Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
63
Jón Sveinsson
„Byggðarlögin verða
með góðu eða illu að
öðlast stj órnarf arslegt
og efnahagslegt sjálf-
stæði, með héraðs-
stjórnum, héraðsbönk-
um og sjálfstæðum
tekjustofnum.“
köllun til þjónustu. Stór hópur al-
mennings fyrirlítur stjómmál en
fylgir skoðanalaust þeim stjóm-
málaflokki sem „reddar" fyrir þá
smáláni og lætur svo lítið að senda
þeim jólakort með fjölritaðri undir-
skrift.
Mælistika menntunar
Menntun er á íslandi mæld í
fjölda stúdenta, sem sumir em vart
læsir eða skrifandi og engin
menntastofnun erlendis tekur leng-
ur við án eigin prófa. Offjölgun í
vissum háskólagreinum hefur leitt
til útflutnings á menntamönnum
sem síðar helga öðmm samfélögum
starfskrafta sína án þess að þau
hafi orðið að bera kostnaðinn af
menntun þeirra.
Litið er niður á verkmenntun og
hún látin sitja á hakanum þrátt
fyrir að verðmætasköpun þjóðar-
innar sé í höndum þeirra er hennar
eiga að njóta.
Tískugreinar dagsins em: Stjóm-
málafræði, félagsfræði, mannfræði,
sálarfræði, félagsráðgjöf og fleiri
vandamálafræðigreinar, sem þykj-
ast geta beitt aðferðum raunvísind-
anna á manninn og eilíf barátta við
að réttlæta gildi þessara „vísinda"
fyrir manninn era nokkur af ein-
kennum iðkendanna.
Fagmenntun í fiskveiðum
og landbúnaði
Okkar hefðbundnu atvinnugrein-
ar, landbúnaður og fískveiðar, eiga
sínar góðu menntastofnanir sem
enginn tekur eftir eða berst fyrir
svo hægt sé að efla þær. Brýnt er
að RALA flytjist að Hvanneyri og
fjármagni veitt í iíftæknirannsóknir
er leitt geti til bættra afurða sem
mætt geti breyttum neysluvenjum
og að markaðsþátturinn verði ekki
vanræktur.
Sjómannaskólarnir mennta
fagfólk sem ekki stendur að baki
koilegum sinum í nágrannalönd-
unum, en það er meira að þakka
ötulum fomstumönnum þeirra skóla
en fulltrúum útgerðar eða rfkis-
valds. Þessar stofnanir ætti ekki
að skorta skilning og þær ættu
ekki að þurfa að betla til þess að
halda t horfínu heldur ættu þær að
geta orðið leiðbeinandi og eftirsótt-
ar jafnvel erlendis frá. Opna þarf
fleiri leiðir til framhaldsnáms og er
útgerðartækni þar til fyrirmyndar.
Úti á landsbyggðinni reyna rétt-
indalausir og lítt menntaðir „kenn-
arar“, meira af vilja en mætti að
manna gmnnskólana því að gmnd-
vallarmenntun upprennandi kyn-
slóðar er láglaunastarf og mennta-
og ijölbrautaskólar sem em byggð-
ir án þess að þeim séu sköpuð þau
skilyrði er þarf og þeir reyna því
að fleyta mörgum nemandanum
sem foreldramir hafa komið í
geymslu og því verður kennslan
ómarkviss og prófín verða léttari
sem em einskis virði þegar nota
þarf kunnáttuna til vinnu eða frek-
ara náms.
í Stýrimannaskólanum veitist
stúdentum lítið iéttara námið en
þeim nemendum sem koma beint
úr gmnnskóiunum.
Grunnskólar
í gmnnskólanum sitja hinar
hefðbundnu greinar, lestur, skrift
og reikningur úti í kuldanum en
föndur kemur í staðinn. Ekki má
gera neitt tii þess að auka féiagsleg-
an þroska eða efla siðferðisvitund-
ina. Ekki er heldur samtímasaga
eða hið lýðræðislega stjómskipulag
á dagskrá. Of flókið? Jæja, hvað
með stærðfræðiatriði, sem yfir 90%
nemenda munu aldrei á lífsleiðinni
hafa þörf fyrir og hrært er saman
við gmndvallaratriði reiknings
þannig að nemendur ná á hvomgu
tök. Grunnskólamir ættu að vera
bestu skólar í öllu menntakerfinu.
Þeir ættu að hafa á að skipa hæf-
ustu kennumm og vera færir um
að útskrifa hugsandi, gagmýna og
skapandi einstaklinga en ekki múg-
manneskjur. Andstöðu stjómmála-
manna gegn þessu er auðvelt að
skilja því þá kæmu fram kjósendur
sem hugsuðu sjálfstætt. Þá færi
fólk (kjósendur) að dæma stjóm-
málaflokka eftir verkum þeirra en
ekki eftir því hve frambjóðendur
væm slyngir að skipta um ham og
tala eins og hentaði hveiju sinni.
Þessum kafla er ekki ætlað að
vera einskonar reiðilestur og
ekki væri þetta ritað ef ekki
væri fyrir hendi trú á framtíð
þessa veika lýðveldis.
Þá er það óþarfí að tíunda allt
sem vel er gert, en það myndi þeg-
ar til lengdar léti gefa mönnum þá
hugmynd að vinna verk sitt vel
væri eitthvert undantekningartil-
felli og staðallinn væri að skila sínu
hlutverki seint og illa.
