Morgunblaðið - 02.12.1987, Blaðsíða 49
MQRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987
49
Jómfrúræða Láru V. Júlíusdóttur:
Farsælla að nýta heimild-
ir gildandi jafnréttíslaga
Hér fer á eftir jómfrúræða
Láru V. Júlíusdóttur (A.-Rvk.)
sem flutt var á Alþingi 10. nóv-
ember sl. í umræðum um jafna
stöðu karla og kvenna.
Herra forseti. Það frv. sem hér
er til umræðu er um breyt. á 1. um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla. Hér er um að ræða viðbót
við 12. gr. laganna sem fjallar um
það að leitast skuli við að hafa sem
jafnasta tölu kynja í stjómum,
nefndum og ráðum á vegum ríkis,
sveitarfélags og félagasamtaka.
Viðbót, sem felur í sér að í nefnd-
um, stjómum og ráðum sem skipuð
em beint af ráðuneytum eða á veg-
um opinberra stofnana og fyrir-
tælqa skuli ekki vera færri en 40%
af hvom kyni.
Svo sem fram hefur komið í
könnun, sem Jafnréttisráð hefur
nýlega látið gera, hefur þrátt fyrir
núgildandi ákvæði lítil hreyfing orð-
ið í jafnréttisátt ef stjómir og ráð
innan einstakra ráðuneyta em borin
saman með tilliti til skiptingar kynja
á 10 ára tímabili. Þótt þróunin hafí
verið sú að konum hafi aðeins fjölg-
að í nefndum á árabilinu frá
1976—1985 er enn mjög langt í
land með að því verði náð sem kalla
má jafnrétti hvað þetta varðar.
Aukningin er úr 3% 1976 í 10%
1985. Þetta er þróun sem varð á
kvennaáratug Sameinuðu þjóðanna
þegar sérstakt átak átti að gera til
að bæta stöðu kvenna í heiminum.
Segja má að konur á íslandi
hafí fyrir löngu náð lagalegu jafn-
rétti. Konur fengu kosningarétt til
Alþingis 1915 og ýmis lagaleg rétt-
indi til jafns við karla fengust
snemma á öldinni. Við löggjöf í jafn-
réttismálum hér á landi ríkti _ á
margan hátt framsýni og vom ís-
lendingar framarlega í lagasetn-
ingu borið saman við aðrar þjóðir.
Þrátt fyrir lög hefur hér gengið illa
að ná jafnrétti í reynd. Hlutdeild
kvenna á þingi hefur lengst af ver-
ið lítil. Einungis 17 konur höfðu
verið kosnar á þing frá árinu 1915
og fram til síðustu alþingiskosn-
inga. Launamunur kynja er vem-
legur og þannig má áfram telja.
Áhrif kvenna em ekki eins mikil
á íslandi og ætla mætti þegar litið
er til lagalegrar jafnstöðu. Við
sjáum dæmin allt í kringum okkur.
Á árinu 1960 vann fímmta hver
gift kona utan heimilis. í dag vinna
fjórar af hverjum fímm giftum kon-
um utan heimilis. Samt sem áður
miðar skólakerfíð enn við það að
mamman sé heima að sinna baminu
sínu í hádeginu. Skólar em tvísetn-
ir ef ekki þrísetnir og enn hefur
samfelldum skóladegi ekki verið
komið á alls staðar. Ekki þarf að
fjölyrða um það ástand sem nú ríkir
í dagvistarmálum og em þetta lýs-
andi dæmi um að lítið hefur verið
gert til að koma til móts við breytt-
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ar þarfir fjölskyldunnar. Hvers
vegna? spyija menn. Jú, uppeldi
bamanna hvílir á konunum jafnvel
þótt þær hafí farið út að vinna.
Konur em ekki þar sem ráðum er
ráðið. Úrlausn þessara mála hefur
ekki haft neinn forgang. Til að
breyta þessu þarf að auka völd
kvenna. Ein leiðin til að tryggja
völd þeirra er að auka á hlutdeild
þeirra í nefndum og ráðum á vegum
hins opinbera.
