Morgunblaðið - 04.03.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
21
semdir almennings séu sett til þess
að bjóða fólki upp á skemmtilegar
kortasýningar og athugasemdaskrif
sem eigi ekki erindi við aðra en
skjalaskápa bæjarfélagsins. Lögin
eiga að tryggja að yfirvöld taki
ekki ákvörðun, fyrr en þau hafa
kynnt sér vilja fólksins í sveitar-
félaginu. Það gerði hins vegar
meirihluti borgarstjómar varðandi
ráðhúsið.
Tveir uppdrættir
í byijun árs 1987 var almenn
kynning á Kvosarskipulaginu. At-
hugasemdafresturinn rann út 1.
apríl. Skipulagsuppdrátturinn, sem
hékk þá uppi, sýndi ekkert ráðhús,
aðeins punktalínu út í Tjömina, og
í reitnum stóð „Samkeppni um ráð-
hús“ (sjá mynd 1). Land og vatn
mættust á sama stað og nú er í
norðvesturhomi Tjamarinnar. Ekk-
ert ráðhús var heldur að finna á
glæsilegu módeli yfir svæði skipu-
lagsins. Það var ekki von, því að á
þessum tíma vissi enginn hvort eða
hvemig ráðhúsbygging yrði valin
fyrir höfuðborgina. Úrslit úr sam-
keppninni urðu kunn nokkmm vik-
um síðar, eða í júnfl
Tveimur mánuðum eftir að at-
hugasemdafresti fólks lauk, urðu
hugmyndir um staðsetningu
byggingarinnar, stærð hennar
og hæð fyrst ljósar. í skipulags-
drögum er kveðið á um að þessi
atriði skuli tilgreind á uppdrætti
deiliskipulags þegar það er kynnt
almenningi. Um slíkt var ekki að
ræða í Kvosarskipulagi, enda vissi
enginn neitt um þá hluti. Eðlilega
gerði því almenningur ekki athuga-
semd við það sem hann vissi ekkert
um.
Uppdrátturinn sem ráðherra fékk
til staðfestingar sýnir hins vegar
Kvosarskipulag með fullbúnu ráð-
húsi (sjá mynd 2). Skipulagsstjóm
ríkisins kom því fyrir á áður kynnt-
um uppdrætti, að beiðni borgar-
stjórans í Reykjavík, í vetrarbyrjun.
Það er því ljóst, að Reykvíkingar
hafa ekki fengið að nýta lög-
vemdaðan rétt sinn til áhrifa á
það skipulag, sem ráðherrann stað-
festi.
Mér finnst furðulegt, að menn
skuli geta gert spuminguna um
ólðgmæti Kvosarskipulagsins að
álitamáli. Teygjur og túlkanir lög-
lærðra í þessu máli hafa dýpkað
skilning minn á hugtakinu „lagaref-
ir“. Útlistun Jónatans Þórmunds-
sonar í Morgunblaðinu sl. þriðjudag
styrkti þá skoðun mína, að hér var
gróflega gengið á snið við landsiög.
Hér hefur eingöngu verið fjallað
um málsmeðferð yfiivalda á svo-
kölluðu ráðhúsmáli. Á því máli em
miklu fleiri hliðar, sem hver um sig
er efni í heila blaðagrein. Óraun-
hæfar, síbreytilegar kostnaðaráætl-
anir, ráðstöfun meira en milljarðs
í ráðhús, á meðan frumþörfum
Reykvíkinga er illa sinnt, og svo
staðsetningin sjálf — allt em þetta
meiriháttar tilefni til gagnrýni á
ráðamenn borgarinnar. En um
þessa hluti veit ég að menn em
ósammála.
Nýtum tímann til 25. mars!
Hitt ættu menn að geta verið
einhuga um, að yfirvöldum á ekki
að líðast að misbjóða Reykvíkingum
á þann grófa hátt sem orðið hefur
í máismeðferð meirihluta borgar-
stjómar. Erfitt er að sjá hvernig
mæta skal slíkri valdníðslu. En
þrátt fyrir yfirlýsingar um, að skoð-
anir borgarbúa á fyrirhuguðu
Tjamarráðhúsi skuli áhrifalausar
grafast í skjalaskáp, verða menn
að nýta athugasemdatímann til 25.
mars til hins ýtrasta.
Það skiptir máli, að borgarfull-
trúum verði hugur manna ljós, þó
ekki væri til annars en að gefa
þeim, sem æða áfram með offorsi,
kost á að skammast sín. Auk þess
skulum við ekki útiloka, að ein-
hveijir borgarfulltrúanna, sem
greiddu Tjamarráðhúsinu atkvæði
sitt 1. október sl., endurskoði fyrri
afstöðu, ef þeir sjá að hún stríðir
gegn vilja tugþúsunda Reykvíkinga.
Endanleg ákvörðun borgarstjómar
verður ekki tekin fyrr en 5. maí.
