Morgunblaðið - 12.11.1987, Síða 72
72
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987
, Skúll Óskirtton verður með
„come back“ í lyftingum.
MK
FOLX
■ ARIE Haan, þjálfari Stuttg-
art, var staddur á Olympíuleik-
vanginum í Munchen í gærkvöldi,
til að „njósna" um Bayem Mlinc-
__ „hen í bikarleik gegn Gladbach.
Stuttgart leikur gegn Bayem á
Neckar-leikvellinum í Stuttgart á
laugardaginn. 90% líkur eru á því
að Asgeir Sigurvinsson leiki þá
með.
■ TEITUR Þórðarson er að
ljúka námi við sænska knattspymu-
skólann. Teitur hefur staðið sig
mjög vel í skólanum.
■ KNA TTSPYRNUSAM-
BAND íslands hefur tilkynnt
þátttöku unglingalandsliðsins,
skipsð leikmönnum 18 ára og ungri,
í Evrópukeppni U 18. Dráttur í riðla
fer fram 16. desember. Úrslit
keppninnar fer farm 1990.
■ TVEIRjúdókappar taka þátt
í heimsmeistaramótinu í júdó sem
far fram í Essen í V-Þýskalandi
19.-22. nóvember. Það eru þeir
Bjarai Friðriksson, sem keppir í
95 kg flokki og Halldór Hafsteins-
son, sem keppir í 86 kg flokki.
■ TUGÞRA UTAKAPPINN
Jttrgen Hinsen frá V-Þýskalandi á
við þrálát meiðsli að stríða. Óvíst
er hvort að hann geti tekið þátt í
Olympíuleikunum í Seoul 1988.
I FIMM júdómenn frá íslandi
taka væntanlega þátt í opna skand-
inaviska meistaramótinu í júgó sem
~ '~fer fram í Osló 28.-29. nóvember.
Það eru þeir Karl Erlingsson,
Halldór Guðbjörnsson, Ómar Sig-
urðsson, Halldór Hafsteinsson,
Bjarni Friðriksson og Viðar
Guðjohnsen.
■ SKÚLI Óskarsson, lyftinga-
maðurinn gamalkunni, hyggst gera
„come back“ 21. nóvember í Garða-
skóla. Þessi skemmtilegi lyftinga-
maður hefur tilkynnt þátttöku í
Reykjavíkurmótið í kraftlyftingum
sem fer þar fram. Einnig mun önn-
ur gamalkunn kempa taka þátt í
mótinu - Óskar Sigurpálsson.
■ ÖRN Valdimarsson, knatt-
spymukappi úr Fram, hefur ákveðið
_ að ganga til liðs við 2. deildarlið
^selfoss.
■ LANDSLIÐSBÚNINGUM
Wales var stolið áður en landsliðið
hélt til Tékkóslóvakíu. Lögreglan í
Cardiff segir að búningamir hafi
verið seldir á niðursettu verði á
markaði. Forráðamenn Wales
þurftu því að hafa snör handtök til
að fá nýja búninga áður en haldið
var til Prag.
■ JORGE Burruchaga, HM-
stjama Argmínu í knattspymu,
sem skoraði sigurmarkið, 3:2, gegn
V-Þýskalandi í HM í Mexikó, mun
að öllum líkindum leika vináttuleik
gegn V-Þjóðveijum í Buenos Aires
16. desember. Burmchaga, sem
leikur með Nantes í Frakklandi,
hefur átt við meiðsli að stríða. „Ég
hef mikinn áhuga að leika. Þó að
það verði ekki nema í nokkrar
mínútur," sagði kappionn. V-Þjóð-
verjar leika einnig gegn Brasilíu-
' '’inönnum í ferð sinni til S-Ameríku.
KÖRFUKNATTLEIKUR / BANDARÍKIN NBA
David Kelly
með þrennu
David Kelly skoraði þijú mörk
fyrir íra þegar þeir unnu sig-
ur, 5:0, yfír Israelsmönnum í
vináttulandsleik í knattspymu.
9.500 áhorfendur sú leikinn, sem
fór fram í Dublin. John Byme og
Niall Quinn skoruðu hin mörkin.
FRAKKLAND: Racing Club París
vann góðan sigur, 3:0, yfír Lille í
1. deildarkeppninni.
Pétur hafði
gæturá
Jabbar
—þegar San Antonio Spurs tapaði fyrir
Lakers, 124:133, í miklum spennuleik
„Vift náöum mjög góðum leik gegn Los Angeles
Lakers og unnum móralskan sigur. Það er þó
ekki það sem við sækjumst eftir — heldur viljum
við góða sigra. Lakers var sterkari á lokasprett-
inum og náði sigri, 133:124,“ sagði Pótur
Guðmundsson, körfuknattleikskappi í viðtali við
Morgunblaðið í gær. Pétur átti góðan leik í
vörninni — hafði gætur á snillingnum Abdul-
Jabbar. „Eg var tekinn af leikvelli þegar óg fékk
mína fimmtu villu. Hér fá menn brottvísun eftir
að hafa fengið sex villur," sagði Pétur.
