Morgunblaðið - 22.03.1988, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
Fulltrúi íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva valinn:
Sverrir Storm-
sker sigráði
með yfirburðum
LAGIÐ „Þú og- þeir“ eftir Sverri
Stormsker sigraði með miklum
yfirburðum í gærkvöldi, þegar
keppt var um hvaða lag verður
sent fyrir íslands hönd i söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva. Allar dómnefndirnar átta
greiddu lagi Sverris tólf stig,
sem er hæsta stigagjöf. Alls hlaut
lagið því 96 stig, eða 33 stigum
meira en lagið í öðru sæti, „Ást-
arævintýri“. Það er því ljóst að
Sverrir og söngvari lagsins, Stef-
án Hilmarsson, verða fulltrúar
íslands i keppninni.
Úrslitakeppninni var sjónvarpað
í ríkissjónvarpinu í gær. Fyrst voru
öll lögin tíu, sem kepptu til úrslita,
leikin og siðan kváðu dómnefndir
upp sinn dóm. Ein dómnefnd var í
hveiju kjördæmi, eða átta, og voru
þær skipaðar 11 manns, á öllum
aldri og af báðum kynjum. Þegar
í upphafí atkvæðagreiðslu var ljóst
að stefndi í yfirburðasigur Sverris
og enginn lagahöfundur komst með
tæmar þar sem hann hafði hælana.
ar landanna flytja lög sín og munu
þeir Sverrir og Stefán stíga fyrstir
á sviðið sem fulltrúar íslands.
Af samtölum við lögregluna í
gærkvöldi er ljóst, að djolmargir
Islendingar fylgdust með úrslita-
keppninni í gær. „Það var ekkert
hringt í okkur á meðan á keppninni
stóð,“ „Ég held að flestir hafí verið
heima við sjónvarpið," „Allt stein-
dautt hjá okkur", voru svörin, sem
fengust þar á bæ. Líkur eru á að
sama verði uppi á teningnum þegar
lokakeppnin hefst í Dyflinni þann
30. apríl.
Mor(funblaðið/BAR
Halla Margrét Arnadóttir, sem söng sigurlagið í fyrra, Hægt og
htfótt, smellir rembingskossi á sigurvegarann Sverri Stormsker.
Raunhæfir mögn-
leikar í Dyflinni ?
Þegar allar dómnefndimar átta
höfðu greitt atkvæði var ljóst að
Sverris var með fullt hús stiga. í
öðru sæti varð lagið „Ástarævin-
týri“, eftir Eyjólf Kristjánsson, Inga
Gunnar Jóhannsson og Aðalstein
Ásberg Sigurðsson og hlaut það 63
stig. Þriðja sætið hreppti lagið
„Mánaskin", eftir Guðmund Áma-
son og Aðalstein Ásberg Sigurðs-
son, en dómnefndir greiddu laginu
61 stig.
Eftir að úrslit voru kunn afhenti
Hrafn Gunnlaugsson, dagskrár-
stjóri sjónvarpsins, Sverri ávísun
upp á 450 þúsund krónur. Þá fjár-
haeð á höfundurinn að nota til að
greiða kostnað við förina til Dyfl-
innar, þar sem úrslitakeppnin fer
fram þann 30. apríl. Þegar hefur
verið dregið um í hvaða röð fulltrú-
Tónlist
Sveinn Guðjónsson
EF hægt er að tala um skynsemi
í sömu andrá og Eurovision þá
held ég að landsmenn hafi farið
skynsamlega að ráði sínu i gær-
kvöldi, þegar þeir völdu lag
Sverris Stormskers til að keppa
fyrir hönd þjóðarinnar í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva á vori komanda. Lagið er
eins og sniðið fyrir keppnina og
raunar læðist að manni sá grunur
að það eigi raunhæfa möguleika
í Dyflinni, þótt reynslan hafi
kennt okkur Islendingum að tala
varlega um slfka hluti.
Sverrir er yngstur þeirra höf-
unda, sem sendu lag í keppnina að
þessu sinni, aðeins 24 ára gamall.
Hann var þó orðinn þjóðkunnur
tónlistarmaður fyrir og mörg laga
hans hafa notið vinsælda, einkum
meðal yngra fólks. Það kom hins
vegar mörgum á óvart, ekki síst
aðdáendum hans, þegar uppvíst
varð að hann hafði sent lag í þessa
keppni enda hefur Eurovision fram
til þessa ekki þótt líklegur vettvang-
ur fyrir menn eins og Sverri. En
hann kom, sá og sigraði og það
með miklum glæsibrag, enda var
atkvæðagreiðslan í gærkvöldi nán-
ast formsatriði, slíkir vom yfirburð-
imir.
Að öðmm þáttökulögum ólöstuð-
um held ég að lagið „Þú og þeir“
eigi mest erindi í Eurovisionkeppn-
ina og ber þar margt til. Laglínan
er grípandi og auðlærð, í laginu er
ákveðinn stígandi og viðlagið hrífur
hlustandann með sér. Þetta er ein-
mitt sú formúla sem Eurovision
gengur út á og Sverrir gengur þar
hreint til verks af mikilli fag-
mennsku. Ekki sakar heldur góð
útsetning lagsins, en heiðurinn af
henni átti Eyþór Gunnarsson, og
reyndar útsetti hann einnig lögin
sem urðu í öðm og þriðja sæti.