Höfundur er einn af borgarfull-
trúum AlþýðubandaJaga.
Orð í tíma töluð
eftir Guðstein
Þengilsson
Hans Olav Fekjær:
Alkohol og narkotica.
— Myter og virkelighet.
Gyldendal. Oslo 1985.
Þessi bók barst mér í hendur
seint á síðasta ári. Höfundurinn
er norskur læknir, fæddur 1940
og lauk embættisprófi 1966. Hann
sérhæfði sig í geðlækningum, var
um skeið aðstoðaryfirlæknir við
heilbrigðisráð Óslóborgar, en er
nú yfirlæknir í geðsjúkdómum við
þá stofnun og hefur áfengi og
verkanir þess sem sérsvið.
1980 kom út eftir Fekjær bókin
„Ny viten om alkohol", og vakti
hún mikla ahygli í heimalandi hans
og víðar. Sú bók er væntanleg á
næstunni í íslenskri þýðingu.
Sú bók, sem hér um ræðir, er
einskonar framhald og útvíkkun á
„Ny viten om alkohol". Hún fjallar
um fleiri vímuefni og tengsl þeirra
við áfengisneyslu, sem er þó aðal-
efni bókarinnar. Þarna er komið
víða við og miðlað geysimiklum
fróðleik, og mig langar til að minn-
ast á aðeins örfá atriði af fjölmörg-
um.
Höfundur minnir á, að yfir 90%
af þeim rannsóknum, sem gerðar
hafa verið á vímuefnum eru frá
síðustu 20 árum. Aftur á móti eru
hugmyndir samtímafólks um vín
og vímuefni stöðugt byggðar á
eldgamalli alþýðutrú, sem varð til
á þeim tímum, þegar menn héldu
að jörðin væri flöt. Þessar æva-
fomu og goðsagnakenndu hug-
myndir um áfengið gera það að
eins konar helgitákni í félagsleg-
um samskiptum manna enn í dag.
Memvlyfta glasi af hinum ólíkustu
og ólíklegustu tilefnum. Baráttan
gegn vímunni er að verulegu leyti
fólgin í því að steypa þessu skurð-
goði af stalli og eyðileggja helgi
þess.
Meðal hindurvitna, sem enn em
í gangi, er að öll bönn og takmark-
anir örvi áfengisneyslu. Þetta virð-
ist þó einungis eiga við um áfeng-
ið, því að ekki trúa menn þessari
kenningu hvað hin svokölluðu
ólöglegu vímuefni varðar, enda
hefur Heilbrigðisstofnun Samein-
uðu þjóðanna löngu varpað henni
fyrir róða og bendir á takmarkan-
ir sem leið til að draga úr neyslu
áfengis sem og annarra vímuefna.
Önnur þjóðsaga er sú, að öl
verði bragðbetra (og gott ef ekki
hollara G.Þ.), ef styrkleiki þess er
aukinn, t.d. allt að 5%, og sé þess
vegna ákjósanlegri neysluvara.
Fekjær lýsir því hvernig gerð hafa
verið blindpróf í því að meta styrk-
leikann, menn látnir dæma um það
af bragðinu, hvar hann væri mest-
ur. Fylgni við rétt svör hefur ekki
reynst meiri en þótt krónu sé kast-
að.
í einum kafla bókarinnar er því
lýst hvemig fjölmiðlar, t.d. kvik-
myndir og sjónvarp geta stuðlað
að vinsamlegum viðhorfum til
áfengisneyslu. „Viðhorfið til
áfengisneyslurinar ræður hvort
eða hversu mikið drukkið er,“ seg-
ir Fekjær. „Það er útbreidd skoð-
un, að fíkn í vímuefni önnur en
áfengi stafi af eðli ávanaefnisins,
það hafi sjálft þann eiginleika að
valda fíkn, og að allir sem neyta
þess geti búist við að verða háðir
því. Ofugt við þetta er svo al-
mennt talið, að áfengisfíknin sé
ekki áfenginu sjálfU að kenna,
heldur að hér sé um afbrigðilegan
eiginleika að ræða hjá vissum hópi
manna. „Eru ekki allir sem neyta
áfengis í hófí lifandi sönnun fyrir
því, að það sé nokkum veginn
öruggt að neyta þess“ segja menn.
Þannig er viðhorfið til vímuefn-
anna með tvennu móti eftir því
hvert efnið er.“
í kafla þar sem rætt er hvað
mæli með og móti takmörkunum
Guðsteinn Þengilsson
„Nú hefur áfengis-
varnaráð sent öllum al-
þingismönnum þessa
stórfróðlegu bók, sem
hér hefur verið lítillega
kynnt, og gefur þeim
með því tækifæri til að
sýna, hvers fræðslan er
megnug.“
á áfengissölu segir svo: „Á að
beina áfengissölunni að veikari
drykkjum? Þetta er gömul kenn-
ing. Oft er líka auðveldara að
verða sér úti um léttari drykki.
