Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
r l Utvarpsvekjarar frá SIEMENS til fermingargjafa
RG 278: Venjuleg skífu-
klukka. Vekur með útvarps-
dagskrá eða suðhljómi.
Blundhnappur.
Verð: 2680 kr.
V___________________________/
r
RG 281: Vekur með út-
varpsdagskrá eða suð-
hljómi. Blundhnappur.
Svæfir.
Verð: 2370 kr.
>
RG 296: Með snælduhólfi.
Vekur með útvarpsdagskrá,
suðuhljómi eða snælduleik.
Blundhnappur. Svæfir.
Verð: 2860 kr.
V____________________________/
RG 283: Vekur með út-
varpsdagskrá eða suð-
hljómi. Blundhnappur.
Svæfir.
Verð: 2020 kr.
v__________________________/
SMITH& NORLAND
NÓATÚNI 4 - SÍMI 28300
V______________:______/
Um Guð o g heimínn
Erlendar baokur
Siglaugur Brynleifsson
Umberto Eco: Úber Gott und
die Welt. Essays und Glossen.
Deutsch von Burkhart Kroeber.
Deutscher Taschenbuch Verlag
1987.
Umberto Eco hefur um tuttugu
ára skeið skrifað greinar og styttri
athugasemdir í ítölsk dagbiöð um
margvísleg efni, tímabærar ádrepur
og hugrenningar um táknfræði og
listir, pólitík og ferðalýsingar. Þýð-
andinn og höfundur hafa valið
greinamar úr þremur greinasöfnum
sem birst hafa á árunum 1967 til
1983. Greinamar eru valdar með
tilliti til annarra lesenda en ítalskra,
og þeim sleppt, sem eru mjög
bundnar ítölsku umhverfí og með-
vitund.
Greinar Ecos eru „spjall á torg-
um“, skrifaðar í þægilegum rabbstíl
manna sem hittast á torginu og
spjalla um viðburði dagsins og kem-
ur þá margt upp.
Aðaleinkenni skrifa Ecos er að
hann sér margt öðrum augum en
almennt er, sér atburði og fyrir-
brigði frá sínu sérstaka sjónarhomi
og víkkar þar með sjónarsviðið.
Greinunum er skipt í nokkra efnis-
þætti.
Eins og kunnugt er skrifaði Eco
fræga bók um klaustralíf á miðöld-
um, sem er einnig leynilögreglu-
saga, einnig skrifaði hann kver um
bókina. Fyrstu greinamar í þessu
greinasafni eru „Leiðin inn í nýjar
miðaldir". Skoðun Ecos á miðöldum
er bundin upplausn Rómaríkis og
sundrungu f ótal einingar, þar sem
Umberto Eco
barbaramir taka völdin og þar með
hefjast hinar myrku aldir. Afturför
verður á flestum sviðum, bæði and-
legum og verklegum. Það tekur að
rofa til á 11. og 12. öld og þá skap-
ast grundvöllur evrópskrar sið-
menningar úr ótal þáttum, ekki síst
áhrifum Aristótelesar og síðar hl.
Thomasar. Áður en áhrifa þeirra
tók að gæta var grundvöllurinn
lagður m.a. fyrir áhrif frá Serkjum.
Upplausn og hrun Rómaveldis
hefur orðið mörgum tilefni til sam-
antekta og í þessari grein vitnar
Eco í bók eftir Roberto Vacca. í
þeirri bók dregur höfundur upp
ískyggilega mynd af því sem hann
telur að gæti gerst hér og nú ef
það margslungna kerfí tækni-
væddra samfélaga hryndi vegna
nokkurra daga rafmagnsleysis.
Sögusviðið er New York og afleið-
ingamar verða hrikalegar. Allar
samgöngur stöðvast þegar í stað,
viðskipti sömuleiðis og enga orku
er lengur að hafa til ljósa, hitunar
og framleiðslu. Stjómkerfíð hrynur
og öll samfélagsform gufa upp. Sú
mynd sem Vacca dregur upp verður
Eco tilefni til nokkurra samlíkinga
á rómversku samfélagi fyrir fall
Rómar og nútíma tæknivæddum
samfélögum og hann sér og útlistar
ýmiskonar samsvörun margra
þátta.
