Morgunblaðið - 22.03.1988, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
59
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Börnin o g framtíðin
Okkur hjónin langar til að eignast börn. En okkur finnst
svo voðalegt ástandið í heiminum að við óttumst að þeirra
bíði erfið framtíð. Finst þér rétt að hugsa á þessa leið?
Ef þú tækir að kynna þér mannkynssöguna efast eg um að
þú fyndir nokkurt tímabil þar sem allt væri með friði og spekt
og engar blikur á lofti, hvorki óvissa né styijaldir. Væri ástand-
ið þolanlegt á vettvangi þjóðfélagsmála og stjórnmála þá hijáðu
okkur náttúruhamfarir og farsóttir.
Þetta breytir að vísu ekki þeirri staðreynd að jarðarbúar
eru illa á sig komnir um þessar mundir. Nú eru miklir óvissu-
tímar og þó að læknavísindin hafi tortímt ýmsum ógnvöldum
sem jafnvel síðustu kynslóð stóð stuggur af hefur tækniþróun
nútímans fengið okkur í hendur vopn sem eru svo skæð að
með þeim má eyða heimsmenningunni á fáeinum klukkustund-
um.
En Guð hefur framtíðina á sínu valdi. „Drottinn er konung-
ur orðinn, jörðin fagni,“ (Sálm. 97,1.) Mér kemur í hug sá
tími er Jeremía spámaður var uppi. Frá honum segir í Gamla
testamentinu. Þá þjáðust margir. Gyðingaþjóðin hafði verið
herleidd til Babýlon og vissi ekki hvað vi mundi taka. Eg er
sannfærður um að margir hafa spurt sömu spumingar og þú,
en drottinn sagði þeim fyrir munn Jeremía: „Takið yður konur
og getið sonu og dætur. Takið sonum yðar konur og giftið
dætur yðar til þess að þær megi fæða sonu og dætur... því
að ég þekki þær fyrirætlanir sem eg hef í hyggju með yður,
fyrirætlanir til heilla, að veita yður vonarríka framtíð.“ (Jer.
29,6,11.)
Þennan boðskap gat Jeremía flutt vegna þess að Guð ríkti
yfir framtíðinni jafnt sem fortíð og samtíð. Það merkir ekki
að allt muni ganga börnum okkar í haginn. En ábyrgð okkar
er augljós:
Ef Guð gefur okkur böm ber okkur að leitast við af fremsta
megni að veita þeim andlegan styrk svo að þau geti einnig
horft hugprúð til framtíðarinnar í von til Guðs.
Minning:
Jóhann G. Eagúels
Ingim undarson
Um morguninn 11. febrúar fékk
ég þær hörmulegu fréttir að vinur
minn Jóhann Gunnar Ragúels Ingi-
mundarson hefði látist þá um nótt-
ina. Það er eins og við séum svo
upptekin af að lifa sjálf, að dauðinn
kemur okkur ávallt í opna skjöldu
þegar við þurfum að horfa á eftir
vinum og vandamönnum að maður
tali nú ekki um, þegar um hrausta
menn í blóma lífsins er að ræða.
Jóhann Gunnar var fæddur 24.4.
’31 hér á Akureyri og bjó hér alla
tíð og vorum við á líkum aldri. Leið-
ir okkar Jóhanns lágu fyrst saman
þegar við um fermingu vorum sam-
an í brúarvinnu hjá Þorvaldi Guð-
jónssyni brúarsmið og tókst þar
með okkur sú vinátta sem varði
alla tíð. Jóhann hafði mjög heil-
steypta skapgerð og persónuleika
til að bera og var einn af þeim
mönnum sem allir báru alveg sér-
staka virðingu fyrir, bæði þeir sem
vel þekktu hann og hinir, hann var
alltaf hrókur alls fagnaðar í góðra
vina hópi og man ég vel er við vor-
um saman við brúarsmíði að oft var
safnast saman eftir erfiði dagsins
í tjaldinu sem hann bjó í og spilaði
hann þar á harmoniku og var þá
oft tekið lagið enda var Jóhann
framúrskarandi músíkalskur. Leiðir
okkar lágu svo aftur saman í Slipp-
stöðinni 1963 þegar hann og fleiri
félagar hans stofnuðu vélsmiðjuna
Bjarma og höfum við unnið þar
saman mikið til síðan þar sem Jó-
hann var verkstjóri til fjölda ára.
Eg á Jóhanni vini mínum mikið að
þakka þar sem hann var alltaf
reiðubúinn að rétta mér hjálparhönd
þegar svo stóð á, sem var æði oft
í gegnum árin, og var það undra-
vert hversu þolinmóður og bjart-
sýnn hann var þegar til hans var
t
Ástkær eiginmaður minn, faöir, tengdafaöir og afi,
RAGNAR KRISTJÁNSSON
fyrrum yfirtollvörður,
Seljavegi 21,
sem lést sunnudaginn 13. mars sl., verður jarösunginn frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 24. mars kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Jóhanna Jóhannsdóttir,
Jóhann Kristján Ragnarsson, Guðný S. Þorleifsdóttir,
Nína Björg Ragnarsdóttir, Halldór Jóhannsson,
Gunnar Ragnarsson, Margrét Ingvarsdóttir,
Auður Ragnarsdóttir,
Ragnar Ragnarsson, Ragnheiður Hjarðar,
Jón Ragnarsson, Guðrún Guðmundsdóttir
og barnabörn.
