Morgunblaðið - 29.03.1988, Síða 39

Morgunblaðið - 29.03.1988, Síða 39
ffRfófttJEÍÁffiTR 29.i'tá\Wl19fl8,l'y JÍ Belgía: Reuter Um 3.000 ellifeyrisþegar biðu klukkstundum saman eftir greiðslum sinum í Panamaborg i gær. Einungis reyndist unnt að greiða hluta þeirra en efnahagslíf Panama er í rúst vegna verkfalla stjómarand- stæðinga og refsiaðgerða Bandaríkjamanna. Dehaene fal- in stj órn- armyndun BrUssel. Reuter. BALDVIN Belgiukonungur fól Je- an-Luc Dehaene, leiðtoga flokks flæmskumælandi kristilegra demókrata, að mynda ríkisstjórn og leiða landsmenn út úr stjórnar- kreppu, sem staðið hefur i fimm mánuði. í tilkynningu frá hirðinni í gær sagði að Dehane hefði orðið við ósk konungs. Fyrir tveimur mánuðum fékk konungur honum það hlutverk að kanna möguleika á myndun nýrr- ar samsteypustjómar og reyna að sætta sjónarmið hugsanlegra sam- starfsflokka. Hann afsalaði sér um- boðinu sL fímmtudag eftir að viðræð- ur um myndun samsteypustjómar fímm flokka strönduðu á tungumála- deilu, sem varð stjóm Wilfrieds Mart- ens, að falli. Dehaene er 47 ára gam- all og var hann félagsmálaráðherra í stjóm Martens. Panama: Noriega tilbúinn til að ræða afsögn sína Washington, Panamaborg, Reuter. BANDARÍSKIR embættismenn sögðu í gær að Manuel Antonio Nori- ega, yfirmaður herafla Panama og stjórnandi landsins, hefði fallist á að senda fulltrúa til fundar við helstu leiðtoga Mið-Ameríku. Gert er ráða fyrir að á þeim fundi verði rætt með hvaða skilmálum Noriega kirnni að reynast reiðubúinn til að fara frá völdum, Stjómarandstæðing- ar í Panama boðuðu til mótmæla í gær þrátt fyrir að neyðarlög hafi verið sett i landinu. Oscar Arias, forseti Costa Rica, hefur boðað til leiðtogafundarins og er gert ráð fyrir að spænskur fulltrúi sitji hann einnig en Spánveijar hafa boðist til að veita Noriega landvistar- leyfí leggi hann niður völd. Embætt- ismenn í Panama kváðust í gær ekki getað staðfest að fulltrúi Noriega kæmi til með að taka þátt í viðræðun- um. Bandarfskir embættismenn sögðu það hins vegar ákveðið og í fréttum bandarísku sjónvarpsstöðv- arinnar NBC sagði að Noriega hygð- ist sjálfur sækja fundinn. Hann hefur hingað til vísað á bug öllum kröfum um að hann leggi niður völd. Banda- ríska dagblaðið The New York Times hafði á sunnudag eftir Elliot Abrams, aðstoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, að Noriega hefði sett sér að halda völdum fram til páska. Því mætti búast við tíðindum í byijun apríl. Panamastjóm hefur varað stjóm- arandstæðinga við frekari mótmæl- um. Þann 18. þessa mánaðar gengu neyðarlög í gildi í landinu og em hermenn gráir fyrir jámum á götum Panamaborgar. Allsheijarverkfall hefur staðið í rúma viku og hafa andstæðingar herstjórans lýst yfír því að verkfallið muni standa þar til Noriega hefur verið komið frá völd- A-Þýskaland: Sjö fóru vestur yfir um helgina Bonn, Reuter. SJÖ Austur-Þjóðveijar flúðu yfir landamærin til Vestur-Þýska- iands um helgina, að sögn landa- mæralögreglu í Vestur-Þýska- landi í gær. Landamæralögregla í Bæjara- landi sagði að sex ungir Austur- Þjóðveijar hafi farið yfir landamæri þýsku ríkjanna nálægt Tékkósló- vakíu án þess að reynt væri að hefta för þeirra. Þeir sögðu lögregl- unni í Bæjaralandi að tékkneskir hermenn hefðu séð til þeirra en ekki reynt að hindra för þeirra á neinn hátt. Nítján ára austur-þýskur piltur fór yfir landamærin