Morgunblaðið - 04.03.1988, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 04.03.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 7 Ekki hægt að búa til lengd- ar við mikinn viðskiptahalla — segir Þórður Friðjónsson forsljóri Þjóðhagsstofnunar ÞÓRÐUR Friðjónsson forsljóri Þjóðhagsstofnunar segir að ekki sé hægt til lengdar að búa við viðskiptahalla á borð við þann sem fyrirsjáanlegur er á þessu ári þar sem slíkt leiði til stóraukinna erlenda skulda. í drögum að þjóðhagsspá er gert ráð fyrir að við- skiptahallinn á þessu ári verði 10,5 milljarðar króna sem svarar til 4,5% af landsframleiðslu. Morgunblaðið/RAX Á myndinni eru talið frá vinstri: Eyjólfur Hauksson hjá Lux Viking, Pétur A. Maack og Hafsteinn Arnason hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Stéttarfélagaferðirnar og Lionair: Flogið verður til Kölnar og ferðirn- ar seldar 20. mars FÉLÖGUM í Verslunarmannafé- lagi Reykjavíkur, BSRB, Sam- bandi íslenskra bankamanna, Framsókn, Sókn og Máhn- og skipasmiðasambandi íslands verður gefinn kostur á að fljúga með 500 sæta Boeing 747-100- flugvél Lionair til Kölnar í Þýska- landi í stað Lúxemborgar og stefnt er að því að selja ferðirnar sunnudaginn 20. mars nk., að sögn Sigrúnar Aspelund hjá BSRB og Péturs A. Maack hjá VR. Sigrún og Pétur sögðust ekki hafa fengið fullnægjandi skýring- ar á því hjá Lionair hvers vegna það hefði ekki viljað að flogið yrði til Lúxemborgar eins og upp- haflega var áætlað. Jóhannes Ein- arsson, framkvæmdastjóri Liona- ir, vildi í samtali við Morgun- blaðið ekki segja hvaða ástæða væri fyrir því að ekki verður flog- ið til Lúxemborgar. Það hefði verið ákvörðun stjórnar Lionair. Jóhannes sagði að stéttarfélögin og Lionair væru að vísu enn ekki búin að skrifa undir samninga um þessar ferðir. Hann sagði að Lionair væri í eign Luxair, sem ætti 55% í félaginu, og Cargolux sem ætti 45% í því. Hann staðfesti að forstjóri Luxair, Roger Sietzen, væri stjóm- arformaður bæði Lionair og Cargol- ux og Cargolux sæi í Lúxemborg um áhafnir og skoðanir á flugvélum Flugleiða. Sigrún Aspelund hjá BSRB sagði að famar yrðu fjórar þriggja vikna ferðir. Fyrsta ferðin yrði farin 9. júní nk. og flugfarið kostaði um 9 þúsund krónur. Að öllum líkindum yrðu fríar rútuferðir til Lúxemborg- ar þar sem farþegarnir ættu kost á að taka á leigu bifreið frá íslensku bílaleigunni Lux Viking. Flugfarið og 5 manna Ford Sierra-bifreið með tryggingu kostaði saman í pakka 16.825 krónur. Einnig stæðu far- þegunum til boða íbúðir í Moseldal og sumarhús í Zaardal í Þýskalandi og kostaði flugfarið, Ford Sierra- Félagsmálaráðuneytið: Ráðuneytis- stjóri lætur af störfum HALLGRÍMUR Dalberg, ráðu- neytisstjóri í félagsmálaráðu- neytinu mun láta af störfum á árinu.Á hann 40 ára starfsferil að baki innan ráðuneytisins um næstu mánaðarmót. Hefur embætti ráðuneytisstjóra verið auglýst laust til umsóknar og skulu umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf sendast fé- lagsmálaráðuneytinu fyrir 25. mars 1988. bifreið og sumarhús 29.800 krónur á mann, þegar miðað væri við 4 saman í húsi og 4 í bíl, svo dæmi væri tekið. í samtali við Morgunblaðið sagði Þórður að frá stríðslokum hefði viðskiptajöfnuður íslands aðeins verið jákvæður sjö sinnum, síðast árið 1986, þegar hann var jákvæð- ur um 0,5% af landsframleiðslu. Árið 1987 var viðskiptahallinn tal- inn vera 7 milljarðar eða 3,5% af landsframleiðslu. Afleiðingin væri sú að erlendar skuldir íslendinga, sem í stríðslok voru hverfandi, hefðu vaxið jafnt og þétt. Nú væru íslendingar ein skuldugasta þjóð í heimi, og væru skuldir um 40% af landsframleiðslu. Þórður sagði óhjákvæmilegt að snúið yrði af þessari braut því að til lengdar yrði afleiðingin sú að lánakjör íslendinga myndu versna og vextir af lánunum hækka þann- ig að enn stærri hluti útflutnings- tekna færi í greiðslu afborgana og vaxta af erlendum lánum. Von er á nýju ágripi af þjóð- hagsspá í næstu viku sem miðast við breyttar forsendur vegna kjara- samninga og efnahagsráðstafana ríkisstjómarinnar. í drögum að verðlags- og þjóðhagsspá sem Þjóðhagsstofnun hefur gert, segir að verði kjarasamningar Verka- mannasambandsins og vinnuveit- enda fordæmi annarra samninga á næstunni og ekki verði launaskrið, sé gert ráð fyrir að verðbólga verði talsvert há á 2. ársfjórðungi, eða um 28%, en lækki síðan þegar líða tekur á árið og verði komin í 6,5% síðustu þrjá mánuði ársins. Að meðaltali er reiknað með 15,5% verðbólgu frá upphafi til loka árs- ins, að lánskjaravísitalan hækki um 14,5% og byggingarvísitalan um 12,5% á sama tíma. Miðað við þessar forsendur er áætlað að kaupmáttur ráðstöfun- artekna verði að meðaltali 3,5% minni en í fyrra og komi það fram í því að einkaneysla dragist sam- an. Sá samdráttur er áætlaður um 1,5%. Hinsvegar er talið að þjóðar- útgjöld dragist aðeins saman um 0,5% og vöruinnflutningur geti aukist nokkuð milli áranna 1987 og 1988 vegna áframhaldandi hækkunar á raungengi krónunnar. Áætlað er að útflutningur dragist saman í sama mæli og sjávarafli og því geti halli á viðskiptum við útlönd orðið um 10,5 milljarðar króna. Einnig er gert ráð fyrir að landsframleiðsla dragist saman um 1% á árinu og þjóðartekjur um nálægt 1,5%. Þórður Friðjónsson sagðist að- spurður ekki sjá nein merki um batnandi horfur miðað við þær spár sem birtar hafa verið síðustu mánuði, og frekar væru veikleika- merki á mörkuðum íslendinga heldur en hitt. Það yrði þó að líta til þess að viðskiptakjör Islendinga hefðu að jafnaði verið mjög góð á síðustu 2-3 árum. Pils og blússa kr. 4.950,- Silkiklútur kr. 390,- Jakki kr. 6.990,- Buxur kr. 3.490,- Skyrta kr. 2.290,- Leðurjakki kr. 17.900,- Rúllukragabolurkr. 1.890,- Herrabuxur kr. 3.690,- Leðurjakki kr. 17.900,- Rúllukragabolurkr. 1.890,- Dömubuxurkr. 4.290,- Opið á morgun laugardag frá kl. 10-16 e.h.ai dS KARNABÆR r Austurstræti 22 Laugavegi 66 Glæsibæ Sími 45800 GARBO Tilvalin fermingarfatnaður Austurstræti 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.