Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 43 Hjörleifur Guttormsson: „Keyrir um þverbak“ Seinagangnr á framlagningu stj órnarfrum varpa Starfsleysi þingnefnda Hjörleifur Guttormsson (Abl/Af) gagnrýndi harðlega seinagang i framlagningu stjórnarfrumvarpa og vinnubrögð á Alþingi í þing- skaparumræðu i neðri deild i gær. Hjörleifur vakti athygli á því að enginn fundur væri í efri deild, en „messufall er að verða reglan i þeirri deild“. Hann sagði engan ráðherra viðstaddan upphaf fundar nú og aðeins tólf stjórnarþingmenn. Mergurinn málsins væri þó sá að aðeins sjö stjórnarfrumvörp af 104, sem boðuð væru, væru fram komin. Hjörleifur Guttormsson sagði í þingskaparumræðu í neðri deild Alþingis í gær, að sex ráðherrar af ellefu væru fjarverandi þing- störf, þar af fímm erlendis. Tveir ráðherrar til viðbótar hefðu fjarvist- arleyfi. Þeir þrír, sem eftir væru, eru og fjarstaddir, sagði þingmað- urinn (þeir komu þó í þingsal meðan ræðumaður fiutti ræðu sína).' Hjörleifur gagnrýndi hve illa ríkisstjórninni og þingflokkum hennar gengi að koma frá sér boð- uðum stjómarfrumvörpum með þeim afleiðingum að starfstími þingdeilda nýttist illa . Hinsvegar stefndi í afgreiðslu mikils fjölda þingmála, sumra tímafrekra, á allt- of skömmum tíma — á síðustu vikum þings fyrir þinghlé yfir jól og áramót. Ríkisstjómin hefur boðað fram- lagningu 105 fmmvarpa, sagði þingmaðurinn, en þar af hafi aðeins sjö verið fram lögð (það áttunda bættist í hópinn undir ræðu þing- mannsins). Hjörleifur deildi og hart á starfs- leysi þingnefnda. Nokkmm málum, meðal annars stjómarandstöðumál- um, hafi þegar verið vísað til nefnda, en fengju ekki umfjöllun þar, vegna þess að nefndir væm ekki kallaðar saman til starfa. Þingmaðurinn sagðist ýmsu van- ur um þingstörf, en „nú keyrir um þverbak", sagði hann. Hvatti hann deildarforseta til að taka þetta vinnulag allt upp á réttum vett- vangi. Jón Kristjánsson, forseti þing- deildarinnar, sagði forseta þings þegar hafa rætt um framlagningu stjórhárfmmvarpa við rétta aðila. Þingforsetar héldu og reglulega fundi með formönnum þingnefnda til að fylgjast með vinnulagi nefnd- anna og framgangi þingmála þar. Hinsvegar hafí staðið yfir breyting- ar á starfsemi þingsins, fundir þingdeilda verið færðir til milli daga, sem að einhveiju leyti hafí bitnað á nefndastarfí. Þar horfðu mál hinsvegar til hins betra nú þeg- ar. Kjartan Jóhannsson (A/Rn) sagði að iðnaðamefnd, sem Hjör- leifur hafði sérstaklega vikið að, kæmi saman til fundar í næstu viku. Albert Guðmundsson (B/Rvk) sagði ríkisstjórnina helzt hafa af- rekað það, sem betur væri ógert, eins og að hækka skatta. Þessvegna væri það máske til góðs en ekki ills að fmmvörp hennar hefðu hæga ferð inn í þingsali. Hinsvegar stefndi í mikinn vanda ef viðamikl- um málum væri hrúgað inn til afgreiðslu á síðustu vikum þings. Albert sagði að fundir í Norður- landaráði væm engin afsökun fyrir því að ráðherrar og þingmenn stjómarliðsins sinntu ekki skyldu- störfum á Alþingi. Guðmundur Bjarnason, heil- brigðisráðherra, sagði þessa daga ekki versta tímann fyrir þingmenn til að sinna samstarfsskyldum í Norðurlandaráði. Hitt væri rétt að ýmis boðuð stjómarfmmvörp hefðu tafist í meðferð, meðal annars í þingflokkum, og væm því seinni á ferð til þingsins en æskilegt mætti telja. Hann sagði að fmmvarp til læknalaga yrði lagt fram innan fárra daga. Mörg mál væm og á síðasta snúningi undirbúnings hjá ríkisstjóm og þingflokkum hennar. Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, sagði ráðherra, sem væm fjarverandi, hafa lögmæt forföll. Hún minnti á að Albert Guðmundsson hafí verið fjármála- ráðherra á þinginu 1984-1985. Þegar mánuður var liðinn af þingi þá hafí eins staðið á og nú um fram- lagningu mála af hans hálfu. Ekki hafí önnur fmmvörp verið fram komin en fmmvarp að fjárlögum og þingmál tengd því. Umræða af þessu tagi væri hefðbundin við- brögð stjórnarandstöðu. Sumir köstuðu þó gijóti úr glerhúsi. Guðmundur G. Þórarinsson (F/Rvk) sagði eitt fmmvarp, um framhaldsskóla, hafa borizt menntamálanefnd. Menntamála- ráðherra hafí boðað fmmvarp um sama efni. Rétt hafí þótt að ræða þessi tvö mál samtímis. Þessvegna Jómfrúræða Marín E. Ingvadóttur: Ekki má mismuna heimilum skattalega Hér fer á eftir framsaga Mariu E. Ingvadóttur (S/Rvk) fyrir frumvarpi sem hún flytur til breytinga á lögum um tekju- og eignaskatt. Ég mæli hér fyrir fmmvarpi um breytingar á 68. og 83. grein laga nr. 75/1981 um tekju og eigna- skatt með síðari breytingum. Þessu fmmvarpi er ætlað að færa skattalögin einu skrefi nær því að mismuna ekki heimilum eftir því hver aflar teknanna. í 6(5. grein ofangreindra laga er fjallað um skattafslátt, þ.e. þann persónuafslátt sem rennur til greiðsluálagðra gjalda. Nú er það svo að ef annað hjóna, eða sambýlis- fólks, nýtir ekki þennan skattaf- slátt, t.d. vegna þess að viðkomandi vinnur ekki utan heimilis eða aflar lítilla tekna utan heimilis, færist ónýttur hluti hans til þess aðilans sem hærri hefur tekjumar. Ifyrir 50 ámm vom þeir ungling- ar færri sem lögðu í langskólanám en hinir sem fóm út á vinnumarkað- inn. Þetta hefur snúist við, nú afla flestir unglingar sér framhalds- menntunar, enda í takt við þær þjóðfélagslegu breytingar sem orðið hafa. Laun unglinga fyrir sumar- vinnu þeirra duga skammt til bókakaupa og annars er til skóla þarf og þurfa þá foreldrar að hlaupa undir bagga, utan þess að sjá um framfærslu bama sinna. Foreldrar bama, eldri en 16 ára njóta ekki bamabóta vegna þeirra, þrátt fyrir að kostnaður vegna bamanna sé einna mestur á unglingsárunum. Sú breyting sem hér er mælt fyrir er ekki síst mikilvæg fyrir ein- stæða foreldra, sem oft á tíðum standa að mestu ein straum af María E. Ingvadóttir kostnaði vegna uppeldis og mennt- unar bama sinna. Því er lagt til í þessu frumvarpi, að aftan við 68. grein um skattaf- slátt bætist við: „Heimilt er fram- teljanda að nýta óráðstafaðan skattafslátt bama sinna, eldri en 16 ára, sem lögheimili eiga hjá framteljanda." Þetta má þá gera á svipaðan hátt og með yfírfærslu ónýtts skattafsláttar milli hjóna og sambýlisfólks, þ.e. eftir að öll álögð gjöld hafa verið dregin frá. í frumvarpi þessu er einnig kveð- ið á um breytingu við 83. grein sömu laga nr. 7/1984 og lög nr. 72/1986, en sú grein er um eignar- skattsútreikning. í núgildandi lögum er það svo, að allar eignir hjóna eða sambýlisfólks mynda eignarskattsstofn, sem síðan er skipt til helminga. Frá hvorum helmingi fyrir sig er síðan