Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands íslands:
Fiskmarkaðirnir gefa meira
af sér en vinnslurnar
Sjómannasamband íslands
heldur ráðstefnu formanna sam-
bandsfélaga og sambandsstjórn-
ar í Alþýðuhúsinu á Akureyri um
helgina. Rétt til setu eiga um 40
fulltrúar. Aðalmál ráðstefnunn-
ar verða að sjálfsögðu það sem
efst er á baugi í sjávarútvegsmál-
um í dag og þá sérstaklega drög
að nýrri fiskveiðistefnu, að sögn
Óskars Vigfússonar formanns
sambandsins. Slíkar ráðstefnur
eru haldnar annað hvert ár.
„Rætt verður um hið fijálsa físk-
verð og hvemig það hefur verið
útleikið. Við teljum að ekki hafí
verið komin næg reynsla á fijálsa
fískverðið til að leggja það svo
snögglega niður. Við vildum hafa
séð eitt ár til reynslu. Þá munu
uppboðsmarkaðimir bera á góma
og hvemig þeir hafa komið út fyrir
okkar umbjóðendur auk þess sem
öryggismál sjómanna verða rædd.“
Oskar sagði að sjómenn hefðu
takmörkuð ráð á sinni hendi varð-
andi fískmarkaðina. Ljóst væri að
markaðimir gæfu hærra verð til
sjómanna en vinnslumar. Sjómenn
gætu þó lítið annað gert en að
benda á hátt markaðsverð, enda
væri það tekið fram í samningum
sjómanna við útvegsmenn að þeim
beri að leita eftir hæsta gangverði
hveiju sinni. „Yfírleitt er stutt á
milli hægri og vinstri vasa hjá út-
gerðarmönnum. Sömu aðilar eiga í
mörgum tilvikum bæði skip og
vinnslu og af eðlilegum ástæðum
vilja þeir heldur halda aflanum fyr-
ir eigin vinnslur en að fást við
markaðina. Þessir menn hafa
ákveðið einh'iða verð til sjómanna
og þetta er meðal annars það sem
er að gerast á annars ágætum Fisk-
markaði Norðurlands hf. á Akur-
eyri. Maður hélt að markaðurinn
myndi ná sér á loft. Svo virðist sem
nægir kaupendur séu, en seljendur
heldur færri,“ sagði Oskar.
Hann sagði að hver einasti sjó-
maður á Norðurlandi hlyti að vilja
koma sem flestum tonnum inn á
Fiskmarkað Norðurlands, þar sem
von væri á hærra verði fyrir aflann
en í vinnslu viðkomandi útgerðar.
„Útgerðarmaðurinn hefur hinsveg-
ar ekki jafnmikinn áhuga, þar sem
hann kemst upp með að borga sjó-
mönnunum lægri laun. Ég hélt að
frjálst fiskverð myndi leiða til þess
að þama kæmist á jafnari mynd,
en það eru ýmis öfl í þjóðfélaginu
sem ekki eru þessu sammála, ekki
aðeins innan sölusamtakanna eða
vinnslunnar, heldur innan vébanda
LÍÚ, sem komu bakdyramegin að
okkur," sagði Óskar.
Prentverk Odds Björnssonar:
Gefur út fimm bókatitla
á jólabókamarkaðinn
PRENTVERK Odds Bjömssonar
sendir frá sér nú fyrir jólin fimm
bókatitla og era þeir væntanlegir
á markaðinn i lok nóvember. Að
sögn Geirs S. Björnssonar for-
stjóra er þetta heldur minna en
venjulega fyrir jólin sökum anna
að undanförnu hjá prentsmiðj-
unni á öðrum sviðum.
„Kveðja frá Akureyri" nefnist
bók eftir Richardt Ryel, sem fædd-
ist á Akureyri árið 1915. Hann
stundaði verslun í húsinu Hamborg
þar sem nú er Sportvörubúðin og
hét verslun hans „Öxullinn". Síðar
fluttist hann til Reykjavíkur og
þaðan fór hann til Danmerkur.
Richardt er sonur Baldvins Ryel
sem var fyrirrennari Amaro og
byggði hann þar verslun sem kölluð
var Ryel-vðrslunin. Fjölskyldan átti
heima í Kirkjuhvoli þar sem minja-
safnið er nú til húsa. í bókinni eru
minningar Richardts frá uppvaxtar-
árunum á Akureyri og fram yfir
stríð. í bókinni er fjöldi Ijósmynda
frá Akureyri sem sumar hveijar
hafa ekki birst áður, bæði úr safni
breska hersins og úr safni Hall-
gríms Einarssonar.
„Gekk ég yfír sjó og land“ eftir
séra Kristján Róbertsson fjallar um
þau miklu umbrot er urðu i lífí
Vestmanneyinga á síðari hluta 19.
aldar þegar íslenskir mormónatrú-
boðar fóru að boða mormónatrú.
Kristján segir frá upphafí hreyfíng-
arinnar á íslandi og fylgir eftir öllu
því fólki sem fluttist vestur til Utah
á seinni hluta 19. aldar og fram
yfír aldamótin.
