Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 59

Morgunblaðið - 12.11.1987, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987 59 un og eiga ekki afturkvæmt. Því þeir sem sýna andstöðu eru mis- kunnarlaust skotnir án dóms og laga. Það var ástæðan fyrir flótta mínum. Það kom upp alda mót- mæla og yfirvöld urðu hrædd og hófu fjöldahandtökur. Ég ákvað því að flýja því ég vildi ekki eiga það á hættu að verða handtekinn og hverfa sporlaust. Þetta er ekki að- ferðin sem á að nota til að sýna heiminum að við getum séð um okkur sjálf. Ef við gerum það með þessum hætti þá trúir því enginn." Á flótta í fimm ár Ludovick telur sig hafa verið of- sóttan af tansanískum stjómvöld- um. Hann var í hópi þeirra sem voru andsnúnir þeim og talið var að tekið hefði þátt í ráðagerð til að koma Nyereres forseta frá völd- um árið 1983. Þá hófust fjöldahand- tökur og Ludovick tók þá ákvörðun að flýja fremur en verða handtek- inn. Hann fór fyrst til Kenya, en var neyddur til að fara þaðan sökum nafnlausra hótana sem hann taldi runnar undan rifjum tansanískra stjómvalda. Hann fór til Swazilands og sótti þaðan um hæli sem pólitísk- ur flóttamaður í Kanada. Þegar gengið hafði verið frá öllum pappír- um og brottför hans var á næsta leyti var honum rænt af tansanísk- um handbeinum stjómarinnar og hann fluttur til Mósambík og þaðan til Tansaníu. Þar var honum haldið í stofufangelsi í tvö ár í höfuð- borginni Dar es salaam. Þegar yfirvöld heimiluðum honum að snúa aftur til Bukoba notaði hann fyrsta tækifærið sem gafst og flúði yfír landamærin til Ruanda. Þar tók Rauði krossinn á móti honum og aðstoðaði hann við að útvega hæli sem pólitískur flóttamaður. Það voru síðan portúgölsk stjómvöld sem ákváðu að taka við honum og buðu honum pólitískt hæli. Ludovick var heilt ár í Portúgal, en með vegabréf frá Rauða krossiri- um upp á vasann komst hann til Þýskalands snemma á þessu ári þar sem hann fékk vinnu hjá alþjóð- legri stofnun við að kenna fólki sem ætlaði að stunda hjálparstörf í Tansaníu og víðar um Afríku. í Portúgal fékk hann aftur á móti ekkert að gera. Hann ber portúg- ölskum stjómvöldum ekki vel söguna hvað þennan hlut málsins varðar, en neitar annars að ræða það nánar. Segir aðeins að það hafí verið heldur óskemmtileg reynsla og fangavist í eigin landi væri skárri kostur. Hann hefur aft- ur á móti ekkert slæmt um þjóð- veija að segja, enda fékk hann hjá þeim vinnu, en þar er mikið af flóttamönnum og atvinnuöryggi ■ ekkert. Þess vegna er hann nú kom- inn til íslands. Hversu lengi hann síðan dvelur hér er óráðið. Eftir allar þessar hrakningar og flótta frá heimalandinu er Ludovick ' Mwijage ótrúlega bjartsýnn á framtíðina' þó hún sé ótrygg og óvíst hvemig fer. „ Mér leiðist þeg- ar fólk í svipaðri aðstöðu og ég, er sífellt að barma sér,“ segir hann. „Það em auðvitað mörg vandamálin sem hlaðist hafa upp, en mótlætið herðir mann og ég trúi því að þeg- ar Guð loki einum dyrum opni hann aðrar. Það er líka nauðsynlegt að hafa trú á sjálfum sér og að sýna þolinmæði. Núna lifí ég aðeins fyrir daginn í dag og er ekkert að sýta það sem er liðið. Ég trúi á Guð og ætla mér ekki að gefast upp þótt á móti blási". „Ég sé auðvitað ekki fram á að komast til Tansaníu á næstunni eða Afríku. Ég sé ekkert sem bendir til þess að ástandið faff batnandi. Þvert á mót. Ekki á meðan núver- andi valdhafar era við stjóm. Afríka er óútreiknanleg og það gerir hana ekki