Morgunblaðið - 04.03.1988, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
H
54
Er nauðsynlegt að vaða
hér um allt á svo ókristi-
legum tíma dagsins?
HÖGNI HREKKVlSI
EM H/4KJN El? LÉLEGUR VE/E>lKÖraJR..' "
Um uppgræðslu og skógrækt
Til Velvakanda
Þegar fjallað er um málefni
bænda er oft minnst á skógrækt
sem hugsanlega búgrein. Komið var
inná þetta í viðtalsgrein sem birtist
fyrir skömmu f Morgunblaðinu. Þar
var málið lagt þannig upp að hag-
kvæmara hlyti að vera að bændur
ræktuðu landið upp og stunduðu
skógrækt heldur en að framleiða
kjöt sem síðan fer beint á haugana.
Uppgræðsla og skógrækt hlýtur að
teljast skynsamlegri kostur. Ég tel
að styrkja þurfi bændur til að
stunda uppgræðslu og skógrækt
gegn því að þeir hætti hefðbundnum
búskap. Þannig gæti náðst mikill
árangur í uppgræðslu landsins.
Eins er nauðsynlegt að friða stór
landsvæði fyrir beit ef einhver raun-
hæfur árangur á að nást. Alltof
miklir Qármunir og vinna hefur
farið í það hjá skógræktarmönnum
að girða af stór svæði. Þess í stað
ætti að friða landsvæði fyrir beit
með tilliti til náttúrulegra vegar-
tálma, friða svæði sem afmarkast
af ám eða fjallgörðum. Of mikið
skipulagsleysi hefur ríkt á þessu
sviði, landi og gróðurfari til mikils
tjóns.
Áhugamaður um landgræðslu
Oþarft að færa sumardaginn fyrsta
Til Velvakanda.
Sumardagurinn fyrsti, þessi dag-
ur er séríslenskur. Engin þjóð á sér
sumardaginn fyrsta nema við. Út-
lendir gestir hrífast af þessum sið
okkar, þegar saga hans er útskýrð
og tengd lífi þjóðarinnar.
Þessi dagur er fast ofinn í þjóðar-
sálina. Tilhlökkun, vissa um að
sumarið er í nánd.
Svona dag og sögu hans á að
leyfa okkur að rækta og halda há-
tíðlegan, þótt einhveijir tölvufræð-
ingar stingi upp á að leggja hann
niður. Þeir bera því við, að erfítt
sé að hafa frídag í miðri viku. Það
kostar þá að mata tölvuna í sam-
ræmi við íslenska hefð. Þeir neyð-
ast til að hugsa.
Hvemig er með 1. maí, 17. júní,
jóladag og 1. jan., eru þeir alltaf á
mánudögum? Mætti ekki alveg eins
færa þá til og lögbinda þá á mánu-
dögum?
Forrit tölvu er hægt að laga að
staðreyndum. Mörgum finnst gott
að eiga frídag í miðri viku. Eiga
þeir ekki sinn rétt? Sumardagurinn
fyrsti er líka nefndur dagur bam-
anna. A að svipta þau þessum gleði-
degi?
Eða kemur þessi ósk um færslu
sumardagsins fyrsta fram vegna
krafna þeirra einstaklinga, sem vilja
stöðugt fá lengri tíma til drykkju
og tilheyrandi timburmanna? Þá
bætist þriðjudagurinn við helgina
til að sofa úr sér. Ekki er gott að
vita það með vissu, en svo mikið
veit ég, að tölvur er hægt að laga
. að íslenskum hefðum og þörfum.
Leyfið okkur íslendingum að
hafa sumardaginn fyrsta í friði á
fimmtudögum. Það er hans dagur.
Gamall verkstjóri '
Víkverji skrifar
Hingað kom á dögunum norskur
rithöfundur, sem samið hefur
leikrit, sem eitt af litlu leikhúsunum
í höfuðborginni hefur tekið til sýn-
inga. Á eftir sýningu leikritsins fóru
fram umræður um efni þess. Það
vakti undrun tíðindamanns
Víkveija að umræðumar fóru að
miklu leyti fram á íslenzku og skildi
höfundurinn eðlilega lítið hvað fram
fór!
