Morgunblaðið - 22.03.1988, Side 14
14
MORGUNBLAÐIB, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
EMIL ER GÓÐUR DRENGUR
Karl Hólm Karlsson og Haraldur Freyr Gíslason í hlutverkum Alfreðs og Emils.
Leiklist
Hávar Sigurjónsson
Leikfélag Hafnarfjarðar:
Emil í Kattholti
Höfundur: Astrid Lindgren
Þýðandi: Vilborg Ðagbjarts-
dóttir
Leikstjóri: Viðar Eggertsson
Leikmynd: Stefán Snær Grét-
arsson
Búningar: Alda Sigurðardóttir
Lýsing: Valdemar Gestsson
Leikfélag Hafnarfjarðar fer
skynsamlega að ráði sínu þegar
leikrit um Emil í Kattholti er val-
ið til sýningar. Framboð á leiksýn-
ingum fyrir börn hefur verið harla
lítið í vetur, atvinnuleikhúsin hafa
a.m.k. ekki sinnt þessum áhorf-
endahópi í vetur fremur en endra-
nær. En þetta er gömul lumma
og þreytandi ti lengdar, þó sjálf-
sagt sé að viðra hana reglulega
meðan ekki verður breyting á.
Leikfélag Hafnarfjarðar og fleiri
sem róa á sömu mið njóta þó
góðs af á meðán. Ennfremur er
rétt að geta þess að Emil í Katt-
holti á íslensku leiksviði er ný-
lunda; til þessa höfum við aðeins
séð Emil í sjónvarpi, auk þess að
lesa um hann bækumar að sjálf-
sögðu, sem komið hafa út á
fslensku.
Leikgerðin eftir sögunum um
Emil sýnist mér ágætlega vel
heppnuð. Atriðin eru hæfílega
löng og í flestum þeirra er nægi-
lega mikið að gerast til að halda
athygli áhorfendanna fanginni.
Flest atriðin sýnast mér fengin
úr sögunni Enn lifír Emil í Katt-
holti og er það gott, því sú saga
er hugsanlega tiltölulega minnst
þekkt og því um ný skammarstrik
að ræða fyrir einhveija af áhorf-
endum. Viðar Eggertsson leik-
stjóri hefur komið upp ágætri leik-
sýningu fyrir krakka með Emil í
Kattholti, og er þá tekið fullt til-
lit til þess efniviðar sem hann er
með í höndunum. Hér má gera
nokkrar hefðbundnar athuga-
semdir; framsögn sumra leikenda
er á köflum ábótavant, söngur
hefði að skaðlausu mátt æfast
betur og söngtextar fara fyrir
ofan garð og neðan. Á móti þessu
kemur aldeilis frábær Haraldur
Freyr Gíslason í hlutverki Emils
sjálfs, kraftmikill og líflegur, eðli-
legur og óþvingaður, semsagt rétt
eins og Emil á að vera. Karl Hólm
Karlsson var sannfærandi í hlut-
verki Alfreðs, Kristín Helgadóttir
var hugþekk Lína; þó set ég
spumingarmerki við þá túlkun,
því af bókunum fínnst mér mega
ráða að Lína sé heldur lítilsigldari
persóna en hér er sýnt. Svanhvít
Magnúsdóttir og Kristján Einars-
son sem foreldrar Emils komast
ágætlega frá sínu, Kristján mætti
þó vanda framsögn ögn betur.
Aukapersónur allar eru skýrar og
skemmtilegar og atriðið á mark-
aðnum í lok sýningarinnar veru-
lega skemmtilegt. Loks vil ég
hrósa bæði hestinum Lúkasi og
kúnni Rauðku fyrir frumiegt útlit
og sannfærandi leik. Svona hug-
myndir ganga upp vegna þess að
þær eru djarfar og settar fram
óhikað.