Hraða þarf menntun
Færa þarf sérgreinar niður á
framhaldsstigið þannig að fólk geti
fyrr lokið menntun og fengið starfs-
réttindi, en leiðum þarf að halda
opnum, þannig að alltaf sé hægt
að bæta við þekkingu sína síðar.
Þessu mundi fylgja aukin sérhæfíng
en menntakerfíð ætti þrátt fyrir það
að vera fært um að veita fólki inn-
sýn í hinar húmanísku greinar og
það gildi sem þær hafa fyrir ríkari
skilning og lífsviðhorf sem leitast
við að ná lengra en til brauðsstrits
og æxlunar. Rjúfa þarf samasem-
merkið sem sett hefur verið milli
menntunar og skólunar, því að
hægt er að veija hálfri æfínni á
skólabekk án þess að verða nokkm
skilningsríkari eða gefa samfélagi
sínu nokkuð.
Einkaskólar
Einn er sá blettur á íslensku
menntakerfí sem ekki er bara til
vitnis um ágalla þess heldur einnig
merki um aukna stéttaskiptingu og
misrétti og er það stofnun einka-
skóla fyrir böm efnaðra foreldra
og þeir em reknir með niðurgreiðsl-
um skattborgaranna, sem aldrei
myndu hafa efni á að senda af-
kvæmi sín þangað. Var þessari
stofnun lýst sem framför og hvatn-
ingu til annarra gmnnskóla um að
bæta sig.
f raun var þetta hin mesta,
stjómunarlega gjaldþrotayfírlýsing
sem nokkur ráðherra gat látið frá
sér fara. Já, — fólkið hóf þá hugsun-
arlaust upp halelújasöng og for-
dæmdi um leið alla sem höfðu at-
hugasemdir á okkar dæmigerðu
skopstælingu á lýðræði.
Hver er þér kærastur?
Oft hefur verið á það bent að
athuga gjörðir en ekki orð til þess
að fínna hvað þeim er kærast Flest-
ir myndu nefna bömin sín. í þjóð-
félaginu em þó þeir sem annast
bamagæslu og uppfræðslu hom-
rekur, hvað varðar bamagæslu og
uppfræðslu erannað í orði en á
borði. Ef til vill er það ekki talið
arðbært að fjárfesta í ungviðinu á
íslandi.
Þegar ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins fjalla um menntamál, fé-
lagsmál og heilbrigðismál beita þeir
einsog refurinn slævisku hugtökum
eins og „að fara ofan í vasa almenn-
ings eftir peningum til aukinna út-
gjalda", en ekki er þetta orðbragð.
notað þegar þarf að greiða Haf-
skipsreikninginn eða auka milljarð-
inn sem fór í flugstöðina í Keflavík.
Ekki er heldur talað um að hlífa
skattgreiðendum þegar stofnuð em
ný embætti fyrir flokksbræður og
ættingja og það án fyrirheita um
árangur. Hvað þá um kröfur eða
starfsreynslu.
Almenningur kýs svo þá sem
brosa og dansa fallegast í sjón-
varpinu og segja skemmtilega
brandara. Almenningur vill ekki þá
sem vinna með skilgreiningar, beita
rökvísi og beijast fyrir betra þjóð-
félagi. Þeim er lýst sem „haturs-
fullum" og „egoistiskum" vilji þeir
ekki.vera með í fegurðarsamkeppn-
inni til Alþingis. Þeir sem taka ekki
Don Juan sér til fyrirmyndar em
vonlausir, því að Aristoteles og Pla-
ton eiga ekki upp á pallborðið hjá
alþýðunni lengur.
Menntun er mannréttindi en
ekki forréttindi og þeir sem búa
á Rifi og á Raufarhöfn eiga jafn-
mikinn rétt á henni og þeir sem
eiga heima í Amarnesinu og á
Vesturbrún.
Höfundur er frá Miðhúsum í
Reykhólasveit, nú nemi íháskóla
íNew York.
Opnunartónleikar
Eftirlitið
í kvöld á
Fylgist með frá byrjun.
Opiðfrá kl. 21.00-01.00.
\\\
DAGVIST BARIMA.
AUSTURBÆR
Austurborg — Háaleitisbraut 70
Dagheimilið Austurborg óskar eftir uppeldis-
menntuðum starfsmanni í stuðning sem
fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 38545.
Múlaborg v/Ármúla
Vegna skipulagsbreytinga höfum við lausa
stöðu fyrir einn starfsmann við uppeldisstörf.
Upplýsingar gefa forstöðumenn
í síma 685154 næstu daga.
líMElU-BIX
UÓSRITUNARVÉLAR
Harðplast
parket
þetta sterka
Færibönd
fyrir allan
iðnað
Getum útvegað með
stuttum fyrirvara allskonar
færibönd úr plasti og stáli
fyrir smáiðnað sem
stóriðnað; matvælaiðnað,
fiskvinnslu og
verksmiðjuiðnað.
Fjölbreyttir möguleikar.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍM1.6724 44
Herðatré fyrir verslanir
íúrvali
WlF.OFKASMIUAIi
SÖLUDEILD
HÁTEIGSVEGI7. S: 21220