Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 37 Leiðtogafundurinn í Washington: Lengir Gorbachev Bandaríkjaförina? New York, Reuter. BANDARÍSKA dagblaðið The New York Times sagði í frétt í gær að vera kynni að Mikhail S. Gorbachev Sovétleiðtogi dveldist lengur en áætlað hafði verið í Bandaríkjunum er hann kemur þangað til fundar við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í næsta mánuði. Kvaðst blaðið hafa fyrir þvi heimildir að ráðgjafar Gorbachevs hvettu hann nú til þessa og færi eiginkona hans, Raisa, þar fremst í flokki. Ákveðið hefur verið að leiðtogar risaveldanna komi saman til fundar í Washington í Bandaríkjunum þann 7. desember og verður þar undirritaður sáttmáli um útrýmingu meðal- og skammdrægra kjarn- orkueldflauga á landi. Enn liggur ekki fyrir hversu lengi Gorbachev mun dveljast í Bandaríkjunum og ekki er vitað til þess að skipulögð hafi verið dagskrá líkt og tíðkast þegar um opinberar heimsóknir er að ræða. Ónefndur sovéskur embættis- maður sagði í samtali við blaðið að ráðgjafar Gorbachevs legðu nú hart að honum að dvelja lengur í Banda- ríkjunum vegna þess að hæfni hans til að koma boðskap sínum á fram- færi myndi njóta sín vel í íjölmiðlum þar í landi. Minntist embættismað- urinn heimsóknar Nikitas Khrus- hchev, þáverandi leiðtoga Sovétríkj- anna, til Bandaríkjanna árið 1959, sem vakti gífurlega athygli. Khrushchev dvaldist þar í 13 daga og fór víða. Heimsótti hann meðal annars Disneyland-skemmtigarðinn og hitti kvikmyndastjömur í Holly- wood að máli. Sovéski embættismaðurinn sagði í viðtalinu við The New York Times að ekki væri ráðgert að Gorbachev fetaði í fótspor Khruschevs að þessu leyti. Hins vegar sagði talsmaður Sovétstjómarinnar í Moskvu á þriðjudag að Gorbachev kynni að fallast á að mæta í sjónvarpsviðtal í Bandaríkjunum yrði þess óskað. Austurríki: Tónlistarmað- ur mótmælir kjöri Waldheims Vín, Reuter. BANDARÍSKI popptónlistar- maðurinn Terence Trent D’Arby hætti við tónleika i Vin á þriðju- dag til að mótmæla kjöri Kurt Waldheim til forseta Austurrikis. „Samviska mín leyfir ekki að ágóði af tónleikum minum hringli i ríkiskassa þjóðar sem hefur kosið samsærismann úr hópi nasista sem forseta," sagði í yfirlýsingu frá D’Arby. í Austurríki er lagður virðisauka- skattur á hljómplötur og miða á hljómieika. D’Arby tjáði sig ekki um það hvort hann hygðist láta fjar- lægja plötur sínar úr verslunum í landinu. D’Arby er þekktur „soul“- tónlistarmaður og hefur verið kallaður „James Brown níunda ára- tugarins". Vinsældir hans hafa vaxið undanfama mánuði og lög hans náð efstu sætum vinsælda- lista. Kurt Waldheim hefur ítrekað sagt að hann hafi einungis verið nokkurs konar ritari í leyniþjónustu þýska hersins á Balkanskaga. í skýrslu sem nýlega fannst í her- málagögnum í Bandaríkjunum segir að Waldheim hafi verið annar tveggja leyniþjónustumanna á Balkanskaga sem fengu upplýsing- ar um það hvemig komið var í veg fyrir áætlað morð á Hitler þann 20. júlí árið 1944. Elan Steinberg fram- kvæmdastjóri Alheimsráðs gyðinga segir að skýrslan sýni best hver staða Waldheims hafi í raun verið á stríðsárunum. Fulltrúi Sovétmanna hjá SÞ: Sovéskur her frá Afganistan - að uppfylltum ákveðnum skilyrðum Sameínuðu þjóðunum, Reuter. FULLTRÚI Sovétríkjanna á þingi Sameinuðu þjóðanna, Alex- ander Belonogov, sagði í fyrra- dag, að Sovétstjórnin hefði þegar ákveðið að flytja sovéskt herlið á brott frá Afganistan að því til- skildu, að allri íhlutun i mál Afgana yrði hætt. Belonogov lét þessi ummæli falla í umræðum allsheijarþingsins um Afganistan en þær hafa farið fram árlega síðan Sovétmenn réðust inn f landið. „Hvað varðar sovéska her- liðið í Afganistan vil ég segja, að það verður ekki miklu lengur í landinu. Það hefur verið ákveðið og við það verður staðið svo fremi allri íhlutun í mál afgönsku þjóðar- innar verði hætt," sagði Belonogov. Fyrr í umræðunum sagði Zain Noorani, utanríkisráðherra Pakist- ans, að lausn Afganistanmálsins væri prófsteinn á stefnu Mikhails Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, og þann „alheimsfrið", sem hann segðist vilja vinna að. Ole Bierring, sendiherra Dana, sem talaði fýrir hönd Evrópubandalagsríkjanna, fagnaði því, að Sovétmenn vildu finna pólitíska lausn á málinu „en við bíðum enn eftir, að orðunum verði fylgt eftir í verki". — LÚX Þýsku sófasettin og hornsófarnir úr Leður-lúx efnunum eru komin í verslunina í meira úrvali en nokkru sinni fyrr. Þessi slitsterku efni eru svo lík leðri að undrun sætir. (Slitprófun Leður-lúx gefur 50.000 strokur þegar áklæði yfir 20.000 strokur eru talin góð) PANTANA ÓSKAST VITJAO íDAG TEGUND: ATLANTA Hornsófi 5 sæta 78.720,- Hornsófi 6 sæta 85.420,- Sófasett 3+1 + 1 78.720,- Sófasett 3+2+1 87.640,- ÚTBORGUN ÁMÁNUÐI 23.000,- ca 5.000,- 25.000,- ca 5.000,- 23.000,- ca 5.000,- 25.000,- ca 5.000,- Leður-lúx litir: Hvítt, grábrúnt, brúnt, svart, drapplitt, dökkgrátt og Ijósgrátt. TEGUND: PADUA Sófasett 3+1 + 1 64.180,- Sófasett 3+2+1 69.860,- TEGUND: NOVARA kr. 98.760.- Hornsófi með tveimur bogum. Dragið ekki til morguns að tryggja ykkur sett úr þessari sendingu. Útborgun með Visa og Euro að sjálfsögðu og afborganir í allt að 12 mánuði. húsgagn»höllin REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.