Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 75

Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988 Fulltrúi íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva valinn: Sverrir Storm- sker sigráði með yfirburðum LAGIÐ „Þú og- þeir“ eftir Sverri Stormsker sigraði með miklum yfirburðum í gærkvöldi, þegar keppt var um hvaða lag verður sent fyrir íslands hönd i söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Allar dómnefndirnar átta greiddu lagi Sverris tólf stig, sem er hæsta stigagjöf. Alls hlaut lagið því 96 stig, eða 33 stigum meira en lagið í öðru sæti, „Ást- arævintýri“. Það er því ljóst að Sverrir og söngvari lagsins, Stef- án Hilmarsson, verða fulltrúar íslands i keppninni. Úrslitakeppninni var sjónvarpað í ríkissjónvarpinu í gær. Fyrst voru öll lögin tíu, sem kepptu til úrslita, leikin og siðan kváðu dómnefndir upp sinn dóm. Ein dómnefnd var í hveiju kjördæmi, eða átta, og voru þær skipaðar 11 manns, á öllum aldri og af báðum kynjum. Þegar í upphafí atkvæðagreiðslu var ljóst að stefndi í yfirburðasigur Sverris og enginn lagahöfundur komst með tæmar þar sem hann hafði hælana. ar landanna flytja lög sín og munu þeir Sverrir og Stefán stíga fyrstir á sviðið sem fulltrúar íslands. Af samtölum við lögregluna í gærkvöldi er ljóst, að djolmargir Islendingar fylgdust með úrslita- keppninni í gær. „Það var ekkert hringt í okkur á meðan á keppninni stóð,“ „Ég held að flestir hafí verið heima við sjónvarpið," „Allt stein- dautt hjá okkur", voru svörin, sem fengust þar á bæ. Líkur eru á að sama verði uppi á teningnum þegar lokakeppnin hefst í Dyflinni þann 30. apríl. Mor(funblaðið/BAR Halla Margrét Arnadóttir, sem söng sigurlagið í fyrra, Hægt og htfótt, smellir rembingskossi á sigurvegarann Sverri Stormsker. Raunhæfir mögn- leikar í Dyflinni ? Þegar allar dómnefndimar átta höfðu greitt atkvæði var ljóst að Sverris var með fullt hús stiga. í öðru sæti varð lagið „Ástarævin- týri“, eftir Eyjólf Kristjánsson, Inga Gunnar Jóhannsson og Aðalstein Ásberg Sigurðsson og hlaut það 63 stig. Þriðja sætið hreppti lagið „Mánaskin", eftir Guðmund Áma- son og Aðalstein Ásberg Sigurðs- son, en dómnefndir greiddu laginu 61 stig. Eftir að úrslit voru kunn afhenti Hrafn Gunnlaugsson, dagskrár- stjóri sjónvarpsins, Sverri ávísun upp á 450 þúsund krónur. Þá fjár- haeð á höfundurinn að nota til að greiða kostnað við förina til Dyfl- innar, þar sem úrslitakeppnin fer fram þann 30. apríl. Þegar hefur verið dregið um í hvaða röð fulltrú- Tónlist Sveinn Guðjónsson EF hægt er að tala um skynsemi í sömu andrá og Eurovision þá held ég að landsmenn hafi farið skynsamlega að ráði sínu i gær- kvöldi, þegar þeir völdu lag Sverris Stormskers til að keppa fyrir hönd þjóðarinnar í Söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva á vori komanda. Lagið er eins og sniðið fyrir keppnina og raunar læðist að manni sá grunur að það eigi raunhæfa möguleika í Dyflinni, þótt reynslan hafi kennt okkur Islendingum að tala varlega um slfka hluti. Sverrir er yngstur þeirra höf- unda, sem sendu lag í keppnina að þessu sinni, aðeins 24 ára gamall. Hann var þó orðinn þjóðkunnur tónlistarmaður fyrir og mörg laga hans hafa notið vinsælda, einkum meðal yngra fólks. Það kom hins vegar mörgum á óvart, ekki síst aðdáendum hans, þegar uppvíst varð að hann hafði sent lag í þessa keppni enda hefur Eurovision fram til þessa ekki þótt líklegur vettvang- ur fyrir menn eins og Sverri. En hann kom, sá og sigraði og það með miklum glæsibrag, enda var atkvæðagreiðslan í gærkvöldi nán- ast formsatriði, slíkir vom yfirburð- imir. Að öðmm þáttökulögum ólöstuð- um held ég að lagið „Þú og þeir“ eigi mest erindi í Eurovisionkeppn- ina og ber þar margt til. Laglínan er grípandi