Morgunblaðið - 22.03.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
35
Reuter
Armenar S mótmælagöngu í Jerevan. Myndin er tekin 8. marz sl. Á mótmælaborðanum stendur „Bræðra-
lag sýna menn með athöfn en ekki með blóðsúthellingu".
Þjóðernisólgan í Armeníu og Azerbajdzhan:
Pravda segir að ekki verði
orðið við kröfum Armena
Moskvu. Reuter.
Viðræður um Afganistan í Genf:
Sendimaður S.Þ.
kveðst bjartsýnn
Vonir bundnar við fund
Shultz og Shevardnadzes
íienf, Keuter.
PRA VDA, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, skýrði i
gær í fyrsta sinn frá þjóðemi-
sólgunni í Armeníu og
Azerbajdzhan, landssvæðum í
Sovétríkjunum fyrir sunnan
Kákasusfjöll. Pravda sagði að
ólgan hefði verið miklu um-
fangsmeiri en áður hefði verið
gefið til kynna í sovézkum fjöl-
miðlum. Skellti blaðið skuldinni
á leiðtoga í Armeníu og Az-
erbajdzhan og sagði þá ekki hafa
hrint í framkvæmd umbótum,
sem fyrirskipaðar hefðu verið
eftir að Mikhaíl Gorbatsjov, aðal-
ritari sovézka kommúnista-
flokksins, tók við vöidum.
Pravda lýsti atburðunum í Arm-
eníu og Azerbajdzhan og sagði upp-
haf átakanna vera samþykkt þings-
ins í Nagomo-Karabakh 20. febrúar
sl. um að sameina bæri héraðið
Armeníu. íbúar svæðisins em að
mestu Armenar en tengsl þess við
Azerbajdzhan hafa verið meiri þar
sem fjallgarður skilur það frá Arm-
eníu. Blaðið sagði að tugþúsundir
manna hefðu efnt til mótmælaað-
gerða í Stepanakert, höfuðbæ Nag-
omo-Karabakh, eftir samþykkt
þingsins og krafízt þess að héraðið
yrði sameinað Armeníu. Hundruð
þúsunda manna hefðu krafízt hins
sama í aðgerðum í Jerevan, höfuð-
borg Armeníu. Pravda gaf til kynna
að ekki yrði orðið við kröfum þeirra.
Að sögn Prövdu var frekari að-
gerðum frestað til 26. marz eftir
Bonn. Reuter.
RITARI, sem vann á skrífstofu
Helmuts Schmidts, kanzlara
Vestur-Þýzkalands, á árunum
1974-77 og eftir það í ráðuneyti,
sem fjallar um þróunaraðstoð við
erlend ríki, hefur viðurkennt að
hafa njósnað fyrir Austur-
Þýzkaland.
Vestur-þýzk blöð skýrðu frá því
á sunnudag að ritarinn væri ein-
hleyp kona á fímmtugsaldri og héti
Elke Falk. Að sögn embættismanna
að Gorbatsjov hafði lofað því að
taka kröfur mótmælendanna til
sérstakrar athugunar. Óeirðir bmt-
ust hins vegar út í Sumgajt í Az-
erbajdzhan 28. febrúar. Pravda
ítrekaði fyrri yfírlýsingar yfírvalda
og sagði að 32 menn hefðu beðið
bana í óeirðunum í Sumgajt og á
annað hundrað manns slasast.
Heimildir úr röðum andófsmanna
segja að manntjónið hafí verið
margfalt meira.
Pravda sagði að 60 fyrirtækjum
í Armeníu hefði verið lokað vegna
þjóðemisátakanna og að starfsemi
iðnfyrirtækja í Nagomo-Karabakh
hefði lamast. Þá hefðu uppþotin í
Sumgajt valdið miklu efnahagstjóni
þar sem jámbrautasamgöngur
hefðu legið niðri af þeirra völdum.
Fonnannaskipti vora höfð í
kommúnistaflokknum í Sumgajt í
kjölfar óeirðanna og hefur Dzhang-
ir Muslim-Zade, verið rekinn úr
flokknum. Einnig hefur lögreglu-
sljóri borgarinnar, sem aðeins var
nafngreindur sem Dzhafarov í
Prövdu í gær, verið settur af og
rekinn úr flokknum. T. Y. Mamedov
var einnig settur af sem borgar-
stjóri í Sumgajt og sagði í Prövdu
að hann og fyöldi annarra háttsettra
fíokksmanna hefðu verið látnir
sæta þungri refsingu.