dregin sú upphæð sem nemur skattleysis- mörkum hveiju sinni. Þessi skatt- leysismörk voru 1.525.000 fyrir gjaldárið 1987 fyrir hvem einstakl- ing og voru þar með 3.050.000 fyrir hjón eða sambýlisfólk. Þegar talað er um íjölskyldu í dag, er ekki lengur hægt að hafa aðeins í huga það fjölskylduform sem algengast var áður fyrr. Sú þróun hefur orðið, að þeim heimilum íjölgar þar sem aðeins er ein fyrir- vinna. Ungt menntað fólk stofnar sín heimili, stundum í sambýli með öðrum, stundum með bami sínu, eða bömum, eða þá eitt sér. Stofnkostnaður húsnæðis og gjöld vegna þess eru nokkum veg- inn þau sömu hvert sem fjölskyldu- formið er. Eftir skilnað verða til tvö heimili úr einu og þyngist þá eignar- skattsbyrðin á báðum heimilunum frá því sem hún var þegar um eitt heimili var að ræða. Við lát maka hækkar gjaldskyld- ur eignarskattsstofn þess sem eftir lifír um helming þess frádráttar sem hjónin nutu áður. í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að skattleysismörk hverrar fjölskyldu verði þau sömu, þ.e. að einstaklingar njóti sama frá- dráttar frá eignarskattsstofni og hjón eða sambýlisfólk. Þessi breyting hefði það einnig í för með sér að færa skattalögin nær því að mismuna ekki ijölskyld- um eftir því hvemig þær væru saman settar. Að lokinni þessarí umræðu herra forseti, legg ég til að málinu verði vísað til 2. umræðu og fjárhags- og viðskiptanefndar. Hjörleifur Guttormsson hafí ekki verið kallaður saman fundur í þingnefndinni. Steingrímur J. Sigfússon (Abl/Nl.e.) sagði að dómsmálaráð- herra hafí boðað 20 frumvörp, þar af 9 sem afgreiða þurfí fyrir ára- mót. Aðeins eitt sé fram komið, og það fyrir fáum mínútum. Fjármála- ráðherra hafí boðað 18 fmmvörp. Þar af séu tvö fram komin: ijárlaga- frumvaip og lánsfjárlagafrumvarp. Þannig mætti áfram telja. Ekki séu enn komin fram mál, sem væru bæði flókin og tímafrek, eins og frumvarp um fískveiðistefnu og frumvarp til breytinga á stað- greiðslulögum, en bæði þessi frumvörp þurfí að afgreiða fyrir áramót. Það vantar mikið á að ríkisstjóm- in geti státað af góðri verkstjóm, sagði þingmaðurinn. Hún þyrfti að ráða sér bæði verkstjóra og sátta- semjara, bætti hann við. Kristín Halldórsdóttir (Kvl./Rn) lét í ljós áhyggjur af málamergð á síðustu starfsvikum fyrir jól. Of mörg mál á of skömm- um tíma þýddu lakari vinnubrögð. Hún vék að sömu málum og Steingrímur, fískveiðistefnu og. staðgreiðslulögum, sem væru tímafrek. Illa væri hægt að hverfa að gamalkunnu ráði: að fresta jól- unum. Æskilegt væri að fá frá réttum aðilum skrá yfír þingmál sem nauðsynlega þurfi að afgreiða fyrir áramót. Þórhildur Þorleifsdóttir (Kvl./Rvk) taldi aðrar og ekki eins strangar reglur um vinnuskyldu gilda á Alþingi en úti í atvinnulíf- inu. Auðvelt væri að komast fram hjá mætingarskyldu. Hún taldi og æskilegt að þingmenn fengju í lok hverrar starfsviku dagskrá fyrir í hönd farandi viku, svo þeir vissu með betri fyrirvara hvað framundan væri í þingstörfum. Það er ekki góð lexía fyrir þingmann, sem er að hefja störf, að-lesa það út úr því sem fram fer umhverfis hann að það sé allt í lagi að svíkjast um. Stefán Valgeirsson sagði um- ræðu þessa þarfa. Hann væri þó ekki sammála öllu því sem sagt hafí verið. Sum stjómarfrumvörp, sem