í grennd við Fuldu í Hesse, að sögn lögreglu í bænum Kassel. um. Um helgina beitti stjómin í fyrsta skipti hervaldi gegn verkfalls- mönnum og haft hefur verið í hótun- um við verslunareigendur, sem ekki hafa viljað opna þrátt fyrir afdráttar- laus fyrirmæli stjómvalda. Virtust hótanir þessar hafa haft lítil áhrif í gær. Algert öngþveiti ríkir í efnahags- málum Panama bæði vegna verk- fallsins og refsiaðgerða Bandaríkja- manna en Noriega hefur verið kærð- ur fyrir skipulega dreifíngu eiturlyfja vestra. Bankar hafa verið lokaðir og litlir sem engir peningar eru í um- ferð í landinu eftir að Bandaríkja- menn tóku fyrir flutning á dollurum , sem er gjaldmiðill Panama, til landsins. Þá hafa innstæður ríkis- stjómarinnar í bandarískum bönkum verið frystar. Opinberir starfsmenn hafa ekki fengið laun sín greidd og hefur það leitt til mótmæla í Panama- borg. Þá hefur ellilífeyrisþegum lent saman við öryggissveitir af sömu ástæðum. í gær söfnuðust um 3.000 ellilífeyrisþegar saman í Panamaborg til að taka við greiðslum sínum. Ein- ungis reyndist unnt að greiða þeim sem minnstan ellífeyrir fá og var hinum sagt að bíða til morguns. Leysingar og úrkoma í Evrópu: Lýst yfir neyðarástandi í Bæjaralandi vegna flóða Bonn, Reuter. ÍBÚAR bæjarins Niederachdorf í Bæjaralandi urðu að yfirgefa heim- ili sín á sunnudag er Dóná flæddi yfir bakka sína. Eru þetta mestu vatnavextir í ánni á þessari öld, að sögn lögreglunnar í bænum. Lýst hefur verið yfir neyðarástandi i Bæjaralandi vegna flóða. Rin er lokuð allri skipaumferð og árnar Mósel og Saar eru í miklum vexti eftir rigningar um helgina. Talsmaður yfirvalda í Niederachdorf sagði að fólk sem býr næst ánni hafí verið flutt frá heimilum sínum og dveldi í skólum og félagsheimilum meðan rejmt væri að gera við gat sem kom á vamargarð við ánna. Yfirvöld í bæjum við Dóná lýstu yfir neyðar- ástandi_ eftir að flóðgarðurinn brast. Áin er enn í vexti en vatns- borð hennar er helmingi hærra en venjulega. I Köln brast flóðgarður Rínar og er eldri borgarhluti talinn í hættu. Götur í austurhluta Bonn eru undir vatni. Skipaumferð um Rín hefur verið bönnuð síðan á suunudag. Ekki er vitað hversu mikið manntjón hefur orðið af völd- um flóðanna en lítill drengur drukknaði er hann féll af reiðhjóli og vatnselgur þreif hann með sér. Austur-Þýska fréttastofan ADN sagði frá því um helgina að yfir- völd hefðu beint vatni úr ánni Elbu í skurð til þess að koma í veg fyr- ir að vatnið flæddi yfir Magdeburg. Reuter Bærinn Niederachdorf er umflotinn vatni eftir að flóðgarður brast undan vatnsþunga Dónár. 39^8 Vinningstölurnar 26. mars 1988. Heildarvinningsupphæð: 5.086.364,- 1. vinningur var kr. 2.555.784,- Þar sem enginn fékk fyrsta vinning, færist hann yfir á fyrsta vinning á laugardaginn kemur. 2. vinningur var kr. 761.345,- og skiptist hann á milli 265 vinningshafa, kr. 2.873,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.769.235,- og skiptist á milli 8.229 vinn- ingshafa, sem fá 215 krónur hver. Ath. Tvöfaldur fyrsti vinningur laugardaginn fyrir páska! SIEMENS Fjölhæf hrærivél frá Blandari og grænmetiskvörn fylgja með! ►Allt á einum armi. ► Hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar, rífur, og sker — bæði fljótt og vel. Htarlegur leiðarvísir á íslensku. Smith & Norland Nóatúni 4 — s. 28300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.