Morgunblaðið - 12.11.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Greinarg-erð um hljóm-
burðarmál HaUgrímskirkju
eftir Hörð Áskelsson
Astæður
Nú þegar Hallgrímskirkja í
Reykjavík hefur haft kirkjusalinn
stóra í notkun í tæpt eitt ár hefur
byggingamefnd kirkjunnar óskað
eftir umsögn minni um hljómburð
kirlqunnar. Ástæðan er ekki hvað
síst vaxandi almannarómur, að
hljómburðurinn sé alls endis óviðun-
andi og að húsið henti ekki þeirri
starfsemi sem þar fer fram. Hefur
undirritaður bent á að full þörf sé
á því að upplýsa fólkið í landinu
um staðreyndir þessa máls og mun
þessi greinargerð m.a. til þess ætl-
uð.
Forsaga
Þegar ég fyrir fimm árum kom
inn í umræðuna um hljómburð
Hallgrímskirkju lágu fyrir áætlanir
um kirkjusal með hljómburði, sem
miðaðist við þarfir tónleikahúss,
þ.e. með mjög stuttum ómtíma (ca.
1,5—2 sekúndur). Ég benti strax á
þá staðreynd að mikill munur væri
á æskilegum hljómburði tónleika-
húsa og kirkna og færi ekki saman
flutningur á orgel- og kórtónlist
kirkjunnar og hefðbundið tónleika-
hald í tónleikasölum. Þar sem
umræður um byggingu tónleika-
húss voru þá í gangi, benti ég á
að Hallgrímskirkja þurfti ekki leng-
ur að taka tillit til hugsanlegra
þarfa almenns tónleikahalds í borg-
inni, enda slíkt I rauninni óhugsandi
í húsi sem fyrst og fremst er sniðið
að helgihaldi. Undir þessa skoðun
mína tóku margir, þ. á m. tónmeist-
ari ríkisútvarpsins, Bjami Rúnar
Bjamason, Ingólfur Guðbrandsson
kórstjóri og þeir orgelsmiðir sem
höfðu tjáð sig um málið. Lögðu
þeir ríka áherslu á að reynt yrði
að halda ómtímanum sem næst því
sem æskilegt gæti talist fyrir
kirkjutónlist.
Uppúr þessum nýju viðhorfum
markaðist síðan sú stefna að lengsti
ómtími fullfrágenginnar kirkjunnar
ætti að verða í kringum 4 sekúndur
og var þar m.a. stuðst við ítarlegar
upplýsingar frá orgelsmiðnum
Hans-Gerd Klais frá Bonn í V-
Þýskalandi, en hann kom sérstak-
lega til íslands til þess að fjalla um
þessi mál á fundum með hönnuðum
kirkjunnar. Hljómburðarhönnuðir
gerðu nýjar áætlanir sem tóku mið
af breyttum viðhorfum. Áætlunum
um hitaeinangrun, sem einnig hefur
hljóðeinangrandi áhrif, var breytt
þannig að meira varð um „harða"
fleti í kirkjusalnum og „ísog" því
minna en upphaflega stóð til. Þar
sem vitað var að ýmsar innrétting-
ar, sem síðar koma, eiga eftir að
auka ísog eins og t.d. orgelið stóra,
var tekið tillit til þess. M.a. var
hannaður veggur úr steinull í opin
á vesturvegg til að líkja eftir áhrif-
um orgelsins á hljómburðinn.
Þrátt fyrir miklar framfarir í
fyrirfram útreikningum á hljóm-
burði bygginga í seinni tíð, er
nákvæmnin enn takmörkuð, þannig
að alltaf er um töluverða óvissu að
ræða. Á þessu stigi var lögð áhersla
á, að betra væri að óvissumörkin
lægju fyrir ofan en neðan áætlaðan
ómtíma, því auðveldara væri að
stytta en lengja ómtímann eftirá.