fram væm komin, hefðu gjam- an mátt vera seinni á ferð og betur unnin. Afleitt væri engu að síður að hrúga þingmálum inn til af- greiðslu á of skömmum tíma. Hjörleifur Guttormsson sagði nauðsynlegt að setja tímamörk á framlagningu frumvarpa, sem fá ættu afgreiðslu fyrir áramót, ámóta og giltu um afgreiðslu mála fyrir þinglausnir að vori. Stuttar þingfréttir ENGINN fundur var í efri deild Alþingis í gær. Fundur var hinsvegar í neðri deild. Þijú mál vóru á dagskrá: 1) Frum- varp um Þjóðhagsstofnun, 2) Frumvarp um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, 3) Frumvarp Maríu E. Ingvad- óttur (S/Rvk) um breytingu á skattalögum. Þá fór fram hörð þingskaparumræða, sem Hjör- leifur Guttormsson hóf, um vinnulag á Alþingi. * * * Þórhildur Þorleifsdóttir og fleiri þingmenn Kvennalista hafa lagt fram svohljóðandi til’ögu til þings- ályktunar: „Alþingi ályktar að fela sam- gönguráðherra að koma á fót textasímaþjónustu í tengslum við Landsímann (02) allan sólarhring- inn.“ í greinargerð segir að það sé mikið öryggisatriði fyrir heymar- skert og heymarlaust fólk að geta gert viðvart símleiðis ef eitthvað fer úrskeiðis að nóttu eða degi. * * * Unnur Stefánsdóttir (F) og fleiri þingmenn úr Suðurlands- kjördæmi flytja tillögu í samein- uðu þingi um sjávarútvegsskóla: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að kanna möguleika á stofnun sjávarútvegsskóla í Vest- mannaeyjum." í greinargerð er vitnað til álits starfshóps á vegum tveggja ráð- herra sem telur æskilegt að sameina að einhveiju leyti Vél- skóla íslands, Stýrimannaskólann í Reykjavík og Fiskvinnsluskólann í Hafnarfírði. * * * Þórhildur Þorleifsdóttir og fleiri þingmenn Kvennalista flytja til- lögu til þingsályktunar um þjónustumiðstöð fyrir heymar- skerta: „Alþingi ályktar að fela félags- málaráðherra að koma á fót þjónustumiðstöð fyrir heyrnar- skerta þar sem veitt væri texta- síma- og túlkanaþjónusta." * * * Hjörleifur Guttormsson og Steingrímur Sigfússon, þingmenn Alþýðubandalags, flytja tillögu til þingsályktunar um jarðganga- gerð: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að leggja fyrir yfír- standandi þing fullmótaða langtímaáætlun um gerð jarð- ganga." * * * FYRIRSPURNIR: 1) María E Ingvadóttir (S/Rvk) spyr dómsmálaráðherra hve oft gjafsókn hafí verið veitt sl. þijú ár, hver séu útgjöld ráðuneytisins vegna þessa, hveijir njóti helzt gjafsóknar, hvers konar mál sé helzt um að ræða, til hvaða atriða sé litið við mat umsókna og hve oft umsóknum hafí verið hafnað. 2) Geir Gunnarsson (Abl/Rn) spyr utanríkisráðherra hve mikið magn af olíu og benzíni sé geymt á tönkum á svæðum sem liggja nærri vatnsbólum Keflvíkinga og Njarðvíkinga og fleiri spuminga, er snerta eftirlit og annað, tengt þessum geymum. 3) Hjörleifur Guttormsson (Abl/Al) spyr menntamálaráð- herra hver afstaða hans sé til óska sérfræðinganefndar um Mý- vatnsrannsóknir varðandi fjár- mögnun rannsókna á ámnum 1987 og 1988. Hann spyr og með hvaða hætti ráðuneytið hyggist standa að framhaldi Mývatns- rannsókna. 4) Kristín Einarsdóttir (Kvl/ Rvk) spyr heilbrigðisráðherra, hvemig háttað er förgun kerbrota og annarra úrgangsefna frá álver- inu í Straumsvík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.