Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 30

Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið. Börnin og fjöl- skyldan Erlendur Einarsson: Nokkrar staðre að gefnu tilefn Samfélag okkar hefur gjör- breytzt á tíma sem svarar til meðalævi íslendings. Níu af hveijum tíu landsmönnum búa í dag í þéttbýli, sem var nánast ekki til fyrir 80-90 árum. Breytt búseta helzt í hendur við gjör- breytta þjóðlífs- og atvinnu- hætti. Atvinnulífið hefur þörf fyrir starfskrafta allra þjóðfé- lagsþegnanna, yngri sem eldri, kvenna sem karla, ehda ekkert atvinnuleysi til staðar. Atvinnu- lífíð og fræðslukerfíð, það er menntunar- og þekkingarþörf fólks á líðandi stundu, heldur þorra þjóðarinnar við störf — utan heimilis — frá ungum aldri fram á efri ár. Staða heimilisins — staða fjöl- skyldunnar — hefur ekki síður breytzt. Stórfjölskyldan, sem setti svip á bændasamfélagið, þar sem þrjár kynslóðir héldu hópinn innan veggja heimilisins — og við bústörfín — heyrir nán- ast sögunni til. í þéttbýli níunda áratugarins býr eldra fólkið út af fyrir sig. Sú er og meginregl- an að hvert heimili hefur tvær fyrirvinnur; báðir foreldrar sinna störfum utan heimilis. Því veldur þrennt: 1) þörf atvinnulífsins fyrir starfskrafta beggja foreldr- anna, 2) gagnkvæmur réttur foreldra, konu og karls, til að nýta þekkingu og starfshæfni sína í önn þjóðlífsins og 3) fram- færslukostnaður heimilanna — miðað við nútíma lífsmáta og kröfur. Þær gjörbreyttu aðstæður í þjóðfélaginu, sem að framan greinir, hafa raskað stöðu fjöl- skyldunnar frá því sem áður var. Þær hafa ekki sízt fært uppeldi bama og unglinga í ann- an farveg en fyrir fáeinum ára- tugum. Þessar breytingar hafa gengið það hratt fyrir sig að samfélagið hefur ekki náð að aðlaga — svo vel sé — stöðu fjöl- skyldunnar breyttum þjóðlífs- háttum. Þetta hefur meðal ann- ars áhrif á stöðu og velferð þeirra bama, sem em að vaxa úr grasi á líðandi stund. í þeim efnum stendur sitt hvað enn til bóta, svo ekki sé sterkara að orði kveðið. Þorsteinn Pálsson, forsætis,- ráðherra, skipaði á síðastliðnu hausti samstarfsnefnd ráðu- neyta um fjölskyldumál. Skipun nefndarinnar er í samræmi við þann kafla í starfsáætlun ríkis- stjómarinnar sem fjallar um fjöl- skyldu- og jafnréttismál. Nefnd- inni var falið að gera úttekt og tillögur í ákveðnum málaflokk- um, sem varða fjölskylduna: skólamálum, dagvistarmálum, lífeyrismálum, tryggingamálum og loks að því er varðar sveigjan- legan vinnutíma. Nefndin skilar væntanlega tillögum í skóla- og dagvistarmálum í þessum mán- uði og í öðmm málaflokkum áður en árið er allt. í viðtali Morgunblaðsins við Ingu Jónu Þórðardóttur, form- ann fjölskyldunefndarinnar, víkur hún m.a. að skólamálum. Hún nefnir markmið eins og ein- setinn skóla, samfelldan skóla- dag og skólamáltíðir. Hún talar jafnframt um nauðsyn „viðveru“ í skólum fyrir böm á aldrinum 6-9 ára, utan kennslutíma á hefðbundnum vinnutíma for- eldra. Einnig um nauðsyn þess að efla samstarf foreldra og skóla, m.a. með aðild foreldra að skólastjómum. Og loks um- ferðaröryggi á vegferð bama milli heimila og skóla. I því sam- bandi drap hún á svokallaða „grenndarskóla", það er fleiri skóla og smærri, staðsetta í íbúðarhverfum. Eftirspum dagvistar fyrir böm, langt umfram framboð, er víða vandamál. Þar er við margs- konar vanda að stríða. Meðal annars skort á sérhæfðu starfs- fólki, sem að hluta til tengist starfskjörum, að dómi Ingu Jónu. Starfskjörin skarast síðan við ijárhagsstöðu dagvistar- stofnana, en rekstrarkostnaður þeirra er að þremur fjórðu hlut- um borinn uppi af viðkomandi sveitarfélögum en einum fjórða af forráðamönnum bamanna. Inga Jóna segir i viðtalinu: „í starfsáætlun ríkisstjómar- innar er vikið að greiðslufyrir- komulagi dagvistar bama og að athugun á því, hvemig nýta megi bamabætur [trygging- anna] til að mæta þörfum for- eldra . . . Fyrirgreiðsla í þessu formi gerði foreldrum þá betur kleift að mæta kostnaði vegna dagvistar og ákveða sjálfír hvar þeir kaupa slíka þjónustu". Önnur athugunarefni