Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
51
John Piotrovski.
ársskýrslu varnarmálaráðuneytisins
um herafla Sovétmanna (Soviet Mi-
litary Power) segir að unnið hafi
verið að tilraunum með leysivopn í
tilraunastöð hersins í Sary-Shagan
inn í miðju landi auk þess sem þar
hafi verið gerðar tilraunir með varn-
arkerfí gegn langdrægum kjamorku-
eldflaugum, sem brýtur gegn
ákvæðum ABM-sáttmálans sam-
kvæmt túlkun Sovétstjómarinnar.
„Talið er að Sovétmenn ráði yfir
nokkmm leysivopnum, sem beiti
megi sem vömum við loftárásum.
Tvær leysigeislastöðvamar geta að
líkindum skaddað búnað sem er um
borð í gervihnöttum og í einni þeirra
er hugsanlegt að fram fari tilraunir
á búnaði sem beita má gegn lang-
drægum kjamorkueldflaugum,"
segir í skýrslu vamarmálaráðuneyt-
isins.
Piotrovski hershöfðingi sagði á
hinn bóginn í viðtalinu sem birtist í
The New York Times að Sovétmenn
gætu beitt leysigeislastöðvunum á
átakatímum. Hins vegar kom ekki
fram hvort bandaríska vamarmála-
ráðuneytið hefði aflað nýrra upplýs-
inga um stöðvar þessar frá því
ársskýsrslan var gefin út. Aðspurður
vildi Piotrovski ekki láta uppi hvort
Sovétmenn hefðu skotið leysigeislum
að bandarískum gervitunglum eða
eigin gervihnöttum í tilraunaskyni.
Hins vegar fullyrða að embættis-
menn f vamarmálaráðuneytinu að
Sovétmenn hafi nýlega beint leysi-
geisla að bandarískri flugvél og
blindað flugmanninn nokkra stund.
Mun þetta hafa gerst tæpa 1.000
kílómetra undan Hawaii er Banda-
ríkjamenn fylgdust með flugi lang-
drægrar eldflaugar sem Sovétmenn
skutu á loft í tilraunaskyni.
Gagnráðstaf anir
Auk leysigeislastöðvarinnar í
Sary-Shagan er vitað um aðra í
Nurek í Tadzhik-lýðveldinu skammt
norður af landamærum Sovétríkj-
anna og Afganistan. Hafa verið
birtar myndir af stöðinni sem er í
2.300 metra háu fjalllendi. Ekki er
vitað hvort hvort hún er nógu öflug
til að granda eldflaugum eða kjama-
oddum en að sögn sérfræðinga eru
leysivopn mun öflugri en ella ef þeim
er komið fyrir á fjöllum uppi eins
og gert hefur verið í Nurek.
Bandarískir sérfræðingar segja að
full ástæða sé til að hafa áhyggjur
af leysigeislastöðvum Sovétmmanna
og hafa margir þeirra hvatt til þess
að gripið verði til gagnráðstafana.
Piotrovski hershöfðingi telur brýnt
að unnt verði að skjóta gervihnöttum
fljótt og örugglega á loft í stað þeirra
sem Sovétmenn kunna að granda.
Að sögn hans kemur tvennt einkum
til greina í þessu sambandi. Annars
vegar sé unnt að grípa til þess ráðs
að hafa eldflaugar með gervihnöttum
ávallt í skotstöðu. Hins vegar komi
til greina að skjóta fjölda gervi-
hnatta á loft og halda þeim utan
færis leysigeisla Sovétmanna. Segir
Piotrovski þá unnt að færa þá nær
jörðu til að taka við hlutverki þeirra
sem hugsanlega hafl verið grandað.
Þetta krefst háþróaðs tæknibúnaðar
en vitað er að Bandaríkjamönnum
hefur að minnsta kosti einu sinn tek-
ist að „flytja" gervihnött til sem
sendur hafði verið á sporbraut um-
hverfís jörðu.
ABM-sáttmálinn
Samkvæmt ákvæðum ABM-sátt-
málans er stórveldunum heimilt að
gera takmarkaðar tilraunir með
tælq'abúnað sem hugsanlega má
beita gegn langdrægum eldflaugum.
Komi í ljós að leysigeislastöðin í
Nurek geti grandað bæði eldflaugum
og kjamaoddum brýtur það að líkind-
um í bága við samninginn. Banda-
rískir embættismenn hafa látið að
því liggja að sovésku leysigeisla-
stöðvamar geti orðið til að torvelda
viðræður stórveldanna um geim-
vamaráætlunina og fækkun lang-
drægra eldflauga. Fastlega er búist
við að þetta verði eitt helsta umræðu-
efni þeirra Reagans og Gorbachevs
er þeir koma saman til fundar í
Bandaríkjunum í næsta mánuði.