I stefnuyfírlýsingu ríkisstjórnar-
innar segir bemm orðum að kjör
kvenna og aðstaða bama verði
bætt og áhrif kvenna í þjóðlífínu
aukin. Til að fylgja eftir þessari
stefnu hefur félmrh. með bréfi til
ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja
ríkisins beint þeim tilmælum til
þeirra að sérstakt átak verði gert
til að tala kynjanna í stjómum,
nefndum og ráðum á vegum þess-
ara aðila verði sem jöfnust. í
athugun er í ráðuneytinu hvemig
enn frekar megi fylgja þessu eftir,
þar á meðal hvort lagabreyting
komi hér til greina. Hefur sérstak-
lega verið litið til hugmynda sem
fram hafa komið um að þegar beð-
ið sé um tilnefningu í stjómir,
nefndir og ráð á vegum ríkis og
sveitarfélaga skuli nefna karl og
konu. Sé það ekki gert skuli veita
jafnréttisráði skriflega rökstudda
greinargerð um ástæður þess.
Má í þessu sambandi nefna að í
Danmörku vom sett lög þessa efnis
1985, það em lög nr. 157/1985.
Og þó að þessi lög hafi nýlega tek-
ið gildi, þau em tveggja ára gömul,
þá hafa þau þegar haft töluverð
áhrif þar til að auka hlutdeild
kvenna í opinbemm nefndum. Á
fyrsta árinu sem þau vom í gildi
jókst tala kvenna í nefndum og
ráðum úr u.þ.b. 11% í 30%.
Eitt af helstu baráttumálum
kvenna um heim allan á síðasta
áratug hefur verið að tryggja með
lögum heimild til sérstakra aðgerða
SfóHsftæðor
hillur
eðaheilar
samslæður
Níðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stillanlegar stærðir.
Hentarnánast
allsstaðar.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga
UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA W SÍML6724 44
til hagsbóta konum. Hinn 13. júní
1985 samþykkti Alþingi till. til þál.
um heimild fyrir ríkisstjómina til
að fullgjlda samning Sameinuðu
þjóðanna um afnám alls misréttis
gagnvart konum. í 4. gr. þess
samnings segir, með leyfi forseta:
„Geri aðildarríki sérstakar bráða-
birgðaráðstafanir, sem miða að því
að flýta fyrir að raunvemlegt jafn-
rétti karla og kvenna náist, skal
það ekki talið misrétti eins og það
er skilgreint í samningi þessum en
skal ekki á neinn hátt hafa í för
með sér að ójöfnum eða ólíkum
skilyrðum sé við haldið. Ráðstafan-
ir þessar skulu felldar niður þegar
markmiðunum um sömu tækifæri
og meðferð hefur verið náð.“
í lögum um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla, nr. 65/1985,
segir í 3. gr. að hvers kyns mismun-
un eftir kynferði. sé óheimil. Þó
kemur fram í lögunum að sérstakar
tímabundnar aðgerðir, sem ætlaðar
em til að bæta stöðu kvenna til að
koma á jafnrétti og jafnri stöðu
kynjanna, teljist ekki ganga gegn
lögunum. Heimild til tímabundinna
aðgerða til hagsbóta konum hefur
verið til staðar í lögunum í tvö ár.
Enn fer ekki mikið fyrir slíkum
aðgerðum. Þó hefur nú á allra
síðustu mánuðum orðið töluverð
umræða um þetta ákvæði og hefur
framkvæmdanefnd um launamál
kvenna tekið málið til sérstakrar
umfjöllunar. Skipta má þessum að-
gerðum í tvo hópa eftir eðli þeirra,
annars vegar þvingandi aðgerðir,
svo sem kvóta eins og lagður er til
í frv. sem hér liggur fyrir, hins
vegar jákvæðar aðgerðir, styrki,
Lára V. Júlíusdóttir
verðlaun, hvatningu til þeirra sem
sýna viðleitni til að breyta ástandi
til betra horfs. Deilt er um það
hvora leiðina sé betra að fara.
