Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 55

Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988 Hvað talar Jón Baldvín Hanní- balsson mörgum tungum? eftir Magnús Þorkelsson Jón Baldvin Hannibalsson þarf nú, fyrrverandi skólameistarinn, að fara í krossferð gegn kennarastétt- inni í landinu. Enda ætlar hún að sprengja kjarastefnu ríkisstjórnar- innar og gera allskonar ófyrirleitnar kröfur sem leggja landið í rúst. Þetta er fáheyrt, enda búið að gera hverja könnunina á fætur annarri á kjörum stéttarinnar og lofa því að hver og ein verði tekin gild og til umræðu eftir að hún kæmi uppá yfirborðið. Sérhver þessara kann- ana hefur leitt af sér nýja. Sérhver hefur verið hundsuð af samninga- nefnd ríkisins. Sú nýjasta, sem var birt í nóvember, kemst að þeirri niðurstöðu að margt þurfi að bæta í skólum landsins, þar á meðal kjör starfsmanna skólanna. Lagðar eru fram ijölmargar hugmyndir sem ekki fást ræddar af viti við samn- ingaborðið og nú þegar fulltrúar ríkisvaldsins opinbera álit sitt á málinu í fjölmiðlum veltir maður því fyrir sér hvers vegna kennarar létu bjóða sér það að gera saman- burðarskýrslu fyrir réttu ári. í þijá mánuði hefur hvorki gengið né rek- ið í samningamálum. Ekki hefur verið tekið á fjölmörgum bókunum sem fylgdu síðasta samningi svo heitið geti. Þar á meðal bókunum er víkja að endurbótum á kennara- menntun. Þessir háu herrar fjargviðrast yfir kaupi kennara. Það sé svo og svo hátt með yfirvinnu. En hver er samanburðurinn? Veit herra fjár- málaráðherra ekki um holræsakerfi launamála ríkisins? Kennarar fara fram á launahækkun, þið vitið, þessir sem hafa svo mikla yfírvinnu að þeir eru að drukkna í peningum. Hvað með alla þá hópa ríkisstarfs- „Við erum í raun að heyja okkar baráttu við aðra ríkisstarfsmenn sem farnir eru fyrir löngn að semja á grund- velli feluleikja og laumuspila.“ manna sem fá dijúgan hluta þessar- ar yfirvinnu borgað án þess að vinna fyrir henni? Við förum fram á að greitt sé fyrir það að leggja fram heimili okkar, síma og tölvur til handa skólanum. Fá ekki prestar álag fyrir að tala við sóknarböm heima hjá sér? Við förum fram á bætta aðstöðu til endurmenntunar. Fá ekki fjölmargir, t.d. læknar o.fl. lestíma, ferðalög til útlanda og margt annað? Staðreyndin er sú að við erum ekki að keppa á jafnréttis- grundvelli. Sú persónuuppbót sem kennarar fá frá ríkinu er lægri en margra annarra. Hjúkrunarfræð- ingar hafa komistupp með að vinna hálfa vinnu sem kallað er og fá vinnu þar umfram greidda sem yfir- vinnu. Þetta er kallað holræsakerfi launa hjá ríkinu og það hefur graf- ið svo hressilega undan öllu að ríkis- valdið á sjálft í vandræðum með að veija það og fela. Og það er til- búið að greiða suirium á þessum grundvelli en ekki öllum. Fæstir kennarar em tilbúnir til að taka þátt í svona skollaleik. Við emm í raun að heyja okkar baráttu við aðra ríkisstarfsmenn sem famir em fyrir löngu að semja á gmndvelli feluleikja og laumuspila. Þetta veit Jón Baldvin en til þess að fela vand- ræði sín og forvera sinna fer hann í skollaleikinn sem hann fordæmdi í þingræðu er kennarar sögðu upp og gengu út fyrir fjórum ámm. Þess vegna talar hann tveimur tungum og veit það. Eg er ekki í hópi þeirra sem vildu verkfall fyrir ári. Frammistaða Ind- riða og fleiri manna sannfærði mig þá. Ætlar Jón Baldvin að hvetja fleiri en mig til að vilja verkfall í ár? Höfundur er kennari. í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI JOGURT með jarðarberjum 100g MEIRIJOGURT ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!* .* Eða réttara sagt 102 g þegar miðað er við verð á jógúrt í 180 g dósum. Tílheyrir þú samrýndri fjölskyldu sem kemur sér saman um hlutina, þar á meðal bragðtegundir? Pú drýgir heimilispeningana með því að kaupa eina stóra dós af jógúrt frekar en 2-3 litlar. Það er óneitanlega smábúbót þessa dagana. ... HVERVILL EKKIGERA GÓÐ KAUP? ~TVS~ Sjáðu nú til: 500 g dós af jógúrt kostar 73 kr.* 180 g dós af jógúrt kostar 33 kr.* Sem sagt: Það er 20,4% ódýrara að kaupa stóra dós. leiðbeinandi verð. 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.