Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 55
HerdSs Ólafsdóttir „Eigum við enn að láta lífeyrissjóðina leggja fram fjármuni sína til að tryggja annarra hag fram yfir hag þeirra sem þeir eru stofnaðir til að tryggja ?“ vomm HAFÐUALLTA HREINU FÁÐU ÞÉR OTDK MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 Borgartúni 23 Skrifstofutæknir Eitthvað fyrir þig? Tölvufræðslan mun í janúar endurtaka hin vinsælu námskeið fyrir skrifstofufólk sem haldin hafa verið sl. ár. Um er að ræða þriggja mánaða fjölbreytt nám í vinnuaðferðum á skrifstofum, með sérstakri áherslu á notkun PC-tölva, sem nú eru orðnar ómissandi við öll skrifstofustörf. í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar: Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna- grunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stjórn- un, uppsetning skjala, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur, víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska. Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki. NÁMIÐ HEFST 5. JANÚAR 1988 Á skrifstofu Tölvufræðslunnar er hægt að fá bækl- inga um námið, bæklingurinn er ennfremur sendur í pósti til þeirra sem þess óska. Innritun og nánari upplýsingar veittar í símum 687590 og 686790. TÖLVUFRÆÐSLAN eftirHerdísi Ólafsdóttur Lífeyrissjóðimir innan Sambands almennu lífeyrissjóðanna, eða SAL, hófu göngu sína árið 1970. Fram til ársins 1979 var ársvöxtun á eign- um lífeyrissjóðanna neikvæð. Verðbólgutap sjóðanna skilaði sér í verðbólguhagnaði lántakenda eins og kunnugt er. Frá því í júní 1979 varð heimild fyrir því að lána fjár- magn sjóðanna í formi verðtryggðra lána til sjóðfélaga og einnig gátu sjóðimir búið við ijölbreytta ávöxt- unarmöguleika hjá bönkum og sparisjóðum í verðtryggðum lánum. En reglur lífeyrissjóðanna kveða á um það að æfinlega skuli Hjármagn sjóðanna ávxtast á þann hátt sem tryggastur er og hagkvæmastur fyrir þá. Nú þá skeður það, að það vantar fé í húsnæðismálakerfíð. Og við sem höfum lítillega hugsað um málefni lífeyrissjóðanna og það hvemig þeir mættu sem best skila ávöxtun, trú- um því að þama sé verið að koma til móts við almennu lífeyrissjóðina og nú eigi að gera eitthvað af hendi ríkisins sem sé í þá veru að þama vilji ríkjð greiða hærri vexti en ann- ars staðar sé hægt að fá, greiða eitthvað til almennu lífeyrissjóð- anna í líkingu við þær milljónir eða milljarða sem það greiðir vegna lífeyrissjóða opinberra starfs- manna. Þama virtist djarfa fyrir von um að takast mætti að auka ávöxtun almennu lífeyrissjóðanna svo þeim yrði kleift að hækka bæt- ur til félaga sinna sjúkra og aldr- aðra gegn því að afhenda þetta Qármagn. Það hefur lengi verið áhyggjuefni hvað lágar greiðslum- ar em sem fólkið fær og hlustað hefur verið eftir þeim möguleika sem ræddir hafa verið um breyting- ar á kerfinu og nánast beðið eftir því að hægt yrði að taka annað upp. Má þar nefna gegnumstreym- iskerfið og fleira sem verið hefur í umræðu. Ég vil nefna hér dæmi af lífeyris- greiðslum tveggja kvenna, sem ég þekki, báðar fæddar 1915 svo líf- eyrir þeirra styðst ekki við „eftir- laun aldraðra", en þeir sem vom fæddir fyrir 1914 nutu þeirra. En báðar þessar konur hafa unnið síðan almennu lífeyrissjóðimir hófu göngu sína 1970. I ár, þegar þær voru 72ja ára, hættu þær störfum. Önnur þeirra vann fulla vinnu í frystihúsi og hafði á þessu tímabili unnið sér full réttindi miðað við dagvinnulaun, 1 stig á ári og greitt til síns lífeyrissjóðs í 16—17 ár. Eftirlaun hennar við starfslok em kr. 7.580,- á mánuði. Hin konan vann líka í frystihúsi, en gafst upp á að vinna heilan dag eftir að bónus var tekinn upp og vann ekki nema hálfan dag. Það var ekki greitt í lífeyrissjóð af bón- usnum, heldur bara af hálfri vinnu. Nú þegar hún hættir fær hún lífeyr- isgreiðslu aðeins kr. 3.790,- á