Morgunblaðið - 22.03.1988, Page 20

Morgunblaðið - 22.03.1988, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988 KATZENBERG DÁÐADRENGURINN HJÁ DISNEY Katzenberg við upptöku Big Business, með Lily Tomlin, í miðið, og Bette Midler. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Það eru breyttir tímar hjá Di- sney-fyrirtækinu. Fyrir örfáum árum var kvikmyndaarmur þess ákaflega rislár, hálfgerður brandari ef undan eru skyldar vandaðar teiknimyndir, sem af og til stungu upp kollinum, svo og einstaka fjölskyldumynd sem dró að sér athygli. Við svo búið sáu forráðamenn þess að mátti ekki standa og stofnað var nýtt kvikmyndaf ramleiðsluf yrirtæki, Touchstone, innan Buena Vista, dreifiarms Disney-veldisins. Markmið þess var að hefja fram- leiðslu þess efnis sem vinsælast var — og er — á markaðnum — fullorðinsmynda. Undir gamla merkinu er haldið áfram sem fyrr að gera gott barna- og fjöl- skylduefni. En Touchstone-nafninu fylgdu engir töfrar. Fyrstu myndirnar gengu illa enda toppfólkið í kvik- myndaborginni ekki auðfúst að ganga til samvinnu við hið nýja „spurningarmerki" hins þung- lamalega Disney-risa. Það var þá sem ungur stjórnandi hjá Paramount var ráðinn til að veita Touchstone forystu og sú ráðn- ing hefur reynst heldur betur happadrjúg. Katzenberg hefur gert kraftaverk, á örfáum árum rifið kvikmyndaarm Disney úr stöðnun og fábreytni í næst- stærsta kvikmyndaveldið í Holly- wood. Hér á eftir verður þessi galdramaður, umtalaðasti stjórn- andi í Hollywood þessa dagana, kynntur nánar. lukkan er sjö að morgni þegar svartur Mustang sveigir inná Ventura-hrað- brautina. Meðan Los Angeles sef- ur úr sér dreggj- ar laugardagsnæturinnar og a.m.k. tvær milljónir láta sig dreyma auð- fengna frægð og frama, heldur Jef- frey Katzenberg til vinnu sinnar með símann við hendina og 500 númer í kollinum. Katzenberg selur drauma. Walt Disney-kvikmynda- verinu, sem hann veitir forstöðu, vegnar betur en nokkurn óraði fyr- ir. 1984, er hann kom til skjalanna, maraði Disney í hálfu kafi, í níunda sæti af níu dreifingarrisum. í árslok 1987, knúið áfram af jólasmellinum Three Men and a Baby, skaust Disney framhjá Wamer Bros uppí annað sæti fyrir árið í heild. Hinn 37 ára Katzenberg á sér ekki drauma, heldur markmið. Og Para- mount, hvar hann eyddi fyrstu tíu árum sínum ! Hollywood og reis uppí starf forstjóra framleiðslu- deildar, er enn, ólíðanlega, í fyrsta sæti. Er Mustanginn rennur í hlaðið á kvikmyndaverinu — Katzenberg seldi Porsche-bifreið sína eftir að hann hafði næstum kálað sér við að hringja í símann og skipta um gír samtímis — hefur hann lokið fimmta símtali dagsins. Þar sem dagur er að rísa byrjaði hann á austurströndinni, og á Robert Cort, sem er þar önnum kafinn að fram- leiða mynd með Tom Cruise fyrir Disney. „Þú þarft ekki að semja sögur um Jeffrey," segir Cort. „Ég get gengið að honum klukkan sex á laugardagsmorgni á skrifstofunni og hvar sem hann fer tekur hann starfið með sér. Hann er ótrúlega afkastamikill." Hann er meistari tveggjamínútna símtala. „Hæ, hvemig gengur?“ byijar hann. Hann á 600 slík símtöl á viku sem gefa honum nauðsynlegar upplýs- ingar til að hafa betur í þeim iðn- aði sem hann hefur valið sér að lífsstarfi. „Til að byija með langar þig að gera grín að þessum kvikmynda- versstjóra sem þeytist fram úr sjálf- um sér,“ segir Ted Danson, sem neitaði Three Men and a Baby í þrígang áður en Katzenberg hrein- lega þjarmaði að honum uns hann tók að sér að leika með þeim Tom Selleck og Steve Guttenberg. „At- orka hans er svo ógnvekjandi til að byija með að þú óskar að finna á honum snöggan blett.“ Að venju er Mustanginn fyrstur á stæðið. Á meðan Katzenberg var hjá Paramount — áður en hann kom til Disney að reka kvikmyndaverið fyrir Michael D. Eisner, hinn nýja stjómarformann Disney-veldisins - gerðu menn sér það til gamans að reyna að vinna lengur eða mæta fyrr en Katzenberg. Hann var aldr- ei sigraður. „Og það sem verra var,“ segir leikarinn og leikstjórinn Leonard Nimoy, „þú snertir vélar- hlífina á bílnum hans og hún var þegar orðin köld.