fjöl- skyldunefndarinnar, skattamál, lífeyris- og tryggingamál sem og sveigjanlegur vinnutími varða ekki síður það yfírlýsta markmið ríkisstjómarinnar, að styrkja stöðu fjölskyldunnar og stuðla að aukinni velferð bama í sam- félaginu. Þetta viðfangsefni veg- ur þyngra í lífi og hvunndegi hins almenna manns en flest önnur. Það skagar, ef grannt er gáð, upp úr ýmsum „ijúpumál- um“, sem fá þó meiri umfjöllun. Það gæti og orðið farvegur fyrir aukinn trúnað milli almennings og stjómmálamanna. Það er kannski að bera í bakka- fullan lækinn að stinga niður penna og koma á framfæri nokkrum atrið- um um málefni Iceland Seafood Corporation og einstaklinga sem því tengjast — eftir þá fjölmiðla- hrinu, sem gengið hefur yfír síðustu daga. Ég finn mig hins vegar knú- inn til þess að útskýra mín sjónar- mið, þar sem umfjöllunin hefur ver- ið meira og minna brengluð og margt sem fram hefur komið á við lítil rök að styðjast. Mér er það ekkert launungar- mál, að umræðan um þessi mál hefur persónulega valdið mér mikl- um sárindum, en einnig vonbrigðum vegna samvinnuhreyfíngarinnar, en henni hefi ég helgað starfskrafta mína í 45 ár og þar af gegndi ég einu mesta trúnaðarstarfí hreyfíng- arinnar í 32 ár sem forstjóri Sam- bandsins. Ekki er ofsögum sagt, að síðustu dagamir hafí verið einskonar svart- ir dagar fyrir samvinnufólk á fs- landi, vegna þeirrar umræðu sem fram hefur farið í tengslum við Ice- land Seafood Corporation. Brott- rekstur þeirra Eysteins Helgasonar forstjóra fyrirtækisins og Geirs Magnússonar aðstoðarforstjóra kom skriðunni af stað. Ekki ætla ég á þessu stigi að tjá mig efnis- lega um þessa ákvörðun en það hefí ég gert innan stjómar ISC. Astæðumar fyrir því áð ég hefí dregist inn í þetta mál em fyrst og fremst tvær. í fyrsta lagi vegna þess að ég sem stjómarmaður greiddi atkvæði gegn því að Ey- steini Helgasyni og Geir Magnús- syni væri sagt upp störfum fyrir- varalaust og í öðm lagi vegna þess að launamál fyrrverandi forstjóra Iceland Seafood Corporation komu inn í opinbera umijöllun um málið sl. sunnudagskvöld á mjög svo óvið- eigandi hátt. Ég hafði hins vegar sem fyrrverandi stjómarformaður ISC samið skv. umboði stjórnar fé- lagsins um laun forstjórans meðan hann gegndi því starfí. Ég verð að segja, að líkt og alþjóð var ég agn- dofa að horfa og hlusta á þessa fregn í sjónvarpinu á Stöð 2. Vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur um þessi launamál tel ég mér skylt að greina frá nokkmm stað- reyndum. Varðandi launaákvarðanir til for- stjóra ISC, þá var það föst venja að endurskoða launin árlega. Seinni árin gerði ég mér far um að kynna mér hve laun fyrir hliðstæð störf sem hér um ræðir væm í Banda- ríkjunum. Studdist ég við sérstakar skýrslur sem árlega em útgefnar um launakjör yfirmanna í hinum ýmsu atvinnugreinum þar vestra. Seinni árin þegar hagur fyrirtækis- ins hafði snúist við og batnað taldi ég eðlilegt að forstjórinn fengi nokkuð hærri laun en þessar við- miðanir, þar sem stjómin var mjög ánægð með störf forstjórans. Þess skal getið, að síðustu sex árin var auk hinna föstu launa, sem árlega fóm hækkandi, samþykkt að fyrir- tækið greiddi ákveðna kostnaðarliði fyrir forstjórann. Segja má að upphaf athugunar á þessum þætti málsins sé það, að sl. haust lét Eysteinn Helgason þau orð falla við mig að laun sín væru ekki í takt við laun, sem stjómend- ur hliðstæðra fyrirtækja í Banda- ríkjunum hefðu. „Ég myndi vera ánægður ef laun mín væm helming- ur af því sem forveri minn hafði,“ sagði Eysteinn. Þetta varð m.a. til þess að ég fór að athuga mín gögn um launamál fyrrverandi forstjóra ISC og tók saman stutta greinar- gerð. Eðlilegt var að stjómarmenn hefðu fulla vitneskju um hvað hafði verið samið. Þessa stuttu greinar- gerð afhenti ég síðan stjórnarmönn- um á óformlegum fundi fyrri hluta nóvember. Vegna ummæla nýs for- stjóra ISC fannst mér nauðsynlegt að fá upplýsingar um heildarlauna- greiðslur fyrrverandi forstjóra. Þess vegna óskaði ég eftir því í símtali 10. nóv. sl. við forstjóra ISC