mánuði. Báðar þessar konur hafa fengið þau fyllstu réttindi sem hægt er að fá fyrir þetta tímabil miðað við láglaunastörf eða fiskvinnu'. Hygg ég að mörgum muni bregða í brún, sem nú em að kom- ast um og yfir sjötugsaldurinn og hætta störfum, þegar þeir kynna sér lífeyrisréttindi sín. Hið nýja fmmvarp til laga um starfsemi lífeyrissjóða sem nú ligg- ur fyrir mun síður en svo auka réttindi fyrir félaga lífeyrissjóðanna frá fyrri reglugerð, svo ekki er mikilla lagfæringa að vænta. Hvar er brjóstvöm fólksins í Al- þýðusambandi íslands í þessum lífeyrissjóðsmálum? Engin samúð er til umræðu fyrr en kemur til mála að skerða rétt þeirra til húsnæðislána sem ekki þurfa láns með, en engin rödd heyr- ist til samúðar þeim sem em dæmdir frá lánum vegna erfiðra aðstæðna og lágra launa fyrr en félagsmálaráðherra, Jóhanna Sig- urðardóttir, þorir að bera saman þessa tvo hópa, ca 7% af umsóknum húsnæðislána, annan hópinn á lág- um launum, eignalausan og þarf aðstoðar við. Þessa hópa telur hún álíka fjölmenna. Hvert er „Friedsmans“-frelsið að leiða okkur? Til þess að traðka á lítilmagnanum, eða hvað? Þá langar mig að nefna þau at- riði sem mestan þátt hafa átt í þeim mismun, sem verið hefur á Íífeyrisréttindum starfshópa. Á ég þar við þá sjóði, sem vinnuveitandi ábyrgist lífeyrisgreiðslur með fullri verðtryggingu miðað við laun á hveijum tíma, og aðra sjóði þar sem lífeyrisgreiðslur fara eftir greiðslu- getu sjóðanna sjálfra. Þeir fyrr- nefndu eru sem kunnugt er lífeyrissjóðir ríkisstarfsmanna, starfsmanna sveitarfélaga og ríkis- banka, hina síðamefndu ber hæst og eru fjölmennastir, almennu líf- eyrissjóðimir, sjóðir verkalýðsstétt- anna í landinu. Ég var að minnsta kosti svo blá- eyg að halda, að með þörf fjármuna lífeyrissjóðanna í húsnæðiskerfið væri verið að opna nýja möguleika með betri ávöxtun en verið hefur sem yrði svo til þess að hægt yrði að nálgast opinberu sjóðina sem hafa meiri réttindi { hlutfalli við iðgjöld og miklu meira öryggi fyrir sína félaga. Ég sat nýlega í Reykjavík aðal- fund almennu lífeyrissjóðanna, SAL, þar sem verið var að ræða ávöxtun á fé Hfeyrissjóðanna og hve mikið sjóðimir mundu vaxa á næstu árum og hve mikla fjármuni þeir myndu færa í spamaði innf Qár- málakerfi þjóðarinnar, jafnvel tæpt á að ávaxta þyrfti þá erlendis. En enginn maður ræddi um greiðslur þær sem fólk fær úr sjóð- unum eða væntir þess að fá, enginn talaði um þann vanda hve bætur sjóðanna em litlar né hvemig bæta mætti og hækka greiðslur sjóðanna til félaga sinna. Yfirleitt virtist ekki vera ætlast til þess að fólk ræddi málefni sjóðanna fram yfir það sem fræðingar hafa að segja um ávöxt- un fjármuna þeirra. En það þarf ekki að lýsa því sem er að gerast í dag. Við erum að bijóta reglugerðir lífeyrissjóðanna sem kveða á um það, að fé sjóð- anna skuli vera haft á bestu vöxtum á hveijum tima, en við réttum hús- næðismálakerfinu og ríkinu þetta fé með 7% vöxtum og verðtrygg- ingu á sama tíma og inn um bréfalúguna á hveiju húsi dettur bréf þar sem ríkissjóður býður upp á verðtryggð spariskírteini með 8,5% vöxtum og verðtryggingu. Megum við gera þetta? Megum við fóma möguleikum á auknum lífeyrisgreiðslum til láglaunafólks- ins í landinu í húsnæðiskerfið sem mér er ekki grunlaust um að bra- skarar og ríkisbubbar geti spilað með. Verðbólgutap sjóðanna til 1979 skilaði sér í verðbólguhagnaði lán- takenda. Eigum við enn að láta lífeyrissjóðina leggja fram fjármuni sína til að tiyggja annarra hag fram yfir hag þeirra sem þeir eru stofnað- ir til að tryggja? Verð frö 795.000 með ryðvörn. Átta ára ryðvamarábyrgð Allar gerðir til afgreiðslu strax. Sýningarbílar í Volvosal. OpiðtVolvosal mán.-fös. 9-18 laugardaga 10-16 Höfundur er formaður Kvenna- deildar Verkalýðsfélagsins i Akranesi. \ • "í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.