Undirritaður lagði til að vígslu
kirkjunnar yrði seinkað svo eitthvað
svigrúm gæfist til að reyna hljóm-
burðinn og gera hugsanlegar leið-
réttingar áður en kirkjusalurinn
yrði tekinn í stöðuga notkun. Ekki
reyndist unnt að verða við því. Þar
sem mikil tímaþröng einkenndi
lokaáfangann fyrir vígslu lágu eng-
ar upplýsingar um raunverulega
niðurstöðu fyrir, þegar vígslan fór
fram þann 26. október 1986. Það
er fyrst núna, ári síðar, að farið er
að vinna úr niðurstöðum, en á þessu
eina ári hefur fengist mikil reynsla
af notkun hússins og skal hér gerð
grein fyrir því helsta sem snertir
tónlistina og hljómburðinn.
Tónleikaannáll og
athugasemdir
26. október 1986: Vígsla kirkj-
unnar en þar var flutt mikið af
Hörður Áskelsson
„Ég er bjartsýnn á að
Hallgrímskirkja eigi
eftir að svara ýtrustu
kröfum um besta hugs-
anlegan ramma fyrir
flutning á tónlist kirkj-
unnar og trúi að
hljómburðarhönnun
hennar sé á réttri leið.
Eg óska að ekki verði
reynt að spara fé á
þessu sviði á kostnað
bestu hugsanlegrar út-
komu.“
tónlist, m.a. af kór, málmblásurum
og sinfóníuhljómsveit. Kirkjan var
meira en full setin og áhrif mann-
fjöldans leyndu sér ekki í mjög
styttum ómtíma. Sama dag var flutt
Kantatan „Lobe den Herren" eftir
Bach við upphaf prestastefnu. Þar
komu ffarn einsöngvarar, kór og
hljómsveit og var kirkjan ekki hálf-
setin og áberandi lengri ómtími en
við vígsluna, til er útvarpsupptaka
af þessum flutningi.
23.-24. nóvember 1987: Sálu-
messa Mozarts á tvennum tónleik-
um Mótettukórs Hallgrímskirkju.
Einsöngvarar, kór og hljómsveit.
Rúmlega 1000 manns í hvort skipti.
Ríkisútvarpið gerði upptöku af báð-
um hljómleikunum. Umsagnir um
hljómburðinn voru misjafnar og
mikið var rætt um hvort staðsetning
flytjenda í og við kórtröppur hafi
verið rétt. Nokkrir tónleikagesta
höfðu á orði, að þeir hefðu vart
heyrt skýrari og jafnari flutning á
hljómsveitarleik. Flest benti til mjög
góðrar hljómdreifingar hússins.
11.—13. desember 1987: Messf-
as Hándels á tvennum tónleikum
Pólýfónkórsins og Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Einsöngvarar, kór
og hljómsveit. Fullt hús á fyrri tón-
leikum, nimlega hálft hús á þeim
síðari. Útvarpsupptaka. Steinull í
vesturvegg hafði verið fjarlægð og
settar upp spónaplötur vegna hug-
mynda um ósækileg áhrif á hljóm-
burð. Þetta var gert án samráðs
við hljómburðarmenn og organista
kirkjunnar. Flytjendur voru stað-
settir inn í kór kirkjunnar og sýndist
mörgum að sú staðsetning væri
hljómburðarlega séð betri, en við
sálumessu Mozarts. Allur saman-
burður þó mjög erfiður vegna þess
að ekki var um sömu flytjendur og
sama verk að ræða.
21. desember 1986: Jólatónleik-
ar Kammersveitar Reylqavíkur.
Hljómsveitartónlist frá barokktím-
anum. Kammersveitin lék hluta
verkanna fyrir framan kórtröppur
og hin uppi í kómum. Um 300
áheyrendur. Útvarpsupptaka. Við-
brögð tónleikagesta og gagnrýn-
enda á hljómburðinn yfirleitt
neikvæð en staðsetningin fyrir
ffarnan kórtröppur þó talin betri.
Undirritaður telur að þama hafi
glögglega komið í ljós óæskileg
áhrif eftirhljóms frá kómum, sem
ekki vom eins áberandi við flutning-
inn á Messías, þegar kórinn var
þétt skipaður hljóðfæraleikumm og
songvumm.
28. desember 1986: Söngvar og
lestrar á jólum. Mótettukór
Hallgrímskirkju og upplesarar.
Jólasöngvamir margir án hljóð-
færaleiks (a cappella). Bein útsend-
ing í útvarpi. Úm 150 áheyrendur.
Viðbrögð mjög jákvæð. Kirkjan
virðist mjög vel fallin fyrir kórsöng
án undirleiks.
26. janúar 1987: Orgeltónleikar
Harðar Áskelssonar. Fyrstu orgel-
tónleikar í kirkjunni. Um 150
áheyrendur. Viðbrögð jákvæð.
Orgelið virðist njóta sín vel þó ekki
séu allir staðir í kirkjunni jafn góð-
ir til hlustunar. Bassinn rennur
nokkuð saman.
Mars/apríl 1987: M.a. „Sjá vér
fömm upp til Jerúsalem", dagskrá
með sópran, sellói, orgeli og upp-
lestri og „Hallgrímspassía" eftir
Atla Heimi Sveinsson fyrir einsöng,
kór, blásara, orgel og upplesara.
Ekkert nýtt kom fram.
6.—13. júní 1987: Kirlqulista-
hátíð á vígsluári. Níu tónleikar á
átta dögum, þar af þrennir kórtón-
leikar (Mótettukór Hallgrímskirkju
og Neander-kirkjukórinn frá Diiss-
eldorf ásamt Sinfóníuhljómsveit
íslands), tvennir orgeltónleikar,
flaututónleikar, samleikur á tromp-
et og orgel, samleikur á selló og
orgel og málmblásarakvintett. Til-
raunir vom gerðar með mismunandi
uppstillingu, m.a. að flytja tónlist í
miðri kirkjunni með hljómskerma
fyrir aftan flytjenduma. Ekki
fékkst veggur yfir inngöngudymm
færður í fyrra horf fyrir þessa
hátíð, þrátt fyrir ítrekaðar óskir.
Undirtektir vom yfírleitt góðar, en
margir kvörtuðu undan hljómburð-
inum á einleikstónleikum Manuelu
Wiesler, en hún spilaði úr miðjum
kórdymm á efsta þrepi. Á hátíðinni
var sú reynsla staðfest að kórtón-
list án undirleiks og orgelleikur
hljómuðu best við þessar aðstæður.
Auk ofangreindrar upptalningar
hafa komið erlendir kórar og organ-
istar í heimsókn á þessu tímabili.
Um páskana söng Westfálischer
Kammerchor, í júní drengjakór frá
Hamborg og í september drengja-
kór frá Grimsby. Stjómendur
þessara kóra svo og organistar vom
allir mjög hrifnir af hljómburði
kirkjunnar. Orgelsmiðir frá Schuke
í Berlín og Frobenius í Danmörku
hafa komið í kirkjuna og látið í ljós
mikla hrifningu af hljómburðinum
með tilliti til orgelsins stóra. Báðir
ráðlögðu að fara hægt í sakimar
með hljómdeyfíngu, áður en stóra
orgelið kemur, því það geti breytt
svo miklu.
ZentiS
- örugg gæði -
6 MISMUNANDI GERÐIR
• KIWISULTA
• BLÁBERJASULTA
• JARÐABERJASULTA
• APRIKÓSUSULTA
• HINDBERJASULTA
• ÁVAXTASULTA BLÖNDUÐ
Heildsölubirf’öir:
m Þ.Marelsson
Hjallivcgi 27. 104 Reykjavik
«t* 91.37390 _ 985-20676_
ZtNTIS VÖRUR FYRIR VAMDLÁTA
&TDK
HUÓMAR
BETUR
AFMÆLISVIKUNA 9-I4.NÓV.
KOMDU EFTIR HÁDEGI
OG FÁÐU RÁÐGJÖF FYRIR JÖLAMYNDATÖKURNAR
AFMÆ LISGETRAUN
FYRIR KRAKKANA:
80 KODAKMYNDAVÉLAR
ÁSAMT GULLFILMU í VERÐLAUN
BLÖDRUR, KAFFIOG KÖKUR
BANKASTRÆTI4 GLÆSIBÆ AUSTURVERI
KRINGLUNNI