Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
35
Bandaríkin;
Vel rniðar í viðræðum
Bjart skrífborðsljós,
heima og á vinnustad:
um fjárlagahallann
Stöðugleiki á fjármálamörkuðum
Washington, London, New York, Tókíó, Reuter.
TALSMÖNNUM Bandaríkjastjórnar og fulltrúum repúblikana og
demókratra á Bandarikjaþingi ber saman um að vel hafi miðað í
viðræðum um leiðir til að draga úr fjárlagahalla Bandaríkjanna.
Er talið liklegt að samkomulag náist á næstu dögum og miðast að-
gerðirnar við að vinna bug á hallanum á næstu tveimur árum.
Howard Baker, starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, sagði í gær að
góður gangur væri í viðræðunum
og kvaðst hann vera vongóður um
að samkomulag myndi liggja fyrir
í lok þessarar viku. Gert er ráð
fyrir að fjárlagahallinn verði minnk-
aður um 23 milljarða Bandaríkja-
dollara (um 900 milljarða ísl. kr.)
á þessu fjárlagaári sem hófst 1.
október. Þingmenn leggja hins veg-
ar áherslu á að gripið verði til
frekari aðgerða á næsta ári. Al-
mennt er litið svo á að stjómin
samþykki skattahækkanir auk þes
sem fjárframlög hins opinbera verði
skorin niður.
Gengi Bandaríkjadollars hefur
farið lækkandi og telja sérfræðing-
ar að það megi meðal annars rekja
til þess að viðræðumar um ijárlaga-
hallann hafa dregist á langinn.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
sagði á þriðjudag að gengi dollarans
hefði lækkað nægilega og urðu
þessi ummæli til að styrkja stöðu
gjaldmiðilsins. Gengi hans hækkaði
í gær gagnvart helstu gjaldmiðlum
og verð hlutabréfa hélst stöðugt á
mörkuðum í Evrópu.
Er kauphöllin í New York hafði
verið opin í hálftíma hafði Dow
Jones-vísitalan hækkað um rúm 35
stig í 1.913,46 stig. Hins vegar
féllu hlutabréf í verði á fjármála-
mörkuðum í Asíu. Er viðskiptum
lauk í Tókíó hafði hlutabréfavísital-
an þar lækkað um 649,70 stig eða
2,99 prósent og var hún samkvæmt
skránirigu 21.036,76 stig. Töldu
fjármálasérfræðingar að verðlækk-
unina mætti einkum rekja til óvissu
um efnahag Bandarílganna og
verðfall hlutabréfa á markaðinum
í New York á þriðjudag.
Á þriðjudag féll Bandaríkjadollar
enn gagnvart jeninu. Gengi hans
var þá skráð 130,4 jen og hafði
ekki verið lægra frá lokum síðari
heimsstyijaldarinnar. í gær var
hann skráður á 134 jen í New York
og töldu menn að hækkunina mætti
einkum rekja til ummæla Reagans
forseta á þriðjudag.
Fjármálasérfræðingar kváðust á
hinn bóginn búast við því að dollar-
inn myndi falla enn frekar á
næstunni þar eð Bandaríkjastjóm
teldi það heppilega leið til að draga
úr viðskiptahallanum. „Staða doll-
arans hefur ekki breyst þrátt fyrir
þessi ummæli og enn eru blikur á
lofti," sagði sérfræðingur einn í
kauphöllinni í Tókíó.
Boris Yeltsin leiðtogi Moskvudeildar
kommúnistaflokksins í Sovétríkjunum:
Rekinn úr embætti
fyrir pólitísk mistök
Moskvu, Reuter.
BORIS Yeltsin, sem vikið var
úr embætti aðalritara komm-
únistaflokksins i Moskvu í gær,
hefur verið helsti formælandi
umbóta í Sovétríkjunum. Hann
réðst gegn matarskorti og
skrifræði auk klíkuskapar inn-
an flokksins og þótti jafnvel
róttækari en Mikhail Gorbach-
ev.
Yeltsin er nú 56 ára gamall.
Hinn stórvaxni flokksleiðtogi með
gráspengt hár var fluttur frá
Sverdlovsk í Úralfjöllum til
Moskvu í apríl árið 1985 aðeins
mánuði eftir að Gorbachev tók við
embætti. Hann varð leiðtogi
Moskvudeildar kommúnista-
flokksins í desember á því ári og
fékk sæti í Stjómmálaráðinu. Þó
naut hann aldrei nógu mikils
stuðnings til að fá atkvæðisrétt
innan ráðsins, sem ér valdarnesta
stofnun Sovétríkjanna.
í höfuðborginni tók Yeltsin upp
aðra háttu en forverar hans. Það
mátti sjá til hans í neðanjarðar-
lestinni á morgnana og hann fór
gjama sjálfur í búðir til að kynn-
ast matarframboðinu sem al-
múginn mátti gera sér að góðu.
