Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 Tjörnin — perla Reykjavíkur eftirJónuE. Jónsdóttur Það getur ekki satt — það má ekki vera satt! Stórhýsi skal rísa við Tjömina — þeim getur ekki verið alvara. Getur verið að nokkrar örfáar sálir fái að ráðskast með Tjömina, perlu Reykjavíkur, breyta henni og umhverfi hennar? Hver hefur gefíð þeim umboð til þess? Að mínu mati er þetta stór ákvörðun sem þyrfti meiri athugun- ar við. Við skulum ekki vera of bráðlát. Þama geta farið forgörðum verð- mæti sem aldrei verða aftur bætt. Hvemig á t.d. að leysa umferðar- vandann sem óneitanlega hlýtur að skapast um aðliggjandi götur? Sú stóra spuming brennur mér á vörum: „Hvemig á að bregðast við auknum umferðarþunga um þennan bæjarhluta — og er hann nú nægur fyrir, svo oft horfir til vandræða. Hvemig hafa áhuga- menn um byggingu ráðhúss við Tjömina hugsað sér aðkeyrslu að húsinu? Á að breikka Tjamargötu og gera hana að breiðgötu ásamt fleiri götum í kringum Tjömina? Hvers vegna er ekki hægt að velqa ráðamenn til vitundar um hversu mikilvægt það er að varð- veita gamla miðbæjarkjamann? Er ekkert hægt að gera til að stöðva þessa niðurrifsstafsemi? Er þetta hin gamalkunna minnimáttarkennd sem hijáir þessa menn? Minnimátt- arkennd vegna þess að í miðborg Reykjavíkur skuli vera svona fá háhýsi en svona mörg bárujáms- klædd timburhús? „En sú niðurlæg- ing.“ Er það friðsældin við Tjömina sem fer svona fyrir brjóstið á mönn- um? Er þeim ekkert heilagt? Mér finnst að hér sé illa staðið að málum — ráðhús getur staðið nánast hvar sem er — t.d. við Skúla- götu — með annan fótinn út í Faxaflóa — eða utan í Vatnsenda- hæð. Allir hafa bíla og fara akandi til ráðhússins hvar svo sem það kemur til með að standa. — En Tjömina og friðsælt umhverfi henn- ar eigum við að vemda og í stað niðurrifs skal bæta og hlynna að þeirri fegurð og friðsæld sem þar ríkir. Tjarnargötu ætti að gera að vist- götu, jafnvel Vonarstræti líka — gróðursetja tré, planta blómum og gera svæðin umhverfis Tjömina enn friðsælli og meira aðlaðandi en nú er. Lækjargötu ætti að mjókka og gera að einstefnugötu með bekkjum og tijágróðri á Tjamarbakkanum. Já, það væri gaman, ef slíkar breyt- ingar væru í vændum — það er gaman að láta sig dreyma. Staðsetning ráðhúss við Tjömina er ekkert einkamál örfárra manna — þetta varðar okkur öll sem búum í þessu landi — þetta er höfuð- borgin okkar. í útvarpsviðtali um daginn sagði borgarstjóri að þessi blettur — þ.e. sá sem fara á undir ráðhús — hafi verið Reykjavíkurborg til skammar og sé mál til komið að bætt verði um betur. Það er satt — og betur hefði verið að hann hefði tekið eft- ir því fyrr. En ég gat ekki betur skilið af orðum hans en að eina leiðin til að bæta úr ljótleika þessa svæðis væri að byggja heilt ráðhús —ja, fyrr má nú rota en dauðrota. „Nei, við eigum margt eftir ólært. I augna- bliksæsingi sem grípur fólk eru oft höggvin stór skörð sem aldrei verða bætt.“ „Til þess eru vítin að varast þau.