að hann gæfí mér upp launagreiðslur til fyrrverandi forstjóra sl. 5 ár. Mér fannst skylt að upplýsa stjóm- armenn sem best um þessi mál, fyrst þau voru komin á dagskrá. Formlegur stjómarfundur var svo haldinn í stjóm Iceland Seafood vegna launamálanna 18. nóvember sl. Á þessum fundi óskaði ég eftir því, að endurskoðandi ISC, hr. San- ford Snyder, kæmi til Reykjavíkur til þess að unnt væri að fá botn í þessi launamál. Ekki varð úr því að Snyder kæmi til íslands þá. Þess í stað skrifaði hann tvö bréf til fyrrv. forstjóra og formanns stjóm- ar ISC. Voru bréfín dags. 30. nóv. og 7. desember. Eignaupptaka ef ný fé- lög fá ekki hluta eigna - segir Sesselja Hauksdóttir „Hver einstaklingur eða hver hópur á sinn þátt í því að byggja upp eignir síns félags. Löggjafinn leyfir honum að stofna nýtt félag og ef hann færi eignalaus í þetta félag finnst mér að í raun sé um eignaupptöku að ræða, þar sem hans framlag nýtist honum ekki lengur. Hingað til hefur verið hægt að skipta um félög og maður missir ekki réttindi við það, þar sem maður gengur inn í eignamyndun annarra félaga,“ sagði Sesselja Hauks- dóttir, aðspurð um helstu rök- semdir fyrir þvi að eignum Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar sé skipt upg. Hún ásamt Guðmundi Vigni Oskars- syni stendur að meirihlutaáliti nefndarinnar. Hún sagði að meirihluti nefnd- arinnar teldi sig með tillögum sínum ganga út frá félagslegum eignarétti hér eftir sem hingað til nema hvað eignarétturinn færðist á milli félaga. Þau teldu að skipta bæri upp eignum Starfsmannafé- lagsins eftir höfðatölureglu, enda hefði fólk full réttindi hvort sem það væri í hálfri eða heilli stöðu, sem og þegar það hæfí störf eða færðist á milli félaga. Ef taka hefði átt mið af framlagi til félags- ins, þá mætti eins vel taka mið af mismunandi háum launum, sem væri ffáleitt að þeirra mati. Sesselja sagði alveg rétt að ekki væri vitað um nein fordæmi fyrir svona eignatilfærslu, en ein- hvem tíma yrði allt fyrst. Leitað hefði verið eftir fordæmum frá Norðurlöndunum og í öðru lagi hvort forsendur væm einhvers staðar þar svipaðar og hérlendis, þ.e.a.s. með gildistöku samnings- réttarlaganna þar sem félögum væri heimilað að stofna sérfélög, en þar væri um að ræða grundvall- arbreytingu á stéttarfélagslegri uppbyggingu og væm þessar til- lögur eðlilegt framhald þeirra. „Við fengum aldrei frá Norðurl- öndunum, nema svar þess efnis að eignaskipti þekktust ekki, en ekki svar við því hvort forsendur væm þær sömu og hafa orðið með gildistöku samningsréttarlag- anna, þannig að ég tel þetta svar ómarktækt," sagði Sesselja. Hún sagði að ekki hefði verið boðið upp á það af hálfu Starfs- mannafélagsins að hin nýju félög gætu haft samstarf við það um not af eignum félagsins. Hún væri og ekki viss um hvort áhugi á því væri fyrir hendi hjá þeim hópum sem hugsuðu sér að stofna ný félög, enda teldi hún að það yrði erfitt í framkvæmd. „Ég vil hvetja alla til þess að kynna sér vel þessi mál í frétta- bréfí Starfsmannafélagsins, hugsa þau ofan í kjölinn og mæta á fundinn," sagði Sesselja að lok- um. Haraldur Hannesson: Eignirnar félagslegar „Það er gífurlegur misskiln- ingur að tengja saman þetta mál og svo samningsréttarlögin og með því er verið að rugla saman tveimur algjörlega óskyldum hlutum. Það að þau sem eru fylgjandi þessari tillögu segi að andi lagana leiði af sér að svona eignauppskipti verið er auðvitað ekkert annað en misskilningur,“ sagði Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Hann sagði að auk þess gæti það á engan hátt talist sanngimi að skipta eigunum upp eftir einhverri höfðatölureglu, það væri ekki hægt að setja jafnaðarmerki á milli þess að hafa verið 32 ár í félaginu og unnið sjálfboðaliðastörf á vegum þess og vera nýgenginn í það. „Það er búið að kanna það á öll- um Norðurlöndunum hver fram- gangurinn er þegar fólk skiptir um félag og svona eignaskipti eru al- gerlega óþekkt fyrirbæri þar,“ sagði Haraldur. Hann sagði að þess-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.