Morgunblaðið - 12.11.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
63
Jón Bragi Ásgríms-
son — Kveðjuorð
Fæddur 9. ágúst 1962
Dáinn 26. október 1987
Horfínn er af sjónarsviðinu
drengur góður. Undirritaðan
langar að minnast hans hér í fáum
orðum.
Er hringt var í mig til að skýra
frá láti Jóns, vinar míns, var ég
staddur úti á sjó fjarri mínum
gömlu borgfírsku heimahögum,
þar sem við höfðum átt svo marg-
ar góðar stundir. Ég átti erfitt
með að kyngja þeirri frétt að
hann væri dáinn, fannst hálft í
hvoru mig hefði verið að dreyma
þetta fyrstu dagana á eftir, en
því miður var þetta ekki draum-
ur, heldur sorgleg staðreynd. Það
skildi ég loks við útför Jóns Braga
þegar ég sá ættingja hans og vini
saman komna til að fylgja honum
til grafar.
Þá vaknaði ég upp af þessum
ímyndaða draumi og fann sárs-
aukann sem fylgir því að missa
svo góðan vin.
Kynni mín af Jóni Braga voru
einna mest nú hin síðari ár, þó
lengi hafi þau verið tii staðar.
Samverustundir okkar voru
margir og góðar, þær munu aldr-
Haf narfjarðar-
kirkja:
Fræðsluer-
indi um
myndlist
og trú
DR. GUNNAR Kristjánsson,
sóknarprestur á Reynivöllum í
Kjós, flytur annað fræðsluerindi
sitt um myndlist og trú í Hafnar-
fjarðarkirkju laugardaginn 14.
nóvember. Erindið hefst ld.
10.30.
Þriðja og sfðasta erindið verður
flutt laugardaginn 21. nóvember
og hefst á sama tíma.
I framhaldi af erindaflutningnum
verður boðið upp á kaffí og umræð-
ur í Dvergasteini og stefnt er að
því að öllu sé lokið fyrir hádegi,
segir í fréttatilkynningu frá Hafn-
arfjarðarkirkju.
Órator með
ókeypis
lögfræði-
aðstoð
ÓRATOR, félag lögfræðinema
við Háskóla íslands, mun bjóða
upp á ókeypis lögfræðiaðstoð í
vetur á fimmtudögum kl. 19:30-
22:00.
Tekið verður við fyrirspumum í
síma 11012, en einnig er hægt að
skrifa Órator, en þá verður að láta
símanúmer spyijanda fylgja bréf-
inu. Óratór hefur boðið upp á þessa
þjónustu í nokkur ár, og hefur hún
mælst vel fyrir, að sögn talsmanns
Órators, enda er dýrt að leita til
lögfræðinga, og fólk virðist oft hafa
litla hugmynd um hver réttur þess
er. Það eru nemendur á fjórða og
fímmta ári í lögfræði sem svara
fyrirspumum.
ei líða mér úr minni. Mér leið
ávallt vel í návist Jóns, það var
gott að tala við hann. Jón Bragi
gaf sér yfírleitt góðan tíma til
þess að spjalla við mann, hann
var nákvæmur í tilsvörum og yar
vel að sér í mörgu.
Alvörugefínn var hann að sumu
leyti, stundum djúpt hugsi með
fjarrænt blik í augum. En hann
var þeim mun glaðari þegar við
átti, minnist ég þeirra stunda í
meirihluta er glaðværð ríkti
kringum hann.
Jón Bragi gat verið hrókur alls
fagnaðar ef svo bar undir, því
kímnigáfu hafði hann og það
langt yfir meðallagi að mínu
mati, þegar svo þessi ógleyman-
legi smitandi hlátur bættist við
gat hann komið öllum samferða-
mönnum sínum í gott skap.