Sovétmenn hafa hingað til bundið
fækkun langdrægra kjamorkuflauga
við samkomulag um ákvæði ABM-
sáttmálans. Meinið er að risaveldin
greinir alvarlega á um túlkun hans.
Hafa Sovétmenn lagt til að bæði ríkin
skuldbindi sig til að virða hann í tíu
ár til viðbótar en Bandaríkjamenn
hafa boðist til að fara í öllu eftir
ákvæðum hans til ársins 1994. Óhætt
er að fullyrða að sovésku leysigeisla-
stöðvamar munu ekki koma í veg
fyrir árangursríkar viðræður. Þær
sýna hins vegar að þess háttar
vopnabúnaður er ekki iengur framtí-
ðarmöguleiki heldur raunvemleg
staðreynd, sem semja þarf um rétt
eins og hefðbundin vígtól og kjam-
orkuvopn.
Sigrún Eldjárn
Ný bók eft-
ir Sigrúnu
Eldjárn
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér nýja bók eftir mynd-
listarkonuna og bamabókahöf-
undinn Sigrúnu Eldjám. Nefnist
hún Kuggur og fleiri fyrirbæri.
Bók Sigrúnar, B2, hlaut verðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkur sem
besta fmmsamda barnabókin árið
1986.
í frétt frá Forlaginu segir m.a.:
„í bókinni segir frá Kuggi og kostu-
legum vinum hans: Málfríði og
mömmu Málfríðar — skrýtnum kerl-
ingum sem ekki kalla allt ömmu sína
þegar taka skal til hendinni, Geirólfí
bónda á Grísatá, að ógleymdum
Mosa — glaðlyndu og hrekkjóttu
kríli sem býr yfír ótrúlegum hæfíleik-
um og leysir vanda vina sinna eins
og ekkert sé.“
Kuggur og fleiri fyrirbæri er 32
bls., prýdd rúmlega fjörutíu litmynd-
um eftir höfundinn. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði.
Sjóréttarfélagíð;
Hádegisverð-
arfundur
HIÐ íslenska sjóréttarfélag
gengst fyrir hádegisverðarfundi i
Leifsbúð á Hótel Loftleiðum föstu-
daginn 13. nóvember og hefst
hann kl. 12.00.
Á fundinum flytur Haraldur
Blöndal erindi sem hann nefnir
„Rannsóknamefnd sjóslysa og starf-
semi hennar". Að erindinu ioknu er
gert ráð fyrir fyrirspumum og um-
ræðum.
Frummælandinn er starfandi
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík og
formaður Rannsóknameftidar sjó-
slysa.
Fundurinn er öllum opinn.
Höfum til sölu mjög vel með farna Opel Ascona bíla, ný innflutta
frá V-Þýskalandi. Bflarnireru af árg. 1985og 1986, sjálfskiptir
eða beinskiptir og hefur verið ekið um 25-32.000 km.
Bflarnir verða afhentir skráðir og ryðvarðir.
Verðfrá kl. 450.000.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Krossá á Skarðströnd
er auglýst til leigu laxveiðitímabilið 1988.
Tilboðum skal skilað til Trausta Bjarnasonar,
bónda á Á, Skarðströnd, fyrir laugardaginn
5. desember kl. 14.00 er tilboðin verða opnuð
að viðstöddum, þeim er þess óska, á Á á Skarð-
strönd. Áskilin er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
AHar upplýsingar gefur áðurnefndur
í síma 93-41420.
Veiðifélag Krossár.
i
Sólbaðsstofa
Ástu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18, sími 28705
Afturerkomiðað
okkarvinsælatil-
boði sem allir
þekkja:
24tímar á aðeins
1800-kr.!
«
Tilboðið stendur aðeins íviku.
Nýjaf Pcruir
Verið
velkomin
Ávallt heitt á könnunni
SACHS KÚPPLINGAR
SACHS
ORIGINAL S]tEILE
-kúpplingar og pressur í allar
helstu gerðir fólks- og vöru-
bíla.
-Orginal vestur þýsk gæði.
b
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Helstu verkstæði og bifreiðaumboð.
HEILDSÖLUBIRGÐIR OG EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI.
JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF.
43 SUNDABORG 13 - 104 REYKJAVÍK - SÍMI 688588