XXX
Víkingar fóru sem kunnugt er
í keppnisferð til Sovétríkjanna
um síðustu helgi. Stóðu þeir sig
með sóma í leik gegn sovézka meist-
araliðinu í handknattleik, ZSKA
Moskvu.
íslenzkir íþróttaflokkar hafa lent
í ýmsum uppákomum í keppnis-
ferðum til Sovétríkjanna. Er
skemmst að minnast knattspymu-
landsliðsins, sem hvorki fékk vott
né þurrt í tæpan sólarhring eftir
að hafa spilað landsleik í fyrra-
haust. Því höfðu Víkingamir va-
rann á og báðu hinn þekkta kjöt-
kaupmann Hrafn Backmann í Kjöt-
miðstöðinni að taka saman fyrir sig
matarpakka fyrir Rússlandsferðina.
Var enginn skortur á þjóðlegum
mat, hangikjöti og góðum íslenzk-
um þorramat í ferðinni og ekki
spillti að fá Islenzka svaladrykki
strax eftir erfiðan leik, að sögn
tíðindamanns.
XXX
Seinkanir á flugi hafa verið í
fréttum vegna vetrarólympíu-
leikanna í Calgary. Miðað við
reynslu fjölmargra hefðu þessar
seinkunir ekki átt að koma farar-
stjóm ólympíuliðsins á óvart, því
það virðist vera regla, frekar en
undantekning, ef flugvéiar Flug-
leiða eru á áætlun. Sérstaklega á
þetta við um Norður-Atlantshafs-
flugið.
Víkveiji þurfti fyrir skömmu að
fara til Kanada og var ferðaáætlun-
un sú að fljúga til New York síðari
hluta dags, fara síðan til Boston
um kvöldið og dvelja þar um nótt-
ina, og fara áfram morguninn eftir
til Kanada.
Daginn fyrir brottfor fékk
Víkveiji upphringingu frá Flugleið-
um og honum tilkynnt að fluginu
hefði verið flýtt frá kl. 18 til 17.
Daginn eftir stóð þessi ferðaáætlun,
og raunar voru Flugleiðir þá enn
að leita uppi farþega til að tilkynna
þeim þessa breytingu. Svo Víkveiji
lagði af stað til Keflavíkur kl. 15
eins og ráð var fyrir gert. Þegar
þangað kom var búið að seinka
fluginu til kl. 20.30 og ljóst að
ferðaáætlanir færu allar úr skorð-
um. Það fór líka svo að vélin til
Boston var farin þegar íslendingar
vom loks komnir gegnum vega-
bréfaskoðun á Kennedyflugvelli og
Flugleiðir urðu að greiða hótelgist-
ingu fyrir á annan tug manna sem
einnig misstu af tengiflugi frá New
York um kvöldið. Ef þetta er regla
frekar en undantekning er ekki
nema von að tap sé á Atlantshafs-
fluginu.
I Kanada þurfti Víkveiji að hafa
samband við Flugleiðir í Ameríku
til að breyta bókunum. Á farseðlin-
um em taldar upp Flugleiðaskrif-
stofur í öllum stærstu borgum
Bandaríkjanna og allstaðar gefið
upp sama gjaldfría símanúmerið:
1-800-223-5500. í heilan dag
reyndi Víkverji að hringja I þetta
númer, og fékk til þess alla mögu-
lega aðstoð, en aldrei svaraði. Á
endanum kom hann auga á annað
númer á skrifstofunni í New York
og gat bjargað sínum málum.
Víkveiji hefur síðan frétt af svipuð-
um viðureignum annara við þetta
símanúmer.
Víkveiji vill að endingu beina
þeim eindregnu tilmæium til Flug-
leiða að fyrirtækið athugi sinn
gang. Þegar hrakfallasögur af
þessu tagi em að verða regla frek-
ar en undantekning er ljóst að mjög
grefur undan trausti og viðhorfi til
fyrirtækisins og á þessum tímum
harðrar samkeppni er slíkt síst af
öllu það sem Flugleiðir þarfnast.