
framtak. Meðan ég var í lögregl-
unni lét ég rétt gangandi vegfa-
renda nokkuð til mín taka og mér
hefur alltaf leiðst vita tijágreinar,
sem garðeigendur hafa ekki hirðu
á að klippa, verða gangandi fólki
til ama.“
Hver á sjóinn? - góð
grein
G.M; hringdi:
„Ég vil taka undir með höfundi
greinarinnar „Hver á sjóinn?" sem
birtist í Velvakanda sl. sunnudag.
Þeir sem um sjávarútvegsmál
fjalla mættu gjaman tileinka sér
þau sjónarmið sem þar koma
fram. Fólk úti á landi á ekki að
láta meirihlutavaldið í þéttbýlinu
troða sér um tær í þessum efn-
um.“
Stundin okkar vel unn-
in
Móðir hringdi:
„Það er alltaf verið að kvarta
um það sem miður fer en minna
talað um það sem vel er gert.
Mig langar til að þakka sjón-
varpinu fyrir Stundina okkar sem
hefur verið mjög vel unnin að
undanfömu. Ég von fyrir hönd
bamanna að sem mest verði af
svona efni í sjónvarpinu. Þau bíða
eftir stundinni sinni með óþreyju
og fá aldrei nóg.“
Stagl og stam
Hallfríður Georgsdóttir -
hringdi:
„Sem notandi ríkissjónvarpsins
spyr ég hvort ekki sé hægt að
lesa fyrir okkur fréttir án stagls
og stams og jafnvel ýmis konar
fréttaskýinga þuls. Þetta er næsta
óþolandi og liggur við að ég bara
slökkvi.“
Kettlingur
Um tveggja mánaða gömul
læða, svört og hvít, er í óskilum
í Laugameshverfi. Upplýsingar í
síma 681525.
Góð þjónusta hjá Póst-
inum
Svanhildur hringdi:
„Mig langar til að þakka fyrir
góða þjónustu hjá Póstinum. Ég
fékk nýlega sendan pakka frá
dóttur minni í Kanada en merk-
ingin á honum hafði alveg máðst
út. Starfsmaður hjá póstþjón-
ustunni hafði mikið fyrir því að
hafa upp á dóttur minni til þann-
ig að hægt væri að koma pakkan-
um til skila. Ég vil þakka fyrir
þessa góðu þjónustu."
Hugleiðingar um hávaða
Til Velvakanda:
Mig langar til að þakka fyrir
tímabærar greinar um hávaða sem
birst hafa undanfarið í Morgun-
blaðinu. Ágústa Agústsdóttir reið á
vaðið með athyglisverðri hugleið-
ingu í Lesbókinni þar sem hún
fjallaði um böl þeirrar hávaðameng-
unar sem við búum við. Síðan hafa
fleiri stungið niður penna og ritað
í svipuðum dúr.
Sannleikurinn er sá að hávaði er
orðinn vandamál hér á landi. Að
sjálfsögðu er fyrst og fremst átt
við „óþarfan" hávaða sem við
mennimir framleiðum, aðallega
með ýmis konar hljómtækjum. Víða
á heimilum, á vinnustöðum, í versl-
unum og jafnvel á götum úti glymur
þessi hávaði og vaðall í eyrum.
Á vinnustaðnum þar sem ég er
daglega — svo dæmi sé tekið —
þarf ég oft að leysa af hendi fínlega
vinnu sem krefst nákvæmni og ein-
beitingar. Samt láta sumir sam-
starfsmenn útvarpið glymja þegar
þeim þóknast. Þó vita þeir vel
hversu sum okkar þolum það illa.
„Ég vil útvarp og svo varðar mig
ekkert um hina“ — það virðast vera
einkunnarorð þeirra.
Reykingamenn eru loksins famir
að skilja að það gengur ekki að
aðrir séu neyddir til að anda að sér
eitruðum reyk þótt reykingamönn-
unum sjálfum þyki reykurinn góður.
Nákvæmlega sömu rök hljóta að
gilda um hávaðamengun. Það er
.gnibioH munXÍ9Í
ekki sanngjamt að hávaðasinnar
neyði aðra til að hlusta á útvarp
og önnur hljómtæki í tíma og ótíma,
bara þegar þeim þóknast. Alkunna
er að stöðugur glymjandi getur
haft slæm áhrif á taugakerfíð og
valdið streitu og öðrum sjúkleika.
Fólk ætti því að íhuga þessi mál
og minnast þess að enginn er einn
S heiminum. Þeir sem telja sig
„verða“ að hlusta á eitthvað, t.d.
við vinnu, geta aðveldað leyst vand-
ann á einfaldan hátt: Fengið sér
vasatæki, þau eru ótrúlega lítil og
þægileg, haft tækið í vasa eða á
Til Velvakanda.
Mig langar að benda mönnum á
að hlusta á útvarpsstöðina ÖLFU
sem sendir út kristilegt efni og hef-
ir mikinn boðskap að færa. Ég hefí
undanfarið hlustað nokkuð á þessa
stöð og haft bæði ánægju og gagn
af. Þama eru menn méð áhuga á
að bæta þjóðlífið, koma anda Drott-
ins inn í hugi landsmanna, sem sagt
fá fólk til að hugsa, líta sér nær.
Hljómlistin er þannig að engum þarf
að leiðast sem á hlýðir. Þessa stöð
þarf ekki að vara böm við að hlusta
á og þarf heldur ekki að segja mönn-
um að loka fyrir.
Eitt er það sem væri kærkomið
og það er að fá meiri kynningar laga
eahoD taóisD isel ibnaignH i gO
vinnuborðinu og stungið örsmáum
hátalaranum í eyrað, með leiðslu á
milli. Þannig geta þeir hlustað
ótmflaðir og án þess að valda óþæg-
indum.
Kaupmenn ættu líka að veita því
athygli, sem fram hefur komið í
umræðum um hávaðann, að þeir
fæla fólk frá búðunum með tætings-
músík úr hljómtækjum. Það er nú
varla meiningin, eða hvað?
Ég hvet fólk til að irjalla áfram
um málið og snúast til vamar —
því að hávaði er ofbeldi.
Jórunn Halla
og efni erinda.
Það er gott að fá þennan anda inn
í glauminn sem alla er að setja út
af standinum og gera menn átta-
villta. Þessi fjölmiðlaglaumur nótt
og nýtan dag margra stöðva er ekki
vel til þess fallinn að tala um frið,
en friðlaus þjóð í mikilli velmegun
er ekki sterk til að mæta miklum
vanda. Hún þarf vissulega hjálpar
við. Hvaðan kemur mér hjálpin?
Hjálpin kemur frá Drottni. Þetta er
hvetju orði sannara. Og hafi þeir
þökk sem að þessari stöð standa.
Megi hún eflast og verða mörgum
til blessunar.
Árni Helgason
•'yul'd ijfiöíaíhsJB ugn9i isgniJÍiV'
Hlustið á útvarp ÖLFU
Síðasta útsöluvika
Karlmannaföt kr. 4.975,- 6.500,- og 2.995,-
Stakirjakkarkr. 3.975,-
Terylenebuxurkr. 1.195,-og 1.395,-
Gallabuxur kr. 745,- og 795,-
Flauelsbuxur kr. 795,-
Skyrtur, peysur, nærföt o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Vinsælu
dönsku
herra-
jakkarnir
komnir.
Margar nýjar
gerðir.
FALKON
(fathion.fac.men
M.a.yfirstærðir.
GEYSíPf
PIFCO
boroviftur