Það var mjög gaman að leika
gegn sínum gömlu félög-
um. Þeir reiknuðu með auðveldum
sigri. Hraðinn var geysilegur í leikn-
um, sem mikil skemmtun fyrir hina
13.700 áhorfendur sem mættu hér
á heimavöll okkar. Lakers byijaði
betur og hafði yfír, 75:60, í leik-
hléi. í þriðju lotunni náði Lakers
nítján stiga forskoti. Við fórum þá
á fulla ferð og náðum að stöðva
þá algjörlega. Minnkuðum muninn
í tvö stig, 96:94, í fjórðu Iotunni.
Reynsluleysið varð okkur þá að
falli. Lakers var sterkari á enda-
sprettinum og skoraði Jabbar þá
þýðingamiklar körfur með sínum
kunnu húkkskotum," sagði Pétur
sem lék ekki með lokakaflann.
Pétur lék inn á í sextán mín. í leikn-
um. Skoraði sex stig og tók fjögur
fráköst. Nýliðinn Greg Anderson
lék mjög vel með Spurs. Skoraði
19 stig og blokkeraði fímm skot.
Alvin Robertsson lék einnig vel og
sömuleiðis hinn bakvörðurinn, Jo-
hnny Dawkins. Walter Berry
skoraði flest stig, eða 28.
James Worthy lék vel með Lakers
— skoraði 32 stig. Magic Johnson
var ekki í stuði. Jabbar skoraði 14
stig — þar af átta á lokamínútun-
um, þegar Pétur var farinn af
leikvelli.
NBA-ÚRSLIT
Þessir leikir voru leiknir f bandarfsku
NBA-deildarinnar á þriðjudagskvöldið:
Indiana Pacers — Detroit Pistons 121—118
Chicago Bulls — Atlanta Hawks 105—95
Milwaukee Bucks — Wash. Bullets 115—100
Los Lakers — San Antonio Spurs 133—124
Phoenix S. — Golden S. Warriors 123—109
Houston R. — Portl. T. Blazers 118—111
Sacramento K. — Denver Nuggets 134—123
Dallas Maver. — Seattle Supers. 117—101
Los A. Clippers — Utah Jazz 100—88
Boston Celtic — N.Y. Knicks 96—87
Uppskeru-
hátíð Fram
Held verður við-
staddur HM-dráttinn
— ásamt Ellert B. Schram og Sigurði Hannerssyni
Sigfrid Held, landsliðsþjálfari
Islands í knattspymu, verður
viðstaddur þegar dregið verður í
Evrópuriðlana í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar á Ítalíu
1990. Held verður þar ásamt Ellert
B. Schram, formanni Knattspymu-
sambands íslands og Sigurði
Hannerssyni, framkvæmdastjóra
KSÍ.
Draumur KSÍ er að lenda í riðli
með stórþjóðum í knattspymunni,
Danmörku, Englandi eða V-Þýska-
landi. 33 þjóðir verða í hattunum
þegar dregið verður. Vonast KSÍ
að lenda í fímm þjóða riðli.
Drátturinn fer fram í Ziirich í Sviss
12. desember.
Uppskemhátíð Knattspymu-
deildar Fram verður haldin í
Átthagasal Hótel Sögu sunnudag-
inn 16. nóvember og hefst klukkan
14.
Knattspymumönnum Fram á ýms-
um aldri verða veitt margvísleg
verðlaun fyrir árangur. Bestu leik-
menn yngri flokka og kvennaflokks
verða útnefndir, framfarabikarinn
afhentur, markakóngur Fram 1987
verðlaunaður og dómari ársins
heiðraður.
Veitingar verða og em allir knatt-
spymumenn félagsins boðnir
velkomnir svo og fjölskyldur þeirra.
Foreldrar þeirra í yngstu flokkun-
um em sérstaklega hvattir til að
mæta, en æfingar í 5. og 6. flokki
falla niður á sunnudaginn.
Úr fréttatilkynningu
Walter Berry skoraði 28 stig fyrir Spurs.
James Worthy átti mjög góðan leik með Lakers og skoraði
32 stig.
KNATTSPYRNA
Olympíuliðid til Grikk-
lands og Egyptalands?
„Miklar líkur eru á að við förum þessa ferð," segir Sigurð-
ur Hannesson, framkvæmdastjóri, KSI
Knattspyrnusamband island
hefur fengið boð frá Grikkl-
andi um að Olympíulandslið
íslands í knattspyrnu komi til
Grikklands á tímabilinu 24.
febrúartil 4. mars á næsta
ári og leiki þar einn leik. Einn-
ig hefur komið boö frá
Egyptalandi.
, essi ferð væri tilvalin und-
irbúningsferð fyrir
fympíuliðið sem á að leika fjóra
leiki næsta vom í undankeppni
OL,“ sagði Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri KSÍ.
Sigurður sagði að KSÍ væri búið
að senda Grikkjum jákvætt svar
°g Egyptum jákvætt svar, með
fyrirvara.
Olympíulandsliðið leikur gegn
Hollendingum og A-Þjóðveijum
úti 27. og 30. apríl. Portugalar
koma hingað til lands 24. maí og
Italir 29. maí.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA