Morgunblaðið - 22.03.1988, Page 73

Morgunblaðið - 22.03.1988, Page 73
ÚTGERÐ OG AFLABRÖGÐ MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988 73 Páskastopp neta- bátanna skrítið fríðunarsjónarmið - segir Páll J. Pálsson skipstjóri Grindavík „ÉG TRÚI því ekki fyrr en ég tek á því að ekki verði betra fiskirí i vetur en búið er að vera,“ sagði Páll J. Pálsson, skipstjóri á Sighvati GK, er fréttaritari Morgunblaðsins ræddi við hann um helgina. „Ætli fiskiríið byrji ekki þegar við verðum að taka upp netin fyrir páskana svo togararnir fái að ryksuga upp fiskinn á netaslóðinni, en það er skrítið friðunarsjónarmið," bætti Páll við. Sighvatur GK hefur verið út- undan hjá okkur í aflapistlunum undanfamar vikur þar sem mikið af hans afla hefur farið í gáma og vigtartöiur hafa ekki legið á lausu á hafnarvigtinni hér í Grindavík en þar eru tölumar fengnar jöfnum höndum. Páll upplýsti fréttaritara um að aflaverðmæti frá áramótum hjá Sighvati GK væri orðið um 16 milljónir króna fyrir 341,6 tonn og er báturinn nú í fjórða sæti af Grindavíkurbátum en Páll var verðmætakóngur eftir vertíðina í fyrra. Um miðjan mánuðinn var Skarfur í efsta sæti með 412,8 tonn, Hafberg GK í öðra sæti með 398,7 tonn, Vörður ÞH með 376,7 tonn, Sighvatur. GK með 341,6 tonn og í fimmta sæti Geirfugl me*> 324,5 tonn. í síðustu viku glæddist þorsk- fískirí heldur sérstaklega hjá bát- um í Röstinni. Aflahæstur yfír vik- una var Hópsnes GK nieð 63,5 tonn í 6 róðram en Kópur GK var í öðra sæti með 60,6 í fímm róð- ram. Af litlu bátunum var Þor- bjöm II GK með 40,7 tonn í sex róðram. Fiskirí var lélegt í troll hins vegar og landaði Kári KE 3,1 tonn í fjóram róðram en Oddgeir ÞH fékk 32 tonn einn daginn. Síðan var lélegt eftir það. Eldeyj- ar-Hjalti landaði 19,8 tonnum í einni löndum en hann er á línu. Loðnuhrognataka er að nálgast lokin í bili og enn er ekki útséð með hvort hægt sé að vinna loðnu- hrogn úr austari göngunni. - Kr.Ben. Sighvatur GK Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Páll J. Pálsson, skipstjóri á Sighvati GK, til hægri ásamt föður sínum, Páli H. Pálssyni, útgerðarmanni í Grindavík. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Enginnafli á Olafsvík' Ólafsvfk. ÞAÐ er skemmst frá því að segja héðan úr Ólafsvík að varla fékkst bein úr sjó í síðustu viku. Stóru vertíðarbátamir voru að fá þetta 1—2 tonn i róðri. Slík ördeyða hefur ekki þekkst hér áður nema þá dag og dag. Vonir manna um sæmilega vertíð dvína með hveijum degi sem líður. Engin loðna er komin hingað ennþá. Nú er vika til veiðibannsins sem gildir um páska og eftir páskana^ aðeins tvær vikur sem gætu gefið einhvem afla að ráði. Útlitið er því dökkt fyrir alla aðila. Hins vegar gerast ævintýrin yfírleitt fyrirvara- lítið og hví ekki að vonast eftir betri tíð og batnandi hag. - Helgi Höfn, Hornafirði: Aflinn um 3.640 tonn í vikunni Höfn, Homafirði. TIL Fiskiðjuvers kaupfélagsins bárust 819 tonn í vikunni og þar af komu handfærabátar með 26,2 tonn. Afli Skinneyjarbáta var 184,2 tonn, Skinney með 66,9 tonn, Stein- unn með 59,4 tonn og Freyr með 57,9 tonn. Faxeyrarbátar komu með 108,6 tonn, Haukafell með 60 tonn, þar af 24 tonn í einum róðri og Vísir með 48,6 tonn. Þeir hafa aflað um 400 tonna hvor á vertí- ðinni. * Fiskimjölsverksmiðja Homa- ijarðar tók á móti 2.500 tonnum af loðnu í vikunni og er aflinn á vertíðinni nú um 25.000 tonn. Þorlákshöfn: Vikuaflinn 978 tonn Þorlákshöfn. 35 BÁTAR lönduðu í síðustu viku alls 978 tonnum í 154 lönd- unum. Þrír hæstu netabátarnir eru Jóhann Gíslason með 76 tonn, Arnar með 58 tonn og Jóhanna með 34 tonn. Hæstu dragnótarbátamir era Dalaröst með 93 tonn og Njörður með 60 tonn. Hæsti trollbáturinn í vikunni var Stokksey með 70 tonn. Einn línubátur landaði og fékk hann 50 tonn í þremur róð- ram. Togarinn Þorlákur landaði 13. mars sl. 148 tonnum, aðallega góðum þorski. - JHS Keflavík: Tregur afli hjá stærri bátunum Keflavík. FREMUR tregur afli var hjá stærri bátunum f síðustu viku, en minni netabátarnir og trillur sem róa með net fengu hinsveg- ar þokkalegan afla. Færabát- arnir gátu lítið róið, komust þó einn dag á sjó og fengu þá ailt uppí 1.600 kfló. Eldeyjar-Boði sem rær með línu var aflahæsti báturinn með 35,5 tonn sem fékkst í 2 róðram og Albert Guðmundsson KE sem einnig rær með línu fékk 25 tonn í 2 róðram. Stafnes KE var afla- hæstur af stóra netabátunum með 30.3 tonn, Þorsteinn KE var með 23,8 tonnn, Hrímnir SH var með 20.3 tonn, Búrfell 19,3 tonn, Happasæll 19 tonn og Skagaröst KE 13,4 tonn. Ágætt var hjá minni netabátun- um og trillunum sem sækja ör- stutt og var Elín sem á netin rétt fyrir utan hafnargarðinn með 7,4 tonn. Dragnótabátamir gátu lítið verið að, Amar var með 14,4 tonn og Hvalsnes 9,4 tonn. Loðnubátur- inn Harpa RE landaði tvívegis samtals um 1.100 tonnum og fór hluti af aflanum til vinnslu. - BB Frá löndun f Þorlákshöfn. Morgunblaðið/J6n H. Sigurmundsson Sandgerði: Þokkalegt hjá netabátunum Keflavik. NETABÁTARNIR voru að fá þokkalegan afla f vikunni og var Einir aflahæstur með 69,5 tonn, Arney KE var með 56,8 tonn, Sæborg 51,8 tonn Hafnarberg 37,9 tonn og Þorkell Árnason 34,8 tonn. Minni netabátarnir voru einnig með ágætis afla, Bragi fékk 24,4 tonn, Fagranes 11,3 tonn og Hafborg 9,3 tonn. Færabátamir fengu ágætis afla þegar gaf og fékk Glampi 2,1 tonn f einum róðrinum. Heldur hefur dregið úr aflanum hjá línubátunum, Jón Gunnlaugs var með 32,1 tonn í 3 róðram, Una í Garði 20,1 tonn í 2 róðrum og Víðir II 20 tonn í 2 róðrum. Af minni bátunum var Sóley aflahæst með 11,7 tonn í 2 róðrum og Víðir var með 10 tonn í 4 róðram. Geir var aflahæstur af dragnótabátun- um með 38,8 tonn, Baldur var með 28,2 tonn, Reykjaborg 20,5 tonn og Njáll 17,5 tonn. Færabátarnir gátu lítið verið að vegna veðurs, Hildur fór þó í 4 róðra og fékk 5,7 tonn, Kópur fékk 4,5 tonn í 2 róðr- um og Logi 2,3 tonn í 2 róðram. Togaramir Sveinn Jónsson og Haukur lönduðu 300 tonnum í vik- unni. Sveinn Jónsson var með 150 tonn sem voru að mestu leyti þorsk- ur og Haukur landaði 150 tonnum og vora um 100 tonn af aflanum ýsa. Þá var nokkru magni af loðnu landað í Sandgerði, Dagfari ÞH Iandaði þrívegis samtals 1.450 tonnum og fór hluti af aflanum til vinnslu. Einnig lönduðu Sjávarborg, Harpa og Keflvíkingur einhveiju magni af loðnu sem fór bæði til vinnslu og bræðslu. - BB

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.