“ Sem ungur stjómandi hjá Para- mount, tókst honum að ná síma- sambandi við Sam Cohn, hinn vel þekkta umboðsmann í New York, þrátt fyrir þá staðreynd að Cohn er alræmdur fyrir að svara ekki í síma. Katzenberg skipaði einkarit- ara sínum að hringja í Cohn á 10 mínútna fresti, dagana út og inn. „Ég er með leðurhúð", segir hann. „Synjun er hluti framvindunnar. Ef ég tæki það persónulega vissi ég ekki hvemig ég ætti að komast framúr á morgnana. Ég er svo van- ur neitunum að mér bregður illa ef einhver segir ,já“. Barry Levin- son var fyrsti leikstjórinn sem við sendum „Good Morning, Vietnam“. Hann sagði já. Það gerist í fimm skipti af 10.000. Ef ég þarf að hringja í einhvern á tíu mínútna fresti, daginn út og inn, geri ég það. Sam Cohen lærði það eftir fyrstu mánuðina að auðveldara var að svara fyrsta símtali mínu en að hafa mig rígbundinn við skrifstof- una allan daginn.“ Katzenberg situr á berangurs- legri skrifstofu sinn í Disney-kvik- myndaverinu. Hvítir veggir, hvít teppi, hvítt skrifborð, hvítir glugga- hlerar frá lofti til gólfs. Ekkert til að trufla hárnákvæman þankagang hans annað en tvær litlar myndir af fjögurra ára gömlum tvíbumnum hans og blá minnisblöð, þakin tillög- um til starfsfólksins. Áð venju er glas af Diet Coke við hendina. Hef- ur „aldrei tekið inn ólöglegt efni“, rétt rekið tunguna í áfengi ef skyld- an kallar. Dós af Diet Coke bíður hans á skrifborðinu að morgni; hann svolgrar í sig 12 til 18 slíkar á dag. Þar til fyrir ári hataði hann bragðið af Diet Coke og drakk Diet Pepsi. Þegar svo Disney-skemmti- garðamir gerðu samkomulag við Coca-Cola, skipti Katzenberg sam- dægurs yfir — liðsandinn til fyrir- myndar. Og hann ákvað að hætta reykingum er bytjað var á Star Trek, fyrstu kvikmyndinni sem hann fékk að hafa yfímmsjón með hjá Paramount. „Þetta var stressað- asta augnablik æfinnar, ég vissi að ef ég gæti hætt þá væri ég hættur að eilífu," segir hann. Katzenberg stjómar „sjóinu" hjá Disney en snilli Eisners er unhverf- is og allt í kring. „Vegna óheyrilegs vinnutíma fóm gæði vinnunnar framhjá fólki,“ segir James L. Brooks, leikstjóri og handritshöf- undur Broadcast News. „Allir álitu fáránlegar vinnustundimar sem uppbætur á því sem hann hafði ekki af að státa. Enginn gerði sér grein fyrir að hann hefur afburða greind, ekkert minna.“ Til þessa hafa 15 af 17 myndum Katzenberg — sem flestar em gam- anmyndir — slegið í gegn. The Color of Money, með Paul Newman og Tom Cmise, hefur ein haft af þeim dým stjörnum að státa sem em í svo miklu uppáhaldi hjá hinum kvikmyndavemnum. í staðinn hefur Disney dustað rykið af kvikmynda- stjömum, hverra nýjustu myndir hafa bmgðist, eða notað sjónvarps- stjörnur sem hafa ekki átt vel- gengni að sækja á hvíta tjaldinu - Bette Midler, Richard Dreyfuss, Danny DeVito, Robin Williams, Tom Selleek, Ted Danson og Shell- ey Long. Líkt og þeir menn sem ráku kvik- myndaverksmiðjurnar á fjórða ára- tugnum, er Katzenberg stuttur og kotroskinn og ástfanginn af kvik- myndum. Sem þeir, hefur hann litla tilfínningu fyrir sögunni, rétt kann- ast við nöfn einsog Carl Laemmle og Harry Warner, en hann er að brydda upp á nýjungum. „Vel- heppnuð störf fylgja í kjölfarið," segir Barry Diller, stjómarformaður 20th Century Fox og fyrmm hús- bóndi þeirra beggja, Eisners og Katzenbergs, hjá Paramount. „Katzenberg er að gera eina stór- virkið í kvikmyndabransanum í dag því hann hefur afmarkað hann fyr- ir sjálfan sig.