Tatarar handteknir
Atján Tatarar efndu til mót-
mælaaðgerða í Moskvu á sunnudag
en voru handteknir skömmu eftir
er ekki talið að njósnir hennar hafí
valdið miklu tjóni. Hún hafí ekki
haft aðgang að skjölum, sem varða
öryggi landsins. f þróunarmála-
ráðuneytinu hafi hún hins vegar
haft aðgang að leyniskýrslum um
ríki, sem vestur-þýzk yfírvöld hafí
hugleitt að veita efnahagsaðstoð.
Vestur-þýzka leyniþjónustan
hafði fylgst með Falk í eitt ár.
Austur-þýzkur útsendari tók upp
ástarsamband við hana og fékk
hana til njósna.
að þeir birtust með mótmælaborða
við bókasafn, sem kennt er við
Lenín. Hlutu 17 þeirra áminningu
en einn var fluttur til heimaborgar
hans, Tashkent, höfuðborgar Uz-
bekistans.
Þegar jarðarfararathöfninni lauk
í Kirkju heilagrar Agnesar, hélt
líkfylgdin af stað til Milltown-
kirkjugarðsins. Þá kom grár Volks-
wagen akandi á móti líkfylgdinni,
uppi á gangstéttinni. Þegar hann
hafði farið fram hjá fyrstu tveimur
bílunum, stöðvaði hann og sneri
við, en þá komu bílarnir í líkfylgd-
inni i veg fyrir, að hann kæmist á
brott.
Múgurinn réðst að bílnum. Nokk-
urt hlé varð að aðförinni, þegar
skot kvað við, en henni var sfðan
haldið áfram. Rúður vora brotnar
í bflnum og mennimir dregnir út
úr honum. Þeim var misþyrmt á
götunni, en síðan ekið með þá og
brott, og þeim misþyrmt enn frek-
ar, áður en þeir vora skotnir af
IRA-mönn'um. Loks vora þeir skild-
ir eftir á auðu svæði ekki langt frá
þeim stað, þar sem ráðist var á
bílinn. Kaþólskur klerkur kom
fyrstur að þeim og reyndi að lífga
annan mannanna við, þar sem hann
sýndi svolítið lífsmark. Það bar
engan árangur.
Þetta ofbeldisverk hefur vakið
DIEGO Cordovez, starfsmaður
Sameinuðu þjóðanna, sem haft
hefur milligöngu í viðræðunum
í Genf um fríð i Afganistan og
brottför sovéska hersins þaðan,
sagði í gær að viðræðurnar hefðu
tekið nýja stefnu. Megin vanda-
málin sem við er að etja eru þó
enn óleyst og erlendir sendimenn
í Genf telja að eigi skríður að
komast á viðræðurnar verði She-
vardnadze og Shultz að gefa út
yfiríýsingu um Afganistan-málið
á tveggja daga fundi þeirra sem
hefst í Washington á morgun.
Cordovez sagði við fréttamenn
er hann kom til að hefja íjórðu við-
ræðu-vikuna í þessari samninga-
lotu, að hann teldi þáttaskil hafa
orðið í viðræðunum í síðustu viku.
Um brottflutning sovésks herliðs
frá Afganistan sagði hann: „Það
er augljóst eftir viðræður síðustu
viku að Sovétmenn vilja vinna að
þvi að binda enda á þessa styrjöld."
Fulltrúi Pakistan í samninga-
nefndinni, Zain Noorani, var ekki á
sama máíi og Cordovez. „Síðasta
vika silaðist áfram án þess að nokk-
uð gerðist," sagði hann er hann kom
til viðræðnanna í gær. Hann endur-
tók fyrri ummæli sín þess efnis að
Pakistanar myndu undirrita samn-
ing þegar gengið hefði verið frá því
sem þeir telja vera lykilatriði.
Stórveldin era ekki beinir þátt-
takendur í viðræðunum í Genf, en
almennan viðbjóð og reiði. Sjón-
varpsmyndir náðust af því, þegar
múgurinn réðst að bflnum, en félag-
ar í IRA skipuðu sjónvarpsmönnum
að hætta að taka myndir, þegar
mennimir höfðu náðst út og bytjað
var að misþyrma þeim.
