Morgunblaðið - 02.12.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987
TJÖRNIN OG
NORÐUR-
BAKKINN
Mynd frá Alster-vatni í Hamborg, en við það er ráðhús borgarinnar.
eftir Hildigunni
Hjálmarsdóttur
Margt hefur verið ritað um bygg-
ingamál hér í borg, og nú langar
mig til að leggja orð í belg varð-
andi nýja ráðhúsið. Þetta helgast
af því, að ég bjó nokkra áratugi
steinsnar frá norðvesturhominu,
þar sem ráðhúsið á að rísa, og leiddi
þá oft syni mína unga niður að
Tjöm til að gefa öndunum. Á þess-
um ámm var borgin sífellt að
þenjast út, og það sem öðru fremur
einkenndi nýju hverfin var stórauk-
in garðamenning. Menn kepptust
bókstaflega um að skipuleggja sem
allra smekklegasta og sérkennileg-
asta garða kringum hús sín, og í
gömlu borgarhverfunum smituðust
menn af þessari athafnasemi og
fegmnarþörf. Lófastórir blettir,
sem engum hafði fram til þessa
þótt taka því að snerta við, fengu
nú víða þokkafullt yfírbragð. Má
benda á sérlega snoturlegan skika
gegnt Hótel Holti, við hom Berg-
staðastrætis og Hellusunds. Aukin
velmegun og tíðari ferðalög al-
mennings til útlanda skiluðu þannig
menningarlegum arði, sem kom
fram í vaxandi virðingu manna fyr-
ir umhverfi sínu.
Þessa gætti þó ekki alls staðar
í borginni. Kyrrstaðan í umhverfís-
„Loks er nú breytinga
til batnaðar von. Hið
nyja, smekklega ráðhús
í norðurkrikanum og
opnun og framlenging
Alþingishússgarðsins
niður að Vonarstræti,
þannig að Alþingishús-
ið blasi við frá Tjarnar-
bakkanum, mun leysa
norðurbakkann úr
álögum Ijótleikans.“
fegmn við norðvesturbakka Tjam-
arinnar, nálægt þeim stað þar sem
ég bjó, hefur verið í hrópandi and-
stöðu við þessa almennu þróun.
Hvergi var þama stingandi strá, í
vætutíð máttum við váða forarvilpu
niður að norðvesturkrikanum, þar
sem vatnsborðið var fullt af
óþverra, plastpokum, flöskum og
gömlu brauði. Alþingishúsið og
Dómkirkjan, þessar fallegu, virðu-
legu byggingar, nutu sín engan
veginn vegna skúrbygginga fyrir
framan. Mér sámaði oft þetta
hirðuleysi á þessum helga stað í
sjálfu hjarta borgarinnar. Þama
vom sannarlega ónýttir möguleikar
til þess að fegra og bæta, uppræta
þann kotungshátt sem sljóvgaði og
stóð í vegi fyrir eðlilegri framþróun
og umhverfísfegmn.
Þótt árin hafí liðið, hefur tíminn
að mestu staðið kyrr við norðvestur-
bakkann. Skúramir á Bámlóðinni
og gamla Gútemplarahúsið hafa að
vísu þokað fyrir bflastæðum, sem
sifjölgar í miðborginni, og lítill ynd-
isauki er að.
Loks er nú breytinga til batnaðar
von. Hið nyja, smekklega ráðhús í
norðurkrikanum og opnun og fram-
lenging Alþingishússgarðsins niður
að Vonarstræti, þannig að Alþingis-
húsið blasi við frá Tjamarbakkan-
um, mun leysa norðurbakkann úr
álögum ljótleikans. Hvolfþakið á
ráðhúsinu er í stfl við þakið á nýja
listasafninu austanmegin Tjamar-
innar, húsinu sem var áður falleg-
asta íshús á landinu og Thor Jensen
lét byggja, en bróðir hans, Alfreð
Jensen, arkitekt, teiknaði húsið.
Ég trúi ekki öðm en að þeir, sem
virða fyrir sér norðvesturhom
Tjamarinnar, sjái hve lítils er að
sakna, þó sú mynd breytist. Sam-
byggingamar við Tjarnargötuna og
ósamstæð húsin við Vonarstræti
munu hverfa til að sjá, við tilkomu
þessarar smekklegu ráðhúsbygg-
ingar. Og fyrir framan hana geta
mæður — og feður — með böm sín
setið í skjóli fyrir norðangjólunni
við að gefa fuglunum brauð, en
eldra fólk látið fara vel um sig í
súlnagöngunum og notið útsýnisins.
Tjörnin mun í enn ríkara mæli laða
að sér fólkið.
Vonandi verða þessi umskipti til
þess að Tjömin hljóti betri meðferð
en hingað til, hún jafnvel stækkuð
til suðurs og helst að Skothúsvegur-
inn verði aflagður og falleg brú
byggð í stað núverandi uppfyllingar
og steinsteypubákns, en það myndi
færa Tjömina nær því horfí sem
hún var áður fyrr.
Höfundur er húamóðir í Reykjavík
og hefur lokið BA-prófi viðHi-
akóla íalanda í frönaku og dönaku.
eftir
Rauður stomilir eftSrToSIaancy
Bókin segir frá “þriðju heimsstyrjöldinni“. Aðalátökin eru milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Stór hluti bókarinnar gerist á íslandi.
Rauður stormur hefur trónað á metsölulistum
mánuðum saman. wBXbók
\góð bóU
<á
fyrir öörr^serneruaðGyg^^
njtTsjöúndásmn. Þaðsegir
'um Jguna en rnörg o'ft