Annar kafli safnsins er ferðasaga
um Kalifomíu og skoðun safna og
mannlífs. Síðan flallar Eco um fjöl-
miðlana og áhrif þeirra, táknfræði
og kenningar Barthes og Foucaults,
tungumálið og valdið og lokagreinin
er skrifuð í tilefni 700 ára ártíðar
heilags Thomasar frá Aqvinó.
Allar þessar greinar eru
skemmtilegar og höfundurinn er
meistari tenginganna og samlíking-
anna. Hann sér skyldleika þar sem
virðist fljótt á litið um andstæður
að ræða. Grein hans um galla-
buxnatískuna og fatatískuna nú og
fyrrum og víxlverkanir samfélags-
meðvitundar og tískunnar er dæmi
um tengingar og samlíkingar. Eco
er snjall að fínna gamlar goðsögur
í nýjum formum, sem eru talin ný
og frumleg en bera í sér inntak
goðsagnanna og oft þess sem viss
tegund nútímamanna kallar hjátrú,
en það er einmitt áberandi hversu
heimskuleg hjátrú á greiðan aðgang
að þeirri tegund manna nú á dögum
sem blaðra hvað mest um nútíma-
viðhorf og nútíma-þjóðfélög. Þar
ræður ríkjum „ignorantsía og stult-
itsfa".
Hjátrúin blómstrar ekki sízt þar
sem menn halda sig hafa ráðið nið-
urlögum hennar.
DYRAVÖRÐURINN SEM
ALDREI SEFUR Á VERÐINUM
Þú þarft ekki lengur að taka úr þér hrollinn
þegar heim kemur eftir að Stanley bíl-
skúrshuröaropnarinn er kominn f
þjónustu þína. Þú ýtir á senditækið, það
kviknar Ijós, bílskúrshurðin opnast og þú
ekur inn í ylinn og stígur þurrum fótum
út úr heitum bílnum þínum.
ÞÚ FERÐ BETUR MEÐ BILINN ÞINN
Á morgnana losnar þú við að skafa ísinn af
rúðunum, eða þurrka snjóinn af og bíllinn
fer strax í gang. Þetta er ekki sagt út í blá-
inn því að reynslan sýnir að það eru ótrú-
lega margir sem nenna ekki að láta bílinn
inn í bílskúr ef mikið er fyrir því haft.
1. Sterk og örugg færslubraut.
2. Við uppsetningu er óþarfi að fjarlægja
mótorhlífina því að það er hægt að
stilla búnaðinn utanfrá.
3. Öryggisljós kviknar í hvert sinn er hurð-
in opnast og lokast, - logar í 31/2 mfn-
útu - slokknar sjálfkrafa.
ÞÆGINDI OG ÖRYGGI ERU AÐALATRIÐI
Hurðin hefur öryggisloka þ.e. hún hörfar til
baka ef einhver fyrirstaða er f veginum.
Það þekkir enginn lykilnúmerið nema þú
og þínir nánustu. Þú getur valið úr 1024
rafsegulbylgjum á senditækinu þínu og
getur breytt merkjasendingunni þegar þér
sýnist. Það ætti því ekki að vera auðvelt
fyrir óviðkomandi að komast inn í húsið
þitt með öðru senditæki.
Opnarinn er samþykktur af Rafmagnseftir-
liti Ríkisins og Radíóeftirliti Landsímans.
Stanley bílskúrshurðaropnarar
fástí öllum helstu byggingarvöruverslunum.
OPNAR HURÐINA
KVEIKIR UÓSIÐ
LOKAR HURÐINNI
LÆSIR HURÐINNI
ALLAR STANLEY VÖRUR
ERU VIÐURKENNDAR FYRIR GÆÐI
STANLEY