Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
Hvað talar Jón Baldvín Hanní-
balsson mörgum tungum?
eftir Magnús
Þorkelsson
Jón Baldvin Hannibalsson þarf
nú, fyrrverandi skólameistarinn, að
fara í krossferð gegn kennarastétt-
inni í landinu. Enda ætlar hún að
sprengja kjarastefnu ríkisstjórnar-
innar og gera allskonar ófyrirleitnar
kröfur sem leggja landið í rúst.
Þetta er fáheyrt, enda búið að gera
hverja könnunina á fætur annarri
á kjörum stéttarinnar og lofa því
að hver og ein verði tekin gild og
til umræðu eftir að hún kæmi uppá
yfirborðið. Sérhver þessara kann-
ana hefur leitt af sér nýja. Sérhver
hefur verið hundsuð af samninga-
nefnd ríkisins. Sú nýjasta, sem var
birt í nóvember, kemst að þeirri
niðurstöðu að margt þurfi að bæta
í skólum landsins, þar á meðal kjör
starfsmanna skólanna. Lagðar eru
fram ijölmargar hugmyndir sem
ekki fást ræddar af viti við samn-
ingaborðið og nú þegar fulltrúar
ríkisvaldsins opinbera álit sitt á
málinu í fjölmiðlum veltir maður
því fyrir sér hvers vegna kennarar
létu bjóða sér það að gera saman-
burðarskýrslu fyrir réttu ári. í þijá
mánuði hefur hvorki gengið né rek-
ið í samningamálum. Ekki hefur
verið tekið á fjölmörgum bókunum
sem fylgdu síðasta samningi svo
heitið geti. Þar á meðal bókunum
er víkja að endurbótum á kennara-
menntun.
Þessir háu herrar fjargviðrast
yfir kaupi kennara. Það sé svo og
svo hátt með yfirvinnu. En hver er
samanburðurinn? Veit herra fjár-
málaráðherra ekki um holræsakerfi
launamála ríkisins? Kennarar fara
fram á launahækkun, þið vitið,
þessir sem hafa svo mikla yfírvinnu
að þeir eru að drukkna í peningum.
Hvað með alla þá hópa ríkisstarfs-
„Við erum í raun að
heyja okkar baráttu við
aðra ríkisstarfsmenn
sem farnir eru fyrir
löngn að semja á grund-
velli feluleikja og
laumuspila.“
manna sem fá dijúgan hluta þessar-
ar yfirvinnu borgað án þess að
vinna fyrir henni? Við förum fram
á að greitt sé fyrir það að leggja
fram heimili okkar, síma og tölvur
til handa skólanum. Fá ekki prestar
álag fyrir að tala við sóknarböm
heima hjá sér? Við förum fram á
bætta aðstöðu til endurmenntunar.
Fá ekki fjölmargir, t.d. læknar o.fl.
lestíma, ferðalög til útlanda og
margt annað? Staðreyndin er sú að
við erum ekki að keppa á jafnréttis-
grundvelli. Sú persónuuppbót sem
kennarar fá frá ríkinu er lægri en
margra annarra. Hjúkrunarfræð-
ingar hafa komistupp með að vinna
hálfa vinnu sem kallað er og fá
vinnu þar umfram greidda sem yfir-
vinnu. Þetta er kallað holræsakerfi
launa hjá ríkinu og það hefur graf-
ið svo hressilega undan öllu að ríkis-
valdið á sjálft í vandræðum með
að veija það og fela. Og það er til-
búið að greiða suirium á þessum
grundvelli en ekki öllum. Fæstir
kennarar em tilbúnir til að taka
þátt í svona skollaleik. Við emm í
raun að heyja okkar baráttu við
aðra ríkisstarfsmenn sem famir em
fyrir löngu að semja á gmndvelli
feluleikja og laumuspila. Þetta veit
Jón Baldvin en til þess að fela vand-
ræði sín og forvera sinna fer hann
í skollaleikinn sem hann fordæmdi
í þingræðu er kennarar sögðu upp
og gengu út fyrir fjórum ámm.
Þess vegna talar hann tveimur
tungum og veit það.
Eg er ekki í hópi þeirra sem vildu
verkfall fyrir ári. Frammistaða Ind-
riða og fleiri manna sannfærði mig
þá. Ætlar Jón Baldvin að hvetja
fleiri en mig til að vilja verkfall í ár?
Höfundur er kennari.
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
JOGURT
með jarðarberjum
100g MEIRIJOGURT
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!*
.* Eða réttara sagt 102 g þegar miðað er við verð á jógúrt í 180 g dósum.
Tílheyrir þú samrýndri fjölskyldu sem kemur sér
saman um hlutina, þar á meðal bragðtegundir?
Pú drýgir heimilispeningana með því að kaupa
eina stóra dós af jógúrt frekar en 2-3 litlar.
Það er óneitanlega smábúbót þessa dagana. ...
HVERVILL EKKIGERA GÓÐ KAUP? ~TVS~
Sjáðu nú til: 500 g dós af jógúrt kostar 73 kr.*
180 g dós af jógúrt kostar 33 kr.*
Sem sagt: Það er 20,4% ódýrara að kaupa stóra dós.
leiðbeinandi verð.
1