Morgunblaðið - 28.11.1987, Qupperneq 47
Aðventu- og
afmælishátíð
Bústaðakirkju
Fyrir sextán árum var Bústaða-
kirkja vígð. Það var á fyrsta
sunnudegi í aðventu, sem ætíð hef-
ur verið mikill hátíðisdagur í
söfnuðinum og var það fyrir vígslu
kirkjunnar. í þetta skiptið er þó
meira um að vera, þar sem vígður
verður fagur kross eftir Leif Breið-
§örð, glerlistamann, sem vinnur nú
í fyrsta skiptið á ferli sínum í steypu
og gler. Það er Kvenfélag Bústaða-
sóknar, sem gefur kirkju sinni
krossinn, og er hann við innganginn
Bústaðakirkja
í kirkjuna og upplýstur og kemur
því til með að setja mikinn svip á
hana.
Að öðru leyti verður hátíðahaldið
með svipuðu sniði og ávallt, með
bama- og fjölskyldumessu kl. 11
árdegis og almennri guðsþjónustu
kl. 14. Að henni lokinni er veglegt
afmælishóf í umsjón kvenfélagsins,
sem með þeim hætti safnar fyrir
andvirði krossins. Er ekki að efa,
að margir munu leggja leið sína í
safnaðarsalina og gera hvoru
tveggja í senn að styðja gott mál-
efni og njóta þess, sem fram er
borið auk vitanlega þess samfélags,
sem þar ríkir. Um kvöldið er síðan
aðventusamkoman, sem nýtur svo
mikillar hylli. Þar mun hinn nýi
kirkjumálaráðherra, Jón Sigurðsson
flytja ræðuna, kirkjukórinn syngur
undir stjóm organistans, Jónasar
Þóris, sem auk þess fær til liðs við
sig hljóðfæraleikarana Jónas Þ.
Dagbjartsson, Þorvald Steingríms-
son, Bjöm R. Einarsson, Jón
Sigurðsson og Herbert Hr. Ágústs-
son, en hann útsetur einnig verkin,
sem flutt verða. Að auki verða ein-
söngvaramir Svala Nielsen og
Einar Öm Einarsson með nokkur
verk í flutningi.
Samverunni lýkur síðan með því
að kertin eru tendruð og helgistund
leiðir huga að aðventuboðskapnum
og hinni hæstu hátíð, sem í hönd
fer. Sem fyrr sér Bræðrafélag Bú-
staðakirkju um undirbúning og
flytur formaður þess, Jónas Gunn-
arsson, ávarp. _
Ólafur Skúlason.
Aðventukvöld
í Neskirkju
EINS og ævinlega verður helgi-
hald í Neskirkju á fyrsta að-
ventusunnudegi með nokkuð
öðrum hætti en jafnaðarlega
aðra sunnudaga. Er gleðiefni hve
mikil og almenn kirkjusókn er
orðin við upphaf jólaföstunnar,
svo helgidómamir fyllast jafnvel
tvisvar til þrisvar sama daginn.
Klukkan 11 árdegis hittast böm-
in í Neskirkju til söngs og samveru
í leik og fræðslu, en klukkan 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
47
Áskirkja
Aðventukvöld
í Áskirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu, 29.
nóvember, verður aðventukvöld
í Áskirkju ki. 20.30.
Ræðu flytur Geir Hallgrímsson
seðlabankastjóri. Sólveig Björling
syngur tvær aríur úr jólaoratoríu
eftir Johann Sebastian Bach við
undirleik Gústafs Jóhannessonar
organista. Þá mun Magnea Áma-
dóttir leika á þverflautu og kirkju-
kór Áskirkju syngja aðventusálma
og söngva tengda jólum undir stjóm
Kristjáns Sigtryggssonar organista,
en margir þeirra sálma eru meðal
dýrustu djásna tónbókmennta kirkj-
unnar. Ennfremur verður almennur
söngur, en samkomunni lýkur með
ávarpi sóknarprests og bænargjörð.
Er það von mín að líkt og undan-
farin ár leggi margir leið sína í
Áskirkju til að njóta aðventukvölds-
ins og eiga þar helga og hugþekka
stund sem færir birtu og blæ jól-
anna nær og stuðlar þannig að því
að undirbúa hugann undir að þiggja
þann frið, sem jólin færa. Er þess
ekki sizt að vænta að foreldrar og
aðrir ástvinir fylgi bömum sínum
til kirkjunnar til að fagna aðvent-
unni oginnri undirbúningi jólanna.