“ Nei, við eigum margt eftir ólært. í augnabliksæsingi sem grípur fólk eru oft höggvin stór skörð sem aldr- ei verða bætt. Það stóð einu sinni svo fallegt tré á hominu á Túngötu og Garða- stræti — já, það var fallegt — gullregn hét það. Munið þið hvað það blómstraði fallega og gladdi augað? Svo var það höggvið einn daginn. Af hveiju? Jú, það á að rísa stórhýsi þama, sagði einhver. Nú, já, var það? Við hvert slíkt axarhögg sem höggvið er í hús eða náttúm þessa lands sem kalla mætti niðurrifs- starfsemi — er stórt sár höggvið í vitund þeirra manna sem byggja þetta land og láta sig umhverfi og náttúm eitthvað varða. Reykvíkingum er vonandi í fersku minni sá styrr sem stóð um Bemhöftstorfuhúsin á sínum tíma. Forráðamönnum var hún alltaf þymir í auga. „Þessar fúaspýtur mættu nú ijúka — og danskar í þokkabót." Birtar vom myndir í blöðum af líkani að nýju stjómarráðshúsi „sem myndi sóma sér vel á Torfunni". Sami leikur og sýndur var í blöðum um daginn í sambandi við ráðhús í Tjöminni og þar var jafnvel talað um íslenskan byggingarstíl, en von- andi er það nú bara innskot blaða- manns til að vera fyndinn. Sjáið þið ekki í anda svo sem eins og þijár Morgunblaðshallir í röð þar sem Bemhöftstorfuhúsin em og kannski fimm hæða bíla- geymslu undir? En þessi niðurrifs- áætlun var kæfð — sem betur fer segi ég. Þessi hús vom síðan gerð svo skemmtilega upp, ég held ég megi segja öllum til gleði og augnayndis. Það vom margir sem léðu því máli lið og tóku til höndum í alvöm þessu til stuðnings. Skrifaðar vom margar greinar af góðum og mæt- um mönnum — m.a. ekki ómerkari manni en Halldóri Laxness. Skrif- aði hann stórgóða grein, sem birtist í Morgunblaðinu 7. júlí 1971, undir yfírskriftinni „Brauð Reykjavíkur". Þar lætur hann í ljós skoðun sína á niðurrifsstarfseminni og bygg- ingu nýs stjómarráðshúss á Bernhöftstorfunni. En hvað skyldi honum nú fínnast um ráðhús í Tjöminni? Arkitektafélag íslands stóð fyrir samkeppni um „endurlífgun" gömlu • húsanna og fjölmargar tillögur bár- ust. Ein var þó sem bar af, að mínum dómi, það var tillaga er hlaut fjórðu viðurkenningu, höfund- ur Jón Gunnar Ámason myndlistar- maður. Höfundur lagði fram niðursuðudós. „Tillagan gerir ráð fyrir því að Bemhöftstorfan verði varðveitt í dós í 100 ár — og þar með slegið á frest ákvörðun um það hvað gera skuli við húsin — í von um betri skilning meðal almennings og yfir- valda á gildi þeirra í heildarmynd- innj en nú er.“ Tilv. lýkur. Ég lýk þessum pistli mínum með tilvitnun þessari og flyt hugmynd- ina yfír á Tjömina og umhverfi hennar, þar með talið alþingishúsið og umhverfí þess. Sjáumst á útifundinum við Tjöm- ina. Höfundur er leiðsögumaður. Ráðhús ofan í Tj örninni eftir Bergþóru Gísladóttur Eitt er það sem bömin mín vilja ræða við mig öðru fremur, en það er hvemig ég geti íjármagnað hinar ýmsu þarfír þeirra. Frá mínum bæjardymm séð em á þessu máli margar hliðar. 1. Fjármagnið sem ég hef úr að spila er ekki ótakmarkað. 2. Hveijar em hinar raunvem- legu þarfír bamanna minna og hver er þess umkominn að gera greinar- mun á raunþörfum og gerviþörfum? 