Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 49

Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 49 Við þennan klett voru örlagarík spor stigin fyrir 200 árum ... — sandblásnir klett- ar við Botany Bay. „Fljúga hvitu fiðrildin . . . Samskipti hvítra ogfrumbyggja Þar sem þinghúsið er byggt í anda frumbyggjanna og því er ætl- að að vera einskonar samnefndari fyrir fortíð og framtíð landsins er ekki úr vegi að nefna hlut þeirra í öllu þessu gamni. Ýmsar sýningar og kynningar verða á lífí þeirra, menningu og listum. Sumir frum- byggjanna hafa þó talað um að taka ekki þátt í hátíðarhöldunum því koma hvíta mannsins til lands- ins hafi ekki verið þeim til góðs. Samskipti frumbyggja og hvíta mannsins er löng og flókin, en eftir- farandi setning, höfð eftir einum þeirra, segir nokkuð um hvað þeim fínnst snúa að sér: „Arfleifð okkar og menning er lifandi, það er ekki nóg að segja frá henni í bókum og sýna í gler- kössum safna. Hún er ekki sögulegt andrúmsloft, sem fraus fast fyrir daga hvíta nnannsins í Ástralíu, eins og sumir Ástralir virðast halda." Samskipti tveggja ólíkra kyn- stofna með ólíka menningu og hugsunarhátt eru aldrei einföld. Fyrstu árin fordæmdu hinir hvítu allt sem aðrir kynflokkar gerðu og fótum tróðu þá og þeirra menn- ingu. En á seinni árum hafa hvítir menn opnað hug sinn gagnvart því sem framandi er og ætti það að geta leitt til jafnvægis í náinni framtíð. Staða frumbyggja Ástralíu er mismunandi eftir þvl hvar í álfunni er, en margir búa við fátækt og erfíð kjör. Mörgum þeirra gengur illa að tileinka sér þá góðu hluti sem fáanlegir eru í vestrænni menningu sem margir hafa þó reynt að aðlag- ast. Þeir borða ranga fæðu og þrífa sig ekki. Þeir þurftu aldrei að hugsa um peninga né hvað þeir létu ofan í sig því fæðan kom frá náttúrunni og peningar voru óþekkt hugtak. Vatn var oft af skomum skammti og þvottur litinn öðrum augum en hjá okkur. Afleiðingar þessara hluta og margra annarra hafa komið til kasta yfirvalda. Þau hafa gert ýmis- legt til að hjálpa og hafa lofað enn frekari framlögum í framtíðinni. En til að slíkir hlutir komi að fullu gagni þurfa þessir tveir aðilar að vinna saman. Heilsufar frumbyggja í vestrænni menningu batnar ekki fyrr en þeir tileinka sér heilsusam- legri lífshætti og meðalaldur þeirra er um tuttugu árum lægri en hjá öðrum landsmönnum. Léleg afkoma stendur því oft fyrir þrifum, að frumbyggjamir nái sömu stöðu og hinn almenni Ástrali. Það virðist langt ( land að jafn- vægi náist í þessum efnum, þrátt fyrir að áströlsk yfírvöld haldi í heiðri árþúsunda tilvist frumbyggj- anna og menningu. Og þeir eru ekki alltaf sanngjamir í gagnrýni sinni varðandi innflytjendur. TEXTI OG MYNDIR: MATTHILDUR BJÖRNSDÓTTIR LANDSFUNDUR KVENNALISTANS Fimmti landsfundur Kvennalistans verður haldinn dagana 13.-15. nóvember í Menningarmiðstöðini, Gerðubergi. Föstudagurinn 13. nóvember: Kl. 20.30 Landsfundursettur. Konur og völd. Erindi Önnu GuÖrúnar Jónasdóttur. Laugardagurinn 14. nóvember: Kl. 09.00 Skýrslur anga, framkvæmdaráðs og þingflokks. Uttekt á stjórnarmyndunarviðræðunum í vor. Matarhléfrá kl. 12.00 til 13.00. Kl. 13.00 Þema dagsins: Staða Kvennalistans. Framsögur flytja: Kristín Kar/sdóttir, Anna Ól. Björnsson ogMagdalena Schram. Hópaumræður- niðurstöður hópa kynntar. Kl. 20.00 Sameiginlegupkvöldverður í Naustinu. Sunnudagurinn 15. nóvember: Kl. 10.00 Þema dagsins: Atvinnu- og byggðamál. Framsögur flytja: Sigrún Jóhannesdóttir, Arna Skúladóttir, GuÖrún Sveins- dóttir ogÁsta Baldvinsdóttir. Almennar umræður. Matarhlé frá kl. 12.00 til 13.00. Kl. 13.00 Þingflokkur Kvennalistans svarar fyrirspurnum fundar- kvenna. Önnur mál. Allar konur velkomnar Hliðið að garði við lendingarstað Cooks kapteins. VIÐ ERUM FLUTTIR I (VIÐ HLIÐINA Á BIFREIÐAEFTIRLITI RÍKISINS) <áju gemo Garphyttan Haldex T I I RIM ÍSETNING OG VIÐGERÐIR ÖKUMÆLA ÚTBÚUM ALLAR GERÐIR KÚPLINGS- OG BREMSUBARKA HRAÐAMÆLASNÚRUR í FLESTAR GERÐIR BIRFEIÐA ÚTVARPSÍSETNING í BIFREIÐAR 0N MÆLAVERKSTÆÐI BÍLDSHÖFÐA 6. SlMI: 691600

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.