Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
15
Alþingistíðinda 1961:
„Þessi kafli er alger nýsmíði. í
frv. frá 1948 voru engin ákvæði
um endurbyggingu, en í frv. 1958
var í VII. kafla að fínna ákvæði
um slíkt. Virðist nefndinni sem
framkvæmd mundi mjög torveld
samkvæmt þeim ákvæðum, sem
byggð eru á dönskum lagaákvæð-
um. Reynslan í Danmörku er líka
sú, að þær lagaheimildir hafa mjög
lítið verið notaðar.
Þar sem borgir hafa skemmst
mjög af styijaldarorsökum eða öðr-
um sambærilegum ástæðum hefur
reynst kleift að framfylgja slíkum
ákvæðum, en annars staðar hefur
yfírleitt sá háttur verið á hafður,
að sveitarfélögin hafa keypt upp
allar eignir, lóðir og hús á viðkom-
andi byggingareit, látið síðan
endurskipuleggja reitinn og þá
ýmist ráðstafað lóðunum eða byggt
á þeim og síðan selt eða leigt."
Framangreind ákv. úr skipulags-
lögum og greinargerð fyrir frum-
varpinu staðfestir hvoru tveggja,
víðtækan grenndarrétt gagnvart
nágrannabyggð og jafnframt mjög
öflugt tæki (eignamám), sem sveit-
arfélögum er fengið í hendur til
þess að koma við heildarlausnum.
Galli við framkvæmd skipulags
fyrir ráðhús í Tjamarhominu er sá,
auk þeirra, sem áður hafa verið
nefndir, að hverfíð er ekki tekið sem
heild og endurskipulagt, heldur er
verið að „troða" niður stóm húsi í
eldra hverfí, þar sem hefur verið
vatn og hefur verið staðfest sem
„vatn“ í skipulagi í áratugi. VI.
kafla skipulagslaganna verður að
skilja þannig, að slíkt sé ekki heim-
ilt, nema með samkomulagi ná-
granna og hugsanlega eignamáms-
aðgerðum að því leyti, sem ekki
næst samkomulag. Annar galli
skipulagsgagna er sá, að ekki er í
þeim vikið að lagalegum vandamál-
um og ekki hirt um að gera
mögulegum tjónþolum grein fyrir
réttarstöðu þeirra. Virðist látið svo,
sem ekkert þurfí að huga að þessu,
en boðaðar hraðar framkvæmdir
og verklok innan fárra ára, án
nokkurra athugasemda um grennd-
arrétt nágranna eins og hann komi
málinu ekki við. Þetta veldur óvið-
unandi réttaróvissu.
Lokaorð
Mikilsverður réttur húseigenda
og forráðamanna húsa við Tjömina
ásamt ýmsum flausturlegum
„skipulagsaðgerðum" og því að
borgaryfirvöld hafa á hendi tvenns
konar hlutverk í málinu, hlutverk
skipulagsyfírvalds og hlutverk
framkvæmdaaðila, veldur því að
brýnt er að eyða réttaróvissu með
ítarlegri könnun hlutlausra kunn-
áttumanna. Niðurstöður þeirra þarf
síðan að kynna rækilega.
Framtíð Ijamarinnar og bygging
og staðsetning ráðhúss er með
stærri og viðkvæmari borgarmálum
eins og dæmi sanna. Góður aðgang-
ur borgara að borgaryfirvöldum í
Reykjavík og tíð viðleitni þeirra til
að koma til móts við óskir Reyk-
víkinga er jákvæð. í þeim anda er
kjörið að gefa borgarbúum kost á
að láta í ljós álit sitt í atkvæða-
greiðslu að loknum góðum undir-
búningi.
Höfundur er lögmaður.
ALTT
ÁHREINU
MEÐ
&TDK
Saga af Suðumesjum
Bókmenntlr
Jenna Jensdóttir
Jóhannes úr Kötlum. Saga af
Suðurnesjum. Ragnheiður Gests-
dóttir teiknaði myndirnar. Mál
og menning 1987 '
Söguljóð Jóhannesar úr Kötlum
em með því besta sem ritað hefur
verið fyrir íslensk böm enda em
þau enn á margra vömm. Það er
eins með þau og önnur sígild verk,
þau lýsa og auðga þótt tímamir séu
breyttir. Bera með sér litrík ein-
kenni hreinnar tungu okkar í
raunsæi hversdagsleikans og frá-
bærri innlifun í heim ævintýranna.
Saga af Suðurnesjum kom fyrst
út í Ómmusögum fyrir meira en
hálfri öld sfðan (1933). Hún er fal-
legt ævintýri þar sem raunhæf
lífsbarátta, kærleikur og trúnaður
em óijúfanlegir þræðir í atburða-
rásinni.
Litli drengurinn á Suðumesjum
horfði til jóla með tóman disk á
borði af því að aflaklóin faðir hans
hafði ekki fengið drátt úr sjó um
langan tíma.
Dag nokkum þegar faðirinn var
ekki heima og móðirin var önnum
Jóhannes úr Kötlum
kafín fór drengurinn niður að sjón-
um, þar sem Lóa systir hans hafði
týnst. í fanginu bar hann litla bik-
aða bátinn sinn:
Og báturinn skreið út á djúpið
af sjálfu sér. -
Ekki hvarf hann í öldumar
Ragnheiður Gestsdóttir
og ekki rak hann á sker.