Textinn í lagi Sverris hefur einn-
ig ákveðna sérstöðu og þar er á
vissan hátt sneitt framhjá vanda-
máli, sem öðmm höfundum hefur
sést yfir fram til þessa. Það er al-
kunn staðreynd að íslenskan hljóm-
ar í eyrum útlendinga eins og
fínnska í okkar eymm. Sverrir leys-
ir þetta vandamál með því að flétta
ýmsum alþjóðlegum nöfnum inn í
texta sinn og fyrir bragðið hlýtur
hann að verða áheyrilegri í eyrum
útlendinga en ella. Textinn er að
vísu ekki merkilegur kveðskapur,
en undir þessum kringumstæðum
skiptir það ekki máli. I Eurovision
er ekki spurt um hvort rétt sé kveð-
ið á fmmmálinu og dómnefndir
víðsvegar um Evrópu láta sig engu
varða um hvað verið er að syngja.
Hins vegar hlýtur það að vekja sam-
úð, til að mynda Grikkja, að heyra
Sókratesar getið af og til í textan-
um, svo dæmi séu tekin. Ég legg
þó til'að nafni lagsins verði breytt
fyrir keppnina í Dyflinni og mætti
til dæmis kalla það „Sungið fyrir
Sókrates" eða eitthvað í þá áttina
þar sem viðbúið er að það gæti
bögglast fyrir einhverjum að bera
fram þ-in í „Þú og þeir“ og vissara
að taka enga áhættu í þeim efnum.
Hinn ungi og bráðefnilegi söngv-
ari, Stefán Hilmarsson, stendur sig
vel í flutningi lagsins og sjálfur er
Stormsker hinn reffílegasti við
flygilinn. Hins vegar fínnst mér að
Stefán mætti endurskoða fram-
komu sína fyrir úrslitakeppnina.
Þetta ráp I kringum flygilinn er
hálf vandræðalegt og yrði eflaust
til bóta ef Stefán kæmi sér upp
nokkmm afbrigðum af dæmigerð-
um „eurovisionsveiflum" með til-
heyrandi steppi, mjaðmasveiflum
og handapati.
Hér að framan lét ég að því liggja
að ef til vill væri nú komið fram lag
sem ætti raunhæfa möguleika í
sjálfri Eurovision keppninni. Ég
stend við það, en vara jafnframt
við óhóflegri bjartsýni, sem okkur
íslendingum hefur áður orðið hált
á. Um leið og ég óska Sverri til
hamingju vil ég beina þeirri frómu
ósk til hans að gæta sín örlítið í
orðum og athöfnum þegar til ír-
lands er komið. Glannalegar fullyrð-
ingar, þótt sagðar séu í gríni, gætu
eyðilagt fyrir honum upplagt tæki-
færi, sem ef til vill kemur aldrei
aftur.
Borgar- nes ÍM- fjörður Sauðár- krókur Akur- eyri Egils- staðir Hvols- völlur Hafnar- fjörður Reykja- vfk Samtals Röð
Eitt vor eftir Kristin Svavarsson og HalldófGunnarsson. Pálmi Gunnarsson syngur. CM 1 1 CM 1 1 CM CM 12 10
í fyrrasumar eftirGrétarörvarssonog InoólfSteinsson. Grétar Orvarsson og Gigja Sigurðardóttir syngja. 1 10 3 3 5 3 CO 6 34 7
Ástarœvlntýri eftir Eyjólf Kristjánsson, Inga G. Jóhannsson og AðalsteinÁ. Sigurösson. Eyjólfur og Ingi G. syngja. 10 7 7 7 10 10 4 8 63 CM
Sólarsamba eftir Magnús Kjartansson og HalldórGunnarsson. Magnús Kjartansson og Margrét G. Magnúsdóttir syngja. 5 5 5 4 co 6 5 4 37 6
Aftur og aftur eftirJakob Magnússon. Bjami Arason syngur. 3 3 CM 1 CM 4 1 1 17 9
Mánaskin eftir Guðmund Ámason og Aðalstein Á. Sigurðsson. Eyjólfur Kristjánsson og SÍgrúnWaage syngja. 6 8 8 10 8 7 7 7 61 3
Látum sönglnn hljóma eftir Geirmund Valtýaaon og HjálmarJónsson. Stefán Hilmarsson syngur. 7 6 10 8 7 8 6 5 57 4
Þúogþelr eftirSverriStormsker. Stefán Hilmarsson syngur. 12 12 12 12 12 12 12 12 96 1
ítangó eftir Gunnar Þóröarson og Þoretein Eggertsson. BjðrgvinHalldóresonog Edda Borg syngja. 8 4 6 6 6 5 10 10 55 5
Dagaftirdag eftir Valgeir Skagfjórö. Guðrún Gunnarsdóttir syngur 4 CM 4 5 4 CM 8 3 32 8