Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Stöð 2 stendur fyrir öðru heimsbikarmótinu í skák:
Garri Kasparov teflir
hérlendis á næsta ári
GARRÍ Kasparov núverandi heimsmeistari í skák teflir hér á landi
í október á næsta ári á öðru heimsbikarmótinu í skák, sem Stöð
2 mun standa fyrir ásamt fleiri aðilum. 15 af 24 sterkustu stór-
meisturum heims munu einnig taka þátt í mótinu. Þeirra á meðal
er Jóhann Hjartarsson, en hann er eini íslendingurinn, sem unnið
hefur sér þáttökurétt með sigri sínum á millisvæðamótinu i Szirak
i Ungveijalandi.
Nýstofnuð samtök stórmeistara,
sem Kasparov hafði forgöngu um
að yrðu stofnuð, hafa ákveðið að
efna til sex heimsbikarmóta í skák,
þar sem 24 sterkustu skákmenn
heims munu leiða saman hesta'
sína. Hver þeirra teflir á fjórum
mótum af þessum sex. Mótin dreif-
ast á þau tvö ár, sem líða á milli
einvígja um heimsmeistaratitilinn
og sigurvegari úr mótunum sam-
anlagt verður eins konar óopinber
heim8meistari. Fyrsta mótið fer
VEÐUR
fram í aprflmánuði næstkomandi í
Brussel og annað mótið hefst hér
á landi 2. október. Mótið er 15
umferðir og stendur í mánað-
artíma.
Auk Kasparovs og Jóhanns teflá
þessir skákmenn á mótinu:
Kortsnoj Sviss, Jusupov Sovétríkj-
unum, Timman Hollandi, Beljavskí
Sovétríkjunum, Portisch Ungvetj-
alandi, Spassky Frakklandi, Tal
Sovétríkjunum, Sokolov Sovétríkj-
unum, Anderson Svíþjóð, Nunn
Garri Kasparov
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstoia Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i geer)
VEÐURHORFUR I DAG, 12.11.87
YFIRLIT á hádttgi í g«ar: Á Grænlandshafi er 965 millibara heldur
minnkandi iægð ó suðausturleið, en skammt vestur af Bretlandseyj-
um er vaxandi 972 mlllibara lægð sem hreyfist norönorðaustur.
Veður fer heldur kólnandi.
SPÁ: í dag verður norðaustan kaldi vtða um land, og heldur vax-
andi þegar líður á daginn. Dólitil él við norður- og austurströndina
en bjart veður sunnanlands og vestan. Hiti 3-4 stig suðaustan-
lands an nólægt frostmarki annars staðar.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FÖSTUDAGUR: Norðanátt og hlti nélægt frostmarki vestantil ó
landinu en (vlð hlýrra austanlands. Skúrir eða él norðanlands og á
Vestfjöröum en bjart veður sunnanlanda.
LAUGARDAGUR: Hægviðri og viða bjart veður og fremur svalt
ófram. Þykknar líklega upp með austanótt um sunnanvert landið
þegar Ifður ó daginn.
TÁKN: x Norðan, * vlndstlg: ' Vindörin sýnir vind- 10
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V # v
Léttskýjað / / / / / / / Rigning
Hálfskýjað / / / * / * V *
Skýjað / * / * Slydda / * / OO 4
Alakýjað # # # * * * * Snjókoma # # # K
10 gráður á Celsius
Þoka
Þokumóða
Súld
Akureyrl
Reykjavlk
hhi veður
3 skýjað
2 úrkomalgr.
Bergsn
Helalnkl
ian Mayen
Kaupmannah.
Narasarasuaq
Nuuk
Oaló
Stokkhólmur
Þórahöfn
vantar
vantar
vantar
vantar
+8 akýjað
+6 láttakýjað
vantar
vantar
vantar
Algarva
Amaterdam
Aþena
Barcelona
Berlln
Chlcago
Faneyjar
Frankfurt
Glaagow
Hamborg
LasPalmaa
London
Loa Angelea
Lúxemborg
Madrfd
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Parfa
Róm
Vln
Washlngton
Wlnnlpeg
Valencia
vantar
vantar
vantar
vantar
• rlgnlng
vantar
vantar
10 akýjað
vantar
8 þokumóða
vantar
vantar
vantar
vantar
vantar
vantar
vantar
vantar
vantar
vantar
vantar
7 þokumóða
16 alakýjað
vantar
vantar
Englandi, Ribli Ungveijalandi, Sax
Ungveijalandi, Speelman Englandi
og Ehlvest Sovétríkjunum.
Páll Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta yrði annað
sterkasta skákmót, sem haldið hef-
ur verið í heiminum, samkvæmt
upplýsingum bandaríska stór-
meistarans Kavaleks, en hann er
framkvæmdastjóri Stórmeistara-
samtakanna. Sterkara væri aðeins
skákmót, sem haldið hefði verið
fyrir fáum árum í Montreal í
Kanada, þar sem hefðu verið sam-
ankomnir allir sterkustu skákmenn
heims, þ.á.m. Karpov.