Svo sem ég hef rakið er ekki
andstætt lögum að ráðast í sérað-
gerðir í þágu kvenna. Jafnréttisráð
hefur nú til umíjöllunar tillögur
hóps sem vann að útfærslu á þess-
ari heimild en Jafnréttisráði er, svo
sem kunnugt er, ætlað samkvæmt
lögum að marka stefnu í jafnréttis-
málum. Áður en farið verður að
breyta jafnréttislögum í þá átt sem
hér er lagt til tel ég að fyrst verði
að láta á það reyna hvemig unnt
verði að notfæra sér 3. gr. lag-
anna, um tímabundnar aðgerðir til
hagsbóta konum, og huga að breyt-
ingu á 12. gr. á þá leið sem gert
hefur verið í Danmörku. 40%-kvóti
í þessu tilviki er göfugt markmið
en það verður að ætla að erfitt sé
að ná því fram með hliðsjón af stöðu
jafnréttismála hér á landi í dag.
Ég vil heldur sjá lögunum breytt
og reglugerðir settar þannig að
líkur séu til að hægt sé að fram-
fylgja þeim heldur en að setja lög
sem engin leið er að framfylgja.
Lögin verða að endurspegla réttar-
vitund manna en ekki vera einhvers
konar óljós framtíðarsýn. Ég sé
ekki að unnt sé fyrir Jafnréttisráð
að framfylgja þeim ákvæðum sem
hér er um rætt af nokkru viti og
tel að undanþágur verði reglan þar
sem hér er lagt til að lögbinda 400%
aukningu a þátttöku kvenna í
nefndum. Ég treysti því nefnilega
ekki að allir karlmenn séu jafn-
miklir jafnréttissinnar og hv. flm-.
þessa frv.
Hér á landi hefur heimildin í 3.
gr. jafnréttislaga sama og ekkert
verið notuð. Þar tel ég að sé opin
leið í flestum tilvikum að tryggja
þann kvóta sem hér er lagður til
með löggjöf. Með stjómvaldsað-
gerðum er hægt að koma á kvóta
sem tryggir aukna hlutdeild
kvenna. Við kosningu í stjómir og
skipanir í nefndir og ráð á vegum
ríkis, sveitarfélaga og félagasam-
taka tel ég að oft gleymist að konur
séu til eða eins og oft er: Ein kona
er sett í hópinn með körlunum. Ef
sú leið verður farin að nefna bæði
karl og konu við tilnefningar væri
minnt á tilvist alls þess fjölda fram-
bærilegra kvenna sem stöðugt er
sniðgenginn þegar verið er að út-
deila völdum hér á landi.
Þótt ég sé í hjarta mínu sam-
mála því markmiði sem frv. stefnir
að þá hef ég efasemdir um þá leið
sem hér er lögð til. Ég tel að far-
sælla sé í fyrsfa lagi að nýttar verði
þær heimildir sem gildandi jafnrétt-
islög veita til að tryggja konum
aukna hlutdeild í stjómum og
nefndum, og í öðru lagi að kannað
verði hvort ekki sé rétt að lögbinda
þá reglu að nefna skuli bæði karl
og konu við tilnefningar í stjómir,
nefndir og ráð á vegum ríkis og
sveitarfélaga áður en ráðist verður
í svo róttækar breytingar á nýlegpim
jafnréttislögum sem hér er lagt til.
n Jeep
EINKAUMBOÐ A ISLANDI
1988
Sýningar-
bíll
á staðnum.
★ Hagstæð kjör
★ 25% útborgun
★ Eftirstöðvar lánaðar í allt að
2V2 ár
Ath.: Gengi dollars hefur ekki verið lægra síðan fyrir gengis-
felHngu 1984.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 — 77202