og auðlærð, í laginu er ákveðinn stígandi og viðlagið hrífur hlustandann með sér. Þetta er ein- mitt sú formúla sem Eurovision gengur út á og Sverrir gengur þar hreint til verks af mikilli fag- mennsku. Ekki sakar heldur góð útsetning lagsins, en heiðurinn af henni átti Eyþór Gunnarsson, og reyndar útsetti hann einnig lögin sem urðu í öðm og þriðja sæti. Textinn í lagi Sverris hefur einn- ig ákveðna sérstöðu og þar er á vissan hátt sneitt framhjá vanda- máli, sem öðmm höfundum hefur sést yfir fram til þessa. Það er al- kunn staðreynd að íslenskan hljóm- ar í eyrum útlendinga eins og fínnska í okkar eymm. Sverrir leys- ir þetta vandamál með því að flétta ýmsum alþjóðlegum nöfnum inn í texta sinn og fyrir bragðið hlýtur hann að verða áheyrilegri í eyrum útlendinga en ella. Textinn er að vísu ekki merkilegur kveðskapur, en undir þessum kringumstæðum skiptir það ekki máli. I Eurovision er ekki spurt um hvort rétt sé kveð- ið á fmmmálinu og dómnefndir víðsvegar um Evrópu láta sig engu varða um hvað verið er að syngja. Hins vegar hlýtur það að vekja sam- úð, til að mynda Grikkja, að heyra Sókratesar getið af og til í textan- um, svo dæmi séu tekin. Ég legg þó til'að nafni lagsins verði breytt fyrir keppnina í Dyflinni og mætti til dæmis kalla það „Sungið fyrir Sókrates" eða eitthvað í þá áttina þar sem viðbúið er að það gæti bögglast fyrir einhverjum að bera fram þ-in í „Þú og þeir“ og vissara að taka enga áhættu í þeim efnum. Hinn ungi og bráðefnilegi söngv- ari, Stefán Hilmarsson, stendur sig vel í flutningi lagsins og sjálfur er Stormsker hinn reffílegasti við flygilinn. Hins vegar fínnst mér að Stefán mætti endurskoða fram- komu sína fyrir úrslitakeppnina. Þetta ráp I kringum flygilinn er hálf vandræðalegt og yrði eflaust til bóta ef Stefán kæmi sér upp nokkmm afbrigðum af dæmigerð- um „eurovisionsveiflum" með til- heyrandi steppi, mjaðmasveiflum og handapati. Hér að framan lét ég að því liggja að ef til vill væri nú komið fram lag sem ætti raunhæfa möguleika í sjálfri Eurovision keppninni. Ég stend við það, en vara jafnframt við óhóflegri bjartsýni, sem okkur íslendingum hefur áður orðið hált á. Um leið og ég óska Sverri til hamingju vil ég beina þeirri frómu ósk til hans að gæta sín örlítið í orðum og athöfnum þegar til ír- lands er komið. Glannalegar fullyrð- ingar, þótt sagðar séu í gríni, gætu eyðilagt fyrir honum upplagt tæki- færi, sem ef til vill kemur aldrei aftur. Borgar- nes ÍM- fjörður Sauðár- krókur Akur- eyri Egils- staðir Hvols- völlur Hafnar- fjörður Reykja- vfk Samtals Röð Eitt vor eftir Kristin Svavarsson og HalldófGunnarsson. Pálmi Gunnarsson syngur. CM 1 1 CM 1 1 CM CM 12 10 í fyrrasumar eftirGrétarörvarssonog InoólfSteinsson. Grétar Orvarsson og Gigja Sigurðardóttir syngja. 1 10 3 3 5 3 CO 6 34 7 Ástarœvlntýri eftir Eyjólf Kristjánsson, Inga G. Jóhannsson og AðalsteinÁ. Sigurösson. Eyjólfur og Ingi G. syngja. 10 7 7 7 10 10 4 8 63 CM Sólarsamba eftir Magnús Kjartansson og HalldórGunnarsson. Magnús Kjartansson og Margrét G. Magnúsdóttir syngja. 5 5 5 4 co 6 5 4 37 6 Aftur og aftur eftirJakob Magnússon. Bjami Arason syngur. 3 3 CM 1 CM 4 1 1 17 9 Mánaskin eftir Guðmund Ámason og Aðalstein Á. Sigurðsson. Eyjólfur Kristjánsson og SÍgrúnWaage syngja. 6 8 8 10 8 7 7 7 61 3 Látum sönglnn hljóma eftir Geirmund Valtýaaon og HjálmarJónsson. Stefán Hilmarsson syngur. 7 6 10 8 7 8 6 5 57 4 Þúogþelr eftirSverriStormsker. Stefán Hilmarsson syngur. 12 12 12 12 12 12 12 12 96 1 ítangó eftir Gunnar Þóröarson og Þoretein Eggertsson. BjðrgvinHalldóresonog Edda Borg syngja. 8 4 6 6 6 5 10 10 55 5 Dagaftirdag eftir Valgeir Skagfjórö. Guðrún Gunnarsdóttir syngur 4 CM 4 5 4 CM 8 3 32 8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.