Morgunblaðið - 28.11.1987, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
65
Mývatnssveit:
Fjölmenni í afmæli Ragnars á Grímsstöðum
Björk, Mývatnssveit.
En það veit ég, að eigi það fyrir
mér að liggja að knýja einhvern
tíma dyra á himnum þá verða
pönnukökur á borðum og — mikið
skelfíng verður gaman að sjá mig.
Asgeir
Guðfinna Jónsdóttir er horfin
okkur, þessi góða kona, sem bar
öll merki líkamlegrar heilbrigði og
glaðlyndis, varð að láta í minni
pokann fyrir vágesti veikindanna á
tiltölulega skömmum tíma.
En þegar komið er á krossgötur
lífs og dauða, þar sem góður sam-
ferðamaður kveður þennan heim,
fyllist hugurinn söknuði og trega.
Otal minningar frá liðinni tíð birt-
ast og þá fínnum við ef til vill best
hversu mikið við eigum að þakka
þeim, sem horfinn er sjónum. Þann-
ig er mér farið við andlát hinnar
mætu konu, Guðfínnu Jónsdóttur.
Hún var fædd 1. september 1917
í Flagbjamarholti, Landsveit, dóttir
hjónanna Sigríðar Gestsdóttur og
Jóns Jónssonar, sem þar bjuggu til
1946 að þau brugðu búi og fluttu
að Selfossi, þar sem böm þeirra
vom sest að. Guðfinna var næstelst
5 bama þeirra hjóna, elstur var
Gestur, lést í frumbemsku, næst
var Guðfinna, Sveinn (látinn 1984),
Gestur og Siguijón. Guðfínna ólst
upp í foreldrahúsum. Þann 17. nóv-
ember 1940 giftist hún Sigurði
Þorbjömssyni, bifvélavirkja, frá
Akbraut á Eyrarbakka, en hann
lést 6. október 1978.
Þau settu bú saman á Selfossi
og byggðu sér fljótlega hús utan
Ólfusár, en þar var þá aðeins eitt
hús fyrir. Sigurður var hagleiks-
maður og vann að húsbyggingunni
sjálfur og fljótlega var flutt inn í
nýja húsið og það nefnt Vík. Síðar
stækkuðu þau húsið og ræktuðu
stóran garð sem ber þeim fagurt
vitni.
Þeim áttu svo margt sameigin-
legt og varð hjónaband þeirra mjög
farsælt.
Þau nutu þess að ferðast utan-
lands og um landið okkar, ísland,
sem þau gjörþekktu. Þau eignuðust
5 böm, 3 dætur og 2 syni. Þau
em: Elín, gift Birgi Jónssyni banka-
stjóra, Sigríður Inga, gift Þórhalli
Steinssyni bónda, Þorbjöm tækni-
maður, giftur Eddu Ingvadóttur,
Jón rekstrarhagfræðingur, giftur
Önnu Maríu Sigurðsson (fædd Jörg-
ensen) og Elsa, hennar maður er
Hannes Arsælsson. 12 em bama-
bömin, sem henni vom mjög kær.
Guðfinna var kærleiksrík fjöl-
skyldumóðir, sem bar hag flöl-
skyldu sinnar mjög fyrir bijósti og
lét einskis ófreistað til að leggja
þeim allt það lið, sem hún mátti,
enda kunni fjölskylda hennar vel
að meta hana og sýndi það með
gagnkvæmri umhyggju, hlýju og
ræktarsemi, sem veitti henni mikla
gleði og lífsfyllingu.
Þau hjón vom mjög gestrisin.
Þau áttu marga vini, sem þótti þar
gott að koma. Margur mun sakna
vinar í stað.
Guðfínna var bókhneigð og vel
lesin og fylgdist vel með í þjóðlífinu
og ekki síður því, sem varðaði líðan
og kjör þeirra, sem stóðu höllum
fæti. Með þeim hafði hún ríka sam-
úð. Hún var trúuð kona, sem
hugleiddi eilífðarmál og öðlaðist þá
trúarvissu, sem auðveldar mönnum
að taka því sem að höndum ber og
það ásamt góðri breytni gerir ferð-
ina yfír til annars heims að sigur-
göngu.
Með innilegu þakklæti og virð-
ingu minnist ég Guðfinnu, vinkonu
minnar, og bið henni blessunar
Guðs á eilífðarbraut. Bömum og
öllum öðmm í hennar fjölskyldu
færi ég mína innilegustu samúðar-
kveðju.
Guðrún S. Kristinsdóttir
RAGNAR Sigfinnsson á
Grímsstöðum í Mývatnssveit átti
75 ára afmæli 25. þessa mánaðar.
Þann dag bauð hann vinnufélög-
um, vinum og frændum heim til
sín. Margir heimsóttu hann og
áttu með honum ánægjulega
stund.
Foreldrar Ragnars vom Þómnn
Guðmundsdóttir og Sigfinnur Sigur-
jónsson, bróðir Fjalla-Bensa og
þeirra systkina. Ragnar hefur ætíð
verið mikill náttúmunnandi og haft
sérstakan áhuga fyrir fuglum. Fyrr
á ámm stundaði hann fuglamerking-
ar ásamt Jóhannesi bróður sínum.
Eflaust er það mikiil fjöldi fugla, sem
Ragnar hefur merkt um dagana.
Með þeim hefur fengist margvísleg-
ur fróðleikur um ferðir þeirra fugla
víða um heim, sem merktir hafa
verið við Mývatn.
Á unglingsámm stundaði Ragnar
öll venjuleg sveitastörf hjá foreldmm
sínum eins og þá var títt. Eftir 1940
fór hann að vinna utan heimiiis.
Bæði byggingarvinnu og við vega-
gerð. í Vestmannaeyjum var hann
landmaður 11 vertíðir. 1970 hóf
hann störf hjá Kísiliðjunni við Mý-
vatn þar sem hann vinnur enn.
Ragnar hefur ávalit unnið sér traust
vinnuveitenda og verið eftirsóttur
starfskraftur. Eiginkona Ragnars er
Guðrún Benediktsdóttir og eiga þau
þijú böm. Mývetningar senda Ragn-
ari á Grímsstöðum bestu ámaðaró-'
skir.
Kristján
Opið alla virka daga kl. 10 -19. Laugardaga og sunnudaga kl. 14-22.
Myndverkin eru eftir Sigurþór Jakobsson,
myndlistarmann. Myndirnar eru eftirprentanir
af vatnslitamyndum sem listamaðurinn vann að
á árunum 1985-87.
Hægt er að velja á milli 16 tegunda afmyndefni,
Hestamyndir, Bátamyndir o.fl.
Komið og skoðið - sjón er sögu ríkari
Myndirnar eru aðeins gefnar út í takmörkuðu upplagi
(350 eintök) og eru þær allar númeraðar
og áritaðar afhöfundi.
Innrammaðar myndir
Myndirnar eru allar seldar innrammaðar undir gleri
ífallegum silfurlituðum álrömmum og afhentar
ígóðum gjafakössum. Stærri pantanir
(20 myndir o.fl.) þarfað gera fyrir 15. des.
til að fá afgreiðslu fyrir jól.
KOM
h^ttAXönnUN
1 E
6HBHHH