Eftir samkomuna í kirkjunni
verða reiddar fram veitingar í Safn-
aðarheimili Áskirkju. Bifreið mun
flytja íbúa dvalarheimila og annarra
stærstu bygginga sóknarinnar að
og frá kirkju.
Árni Bergur Sigurbjömsson
Aðventusam-
koma Breið-
holtssóknar
EINS og undanfarin ár verður
aðventukvöld Breiðholts-
safnaðar í hátíðarsal Breiðholts-
skóla fyrsta sunnudag í aðventu,
sem að þessu sinni er á morgun,
sunnudaginn 29. nóvember, og
hefst samkoman kl. 20.30.
Að venju verður fjölbreytt dag-
skrá. Kór Breiðholtskirkju flytur
aðventu- og jólasöngva undir stjóm
organistans, Daníels Jónassonar.
Inga Backman, söngkona, syngur
einsöng, Árni Þór Jónsson les jóla-
frásögu og Málfríður Finnbogadótt-
ir, formaður KFUK, flytur
aðventuhugleiðingu. Kvöldið verður
svo endað með stuttri helgistund
Breiðholtskirkja
við kertaljós, þar sem eldri bömin
í bamastarfinu og nokkur ferming-
arböm aðstoða.
Eru sóknarbúar hvattir til að
helja jólaundirbúninginn með því
að fjölmenna við þessa athöfn, en
þetta verður væntanlega síðasta
aðventukvöld safnaðarins á þessum
stað, þar sem nú hefur verið ákveð-
ið að Breiðholtskirkja verði vígð 13.
mars nk. Sr. Gísli Jónasson
Flugleiðir;
Bjóða ýmiss konar
fargjöld innanlands
FLUGLEIÐIR bjóða upp á ýmiss
konar fargjöld innanlands í vetur
og getur fólk valið um margs
konar ferðamáta.
Fullt fargjald milli Akureyrar og
Reykjavíkur, fram og til baka, kost-
ar 6.636 krónur. Apex-fargjald á
milli þessara staða kostar hins veg-
ar 3.981 krónu sem er 40% ódýrara
en fullt fargjald. Ef hjón ferðast
saman á íjölskyldufargjaldi greiða
þau eitt og hálft fargjald saman-
lagt. Framhaldsskólanemar geta
fengið 25% afslátt á fargjöldum og
hópar allt að 20% afslátt. Hopp-
fargjald á milli Reykjavíkur og
Akureyrar er helmingi ódýrara en
venjulegt fargjald. Flugleiðir bjóða
upp á ýmiss konar fargjaldapakka,
t.d. flug, bíl og hótel, segir í frétta-
tilkynningu frá upplýsingadeild
Flugleiða.
Neskirkja
er fjölskylduguðsþjónusta, þar sem
öll væntanleg vorfermingarböm
taka þátt og sjá um helgistundina
með lestri, samtalsþætti og söng
og kveikja á fyrsta aðventuljósi
kirkjunnar.
Klukkan 17 (kl. 5) hefst svo há-
tíðarstund í kirkjunni í tali og
tónum, þar sem bamakór Mela- og
Hagaskóla syngur við stjóm Helgu
Gunnarsdóttir. Þá mun Eiður Gunn-
arsson ópemsöngvari syngja ein-
söng, en ræðumaður verður Ellert
Schram ritstjóri. Einnig verður al-
mennur söngur og orgelleikur
Reynis Jónassonar. Allir eru vel-
komnir og vænst fjölmennis sem
fyrram.
Guðmundur Óskar Ólafsson
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1-38
Skipholt 40-50
Háahlíð
Stigahlíð 37-97
VESTURBÆR
Ægisíða 80-98 o.fl
Nýlendugata
Einarsnes
Látraströnd
Skildinganes
Sörlaskjól 1-26
SELTJNES
Sæbraut
UTHVERFI
Skeifan
Njörvasund
Birkihlíð
Ystibæro.fl.
KOPAVOGUR
Holtagerði
Skjólbraut
Kársnesbraut77-139
Grenigrund
Borgarholtsbr.61-78o.fl.
JMirogtHtMiilifö