í janúar árið 1986 réðst hann
harkalega á fyrirrennara sína fyr-
ir að láta undir höfuð leggjast að
búa fólkinu sæmileg kjör. Svo vildi
til að forveri hans, Viktor Grishin,
mátti sitja undir ræðunni þar sem
Yeltsin úthúðaði honum fyrir van-
rækslu í starfí. Orð hans fundu
hljómgrunn meðal alþýðunnar í
Moskvu þó ekki ættu þau greiða
leið á síður dagblaðanna. Hann
gagnrýndi einnig forystu ungliða-
hreyfingar Sovétríkjanna harð-
lega fyrir að skilja ekki þarfir 42
milljóna meðlima í' hreyfíngunni.
Hvers kyns spilling varð Yeltsin
að skotspæni. Hann var ekki sátt-
ur við þá leynd sem ríkti yfir
fundum valdastofnana flokksins
og sagði rangt að valdamenn nytu
forréttinda eins og sérstakra
verslana og annarrar og betri
læknisþjónustu en almenningur.
Á miðstjómarfundi kommún-
istaflokksins í síðasta mánuði
gagnrýndi Yeltsin forystumenn
flokksins fyrir að fylgja umbóta-
stefnunni ekki af nægilegum
krafti. Þótti mönnum þá skörin
vera farin að færast upp á bekk-
inn og miðstjómin samþykkti
ályktun þar sem ræða Yeltsins
var sögð vera pólitísk mistök.
Miðstjóm Moskvudeildarinnar
staðfesti svo þennan úrskurð í
gær og lét þennan atorkusama
forvígismann umbóta í landinu
fjúka.
Bretland:
Lögðu hald á 208
kíló af kókaíni
Southampton, Englandi, Reuter.
BREZKIR tollverðir hafa gert
upptæk 208 kíló af kókaíni og
er það langstærsti farmur af
fíkniefninu, sem gerður hefur
verið upptækur í Evrópu, að því
er skýrt var frá í gær. Verð-
mæti farmsins er talið vera um
51 milljón sterlingspunda, eða
3,7 milljarðar íslenzkra króna.
Samkvæmt upplýsingum brezku
lögreglunnar tók aðgerðin hálfan
annan mánuð. Hald var lagt á kóka-
ínið í hafnarborginni Southampton
á suðurströnd Englands. Var það
falið í fölsku þaki í gámi, sem kom
með flutningaskipinu Tagama frá
Kólumbíu. Átti gámurinn að fara
til Rotterdam í Hollandi. Tóku
brezku tollverðimir kókaínið og
settu hveiti í staðin. Fýlgst var síðan
með skipinu í samvinnu við toll-
verði í Frakklandi, Vestur-Þýzka-
landi og Hollandi, en áður en það
kom til Rotterdam losaði það í Le
Havre í Frakklandi og Bremen í
Vestur-Þýzkalandi.
Fylgst var með gámnum allan
sólarhringinn og fjörutíu dögum
eftir að kókaínið fannst í Southamp-
ton vom menn, sem ætluðu að
sækja fíkniefnið í gáminn, staðnir
að verki í Hollandi. Hefur hollenzka
lögreglan handtekið átta menn, þar
af fímm Hollendinga, í tengslum
við kókaínfundinn. Er talið að upp
hafi komizt um stórtækan eitur-
lyfjahring. Brezka lögreglan telur
ftillvíst að eitrið hafi átt að selja í
Bretlandi.
DULUX TABLE
— Fallegur skrifborðslampi
með sparnaðarperunni
DULUX" S 11W; sem jafn-
gildir birtu 75W glóperu.
— Hreyfanlegur I allar
stellingar.
— Litir: svartur, hvitur.
OSRAM
Ijóslif andi
orkusparnaður
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
HEIÐARLAMBIÐ
HÓTELH0LTI
Nú kynnum ljúffenga lambakjöts-
rétti í hádeginu á sunnudögum
Sunnudagur 15. nóvember
Heilsteiktur lambahryggur með spergil-
káli, gulrótum og rjómasósu.
Ávaxtarjómaís.
Sunnudagur 22. nóvember
Glóðarsteikt lambalæri með blómkáli,
sveppum og bearneise sósu
Regnbogarjómaís.
Sunnudagur 29. nóvember
Kryddlegið lambainnlæri með rósakáli,
fylltum tómötum og basilikumsósu
Marsipan rjómaís.
Sunnudagur 6. desember
Heilsteiktur lambavöðvi með sveppum,
grænu blómkáli og hunangssósu
Gráfíkju rjómaís.
Sunnudagur 13. desember
Innbakaður lambavöðvimeð blómkáli,
gulrótum og mintsósu
Holts rjómaís.
Yerð kr. 695,- fyrir fullorðna
og kr. 350,- fyrir börn.
Njótið hádegis í Holti
með allri fjölskyldunni.
Ái
SBSffi
BffS
Bergstaðastræti 37.
I