Morgunblaðið - 28.11.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
63
Anna Jensdóttir, formaður stjórnar Kaupfélagsins: Erfitt að reka
smásöluverslun i dreifbýli, og skuldir vegna sláturhússins juku mjög
á erfiðleikana. Með Önnu á myndinni er dóttir hennar, Lilja Sigurðar-
dóttir.
ársreikningar félagsins verið sam-
þykktir mótatkvæðalaust í vor,
þrátt fyrir að það væri tekið fram
að kjömir endurskoðendur hefðu
ekki skrifað undir þá.
Þeir viðmælendur Morgunblaðs-
ins sem gagnrýndu stjóm Kaup-
félagsins tóku það fram að þeir
væru ekki fyrst og fremst að ásaka
núverandi stjóm, sem var kjörin í
maí í vor, heldur þá sem hefðu
haidið um stjómvölinn síðustu ár
þegar halla tók undir fæti hjá félag-
inu.
Fimm kaupfélög gjald-
þrota á 2 árum
Ef taprekstur var ár eftir ár á
rekstri einstakra útibúa, hvers
vegna var þá ekki reynt að stokka
rekstur Kaupfélagsins upp fyrr?
Sigurgeir Magnússon, bankastjóri
Samvinnubankans, sem var stjóm-
arformaður Kaupfélagsins á
árunum 1977-’87, sagði að það
hefði verið reynt með sölu útibú-
anna í fyrra, en lítið verð hefði
fengist fyrir þau vegna áhvílandi
skulda á þeim. Hann sagði ennfrem-
ur að það hefðu kannski verið
mistök að taka við rekstri útibúanna
á sínum tfma.
Jens H. Valdimarsson, kaupfé-
lagsstjóri, sagði aðspurður að ef til
vill hefði verið hægt að reyna að
taka á taprekstrinum á útibúunum
fyrr, en árið 1985 hefði mönnum
verið ljóst að hveiju stefndi. Hann
sagði þó að það væri alls ekki víst
hvort hægt hefði verið að bjarga
rekstrinum þá, og að það væri auð-
velt að vera vitur eftir á. Hann
benti á að rekstur kaupfélaga á
landsbyggðinni væri víða mjög erf-
iður, og að fímm kaupfélög hefðu
orðið gjaldþrota á tveimur árum.
Öllum starfsmönnum Kaupfé-
lagsins var sagt upp þann 1.
nóvember. Að sögn manna á Pat-
reksfírði mun vera auðvelt að fá
vinnu við fískvinnslu á staðnum,
en margir starfsmanna KVB höfðu
starfað þar árum eða áratugum
saman, og geta þeir ekki fengið
sambærileg störf. Tvær matvöru-
verslanir eru nú á Patreksfírði, og
voru menn yfírleitt á því að það
væri ekki stórt vandamál að versl-
unarþjónusta Kaupfélagsins hætti,
þó að minnkandi samkeppni væri
ekki af hinu góða.
Útibú Kaupfélagsins f Örlygs-
höfn er eina verslunin í Rauða-
sandshreppi, en hreppsbúar munu
þó að stórum hluta sækja verslunar-
þjónustu til Patreksfjarðar í dag.
Að sögn Valdimare Óssurarsonar,
útibússtjóra, hafa Rauðsendingar
þó fulian hug á að halda rekstri
verslunarinnar áfram, og hann
sagðist halda að reksturinn ætti að
geta staðið undir sér. Valdimar
sagði að Rauðsendingar væru að
leita eftir samningi við Olíufélagið
um bensínsafgreiðslu, en það væri
erfítt að vera án þeirrar þjónustu í
Örlygshöfn vegna ferðamanna-
straums á Látrabjarg.
Næg atvinna, en
skuldugt frystihús
Atvinnuástand á Patreksfírði er
gott í augnablikinu, og hefur þurft
að flytja inn erlent vinnuafl til físk-
vinnu hjá Hraðfrystihúsi Patreks-
Qarðar, sem er stærsti vinnuveit-
andinn á staðnum með um 70
manns í vinnu. Lausafjárstaða
Hraðfrystihússins er þó erfíð I
augnablikinu - það stendur m.a. f
vanskilum við Orkubú Vestfjarða
og Olfufélagið - og skuldir þess
munu vera miklar. Hraðfrystihúsið
hefur þó alltaf staðið í fullum skilum
við launagreiðslur, og vinna hefur
verið næg, þrátt fyrir minnkandi
afla á síðustu árum - úr 13-14.000
tonnum niður í 7-8.000 tonn.
Jens H. Valdimarsson - sem er
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss-
ins, auk þess að vera kaupfélags-
Btjóri - sagði að fyrirtækið hefði
verið að vinna sig út úr erfiðleikum
í ár og í fyrra, en hins vegar væri
almennt rpjög slæmt ástand f frysti-
iðnaðinum í dag. Þessir erfiðleikar
bitnuðu meira á Hraðfrystihúsinu á
Patreksfirði en mörgum öðrum fyr-
irtækjum, vegna erfíðrar skulda-
stöðu frá fyrri árum, þrátt fyrir að
reksturinn hefði gengið mjög vel
fyrrihluta þessa árs. Jens sagði að
næg atvinna ætti að vera í vetur,
ef afli væri þokkalegur, en ekki eru
allir jafn bjartsýnir; einn viðmæl-
andi Morgunblaðsins sagði: „at-
vinnuástandið hefur aldrei verið
skuggalegra en nú í vetur".
Málið er nú í biðstöðu. Viðar Már
Matthíasson, lögfæðingur í
Reylqavík, hefur verið skipaður
bÚBtjóri f þrotabúinu og auglýsing
um gjaldþrotið mun birtast fljótlega
í Lögbirtingablaðinu. Þá hafa
kröfuhafar tveggja mánaða frest
að lýsa kröfum á hendur þrotabú-
inu, og sfðan líða aðrir tveir mánuðir
þar til fyrsti skiptafundur fer fram.
Það verður því langt þangað til öll
kurl koma til grafar f gjaldþrots-
máli Kaupfélags Vestur-Barð-
strendinga, en það er ljóst að 80
ára sögu samvinnuhreyfíngarinnar
í Vestur-Barðastrandarsýslu er lok-
ið - í bili að minnsta kosti.
EVALUX
einkar lítiö plás. Tvö-
faldar rennihurðir: Þú
þarft ekki að skáskjóta
þér inn I hann.
Rammar hvltir; gleriö hert.
Stærð: 90x90 sm.
Hæð: 1.90 m.
Ertu að breyta
baðherberðinu?
Þú færð hugmyndir hjá
okkur.
VATNSVIRKINN HF.
U-XrCD ÁRMÚLA 21 SIMAR 686455 - 665066
^flM LYNGHALSI 3 SÍMAR 673415 - 673416
Bókaskápar
Fjölbreytt úrval bókaskápa í ýmsum
viðartegundum og litum
Verð frá kr. 2.980.- stgr.
Smiðjuveíji 6, Kópavogi símar 4S670 — 44544.
KL 21Æ0
jólastemningin k§mwT með
c^lðventukxönsununi frá
BREIÐH0LTI
SÍMI76225
MIKLAT0RGI
SÍMI22822.
*