- Allt var víst fullt af fiski
í hafinu hér,
Drengurinn bar sig til eins og
góður veiðimaður. En biðin og kuld-
inn krepptu að honum:
Loks kippti eitthvað i öngulinn
þar suður í sjó.
Þá kom nú fiim á fiskidrenginn,
hann dró og dró
og hló og hló,
og lagðist út fyrir borðstokkinn,
sú litla aflakló.
Drengurinn steyptist í hafíð, en
honum var bjargað af skrýtinni
skepnu sem sagði honum sögu sína.
Sagðist heita Kobbi og vera sonur
Faraós Egyptalandskonungs sem
varð að sel eins og allt hans fólk,
þegar Móses ieiddi þjóð sína yfír
hafið:
Héma niðri á hafsbotni
á ég fína, fallega höll.
Þar eru þaraskógar
og þar era kóralflöll,
og þar á ég fallega stúlku,
sem er hvít eins og mjöll.
Drengurinn fór með selnum í
höllina og dvaldi þar langt fram á
jólakvöld. Þá fór hann heim aftur
— en hann fór ekki einsamall. Ekki
verður sagt meira frá ljóðinu hér.
Það er gaman að hinn ungi lista-
maður, Ragnheiður, skuli hafa
myndskreytt ljóðið. Stflhreinar
mjmdir hennar sameinast ljóðinu
sérkennilega vel. Litir og form virð-
ast túlka vel þær tilfinningar sem
gera mannlíf ljóðsins fagurt og
raunsætt. Þessi hlýja sem stafar
jafnan frá myndum hennar nýtur
sín vel hér. Öllum hlutaðeigendum
er sómi að þessari bók.
Ný sending af
loðskinnshúfum og treflum
4
pelsinn
Kirkjuhvolisími 20160
Heitar tilfinningar í
trúverðugri skáldsögu
Békmenntlr
Jóhann Hjálmarsson
Nína Björk Árnadóttir: MÓÐIR
KONA MEYJA. Skáldsaga. Til-
einkuð minningu Alfreðs Flóka.
Forlagið 1987.
Kunnar eru sögur um ungar
stúlkur úr sveit sem komu til höf-
uðstaðarins og lentu í vist hjá
heldra fólki. Ein slík stúlka hét
Ugla. Nú er komin Helga í Heið-
arbæ. Henni kynnumst við í
skáldsögu Nínu Bjarkar Ámadótt-
ur: Móðir Kona Meyja.
Þótt samfélagsmál séu Nínu
Björk ofarlega í huga, misskipting
auðs, munurinn á ríkum og fátæk-
um, er skáldsaga hennar síst af
öllu félagslegt ádeiluverk. Móðir
Kona Meyja fjallar einkum um
mannlegar tilfínningar, hið bams-
lega og einlæga og jafnframt það
sem undir niðri býr og er af ætt
blindra ástríðna. Persónur skáld-
sögunnar era smám saman af-
hjúpaðar þangað til þær standa
naktar og geta eftir það náð reisn
sinni á ný. Bak við fegursta yfír-
borðið leynist viðkvæmni og
særindi og sá sem hefur beðið
ósigur í lífsgæðakapphlaupinu
hefur ekkert annað að sýna en sár
og öll tilvera hans mótast af þvi.
Helga rifjar upp ár sitt í hús
inu, „sterkasta örlagastrauminn"
í lífí sínu. Örlagavefur hússins er
kynlegur. í honum miðjum er frú-
in Heiður, síðan maður hennar,
Hjálmar, og kerlingamar Sína og
Setta, fyrram niðursetningar. Vil-
hjálmur eða Villý kanasonur úr
braggahverfi bæjarins tengist
þessu húsi líka með dularfullum
hætti. Nokkrar persónur aðrar, en
veigaminni, leika sín hlutverk í
sögunni.
Minnisstæðust verður Helga
sjálf, Heiður og Villý. Kerlingam-
ar era að mínu mati of fyrirferðar-
miklar og sumar persónur eins og
til að mynda bræður Helgu skort-
ir líf og lit, era of algengar. Best
er Nína Björk þegar hún býr til
andrúm heitra tilfínninga og nálg-
ast hið ljóðræna eintal. Þá fær
prósinn vængi. Vissir hlutar skáld-
sögunnar era afburða vel skrifaðir,
ekki síst þegar lýst er ástum þeirra
Helgu og Villýs.ástarleik Helgu
og Heiðar og skammvinnum blíðu-
fundum Helgu og Hjálmars. Nína
Björk kann vel list hinnar erótísku
frásagnar.
Umkomuleysi Helgu og Villýs
dregur Nína Björk upp af innsæi
og listrænum krafti. Móðir Kona
Meyja er að mörgu leyti gott og
trúverðugt framlag til lýsinga á
lífí hinna bágstöddu í samfélaginu.
Eins og fyrr segir er það gert með
því að sýna tilfínningahliðina, en
ekki dvalist við nöturleik fátæktar-
innar einn saman.
Með Móður Konu Meyju er kom-
in ný athyglisverð Reykjavíkur-
skáldsaga og opinská lýsing á
heimi ungrar konu sem fær að
reyna margt, er í senn náttúra-
bam og vitur fyrir hönd tilfinninga
sinna. Margir lesendur munu fínna
til með þessari stúlku. En mestu
skiptir að þegar best lætur tekst
höfíindinum að gæða hana lífí
Nína Björk Árnadótt
ásamt þeim undarlegu mannver-
um sem standa henni næst, era
henni skyldastar.