Morgunblaðið - 28.11.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
Flavíska hring-
leikahúsið í Róm
_________Mynt______________
Ragnar Borg
Á það var minnst, hér í mynt-
þættinum, hinn 24. október sl., að
mótífsöfnun væri afar áhugaverð.
Fara má í gegnum myntsöguna, og
fínna mynt, sem með ýmsum hætti
má tengja saman. Ef menn vilja til
dæmis taka byggingarlistina, er af
afar mörgu að taka. Hellenar og
Rómveijar settu myndir af frægum
byggingum á listaverk, og svo er
enn. Það er mjög fræðandi að setja
sig inn í sögu einstakra bygginga,
sem myndaðar eru á mynt. Reyna
þannig að skilja hvers vegna mönn-
um fannst endilega, að þessi eða hin
byggingin væri svo einstök, að setja
ætti hana á mynt. Þetta getur verið
fræg brú, eða grískt hof, þinghús,
skóli, eða reyndar hvaða sem er.
Mig langar til þess hér að minnast
á flavíska hringleikahúsið, sem reist
var í Róm á árunum 79—90. Valeri-
anus, keisari árin 69—79, hóf smíði
þess, Títus, keisari árin 79—81, vígði
það og Domitianus, keisari árin
81—96, lauk smíði þess. Er hring-
leikahúsið var vígt, lét Títus keisari
slá koparpening, sestertius að verð-
gildi, árið 80 eða 81, og á bakhlið
peningsins var mynd af hringleika-
húsinu, sem við í dag þekkjum undir
nafninu Colosseum. Á framhlið pen-
ingsins sést hvar Títus situr í stól
innan um ýms vopn. Peningur þessi
er afar eftirsóttur og eftir því dýr.
Þúsundir íslendinga hafa séð rúst-
imar af Colosseum, en þær eru
stórfenglegt minnismerki um horfna
frægð rómverskrar byggingarlistar
og verkfræði. Nöfn arkitektanna og
verkfræðinganna, sem að bygging-
unni stóðu, eru löngu gleymd, en
það hvílir einhver dulúð yfír rústun-
um. Manni fínnst nærri því, sem ómi
vopnaskak skylmingaþrælanna eða
öskur villidýranna og óp áhorfend-
anna. Svo skemmtilega vill til, að á
safni Seðlabankans og Þjóðminja-
safnsins er til peningur, sem eitt-
sinn var notaður sem aðgangseyrir
að Colosseum. Þennan pening er
Colosseum á mynt Títusar keis-
ara.
hægt að fá að sjá á safninu á sunnu-
dögum milli klukkan 2 og 4. En
áður en þú ferð að skoða peninginn,
lesari minn góður, langar mig til að
segja nokkuð frá þessari merku
byggingu, því peningurinn hans
Títusar kom Colosseum inn í hand-
bækur um rómverska mynt.
Miklar breytingar hafa orðið á
Colosseum frá því fyrsti íslendingur-
inn sá það. Ætli það hafi ekki verið
Guðríður Þorbjamardóttir, tengda-
dóttir Egils rauða, sem sá það einna
fyrst, eða um árið 1050. Hefir þá
Colosseum eflaust verið snöggtum
reisulegra en það er í dag. Aldimar
þar á eftir var oft farið þangað, til
að sækja efni í aðrar byggingar, sem
verið var að reisa í Róm, og rýmaði
því hringleikhúsið eftir því. Samt er
það svo, að það sem eftir er af því,
gjörir hvem mann undrandi á mikil-
feng þess.
Ibúar Rómar voru um 1400 þús-
und, um þær mundir er húsið var
tekið í notkun. Mikið atvinnuleysi
ríkti, en þar eð mikið herfang barst
til borgarinnar frá vígstöðvunum,
þar sem sigursælar legfíónir róm-
verskra hermanna stríddu, gat
keisarinn haldið lýðnum í skefjum
með brauðgjöfum og leikum í hinum
ýmsu hringleikahúsum borgarinnar.
Vígsluhátíðin stóð í 100 daga.