3. Hver segir að raunþarfímar eigi að hafa forgang? Allt þetta fínnst mér ærið snúið að meta fyrir sjálfa mig, hvað þá aðra. í umkomuleysi mínu verður mér stundum á að svara: Af hveiju þetta sífellda nauð um peninga, þegar allt sem mestu máli skiptir í lífínu kostar ekkert, er ókeypis og ómetanlegt. Þessu getur fylgt löng upptalning allt eftir því sem samtal- ið ræðst. Ekki þurfíð þið að borga fyrir heilsuna, hreina loftið, vorið, kyrrð fjallanna eða það að vera ís- lendingar. Meðan við bjuggum í Reykjavík áttu Tjömin og Esjan heima í þessum félagsskap. Við þessa ræðu er margt að at- huga. I fyrsta lagi er tilefnið vit- laust. Því bömin eru til mín komin til að fá úrlausn sinna mála en ekki til að hlusta á útúrsnúning eða misheppnaða fyndni. í öðru lagi, og það er aðalatriði, er það alls ekki rétt að þessi lífsins gæði kosti ekkert. Því einmitt á okkar dögum á náttúran sjálf undir högg að sækja sem aldrei fyrr. Getur verið að verðmætamat okkar sé orðið svo öfugsnúið að við metum í raun ein- ungis það sem hægt er að verð- leggja í peningum? Eða hvemig er öðruvísi hægt að útskýra hversu lítið heyrist í talsmönnum hinna sönnu gæða? Hvar eru talsmenn lífrikisins og náttúrufegurðarinnar? Nú emm við þar stödd þessi kyn- slóð að ef við ætlum að eiga aðgang að hingað til sjálfsögðum gæðum, þurfum við að taka afstöðu með náttúrunni og með sjálfum okkur. Því ef við stöndum ekki vörð um það sem okkur er kærast, gerir það enginn. Við þurfum sem sagt að leggja það á okkur að vera ábyrgar manneskjur. Er Reykjavík innflytj endaborg? Þótt ég sé hvorki fæddur Reyk- víkingur né búi þar nú, finnst mér Reykjavík koma mér við og það meira en lítið. Þar hef ég alið u.þ.b. helming ævi minnar. Lengi framan af var afstaða mín til Reylq'avíkur mótsagnakennd. Ég held að mér hafí í aðra röndina fundist hollusta „Getur verið að verð- mætamat okkar sé orðið svo öfuðsnúið að við metum í raun ein- ungis það sem hægt er að verðleggja í pening- um?“ við Reykjavík væri einshvers konar svik við heimabyggð mína og uppr- una. Og náttúran — hún átti heima utan Reykjavíkur. Eftir að ég lærði eða leyfði mér að meta Reykjavík, hefur það oft hvarflað að mér, þeg- ar mér hefur ofboðið skeytingar- leysi heimamanna gagnvart umhverfí sínu, hvort það geti stafað af því að Reykjavík sé borg innflytj- enda, sem ekki hafi enn sæst við sín nýju heimkynni. Ifyrir skömmu þegar ég var á ferð í Reykjavík sá ég mér til hrell- ingar að bakkar Tjamarinnar höfðu orðið fyrir talsverðu hnjaski. Mér var sagt af heimamönnum að þetta væru tímabundin spjöll, vegna við- gerða. Ekki efa ég það. En það var eins og ýtt væri við mér. Stendur ekki meira til? Allt til þessa hafði ég leitt hjá mér deilur Reykvíkinga um staðsetningu ráðhúss. En þar sem ég stóð þama á tjamarbakkan- um var mér eins og í sjónhendingu ljóst hver virði Tjömin var mér. Eg hugsaði með mér, hvemig á ég að geta haft gleði af því að heimsækja Reykjavík ef enn verður þjarmað að Tjöminni. Skyndilega blossaði reiðin upp í mér. Hver hefur leyfi til að gera svona? Eiga Reykvíking- ar Tjömina? Og reiðin færði mér svarið. Auðvitað hefur enginn leyfí til að spilla