Á ferð milli stöðva
Herinn á Norður-írlandi hefur
lýst yfir, að mennimir tveir hafi
verið á leið frá einni herstöð til
annarrar og engum skyldum haft
að sinna í sambandi við útförina.
Þeim hafí verið sagt af því, hvar
hún færi fram, áður en þeir lögðu
af stað. Engin skýring hefur enn
fengist á því, af hverju þeir fóra
ekki stystu leið, en lögðu lykkju á
leið sína og mættu líkfylgdinni.
Hermennimir vora vopnaðir, en
hleyptu einungis af einu skoti og
vörðu sig ekki með byssunum. Tals-
menn hersins hafa lofað þann aga,
sem hermennimir sýndu við þessar
ótrúlegu aðstæður.
Tom King Norður-írlands-mála-
ráðherra sagði, að það þyrfti aðeins
þau styðja hvort um sig við bakið
á samningsaðilum. Vonir era
bundnar við að Edúard Shevardnad-
ze utanríkisráðherra Sovétríkjanna
og George Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna muni gefa út yfirlýs-
ingu um Afganistan-viðræðumar á
fundi þeirra í Washington í dag.
Talið er að slík yfírlýsing geti kom-
ið skriði á samningamálin í Genf
sem að mati erlendra sendimanna
eru stóra stopp.
Brasilía;
60 farast í
bifreiðaslysi
Rio De Janeiro, Reuter.
AÐ minnsta kosti 60 manns fór-
ust og 13 slösuðust er vöruflutn-
ingabifreið sem flutti fólkið fór
út af fjallvegi í norðvestur-hluta
Brasilíu og féll 50 metra niður í
gljúfur.
Flestir þeirra sem létust vora
konur og böm sem vora á leið frá
bænum Coracao de Maria til Sao
Felix, sem er í um 100 km fjarlægð
frá Salvador höfuðborg héraðsins
Bahia, til að taka þátt í trúarhátíð.
Átti bifreiðin 5 kílómetra ófama er
slysið varð. Orsök slyssins er talin
vera hemlabilun.
að horfa á myndimar af þessum
kaldriQuðu morðum til að skilja þá
illmennsku, sem fælist í hryðjuverk-
um. Hann fyrirskipaði rannsókn á
málinu þegar í stað og hélt til Norð-
ur-írlands á sunnudagskvöld til að
kynna sér niðurstöður hennar.
Hann gaf þinginu skýrslu um málið
í gær.
Talsmenn IRA hafa lýst því yfir,
að mennimir hafí verið njósnarar
sérsveita hersins (SAS). Það komi
fram í skírteinum, sem þeir hafí
borið á sér.
Lögreglan fjarri
Lögreglan á Norður-Írlandi
ákvað fyrir útför hryðjuverkamann-
anna þriggja á miðvikudag í síðustu
viku að halda sig frá útförinni.
Kaþólska kirkjan og ýmsir stjórn-
máJamenn höfðu lagt hart að lög-
reglunni að gera það. Morð hafa
verið framin við tvær útfarir síðan.
Búist er við, að hart verði lagt að
lögreglunni að breyta um stefnu.
Mary Holland, blaðamaður The
Observer á írlandi, kom að líkum
hermannanna í sama mund og
klerkurinn, sem áður er getið. Hún
fór til að hringja á sjúkrabíl. Þegar
hún kom til baka, vora her og lög-
regla komin á vettvang og búið að
breiða yfír blóðstokkin líkin. Þegar
hún gengur í áttina að líkunum,
kemur á móti henni unglingur og
segir „Stutt gaman, en skemmti-
legt.“
Viðurkennir njósnir
fyrir A-Þýzkaland
Breskir hermenn vegnir á N-írlandi:
Morðín vekja almenn-
an viðbjóð og reiði
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðains.
TRYLLTUR múgur stuðningsmanna IRA, írska lýðveldishersins,
myrti tvo hermenn í Belfast á laugardag. Verið var að jarða Kevin
Brady, félaga í IRA, og líkfylgdin hafði rétt lagt af stað frá Kirkju
heilagrar Agnesar, þegar grár Volkswagen kom aðvífandi. Múgur-
inn réðst að bflnum, og misþyrmdi tveimur mönnum, sem í honum
voru. Þeir voru fluttir á brott og skotnir. Yfirvöld á Bretlandseyjum
hafa fordæmt þennan verknað, sem hefur vakið almennan viðbjóð
og reiði.