Páll sagði að ekki væri búið að
ákveða mótsstað og nú væri unnið
að því að fá fleiri aðila til þess að
standa að mótinu með Stöð 2, en
kostnaður vegna þess væri mikill.
Verðlaunafé á mótinu væru sam-
tals 100.000 Bandaríkjadalir og
jafn há upphæð væri greidd í sam-
eiginlegan verðlaunasjóð heims-
bikarmótsins. Auk þess kæmi til
kostnaður vegna mótsstaðs, uppi-
halds og ferða þáttakenda og
kostnaður vegna upptöku og út-
sendinga.
Hreinn Lindal
Hreinn Líndal
með tónleika
í New York
TENÓRSÖNGVARINN
Hreinn Líndal heldur í kvöld
fyrstu tónleika sína i New
York borg i Bandaríkjunum
og verða þeir í Weill Recital
Hall hjá Carnegie Hall. Undir-
leikari Hreins er píanóleikar-
inn og hljómsveitarstjórinn
Craig Johnson.
Hreinn Líndal er nú búsettur
í borginni St. Paul í Minnesota-
fylki og hefur undanfarið haldið
rúmlega 50 tónleika víðs vegar
um Bandaríkin.
Meðal verka á efnisskrá
Hreins í kvöld verða sönglög og
aríur eftir Hándel, Schubert,
Strauss, Tjækofský og Puccini
en einnig eftir norræn tónskáld
svo sem Grieg, Sibelius, Sjöberg
og síðast en ekki síst Emil Thor-
oddsen og Sigvalda Kaldalóns.
Steingrímur Njálsson:
Dæmdur í 2V2 árs
fangelsi fyrir
kynf erðisafbrot
Fékk áður 3 ár fyrir sama brot
DÓMUR 2 máli Steingríms Njálssonar var kveðinn upp 5 Sakadómi
Reykjavíkur á þriðjudag. Steingrimur var dæmdur í ?Mi árs fang-
elsi fyrir kynferðisafbrot, en tiður hafði hann verið dæmdur í 3 ára
fangelsi fyrir sama brot. Þeim dómi var hins vegar vísað frá Hæsta-
rétti.
Pétur Guðgeirsson, sakadómari,
dæmdi ( máli Steingríms í lok apríl
og hlaut hann þá 3 ára /angeisi
fyrir að 'nafa brotið af sér gagnvart
þremur ungum drengjum. Málið var
flutt í Hæstarétti í lok september
og í byijun október vísaði Hæsti-
réttur málinu aftur heim I hérað.
Ástæða þess var sú, að Pétur Guð-
geirsson var fulltrúi ríkissaksókn-
ara þegar málið var rannsakað og
mælti fyrir um rannsókn þess. Því
taldi Hæstiréttur að honum hefði
borið að víkja sæti.
Eftir að málinu var vísað aftur
heim í hérað tók Hjörtur Aðalsteins-
son við því og kvaðst ætla að flýta
afgreiðslu þess eftir mætti, svo
dómur félli áður en Steingrímur
Njálsson yrði látinn laus úr fang-
elsi, en það verður hinn 28.
nóvember. Á þriðjudag féll dómur
og var Steingrími gert að sitja í
2>/2 ár í fangelsi. Hjörtur sagði að
Steingrímur hefði verið sakfelldur
fyrir öll ákæruatriði nú, líkt og í
fyrra sinnið, en þá hefði verið beitt
hámarksrefsingu fyrir brotin, sem
er 3 ára fangelsi.
Ekki hefur verið tekin um það
ákvörðun af hálfu Steingrfms eða
ákæruvalds hvort dómi þessum
verður áfrýjað. Verði það gert gæti
farið svo að Steingrímur yrði látinn
laus þann 28. nóvember. Ákæru-
valdið getur hins vegar gert kröfu
um að hann sitji í gæsluvarðhaldi
þar til dómur Hæstaréttar fellur.
Hallvarður Einvarðsson, ríkissak-
sóknari, sagði að um ieið og
dómsgerðir hefðu borist og afstaða
Steingríms til úfrýjunar væri !jós
yrði tekin ákvörðun um áfrýjun af
hálfu Akæruvalds. „Ég treysti mér
ekki til að segja til um það nú hvort
ákæruvaldið óskar eftir gæsluvarð-
haldi yftr Steingrími þar til dómur
fellur," sagði Hallvarður.
Höfn:
Séra Baldur
Krisljáns-
son kosinn
Httfn, Hornafirði.
PRESTSKOSNINGAR fóru fram
í Bjarnanesprestakalli nýlega.
Séra Baldur Krisljánsson, sem
undanfarin tvö ár hefur gegnt
prestakallinu, var einróma kjör-
inn prestur.
Kosningin fór fram eftir nýjum
lögum þar um, og voru sóknar-
nefndarmenn einhuga um val sitt.
í Bjamanesprestakalli eru íbúar
Hafnarhrepps, Nesjahrepps og
Bæjarhrepps í Austur-Skaftafells-
sýslu og sinnir presturinn því
Hafnarkirkju, Bjamaneskirkju og
Stafafellskirkju.
- JGG