Tjöminni. Ég og við öll sem njótum þess að horfa á Tjöm- ina, við eigum hana. Við skulum taka höndum saman og bjarga henni hvar sem við emm niðurkom- in í veröldinni. Reykvíkingar eiga ekki Tjömina frekar en Mývetning- ar eiga Mývatn eða Snæfellingar Snæfellsjökul. Annað mál Til að ekki komi nú upp neinn misskilningur vil ég taka það fram, að með þessum orðum er ég engan veginn að leggjast gegn því að Reykvíkingar fái sitt ráðhús. Þaðan af síður er ég að taka afstöðu til þeirrar hugmyndar að ráðhúsi sem fyrir liggur. Ég er ekki með öllu ókunnug starfsaðstöðu þeirra sem vinna fyrir Reykjavíkurborg og hef- ur löngu fundist tímabært að því ágæta fólki verði sköpuð nútímaleg vinnuskilyrði. Sama gegnir um þá sem njóta þessarar þjónustu, þeir eiga allt það besta skilið. En góðir Reykvíkingar. Finnið ráðhúsinu ein- hvem annan og betri stað heldur en ofan í Tjöminni. Höfundur er sérkennari og vinnur á Fræðsluskrifstofunni í Borgar- nesi og er búsett þar. Kjördæmisþing Alýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi: Hlutur landsbyggðar orðinn enn lakari Kjördæmisþing Alþýðu- flokksins í Vesturlandskjör- dæmi sem haldið var 1. nóvember í Stykkishólmi sendi f rá sér ályktun þar sem meðal annars kemur fram að þingið taldi að samdráttur í landbúnaði og gallað kvóta- kerfi í sjávarútvegi hafi enn gert hlut landsbyggðar lak- ari gagnvart höfuðborgar- svæðinu. Kjördæmisþingið benti á að gæta verði að við endurskoðun fiskveiðistefnu að áhrif sveitarfé- laga á ráðstöfun veiðiheimilda verði aukin. Þá fagnaði þingið því að ný ríkisstjóm stefni að eðlilegri byggðaþróun í landinu og minnti á að eitt brýnasta hagsmunamál Vestlendinga væri bætt vegakerfí. Alþýðuflokksfólk í Vesturlands- kjördæmi beindi því til ráðherra Alþýðuflokksins að haft væri í huga að svigrúm til samdráttar á landsbyggðinni væri minna en á þenslusvæðunum og stórfelldur niðurskurður á framlögum til landsbyggðarinnar gæti haft al- varlega byggðaröskun í för með sér og aukið enn á það misrétti sem nú viðgengst. Kjördæmisráðið fagnaði aðgerð- um Jóns Baldvins Hannibalssonar fjármálaráðherra vegna brejrtinga á skattkerfínu. Lýst var eindregn- un stuðningi við stjómarfrumvarp til breytinga á lögum um hús- næðislán og aðgerðum Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráð- herra í þeim efnum. Jafnframt fordæmdi þingið harðlega orð- bragð og ummæli einstakra þingmanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í umræðum um húsnæðismál á Alþingi að undanf- ömu. Þingið fagnaði starfí Jóns Sigurðssonar dómsmálaráðherra vegna endurskoðunar dómskerfís- ins í landinu. í ályktuninni kom einnig fram ósk um að þjóðarátak til umferðar- öryggis mætti verða til að fækka slysum og auka öryggi í umferð- inni, að þingmenn flokksins og ráðherrar standi vörð um kjör þeirra sem minnst mega sín, hafí hemil á verðbólgunni og starfi í nánu samráði við samtök launa- fólks og aðra aðila vinnumarkaðar- ins með það að markmiði að treysta kaupmátt og efla jöfíiuð og jafn- rétti í þjóðfélaginu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.