Morgunblaðið - 12.11.1987, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
Avantgarde
Erlendar baakur
Siglaugur Brynleifsson
Corona Hepp:
Avantgarde — Moderne
Kunst, Kulturkritik und Re-
formbewegungen nach der
Jahrhundertwende. (Deutche
Geschichte der neuesten Zeit
vorn 19. Jahrhundert bis zur
Gegenwart.) Originalaus-
gabe. Deutscher Taschenbuch
Verlag 1987.
Um aldamótin síðustu koma í ljós
breytingar í mati og meðvitund
meðal æskufólks á þýska menning-
arsvæðinu. Hörð gagnrýni á
ríkjandi menningarhefðir og sam-
félagsform magnast upp, ekki síst
vegna áhrifa þess höfundar, sem
hefur bylt um verðmætamati og
viðmiðunum, sem var Nitzche, en
hann lést árið 1900. Höfundurinn
tíundar síðan þær hræringar sem
spruttu upp úr þessari nýju meðvit-
und, farfuglahreyfingin, júgend-
stíliinn og allt til expressionismans.
Samvinnubúskapur, flótti úr borg-
unum út í sveit og óspillt umhverfí
koma upp sem lífsform, sem svipar
til græningjanna nú á dögum. Fyr-
ir marga var lausn úr „spennitreyju
borgaralegs samfélags" sama og
tjáningarfrelsi og „eðlilegt líf“.
Þessar hræringar urðu mjög af-
drifaríkar á Þýskalandi, ekki síst í
listum, músík og bókmenntum.
Hvort sem hið borgaralega menn-
ingarform hefur verið kröfuharðara
meðal Þjóðverja en nágranna
þeirra, þá virðist „Das Unbehagen
in der Kultur" (Freud) hafa verið
mörgum lítt þolandi.
Þessarra breytinga gætti vita-
skuld um alla Evrópu, en áhrifin
urðu ákveðnust á Þýskalandi.
Einfaldleiki, eðlilegar lífstjáning-
ar, frumleiki og sköpunargleði
skyldu vera einkenni hinna nýju
frelsingja.
Margir sáu þessar breytingar
sem lausn frá stöðluðum formum
hins borgaralega samfélags og
hefðbundins aga.
Hepp fjallar síðan um áhrif Ni-
etsches og sporgöngumanna hans
og þær hræringar sem spruttu upp
af þeim áhrifum, síðan er fjallað
um samvinnubúskap og kvenfrelsi,
æsku-menningu og nýja lífsfyll-
ingu. Lengsti kaflinn er um ex-
pressionismann og frægustu verk
og samstarfshópa þeirrar stefnu,
svo sem „Der blaue Reiter“ o.fl.
Byltingin í músík hófst eðlilega í
Vínarborg með Schönberg. Á dög-
um Weimar-lýðveldisins var mikil
gróska í byggingarlist, margir
ágætir arkitektar störfuðu og „Bau-
haus“ var fyrirmynd um byggingar
og húsbúnað um allan heim.
Skáldskapurinn endumýjaðist, ef
svo má segja. Nýr tónn hefst í
þýskri ljóðlist og þar hafði expressi-
onisminn mikil og djúpstæð áhrif.
Listmálarar og ljóðskáld sem mest
kvað að áttu það sameiginlegt að
vera mjög vel menntaðir í sínum
listgreinum, þess vegna voru kröf-
umar sem þeir gerðu til sjálfs sín
afdráttarlausar og ákaflega fjarri
hugmyndum nýjungagjamra gutl-
ara, sem leita ódýrustu lausna.
Birt em sýnishom úr ritum sem
snerta efnið og síðan fylgir annáll
frá 1900—1925, þar sem getið er
helstu rita og sýninga.
i
________TIL PIPULAGNA
ERTU HÚSBYGGJANDI EÐA VERKTAKI?
Eigum járnfittings frá 3/8" - 4".
Pott, rör og fittings. Allt til vatnsúðunarlagna (Sprinkler).
OPIÐALLADAGAKL. 7.30-18.30. '
LAUGARDAGA KL. 8.00-16.00.
HEILDSALA - SMÁSALA
ffli vatnstæki m
BYGGINGAVÖRUR
Hyrjarhöfða 4-112 Reykjavík
Sími 673067
Orðalykill að Milton
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
A Concordance to Milton’s Engl-
ish Poetry. Edited by William
Ingram and Kathleen Swain. Ox-
ford — At the Clarendon Press.
Höfundar segja í inngangi, að
tölvuvinnsla þessa verks hafi flýtt
mjög fyrir niðurskipan efnis og
uppröðun, þó var undirbúningur
undir þá vinnslu langur, tók sjö ár.
Höfundar segjast jafnframt vera
orðnir leiðir á þeim dýraróði sem
upphafínn sé í sambandi við tölvu-
vinnslu rita sem þessa og taka ekki
undri þann són. Þessi orðalykill
byggir á þeim textum skáldsins,
sem komu út um hans daga eða á
öruggum handritum frá sama tima,
einstaka textar eru frá síðari hluta
17. aldar. Engir textar nútíma út-
gáfa eru lagðir til grundvallar. Þeir
telja að hlutverk útgefenda texta
sé að komast að þeirri gerð sem
var frumgerð skáldsins og vinna
þannig endanlegan réttan texta.