“ Það sem Katzenberg hefur skap- að er samansaumað kvikmyndaver — „það er ekki hægt að umbera nirfilshátt þeirra,“ segir Sam Cohn — með því að leggja áherslu á að semja handritin, ástríðufullri umönpun fyrir smáatriðum, hafa lag á að ginna unga höfunda að skrifa uppá langtíma samninga með loforðum um tækifæri að fá að leik- stýra eða framleiða og hæfni að skjalla eða hóta leikumm og leik- stjómm til að þiggja minni laun þar en annarsstaðar. „Starfsferill minn var í rúst,“ segir Bette Midler, er hún útskýrir hversvegna hún var tilbúin að skrifa undir einkasamn- ing við Disney eftir myndirnar Down and Out in Beverly Hills og Ruthless People, 10. og 8. vinsæl- ustu mynd 1986. „Afhveiju ætti ég ekki að treysta þeim?" Undirbúningsferill mynda Disney er harðneskjulegur og samningarnir stífir. Framleiðendum á samningi em tryggðir 225 þús. dalir, en ann- arsstaðar hljóðar sú upphæð að meðallagi uppá 350 þús. dali. í of- análag er þeim ætlað að gera tvær myndir á ári, gagnstætt einni á tveggja ára fresti hjá öðmm kvik- myndaverum. „Jeffrey er ósmeykur við að segja: „Þú átt að fá minna vegna þeirra forréttinda að vinna fyrir Disney,“ er haft eftir Katzen- berg. Og hann æpir líkt og smánað- ur biðill, ef leikari kýs að gera samning við annað kvikmyndaver. Hvað sem því líður, njóta topp- leikstjórar sama ftjálsræðis hjá Disney og annarsstaðar, þá kvik- myndataka er hafin. Katzenberg var heppinn að taka við Touchstone, merki til að fram- leiða myndir fyrir fullvaxta, stofnað 1984 af tengdasyni Walt Disney, Ronald L. Miller. Touchstone- myndir Katzenbergs fylgja einföld- um uppskriftum, frekar notast við fleiri leikara en eina stjörnu. Stöku sinnum, sbr. Three Men and a Baby, er hugmyndin fengin að láni úr öðmm myndum, í þessu tilfelli ný- legri, franskri. „Allar okkar myndir byggjast á mjög sterkri og fmm- legri gmndvallarhugmynd," segir Katzenberg. „Við beijumst við að finna viðfangsefni sem grípur áhuga áhorfenda á skipulagslaus- um markaði. Og við gemm þetta um of. „Three Men . . .“ er hin end- anlega hefndarmynd konunnar; með því að skora á þijá pipar- sveina, sem lifa karlrembulífi, að annast ungbarn, knýr það um- heiminn að opna augun fyrir því að ungbarnagæsla er ekkert smá- mál. Og myndir okkar marka stefn- ur. Við hófum gerð gamanmynda fyrir fullorðna því enginn annar var að því.“ Klukkan níu að morgni sunnu- dags eftir þakkargjörðardag, geng- ur Katzenberg niður Mickey Avenue, aðalgötu Disney-kvik- myndaversins. Hann heldur á fjór- um lítmm af appelsínusafa, stórri kampavínsflösku og sætabrauði. Ekkert annað kvikmyndaver tíma- setur markaðsfundi á sunnudags- morgnum. Að fundi loknum mun hann gera grín að þvingunarhvöt sinni með því að segja: „Gleðilega þakkargjörðarhelgi og takið ykkur frí sem eftir er dagsins." Hann hefur lofað að dansa á fundarborð- inu — versta niðurlæging sem hann getur hugsað sér — morguninn eft- ir ef miðasala laugardagsins á Three Men . . . hefur farið yfir 4 millj. dala. (Sem hún og fer, og fimm vikum síðar Vérður Three Men... önnur myndin í kvik- myndasögunni sem leiðir hópinn á þakkargjörðardag, jólum og nýári; Rocky IV var sú fyrsta. Og 18. jan- úar gekk Katzenberg skrefí lengra, er hann lagðist á fundarborðið eftir að Good Moming, Vietnam, með Robin Williams, tók inn 11,7 millj. dala í vikunni sem myndinni var dreift um þver og endilöng Banda- ríkin. Þegar Katzenberg útlistar mis- muninn á Disney og öðmm kvik- myndaverum, segir hann: „Það eru 25 hlutir sem við gemm, engin rót- tæk áform." Eftirtekt smáatriða er undirstaða þessara 25 hluta. Katz- enberg skrifaði eitt sinn viðkomandi umsjármönnum bréf þar sem hann tilkynnti að salemi væri bilað á ákveðnum stað í einum skemmti- garðinum. Fyrir skömmu mælti hann sjálfur með teikningum af böngsum og köttum sem Sears og McDonald munu selja til að auglýsa Oliver and Company, nýja teikni- mynd. „Við notum ekki rófur — slæm sölumennska að veifa róf- unni,“ segir hann. „Við tökum aldrei óþarfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.