Spennusaga eftir metsöluhöf-
undinn Sidney Sheldon í þýðingu
Sólveigar Sigurðardóttur kemur út
hjá POB. Hún heitir „Vindmyllur
guðanna" og er þessi bók áttunda
bók Sheldons. Þá gefur POB út
tvær barnabækur. Önnur þeirra
heitir „Urðarbúinn" og er eftir Jón
Gísla Högnason. Sagan segir frá
11 ára gamalli sveitastúlku, sem
situr yfír ám föður síns. Hún verður
vör við yrðling, sem hún hænir að
sér, og gengur sagan út á þeirra
samband. Hin barnabókin er ævin-
týri eftir Guðjón Sveinsson og ber
heitið „Kettlingurinn Fríða Fant-
asía og rauða húsið í reyniviðar-
garðinum". Bókin er með litteikn-
ingum eftir Þorgeir Helgason. Þá
hefur POB látið útbúa nýja útgáfu
af Depils-bókunum fyrir yngstu
kynslóðina.
Listkynn-
ing í Alþýðu-
bankanum
Verk eftir Soffíu
Árnadóttur
Menningarsamtök Norðlend-
inga og Alþýðubankinn hf.
kynna að þessu sinni listakon-
una Soffíu Árnadóttur. List-
kynningin er í útibúi
Alþýðubankans hf. á Akureyri,
Skipagötu 14, og lýkur henni
28. desember.
Soffía er fædd á Akureyri árið
1955. Hún lauk námi við Mynd-
lista- og handíðaskólann árið
1983. A námstímanum lagði
Soffía sérstaka áherslu á skrift
og leturgerð. Árið 1984 stofnsetti
hún ásamt Friðriki Erlingssyni
auglýsingastofuna Auglit og star-
far hún þar nú jafnframt því að
kenna skrift og leturgerð við
Myndlistarskólann á Akureyri.
Á listkynningunni eru sex verk,
fímm þeirra unnin með blýanti og
bleki á pappír, og dúkrista. Skrift
og leturgerð er yrkisefni hennar.
Morgunblaðið/GSV
Soffía Amadóttir við eitt verka sinna.
Morgunblaðið/GSV
Súlan EA landaði 800 tonnum í gær hjá Krossanesverksmiðjunni.
Krossanesverksmiðjan:
9.300 tonn
komin á land
Hatt 130.000 tonn á sama tíma 1 fyrra
ÞRJÚ loðnuskip lönduðu hjá
Krossanesverksmiðjunni í gær,
samtals um 1.600 tonnum.
Örn KE kom með 500 tonn,
Þórður Jónasson EA 350 kom
með 300 tonn og Súlan EA 300
kom með fullfermi, 800 tonn, að
landi og var þetta fyrsti farmur
Súlunnar.
Hörður Hermannsson verk-
smiðjustjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið að það sem af væri
vertíð, hefðu 9.300 tonn borist í
Krossanesverksmiðjuna, það væri
mun minna samanborið við árið í
fyrra. Þá hafði borist hátt í 30.000
tonn. „Þetta er þokkalegt miðað
við hversu seint vertíðin hófst.
Við höfum alveg misst tvo mán-
uði úr og þegar vertíðin loksins
hófst, komu ógæftir." Hörður
sagði að verksmiðjan greiddi þetta
2.000 til 2.300 krónur fyrir ton-
nið eftir gæðum.
Bókaútgáfan Skjaldborg:
Þrjátíu bækur
gefnar út fyrir jól
BÓKAÚTGÁFAN Skjaldborg
gefur út 30 bækur fyrir jólin,
og er helmingurinn af þeim eftir
íslenska höfunda. Þetta er tals-
verð aukning frá útgáfu Skjald-
borgar í fyrra, en fyrirtækið
keypti Ægisútgáfuna og Bók-
hlöðuna í sumar.
Þijár nýjar íslenskar skáldsögur
koma út hjá Skjaldborg að þessu
sinni, þar á meðal fyrsta bók Soffíu
Jóhannsdóttur „Örlagarík ákvörð-
un“, ástarsaga sem skeður hér á
landi og erlendis, og „Áttunda fóm-
arlambið“ eftir Birgittu H. Halld-
órsdóttur. Þetta er fímmta bók
Birgittu, og er ástar- og sakamála-
saga.
Fyrsta bókin í nýjum flokki, ár-
bók hestamanna, kemur út fyrir
jólin, og nefnist hún „Hestar og
menn 1987“. Að sögn Bjöms Eiríks-
sonar, forstjóra Skjaldborgar, er
þetta í fyrsta sinn sem útgáfa
slíkrar árbókar er reynd hér á landi.
Bókin inniheldur viðtöl við hesta-
menn, helstu viðburði og afrek í
hestamennsku og úrslit móta, en
höfundar bókarinnar em Guðmund-
ur Jónsson og Þorgeir Guðlaugsson.
Af þýddum bókum taldi Bjöm til
helstra tíðinda bókina „Ég veit af
hveiju fuglinn í búrinu syngur",
sem er sjálfsævisaga bandarísku
blökkukonunnar Maya Angelou, í
þýðingu Garðars Baldvinssonar.
Bókin íjallar um uppvaxtarár Ang-
elou í smábæ í suðurríkjum
Bandaríkjanna á Ijórða áratugnum,
en hún er leikkona og lék m.a. í
sjónvarpsþáttunum „Rætur" sem
sýnd var í ríkissjónvarpinu á sínum
tíma.