Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 70
rr
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Ást er...
... að þola henni júdó-brögð-
in.
TM Reg. U.S. Pat. Otr.—ali rlghts resetved
e 1986 Los Angeles Tlmes Syndlcate
Þú mátt ekki hlæja. Þá
heldur hann að þetta sé
Réttu mér járn! fyndið!
Kynþáttafordómar í sjónvarpi?
Til Velvakanda.
Undanfarið hafa orðið nokkrar
umræður um innflutning fólks frá
Asíulöndum. Er þá mikið rætt um
konur, sem gengið hafa í hjúskap
með íslenskum karlmönnum. Sitt-
hvað kemur fram í þessu, sem
manni finnst orka tvímælis. Mér
Til Velvakanda.
Þegar við í vor byijuðum á að
endurbyggja og stækka kirkju okk-
ar og safnaðarheimili gerðum við
það í öruggri trú til Drottins að
hann myndi vel fyrir öllu sjá. Við
vissum að hann myndi leggja það
á hjörtu margra vina að leggja
þessu máli Iið á einn eða annan
hátt. Sannarlega hefír Drottinn
ekki brugðist þeim fyrirheitum, sem
hann hefír gefið í orði sínu til þeirra
sem treysta honum af heilum hug.
Honum ber því heiðurinn, dýrðin
og þakkargjörðin. Við biðjum Guð
að blessa ríkulega þá einstaklinga
og fyrirtæki, og launa þeim, sem
með áheitum eða beinum gjöfum
hafa sýnt í verki kærleika sinn og
fómarlund til þessa málefnis.
Bæjarbúar og fleiri hafa fylgst
af áhuga með þessari byggingu og
dáðst að látleysi hennar, en þó reisn
og fegurð. Biblían segir: „Ef Drott-
inn byggir ekki húsið, erfíða
finnst t.d. ekki liggja í augum uppi,
að erlendar hjúskaparmiðlanir hafí
leyfi til að starfa á íslenskum mark-
aði. En hvað sem því liður, er nú
þegar nokkuð af fólki hér á landi,
körlum og konum á öllum aldri, sem
á uppruna sinn í Asíu. Þegar svo
smiðimir til ónýtis." Sálm. 127:1.
Hér hefír sannarlega það tvennt
farið saman. Smiðimir hafa unnið
frábærlega vel, og Drottinn hefír
verið með í verki. Það er búið að
útibyrgja, þó enn sé eftir að setja
klæðningu á aðra viðbygginguna.
Þá eru allar innréttingar eftir og
endumýjun á öllum lögnum. Það
þar því mikið efni og mörg hand-
tök. Það er því nóg að vinna, og
verður því haldið áfram eftir því
sem ástæður leyfa.
Við minnum alla velunnara flær
og nær á að reikningsnúmer Salem-
kirlqunnar á ísafírði er 5782 í
Landsbankanum. „Guði séu þakkir,
sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin
vom Jesúm Krist." 1. Kor 15:57.
Það, er vinna vill þín kirkja,
virstu, Guð, af náð að styrkja, að
það beri ávöxt þann, er þá móður
gleðja kann.“ (HH.)
Sigfús B. Valdimarsson
er komið, reynir á okkur, sem fyrir
vorum í landinu. Hvemig tökum við
þessu fólki og hvemig gætum við
réttar þess?
í sjónvarpinu var fyrir skömmu
skemmtiþáttur, þar sem vikið var
að þessum málum á mjög óviðeig-
andi hátt. Þar var gert gamanmál
úr alvöruefni, og ómögulegt er að
hugsa sér, að nokkur gæti hlegið
að því nema á grundvelli vemlegra
kynþáttafordóma. Höfundur virðist
gera ráð fyrir því, að þessir fordóm-
ar séu til hjá þeim sem á horfðu.
Það liggur í augum uppi, að þessi
umfjöllun var niðurlægjandi fyrir
alla þá íslendinga, sem eiga uppr-
una sinn í Asíu. Þeir hljóta að vera
uggandi um framtíð sína á íslandi,
ef þetta er hlægilegt í augum þjóð-
arinnar.