Leikmynd Stefáns Snæs hefur
yfír sér þennan bamaleikritsblæ,
sem í sjálfu sér er allt í lagi. En
hugmyndin í heild sinni er þungla-
maleg og skiptingar milli atriða,
bæði of margar og tímafrekar
sumar hveijar. Ljósaskiptingar
með myrkvunum á milli atriða
klippa sýninguna í óþarflega
marga búta og hindra að spenn-
andi tengsl verði milli leikenda
og áhorfenda. Viðar hefur aftur
á móti stjómað þessu vel og gang-
ur sýningarinnar er góður með
þessu lagi. Alda Sigurðardóttir á
ekki lítinn þátt í útliti sýningar-
innar með búningum sínum. Þeir
em trúir hugmyndum okkar um
Emil í Kattholti. Emil í Kattholti,
þeirra í Hafnarfírði, er ekki galla-
laus, en hann er engu að síður
góður. Ég kann ágætlega við
hann eins og hann er.
Karlakór
Reykjavíkiir
Ný gerð húsa:
Eitt hús innan í öðru
Tónllst
Jón Ásgeirsson
Árlegir tónleikar Karlakórs
Reykjavíkur fyrir styrktarfélaga
kórsins fóru fram í Langholtskirkju
í vikunni sem leið, en kórinn stefnir
á ferð til ísraels með þátttöku í söng-
móti þar um páskana.
Á efnisskrá kórsins voru íslensk
og erlend lög og flest þeirra gömul
og góð. Þama gat að heyra af
íslenskum lögum Sverri konung, eft-
ir Sveinbjöm Sveinbjömsson, þijár
þjóðlagaraddsetningar eftir Jón
Leifs, þijú lög eftir Sigvalda Kalda-
lóns, Sofðu unga ástin mín eftir
Björgvin Guðmundsson og þijár limr-
ur eftir Pál P. Pálsson.
Undirritaður er ekki alveg sáttur
við að kalla útfærslu Ragnars H.
Ragnars á Sverri konungi raddsetn-
ingu. Hér ætti frekar við orðið „um-
ritun", því frumgerð lagsins er að
mestu látin halda sér. Hér er ekki
við Ragnar H. Ragnars að sakast,
heldur hefur ekki verið komið skikk-
an á þau mál, hvað menn vilja kalla
umritanir og útsetningar. Raddsetn-
ingar Páls P. Pálssonar á lögum Sig-
valda Kaldaións ganga á hinn bóginn
í berhögg við frumgerðina, þó ekki
svo að um nýja raddsetningu sé að
ræða, heldur að oft er skotið inn
ýmsum breytingum eins og t.d. í
pfanómillispilunum og undirleiknum,
svo sem gert var í laginu Heimi, er
beinlfnis truflar þann sem vanur er
frumgerðinni og auk þess að vand-
fundið er hvaða nauðsyn sé á slfkum
brejrtingum.
Best sungin voru skandinavfsku
lögin t.d. Sæfarinn við kolgröfína
eftir Palmgren, Hjartans sang eftir
Sibelfus og Aftenstemning eftir Carl
Nielsen. Þá voru þijár limrur eftir
söngstjórann vel fluttar, enda margt
f þeim tónsmfðum vel gert og gaman-
samt áheymar.
Einsöngvarar með kómum vom
Sigmundur Jónsson, er söng einsöng
í Sofðu unga ástin mín eftir Björg-
vin Guðmundsson og Guðmundur Þór
Gfslason í Heimi eftir Kaldalóns, en
báðir em góðir raddmenn þó Guð-
mundur hafí auðheyrilega meiri
reynslu sem einsöngvari. Þriðji ein-
söngvarinn, Haukur Páll Haraldsson,
einnig úr hópi kórfélaga en hefur
síðan 1984 stundað söngnám í Vínar-
borg, eftir söngnám hjá Snæbjörgu
Snæbjamardóttur hér heima, söng
einsöng f þremur lögum, Sprengi-
sandi eftir Kaldalóns, Agnus Dei eft-
ir Bizet og dansinum um gullkálfínn
eftir Gounod. Haukur er vel á vegi
staddur sem einsöngvari, hefur mjög
góða rödd er naut sín best í Agnus
Dei. Fjórði einsöngvarinn var gestur
kórsins, bandarísk stúlka, Marilee
Williams, eiginkona Hauks og söng
hún nokkra söngva frá Vín og er þar
á ferð efnileg söngkona, sem fróðlegt
væri að heyra spreyta sig á viða-
meiri tónlist en óperettulögum.