traustvekjandi í augum annrra þjóða. Á meðan hún treystir ekki á sjálfa sig og getur ekki hjálpað sér sjálf á hún ekki mikla von. Þegar fátæktin og menntunarleysið heldur áfram og einræðisstjómir era við völd á Afríka ekki mikla mögu- leika." „Ég vil sjá lýðræði í svörtu Afríku, þar sem fólkið skiptir máli, þar sem þróun á sér stað og fólk getur búið ið mannsæmandi kjör, en þurfí ekki að líða fátækt og skort sökum stjómar er hugsa ekki um annað en völd og vopnaskak. Núna deyr fólk í mörgum ríkjum úr hungri í blóma lífsins. Okkur fækk- ar stöðugt og ef svo heldur heldur áfram sem horfír, sem það mun gera ef sömu menn sitja áfram við stjóm, heldur okkur áfram að fækka og við eigum enga framtíð fyrir höndum." Nýtt Kjarvalskort LITBRÁ hefur gefið út nýtt kort með málverki eftir Jó- hannes Kjarval. Málverkið er 104x142 sm að stærð og heitir Fomar slóðir. Það var málað 1943. Myndin er í eigu frú Eyrúnar Guðmundsdóttur, ekkju Jóns Þorsteinssonar, en þau hjónin áttu mikið safri mynda eft- ir Kjarval. Þetta er níunda kortið sem Lit- brá gefur út eftir Kjarval. Einnig hefur fyrirtækið gefíð út sem jóla- kort þijár klippmyndir eftir Sigrúnu Eldjám; Hestar á hjami, Akureyrarkirkja og bátar í fjöru. Kortin em öll prentuð með silf- urfólíu. Kortin eru til sölu í flestum bóka- og gjafavöruverslunum. Þorsteinn Gauti leikur á píanó á Blönduósi ÞORSTEINN Gauti Sigurðsson leikur á pianó í félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 14. nóvember og hefjast tónleikarnir kl. 16.00. Þorsteinn Gauti er fæddur árið 1960. Hann hóf ungur píanónám og lauk einleikaraprófi frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík árið 1979 undir handleiðslu Halldórs Haralds- sonar. Framhaldsnám stundaði hann í Juilliard School of Music í New York og í Róm á Ítalíu. Meðal kennara hans má nefna Sacha Gorodnitsky, Guido Augusti, Eug- ene List og fleiri. Þorsteinn Gauti hefur komið fram á tónleikum á Norðurlöndum, Bandaríkjunum, Þýskalandi og Rússlandi. Einnig hefur hann komið fram sem einleikari með útvarps- hljómsveitinni í Helsinki, Kring- kast-hljómsveitinni í Osló og Sinfoníuhljómsveit íslands. Hann lék á Listahátíð 1984. 6 MISMUNANDI GERÐIR ZentiS - örugg gæði - MARMELAÐI • Bláberja- • Aprikósu- • Brómberja- • Ananas- Í» Appelsínu- • Rifsberja- Hcildsölubirgdir: ■ Þ.Marelsson HjaUtvegi 27, 104 Reykjivik g? Q 1-37.190 - 985-20676 ZCNTIS VORUR FVRIR VAMJLATA MEGRUN ÁN MÆÐU Þúsundir íslendinga og milljónir um allan heim hafa nú sannreynt gildi FIRMALOSS grenningar- duftsins í baráttunni við aukakílóin. FIRMALOSS GRENNINGARDUFTIÐ - eðlileg leið til megrunar - Með FIRMALOSS getur þú haldið þér grannri/ grönnum án gremju. Spyrjir þú þá sem reynt hafa, færðu staðfestingu. Og haldgóða sögu gefur FIRMA- LOSS grenningarfæðið sjálft þegar þú reynir það. FÆST í APÓTEKINU 0G BETRISTÓRMÖRKUÐUM Nóatúni 17 - Sími 19900 Póstverslun - Sími 30001 Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari. tt f málning ASTEIN. THf MAL M O M NATíPUSlMAtNING Mött áferð með Dýrdtóni \ Kópal Dýrótón innimálningin hefur gljástig 4, sem gefur matta áferð. Þessi mjúka áferð heldur endurkasti í lágmarki og hentar því vel þar sem veggirnir eru baksvið í leik og starfi. Viljir þú meiri gljáa á veggi sem meira mæðir á skaltu velja Kópal innimálningu með hærra gljástigi, s.s. Kópal Glitru, Kópal Flos eða Kópal Geisla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.