+ Sonur okkar og bróöir, GUNNAR ÞORKELL JÓNSSON, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði, veröur jarðsunginn frá Víöistaöakirkju miðvikudaginn 23. mars kl. 15.00. Sigurlaug R. Guðmundsdóttir og fjölskylda. Jón Hreiðar Hansson og fjölskylda. + Þökkum innilega auösýndan hlýhug vegna fráfalls SOFFÍU BOGADÓTTUR frá Brúarfossi. Jóhannes Bogason og aðrir vandamenn.
, + Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlý- hug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa, SIGURGEIRS JÓHANNESSONAR húsasmíðameistara, Akurgerði 9, Reykjavfk. Sigurvin Jóhannes Sigurgeirsson, Ólafur Sigurgeirsson, Auður Ingólfsdóttir, Ingigerður Sigurgeirsdóttir og barnabörn.
t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu viö andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR HELGADÓTTUR, Stykkishólml. Ágúst Sigurðsson, Rakel Olsen, Ingibjörg Helga Ágústsdóttir, Sigurður Ágústsson, Ingigerður Selma Ágústsdóttir, Ragnhildur Þóra Ágústsdóttir.
+ Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móöur okkar, tengdamóður og ömmu, HELGU EINARSDÓTTUR, Barónsstfg 30, Reykjavfk. Guö blessi ykkur öll. Elsa E. Drageiðe, Halldór Ö. Svansson, Sigrún Guðmundsdóttir, Stefán Aðalbjörnsson, Ingimundur Guðmundsson, Kristrún Danfelsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
+ Hugheilar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna fráfalls elskulegs eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, RÖGNVALDAR KARSTEIN GUÐMUNDSSONAR, Bolungarvfk. Erla Sigurgeirsdóttir, Kolbrún Rögnvaldsdóttir, Gunnar Njálsson, Aldfs Rögnvaldsdóttlr, Kristinn H. Gunnarsson, Dagný, Erla, Rögnvaldur Karstein og Rakel Kristinsbörn.
+ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar og tengdamóöur, SIGRÍÐAR JASONARDÓTTUR, Grsanumörk 3, Selfossi. Sérstakar þakkir til Brynhildar Stefánsdóttur, Helgu Jasonardóttur og Egils Hjálmarssonar fyrir ómetanlega aöstoö við fjölskylduna á liðnum árum. Sigurður Eirfksson, Sigurhanna V. Sigurjónsdóttir. + Þökkum innilega auösýnda samúö við andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, SIGURVEIGAR GUÐBRANDSDÓTTUR, Kúrlandi 13. Margrót Þorsteinsdóttlr, Elín Þorsteinsdóttir, Sæmundur Nikulásson, Halla Valdimarsdóttir, Örn Ævarr Markússon, Sigrún Valdimarsdóttir, Björn Dagbjartsson og barnabörn.
leitað og vil ég þakka honum allt
sem hann hefur gert fyrir mig gegn-
um árin, sem sýnir hvað vinátta
slíks manns er mikils virði. Það er
sagt að alltaf komi maður í manns
stað og er það sjálfsagt rétt svo
langt sem það nær, en mér finnst
að skarðið hans Jóhanns vinar míns
verði seint fyllt, að öllum öðrum
ólöstuðum. Það er mikill sjónar-
sviptir að manni eins og Jóhanni
og söknuður hjá vinum og vanda-
mönnum þegar svo góður og mikil-
hæfur maður hverfur' úr hópnum
en minning hans lifir og með þakk-
látum huga og blessunaróskum
kveð ég vin minn, mér er hugsað
til konu hans og bama og bama-
bama og bið góðan Guð að styrkja
þau í þessari þungu raun og megi
drengskapur Jóhanns og umhyggja
verða þeim að leiðarljósi.
Pétur Helgason
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis-
og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við
greinum á ritstjórn blaðsins á 2.
hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og
á skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að grein-
ar verða að berast með góðum fyrir-
vara. Þannig verður grein, sem birt-
ast á í miðvikudagsblaði að berast
síðdegis á mánudegi og hliðstætt
er rneð greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin
til birtingar frumort ljóð um hinn
látna. Leyfilegt er að birta ljóð eft-
ir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal
þá höfundar getið. Sama gildir ef
sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir
fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir
sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára eða eldra.
Hins vegar eru birtar afmælisfrétt-
ir með mynd í dagbók um fólk sem
er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöld
til ki. 22,- einnig um heigar.
Skreytingar við öii tilefni.
Gjafavörur.