Auk aðalstjómandans Páls P.
Pálssonar stýrði Oddur Bjömsson
kómum í tveimur finnskum lögum
og gerði það ágætlega en undirleik-
ari með kómum var Catherine Will-
iams, sem kemur nú til starfa með
kómum í stað Guðrúnar A. Kristins-
dóttur. Catherine Williams er góður
pfanóleikari og reyndur undirleikari,
svo sem vel kom fram í dansinum
um gullkálfinn og í limmnum eftir
söngstjórann.
Hús af nýstárlegri gerð var
kynnt blaðamönnum s.l. fímmtu-
dag. Hafsteinn Ólafsson hefur
hannað og byggt tvöfalt hús þar
sem íbúð er byggð inni i eins kon-
ar garðhýsi. Eru veggir ytra húss-
ins hugsaðir sem veðurveggir og
eru að miklu leyti úr gleri. Húsið
er byggt úr timburgrind, sem
klædd er veður- og eldþolnum þil-
plötum. Hugmyndina að þessari
gerð húsa fékk Hafsteinn eftir að
hafa kynnt sér vandamál vegna
óþéttra húsa ó Grænlandi.
Þetta hús er í raun tvöfalt, þar sem
annað er byggt inni í hinu. Ætlun
Hafsteins er, að rýmið á miili hús-
anna geti nýst eftir óskum hvers og
eins, t.d. sem þvottahús, leiksvæði,
eða garðhús. Rýmið á milli húsanna
er gert ráð fyrir að hita með affalls-
vatni úr innra húsinu.
Hafeteinn sagði á blaðamanna-
fundi, þar sem hann kynnti húsið,
að fyret um sinn verði það smíðað í
Danmörku af Islendingi sem þar býr
og rekur tréiðnaðarfyrirtæki. Hver
hlutur er þá sniðinn til eftir teikningu
og síðan er allt efíii í húsið sent hing-
að til lands og á byggingarstað f
gámi.
Morgunblaðið/Ami Sœberg
Hafsteinn Ólafsson höfundur
tvöfalda hússins sýnir blaða-
mönnum ytri hluta hússins.
Ytri veggir hússins verða klæddir
eldföstum þilplötum með varanlegum
Iit. Er þannig gengið fra ytra húsinu
að plastlistar með gúmmfþéttingum
koma utan a öll eamskeyti og skrúf-
ast í burðargrindina og gera veggina
þétta. Á þann sama hátt eru rúðum-
ar festar f buröargrindina, þannig
að í húsinu em engir hefðbundnir
gluggar. Innri veggurinn stendur
einum til þremur metmm innar, svo
að hann verður aldrei fyrir veðri.
Verð miðast við að í húsinu séu
frágengin gólf í innra húsi, fullbúnir
ytri útveggir með hurðum og gleri í
giuggum. Þak frágengið á bæði ytra
og innra húsi. Það sama gildir um
innri útveggi, þeir verða fullbúnir að
utan, einangraðir og með lagnagrind
að innan, með hurðum og gleri f
gluggum.
Húsin verða fáanleg bæði í stöðl-
uðum stærðum og eftir sérstökum
óskum. í byijun er boðið upp á
tveggja til fimm herbergja stærðir.
Fermetraflöldi fer eftir óskum kaup-
enda, einnig hlutfallið á milli stærðar
ytra hússins og þess innra. Húsin
eiga að kosta, komin á byggingar-
stað, frá kr. 6-700.000 upp í u.þ.b.
1.100.000. Afgreiðslutími er áætlað-
ur um tveir mánuðir.
Arkitektamir Hrafnkell Thorla-
cius og Bjöm Emilsson teiknuðu
húsið eftir hönnun Hafsteins Olafs-
sonar. Bjöm Ólafsson verkfræðingur
annaðist burðarþolsútreikninga.