Höfundum orðalykla ber hins vegar
að byggja á fyrsta upprunalega
texta, se'm skáldið hefur á sínum
tíma talið réttan, þ.e. skrásetja
orða-efniviðinn. Höfundamir binda
sig við einn texta, þegar um fleiri
en einn er að ræða.
Ritið eru tæpar sjöhundruð blað-
síður, tvídálka með smáu letri.
Þetta er endanlegt orðasafn þeirra
orða og hugtaka sem skáldið notaði
í enskri ljóðagerð sinni. Hagkvæmni
slíkra verka sem þessa er einstök
fyrir alla þá sem lesa Milton. Þetta
ætti að vera íslendingum kærkomið
uppsláttarrit í sambandi við þýðing-
ar Jóns Þorlákssonar á Paradísar-
missi (1828), sem Bókmenntafélag-
ið gaf út. Þessi þýðing þóttu mikil
tíðindi á Englandi á sínum tíma.
Milton fæddist 9. desember 1608
í Lundúnum. Þeim Lundúnum þar
sem Shakespeare var enn starfandi
og yrkjandi. Þessi tvö höfuðskáld
Englendinga voru samtímamenn
næstu átta árin (Shakespeare lést
1616). Milton lést 1674. Hafi ein-
hver lifað og fundið til í stormum
sinna tíða, þá var það Milton. Áhugi
hans á þjóðfélagsmálum sinnar
tíðar var sívökull, en þau málefni
voru þá metin í víðara samhengi
en nú tíðkast, trúarbrögð voru einn
meginþáttur þeirra. Skilningur
manna á verkum Miltons nú á dög-
um er víðfeðmari en fyrrum,
rannsóknir verka hans og skilning-
ur á þeim hefur aukið hróður þessa
ágæta skáids svo að verk hans, ljóð,
deilurit og hugrenningar eru engu
síður tímabær nú en á 17. öld.
Það var einstakt að íslenskt skáld
skyldi taka sér fyrir hendur að þýða
eitt höfuðverka þessa skálds og
ekki síður að Hið íslenska bók-
menntafélag skyldi gefa þetta verk
út. Þetta hvort tveggja vottar lif-
andi menningartengsl íslendinga
og samevrópskrar menningar, sem
hófust með kristnitökunni hér á
landi fyrir tæpum þúsund árum og
urðu m.a. kveikjan að hámenningu
íslenskra miðalda og bókmennta-
blóma 17. aldar hér á landi, sem
átti sér samsvörun einmitt á öld
Miltons og Shakespeares á Eng-
landi.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
FJÖLBRAUTASKÓUNN
BREIÐHOLTI
Frá Fjölbrautaskólanum
íBreidholti
Innritun nemenda, sem ætla að hefja nám í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti á vorönn
1988, stendur nú yfir. Athygli skal vakin á
því að enn er unnt að bæta við nemendum,
einkum á heilbrigðissviði (sjúkraliðar), mat-
vælasviði (matartæknar og matarfræðingar)
og tæknisviði (nám til sveinsprófs á málm-
iðna-, rafiðna- og tréiðnabrautum).
Sími skólans er 75600. skólameistari.
Landsbyggðin -
menntunarmál
Fylkir, félag ungra sjálfstæðismanna á
ísafirði, heldur almennan stjórnmálafund i
sjálfstæðishúsinu, Uppsölum, 2. hæð,
föstudaginn 13. nóvember kl. 20.30. Fram-
sögu hefur dr. Vilhjálmur Egilsson.
Fylkir.
Hóla- og Fellahverfi
Aðalfundur
verður haldinn fimmtudaginn 19. nóvember
kl. 20.30 I Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður skipulagsnefndar,
raeðir um borgarmálin.
3. Önnur mál.
Stjómin.
Grafarvogshverfi
Aðalfundur
verður haldinn fimmtudaginn 12. nóvember
kl. 20.30 i Valhöll, Háaleltlsbraut 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
skipulagsnefndar, ræðir um skipulags-
málin.
3. önnur mál.
Stjórnin.
Utanríkismála-
nefnd SUS
Fundur verður haldinn föstudaginn 13.
nóvember nk. I Valhöll við Háaleitisbraut.
Fundurinn hefst stundvfslega kl. 17.00.
Efnl 1. Starfið framundan rætt, þ.á m.
funda- og ráðstefnuhald U-nefnd-
ar á næstu mánuðum.
Efni 2. Evrópa án landamæra...
Óli Björn Kárason, blaðamaður,
mun flytja erindi um stöðu fslands
gagnvart Evrópubandalaglnu.
Hann mun síðan svara fyrirspurn-
um um málið.
Nefndarmenn og aðrir áhugasamir SUS-arar
eru hvattirtil að mæta.
Davið Stefánsson, formaður U-nefndar.