Við íslendingar eigum sterka
þjóðmenningu, og einmitt þess
vegna hlýtur að vera nokkuð erfítt
að vera útlendingur hér. Við getum
með nokkrum rétti ætlast til að
innflytjendur lagi sig að þjóðmenn-
ingu okkar. Hins vegar eiga þeir
heimtingu á, að við niðurlægjum
þá ekki vegna uppruna síns eða
sérkenna í menningu hins fyrra
heimalands. Skylda okkar allra er
að líta fremur til með þessu fólki,
til þess að stuðla að því, að það
haldi einstaklingsréttindum og
möguleikum til jafns við aðra í
landinu.
Vonandi er virtur fjölmiðill ekki
að gefa tóninn um viðhorf þjóðar-
innar til kynþáttamála með slíkri
umfjöllun. Við skulum í þessu efni,
sem öðrum, veita skemmtikröftum
það aðhald í framtíðinni, að hlæja
aldrei að neinu, nema því sem við
erum viss um að okkur fínnist
hlægilegt.
Sr. Signrður Sigurðarson
Þorstein aft-
ur í Morgnn-
stundina
Kæri Velvakandi
Hún var svo ágæt sagan sem
hann Þorsteinn Thorarensen las í
bamatímanum Morgunstund bam-
ana um daginn. Hann las hana svo
vel að við vildum ekkert missa af
því sem hann las. Hann gerði okkur
svo spennt. Er ekki hægt að fá
Þorstein til að koma aftur og lesa
og segja frá í Morgunstundinni.
Hann er svo líflegur. Við sendum
Þorsteini kveðjur og þakkir.
Tvær litlar í Hólminum
Salem, ísafirði:
Halfnað er verk þá...
Yíkverji skrifar
Sigrár íslendinga á erlendri
grund eru jafnan sætir. En ein-
hvem veginn hefur sá Víkverji, sem
hér fer, fengið þá tilfínningu, að
sigrar á Dönum í boltaleikjum séu
sérstaklega sætir. Og þá einnig, að
þungbærara sé að tapa fyrir Dönum
en öðrum á þessu sviði. Sigur hand-
boltaliðs Víkings um helgina jrfir
danska liðinu Kolding var einn af
þessum sætu sigmm, því flestir,
sem hafa rætt leikinn í eyru
Víkveija, hafa tekið sérstaklega
fram, að það gerði sigurinn ennþá
sætari, að andstæðingurinn var
danskt lið. Heimildarmaður
Víkveija, sem átti samleið með
Víkingum heim og nefur áður átt
heimleið með íslenzkum íþróttalið-
um eftir sigur í útlöndum, segist
ekki muna aðrar eins móttökur og
Víkingar fengu hjá starfsfólki Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar. Og
rúsínan í pylsuendanum voru um-
mæli eins starfsmannsins, sem tók
"þétt í hönd handboltamannsins og
sagði: „Þakka ykkur fyrir. Þakka
ykkur fyrir. Þetta var eins og í
ævintýri"
XXX
En það sigra fleiri íslendingar í
útlöndum en boltamenn. í
þriðjudagsblaði Morgunblaðsins,
þar sem sagt er frá sigri Víkings,
er sagt frá þremur íslenzkum
söngvurum, sem eru að hasla sér
völl með erlendum þjóðum. Bergþór
Pálsson hefur verið ráðinn við óper-
una í Kaiserslautem f
V-Þýzkalandi, þar sem eiginkona
hans, Sólrún Bragadóttir, er fyrir.
0g í Englandi fær Garðar Cortes
lofsamleg ummæli fyrir söng sinn.
Þannig eru íslenzk ævintýri að
gerast út um allan heim. Og þau
eru bæði mörg og margbreytileg.
Hver fylgist ekki af áfergju með
frama þeirra Kristjáns Jóhannsson-
ar, Helga Tómassonar, Ásgeirs
Sigurvinssonar og Jóhanns Hjartar-
sonar svo örfá dæmi séu nefnd.?
Og hefur ekki Ashkenazy verið út-
nefndur tengdasonur íslands?
Öll þessi nöfn vekja ekki minni
gleði í hjarta Víkveija en frammi-
staða Víkinga um helgina.
Og í kvöld á að kjósa fegurstu
konu heimsins. Að sjálfsögðu hefur
íslenzk kona borið þann titil og
önnur keppir í kvöld. Þannig er
ekkert lát á okkar framgöngu. Og
auðvitað erum við íslendingar bezt-
ir. Rétt eins og Víkingar voru í
leiknum gegn Kolding.