Áhugamál Jóns Braga spönn-
uðu allvítt svið, íþróttir áttu þó
mestan hug hans, knattspymu
stundaði hann af miklum áhuga,
hann lagði sig allan fram í boltan-
um, var hvetjandi og hafði góð
áhrif á liðsheildina. Osjaldan var
hann búinn að hringja út um alla
sveit til að boða félagana á æf-
ingu.
Ég vil þakka vini mínum allar
skemmtilegu stundimar í fótbolt-
anum, þessar stundir áttu svo
stóran hlut í lífi okkar.
Áhugi Jóns Braga á að ung-
mennafélag Borgarfjarðar héldi
reisn sinni var mikill, hann var
ötull í starfí innan félagsins, störf
hans vom unnin af hugsjón sam-
fara brennandi áhuga.
Það lá fyrir Jóni Braga eins
og mörgum öðrum Borgfirðingum
að þurfa að sækja vertíðir til ann-
arra staða yfir vetrarmánuðina
vegna atvinnuleysis heima fyrir.
Ég hitti Jón síðast í Borgar-
fírði hálfum mánuði fyrir slysið,
er ég átti leið þar um, hafði hann
þá ekki ákveðið hvað gera skyldi
í vetur, en bjóst alveg eins við
því að fara á sjóinn, og sú varð
raunin.
Jón Bragi var maðurinn sem
ég síðast kvaddi áður en ég yfir-
gaf fjörðinn, þetta reyndist okkar
síðasta kveðjustund.
Við munum sárt sakna vinar
okkar, það kemur enginn í hans
stað, það mun enginn rata í þau
spor sem hann hefur stigið.
Tómarúmið sem hann skilur eftir
er mikið, við munum með veikum
mætti reyna að fylla það í tímans
rás. En minningin um hann mun
lifa áfram í bijóstum okkar.
Ég og fjölskyldan mín sendum
móður og bræðrum hins látna
okkar dýpstu samúðarkveðjur
með þessum síðustu hendingum
úr ljóði Steins Steinars.
0, guðir, þér, sem okkur örlög vefið
svo undarleg
það misstu allir allt, sem þeim var gefið
og einnig ég.
Og ég, sem drykklangt drúpi höfði yfir
dauðans ró
hvort er ég heldur hann, sem eftir lifir
eða hinn, sem dó?
Andrés Skúlason
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Upp úr feninu
Eg er menntaskólanemi og er hræddur um að eg
hafi lent i slæmum félagsskap. Eg tek þátt i einu
og öðru sem eg hefði aldrei látið mér detta í hug
að koma nálægt (t.d. eiturlyfjaneyslu). Hvernig get
eg komist aftur á rétta braut?
Eg þarf kannski ekki að segja þér að þú ert í mikilli hættu
staddur. Það væri hörmulegt ef þú eyðilegðir líf þitt og framtíð
með því sem þú ert að fást við. Eg bið þess að svo fari ekki og
er þess fullviss að þú vilt snúa við. Það er mikilvægt skref.
Nei, ef til vill fínnst þér loku fyrir það skotið að þú getir
brotist upp úr feninu af eigin mætti — en Guð vill hjálpa þér ef
þú vilt leyfa honum það. Biblían segir: „Allt megna eg fyrir
hjálp hans sem mig styrkan gjörir" (Fil. 4;13), og í því er fólg-
inn leyndardómur nýs lífs: Kristur, hann sem gefur þér styrk.
Þess vegna ber þér að byija á því að játa syndir þínar af
einlægni fyrir Guði og biðja hann fyrirgefningar og bjóða síðan
Jesú Kristi í trú að koma inn í hjarta þitt. Vel má vera að þú
gerir þér ekki grein fyrir öllu því sem það trúar-skref felur í
sér. En þegar Kristur tekur sér bústað í hjarta þér verður allt
öðruvísi en áður. Biblían lofar: „Ef þannig einhver er í Kristi
er hann ný sköpun. Hið gamla varð að engu. Sjá, það er orðið
nýtt“ (2. Kor. 5,17).