9000 villidýr og um 2000 skylminga-
þrælar misstu þá líf sitt. Hringleika-
húsið er á fjórum hæðum. Á fyrstu
þrem hæðunum eru bogar studdir
súlum. Á fyrstu hæðinni eru dórísk-
ar súlur, á annarri jónískar súlur og
á þriðju hæðinni _eru súlurnar að
korinþskum stíl. Á fjórðu hæðinni
eru svo stoðir með korinþskum
skreytingum efst, en gluggamir eru
ferhymdir. Um 50.000 manns hafa
komist fyrir í sætum, en geta ber
þess, að á Circus Maximus, þar sem
fram fór keppni á herkerrum, sem
hestum var beitt fyrir, var pláss fyr-
ir 250.000 áhorfendur. Sviðið í
Colosseum var um 80 metra langt
og 50 metrar á breidd. Hringleika-
húsið var frekar sporöskjulagað og
voru hlið á hvorum enda. Ut um
suðausturhliðið, Libitinare (nefnt
eftir Libitinu gyðju greftmnar) voru
bomir vegnir skylmingaþrælar og
dauð villidýr, sem fallið höfðu í val-
inn. Inn um hliðið á hinum endanum
gengu svo skylmingaþrælar, er ætl-
uðu að beijast. Um leið og fylking
þeirra fór framhjá stúku keisarans,
heilsuðu þeir honum og mæltu „Ses-
ar, mortui te salutant" (Keisari, vér
sem erum um það bil að deyja, heils-
um þér). Undir sviðinu vom svo búr
fyrir villidýrin og mennina, sem áttu
að fóma þann daginn. Greiðlegt var
inngöngu í hringleikahúsið, og fengu
menn að vita hvar þeim var ætlað
sæti, en það fór eftir mannvirðing-
um.
Tvenns konar leikir fóm fram í
Colosseum. Fyrir hádegi vom dýra-
veiðar, en skylmingamar vom um
eftirmiðdaginn. Keisaramir Domit-
ianus, Trajanus og Hadrianus vom
afar hrifnir af leikjunum, og tóku
meira að segja sjálfír þátt í þeim
stundum. Hadríanus drap eitt sinn
ljón á sviðinu. Er Dakía (nú Rúm-
enía) hafði verið unnin, stóð Trajan-
Síldá
borðum
Heimllishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Hjá frændum okkar á Norður-
löndum, eins og þeir em kallaðir á
hátíðlegum stundum, skipa síldar-
réttir mikilvægan sess á jólamatseðl-
inum. Því er ekki þannig farið
hérlendis, eftir því sem best er vitað,
en nóvembermánuður er síldarmán-
uður í íslenskum fiskbúðum. Sú er
þetta ritar hefur aldrei unnið í físki,
og því ekki fullnuma í að flaka og
roðfletta salt- og kryddsfldar, en er
svo lánsöm að eiga góða að í físk-
búðinni. Það er því lítið eftir þegar
heim er komið með flökin, skolað er
af þeim og þau síðan látin liggja í
mjólkurblöndu (eða tómri mjólk) yfir
nótt. Eftir það em þau tilbúin (þ.e.
þegar búið er að skola þau og þerra)
og hægt að búa til allskyns salöt,
sem em áreiðanlega kærkomin ekki
síður en venjuleg marinemð síld með
lauk upp á gamla móðinn. Slík síld
borin fram með heitum kartöflum
og rúgbrauði er lostæti. Marinemð
_ Selko, ____
SIGURÐUR ELÍASSON
OPNAR DYR
I NÝJU HUSNÆÐI
AD SMIDJUVEGI O
ð
f
/? 1
m
■■
i í. ■ c ; 4 t '-/-‘Vv ■ I :w;;< \ i ; í\ i
JjjL. • -1\ } í \
. k. M l
..T-.'JL~,
SELKO
SIGURÐUR ELlASSON HF.
SMIÐJUVEGI 9, 200 KÓPAVOGI
SÍMI: 41380 - 41381
Með hurðum lokum við dyrum og njótum friðhelgi og einkalífs.
Með hurðum opnum við dyr og njótum samvista við aðra.
Við höfum hurðir stöðugt fyrir augunum.
Vönduð smíði, góður frágangur og fallegt útlit hafa
verið einkunnarorð Selkó frá upphafi, enda hafa inni-
hurðirnar frá Sigurði Elíassyni notið sérstaks álits um 40
ára skeið.
Komið á Smiðjuveginn og kynnið ykkur verð og gæði.