Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
23
Hólmgeir Björnsson
„Vafasamt er, að yfir-
standandi samdráttur i
hefðbundnum land-
búnaði gefi nokkurt
tilefni til samdráttar í
rannsóknum. Þvert á
móti gerir aðlögun að
nýjum aðstæðum nýjar
kröfur til rannsókna
sem eiga að gera at-
vinnuveginn færan um
að standast harðnandi
samkeppni.“
velja erlenda stofna nytjajurta, sem
henta til ræktunar hér á landi, en
einnig hafa verið valdir stofnar úr
innlendum efnivið. Markvissar kyn-
bætur, sem miða að því að fá fram
stofna sem skara fram úr og bjóða
jafnvel upp á nýja möguleika í rækt-
un, eru geysilega tímafrekar. Þær
bera ekki árangur nema unnt sé
að halda áfram samfelldu starfí í
a.m.k. einn til tvo áratugi. Nú eru
kynbótaverkefni að komast á loka-
stig og það mun t.d. koma í ljós á
næstu árum, hve miklum árangri
umfangsmiklar komkynbætur hafa
skilað.
Bæði þau verkefni, sem hér hafa
verið nefnd til dæmis, eru að veru-
legu leyti unnin á tilraunastöðvum
og því yrði tvísýnt um framhald
þeirra, ef ekki verður veruleg breyt-
ing á fjárlagafrumvarpinu.
Aðbyggjotipp
tilraunastöð
Tilraunastöðvar RALA hafa
löngum verið illa búnar og fáliðaðar
að því marki, að vafasamt er, að
þær hafi skilað árangri í samræmi
við tilkostnað. Það hefur verið
áhugamál margra að efla þær að
mun. Það hefur ekki tekist og því
hafa oft heyrst raddir um að fækka
tilraunastöðvunum og ná með því
meiri hagræðingu. Auðvitað væri
það sárt, því að allar gegna stöðv-
amar einhverju hlutverki, sem yrði
að sinna með öðru máli, ef þær
yrðu lagðar niður. Á móti slíkri
endurskoðun mælir einnig að menn
hafa þá reynslu af fjárveitingavald-
inu, að stofnunin myndi að líkindum
ekki fá að halda því fjármagni sem
sparaðist til að hagræða rekstri,
heldur myndu rannsóknir skerðast
sem því nemur. Loks þyrfti til þess
lagabreytingu.
Framlag Alþingis til þessara
mála, umfram það að halda fjárveit-
ingum til tilraunastöðva RALA í
lágmarki, var það að stofna nýja
tilraunastöð með lögum árið 1981.
Að vísu var ekki um nýja starfsemi
að ræða, heldur var tilraunastarf-
semi með fóðrun mjólkurkúa, sem
verið hafði í Laugardælum, fest f
sessi. Hafíst var handa um bygg-
ingu fullkominnar tilraunstöðvar í
Stóra-Ármóti í stað þeirrar í Laug-
ardælum. Áður var hafín bygging
tilraunafjóss á Möðruvöllum. Áhugi
bænda á þessum framkvæmdum
hefur verið mikill.
Framlög á fjárlögum til bygging-
ar tilraunafjósanna hafa komið
dræmt og því hefur bygging þeirra
dregist úr hömlu. Hvorugri bygg-
ingunni er fulllokið. Vart hafði
fyrsti tilraunastjórinn í Stóra-
Ármóti verið ráðinn, þegar fram
kom frumvarp til fjárlaga sem ger-
ir ráð fyrir að staða hans verði lögð
niður. Var það e.t.v. síðbúið raunsæi
hjá Qármálayfírvöldum að átta sig
á því, að það er ekki nóg að byggja
tilraunafjós, það kostar einnig fé
að nýta það.
Framtíðarsýn
Rannsóknir, hvort heldur er f
þágu landbúnaðar eða í öðru skyni,
eru ekki dægurmál. Að vísu er oft
unnt að leysa ákveðin verkefni með
skammtímaátaki, en því aðeins, að
stuðst sé við rannsóknir sem eru í
föstum farvegi.
Rannsóknir í þágu landbúnaðar
hljóta að miðast við það, hvaða hlut-
verk honum er ætlað á næstu
áratugum. Gerum við ráð fyrir, að
íslenskar landbúnaðarafurðir haldi
hlut sfnum í fæðu þjóðarinnar? Eig-
um við að stunda rannsóknir með
tilliti til búgreina sem hugsanlega
gætu orðið hagkvæmar hér á landi?
Það eru svör við spumingum sem
þessum sem eiga að ráða afstöð-
unni til þess, hve umfangsmiklar
landbúnaðarrannsóknir eru stund-
aðar hér.
Varðandi fyrri spuminguna sem
spurt var er rétt að minna á, að
það er verulegt öryggisatriði hverri
þjóð að vera sem mest sjálfri sér
nóg um matvæli. Matvæli geta fyr-
irvaralaust horfíð af heimsmarkaði
vegna náttúmhamfara, styijalda
eða stórfelldra óhappa. Nýlegt
dæmi um slíkt er kjamorkuslysið í
Tsjemobýl þótt áhrifa þess gætti
ekki hér. Með landbúnaðarrann-
sóknum má stuðla að því, að íslensk
landbúnaðarframleiðsla haldi hlut
sínum _án vemlegra vemdarað-
gerða. Ég vil taka fram til mótvægis
þeirri algengu minnimáttarkennd
Islendinga að við búum á mörku
hins byggilega heims, að ísland er
gott grasræktarland, þótt við eigum
nágrannalönd sem taka því fram.
Seinna atriðið var rætt fyrr. Því
má bæta við, að ýmsir spá því, að
loftslag muni fara ört hlýnandi á
jörðinni á næstu áratugum vegna
aukins koldíoxíðs og fleiri efna f
andrúmslofti. Þetta kallar á auknar
rannsóknir ef rétt reyndist, bæði
vegna breyttra skilyrða til núver-
andi landbúnaðar og vegna nýrra
möguleika sem opnast.
Niðurskurður á fé til rannsókna
í þeim mæli, að hópi manna sé sagt
upp störfum, jafngildir yfírlýsingu
um að störf þeirra undanfarin ár
hafí verið gagnslaus. í lifandi rann-
sóknastarfsemi er nauðsynlegt að
fá jafnt og þétt til starfa unga, vel
menntaða vísindamenn með nýjar
hugmyndir. Ör uppbygging getur
því einnig verið varasöm, ef henni
fylgir stöðnun eða samdráttur. Því
ber Alþingi að sjá til þess, að duttl-
ungar einstakra stjómmálamanna
eða vanhuguð og úrelt slagorð á
borð við „báknið burt“ valdi ekki
röskun á vísindastarfsemi í landinu.
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins hefur starfað í núverandi horfí
í rúm 20 ár. Endurskoðun á starf-
seminni er því eflaust tímabær.
Þótt slík endurskoðun kynni að leiða
til einhverra breytinga á rekstri er
ég sannfærður um, að hún myndi
staðfesta réttmæti þeirrar máls-
greinar úr málefnasamningi ríkis-
stjómarinnar sem vitnað var til í
upphafi.
Höfundur er dcildarstjári töl-
fræðideildnr Rannsóknastotnunar
landbúnaðarins.
Stykkishólmur:
Trésmiðjan Osp selur
einingahús til Grænlands
Einingahúsið komið á sinn stað á Grænlandi.
Stykkish&lmi.
TRESMIÐJAN Ösp í Stykkishólmi
hefir um árabil framleitt svo-
nefnd Asparhús, sem eru eininga-
hús af ýmsum gerðum. Eru þetta
ibúðarliús úr timbureiningum og
hafa þau verið seld víða og mörg
eru hér f Stykkishólmi og hafa
þau reynst vel. Nýlega var eitt
hús frá Ösp reist f Julianeháb f
Grænlandi og fóru tveir menn frá
Öspinni, þeir Ásgeir Gunnar Jóns-
son og Bergur J. Hjaltalín, báðir
húsasmíðameistarar, til þess að
reisa húsið og koma því á grunn.
Voru þeir 4 vikur í þeirri ferð
og skiluðu húsinu tilbúnu undir
málningu.
Kaupandi er Guðmundur Þor-
steinsson, íslendingur sem er giftur
grænlenskri konu, Benediktu Þor-
steinsson. Guðmundur vinnur hjá
sútunarverksmiðju í bænum, en Ben-
edikta er skrifstofustjóri hjá sýsl-
unni. Julianeháb er 3000 manna bær
og er þetta aðallega sjávarútvegs-
og skólabær.
Ásgeir Gunnar sagði að það hefði
verið virkilegt ævintýri að koma til
Grænlands. „Grænlendingar tóku
okkur afar vel. Við vorum í fæði og
húsnæði hjá þeim hjónum og var
ekki á betra kosið. Þar fengum við
ýmsan grænlenskan mat, svo sem
sel og hval o.fl. matreitt að þeirra
hætti. Við borðuðum þetta með
bestu lyst. Selurinn er soðinn í kjöt-
súpu og hafði ég aldrei bragðað slíka
fæðu fyrr. En þetta var bara ágætt.
Við fórum í ferðalag um nágrennið
þegar við höfðum tíma til og hittum
ýmsa íslendinga þar. íslensk fram-
leiðsla er að vinna markaði í
Grænlandi og virðist það fara mjög
í aukana. T.d. með harðfísk, og
diykkjarvörur frá Sól hf. svo sem
Svala o.fl. í þessum bæ vissi ég til
að væru 4 fslenskir karlmenn og 2
konur, allt gift Grænlendingum."
Ég spurði Ásgeir Gunnar hvort
þeir Asparmenn hefðu tök á að selja
fleiri hús til Grænlands. Hann sagð-
ist telja miklar líkur á því og það
þyrfti að athugast betur og í það
minnsta hefðu þeir lært talsvert á
þessari ferð.
„Grænlendingar eru þægilegir í
umgengni og ákaflega vinsamlegir
í garð íslendinga," sagði Ásgeir
Gunnar að lokum.
— Árni
Blöð og blaðamennska
í nútíð og framtíð
Opinn fundur i vegum Blaðamannafélagsins í
Listasafni Alþýðu, Grensásvegi 16, fimmtu-
daginn 12. nóvember kl. 20.30.
Ritstjórarnir og blaðamennirnir Arni Berg-
mann, Björn Jóhannsson, Elías Snœland Jóns-
son, Indriði G. Þorsteinsson og Steinar J. Lúð-
víksson verða með stutta framsögu. Umræður
á eftir.
Blaðamenn og allt áhugafólk um blöð og
blaðamennsku velkomið.
Munið afmælissýningu Blaðamannafélagsins -
síðasta sýningarhelgi.
Stjórn BÍ
STÍFIAD?
Fáðu þér þá brúsa af Fermitex og málið er
leyst. Fermítex losar stíftur í frárennslispíp-
um, salernum og vöskum. Skaölaust fyrir
gler, postulín, plast og flestar tegundir
málma. Fljótvirkt og sótthreinsandi.
c
(fi
/r
j
t t ».
^ VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
Mfcl LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
HAFÐU ALLT Á
HREINU
FÁÐU ÞÉR
OTDK