En árangurinn hefur orðið sá, að
sé neysla þessara drykkja aukin,
leggst hún við fyrri neyslu, en
kemur ekki í staðinn fyrir hana.
Og ef beina skal neyslunni að veik-
ari drykkjunum, er nauðsynlegt
að takmarka jafnframt aðgengi
að hinum sterkari."
Að lokum skal þess getið, að
Fekjær ber saman umfjötlun um
tjón af völdum áfengis og afleið-
ingar kjamorkuslysa. Hann minn-
ist á Tsjemobyl-slysið, þar sem
30 manns létu lífið og mikið fjaðra-
fok varð út af. En hann hugsar
sér einnig kjarnorkusprengingu í
miðri Evrópu, sem ylli hundruðum
þúsunda dauðsfalla og yfír milljón
manns slösuðust og veiktust. Ef
slíkur atburður gerðist í raun og
vem, ylli hann að vonum ógn og
hryllingi, en líkumar fyrir honum
em óvemlegar, ef að öllu er farið
með gát. En raunveruleikinn er
sá, að á hvetju einasta ári verða
Evrópubúar fyrir samskonar slysi
af völdum áfengis, án þess að
mögla hætis hót.
Yfirvöld hafa oftast aðeins bent
á eitt úrræði, þegar minnst er á
vímuefnavandann. Það er fræðsla
og aftur fræðsla, sem í sjálfu sér
er nauðsynleg, en reynslan sýnir
að hún er ein sér eki nægileg. Nú
hefur áfengisvarnaráð sent öllum
alþingismönnum þessa stórfróð-
legu bók, sem hér hefur verið lítil-
lega kynnt, og gefur þeim með
því tækifæri til að sýna, hvers
fræðslan er megnug. Það kemur
Ijos, þegar rætt verður um ölfmm-
varpið á þinginu.
Áð síðustu er rétt að geta þess,
að von er á höfundi bókarinnar,
Hans Olav Fekjær, yfirlækni,
hingað til lands eftir nokkra daga.
Mun hann tala um vímuefnamál
og varnir gegn vímu og gæti það
orðið mönnum til enn frekari fróð-
leiks að kynna sér málflutning
hans.
Höfundnr er l&knir.
Flug/sigling ■ bíll 1988
- fjölmargir möguleikar -
Bjóðum upp á námskeið fyrír ferðalanga sem hyggj-
ast ferðast um Evrópu.
1. Undirbúningur ferðar.
2. Fjárhagsáætlun.
3. Skipulagning, áfangar og gististaðir.
4. Notkun korta og upplýsingaöflun.
5. Helstu sérákvæði í umferð erlendis.
6. Akstur á hraðbrautum.
7. Nokkrar hagnýtar ráðleggingar.
Námskeið verður á Hótel Loftleiðum, Reykjavík,
þriðjudaginn 8. mars kl. 17.45-23.00.
Ennfremur á Hótel Selfossi, laugardaginn
12. mars kl. 10.30-16.00.
Innifalið í námskeiðinu: Matur, kort og kennsla. Verð kr. 1.850,-
Aflsáttur fyrir hjón.
Nánari upplýsingar og innritun í Suðurgarði, Selfossi, sími
99-1666 eða á skrifstofu F.Í.B. í Reykjavík, sími 91-29999.
Ferðaskrifstofa Ríkisins
Námskeiðið erhaldið ísamráði við Umferðarráð.
|H B0RGAR
T SPÍTALINN
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR,
HJÍJKRUNARFRÆÐINEMAR
á 4. námsári
I vor losna stööur hjúltrunarfræðinga
á lvflæloningacieild A-6
Á deildinni eru 30 rúm, en henni er skipt í 2 ein ingar,
14 og 16 rúm. Deildarstjóri er á hvorri einingu fyrir sig,
en nokkur samvinna er á milli eininga.
Á deildinni fer fram hjúkrun sjúklinga meö heila-
og taugasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, meltingar- og
innkirtlasjúkdóma o.fl.
í santræmi viö hugmyndafræði og markmiö
hjúkrunarþjónustu Borgarspítalans byggir hjúkrun
á markvissri upplýsingasöfnun, áætlanagerð,
framkvæmd og mati.
Vinnuskipulag er í formi hóphjúkrunar.
Sérstök uppbygging varöandi fræðslu og stuöning
við starfsfólk á deildinni er framundan.
Á veturna eru nemendur frá ýmsum skóium á
deildinni og taka hjúkrunarfræðingar
Þátt í að leiöbeina þeim.
Skipulagöur aölögunartími er einstaklingsbundinn.
Vinnutími og vaktafyrirkomulag er sveigjanlegt.
Efþú hefur áhuga adþróa hæfniþína og þekkingu
á þessari deild veitir Margrét Björnsdóttir hjúkr-
unarj'ramkvæmdastjóri nánari upplýsingar í síma
91 - G96354.