Þetta táknar þó ekki að allar freistingar hverfí eins og dögg
fyrir sólu eða þú þurfír ekki að taka upp baráttu gegn þeim.
í raun og veru getur hið gagnstæða orðið uppi á teningnum
um tíma því að Satan vill fyrir hvem mun koma í veg fyrir að
þú lifir með Kristi.
Því er það að þér er lífsnauðsyn að segja algjörlega skilið
við hið liðna. Ef þú átt vini sem toga þig niður á við (eins og
þú gefur í skyn) — þá verður þú að eignast aðra vini sem vilja
af einlægni styðja við bakið á þér. Leitaðu að öðru kristnu fólki
á þínum aldri svo að þú eignist nýja vini meðal þess. Þeir hjálpa
þér svo að þú styrkist í trúnni og öðlist andlegan þroska, og
þeir geta líka lagt þér lið þegar freistingamar sækja á.
Þú ert dýrmætur í augum Guðs. Hann sendi son sinn til að
deyja fyrir þig. Gefðu Kristi líf þitt og bið hann svo daglega
um kraft og visku sem þú þarft til að breyta eins og þér ber.
t Systir mín, KRISTÍN HREFNA ÞORFINNSDÓTTIR, lést á heimili sinu aðfaranótt 10. nóvember. Eva Þorfinnsdóttir.
t Eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, JÓHANNES HALLDÓR PÉTURSSON, Iðufelli 12, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. nóvember kl. 10.30. Þóra Kristjánsdóttir, Kristján Örn Jóhannesson, Hildur Jóhannesdóttir, Valur Jóhannesson, Jóhann Grétar Jóhannesson, Auður Pétursdóttir, Matthea K. Pétursdóttir.
t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANDREAS S.J. BERGMANN, Ljósvallagötu 24, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. nóvember kl. 15.00. Blóm afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarsjóð Knattspyrnufélagsins Vals. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t Faðir okkar, BJÖRGVIN FILIPPUSSON, Hjallavegi 23, Reykjavík, sem andaðist 6. nóvember.verður jarösunginn frá Áskirkju föstu- daginn 13. nóvember kl. 13.30. Börn hins látna.
t Útför móður okkar, ÖNNU AGNARSDÓTTUR, verðurgerðfrá Borgarneskirkju föstudaginn 13. nóvemberkl. 14.00. Rútuferð veröur frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.00 og til baka að athöfn lokinni. Ingibjörg Magnúsdóttir, Reynir Karlsson, Skjöldur Magnússon.
t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, FRIÐRIKS ELLERTS JÓNSSONAR, Ólafsfirði. Guð fylgi ykkur öllum. Sölvfna Jónsdóttir, Guðfinna Friðriksdóttir, Gunnar Ágústsson, Margrét Friðriksdóttir, Einar Gestsson, Hildur Friðriksdóttir, Gylfi Ólafsson, Jón Friðriksson, Jóna Gunnarsdóttir, Auður Friðriksdóttir, Jón Guðmundsson, Eygló Friðriksdóttir, Þórður Stefánsson og barnabörn.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóöur, fósturmóður, ömmu og langömmu, HERDfSAR SIGURJÓNSDÓTTUR, Skólabraut 29, Akranesi. Alúðarþakkir til starfsfólks E-deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir góöa umönnun. Marselfa Guðjónsdóttir, Þórður Guðjónsson, Gfsli Þorbergsson, Margrét Bogadóttir, Inga Jóna Þórðardóttir, Geir H. Haarde, Herdfs H. Þórðardóttlr, Jóhannes Ólafsson, Guðjón Þórðarson, Hrönn Jónsdóttir og langömmubörn.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts SIGURJÓNS HALLVARÐSSONAR. Gerd Hallvarðsson, Birgir Sigurjónsson, Ragnhildur Eggertsdóttir, Hallvarður Sigurjónsson, Kristfn Lára Scheving, Helga Marfa Sigurjónsdóttir, Hreiðar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.